Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 80
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
30/07 20
11 | WW
W.LOTTO
.IS
Skráðu þig sem aðdáanda Lottó á
facebook.com/lotto.is
Þrefaldur Lottópottur stefnir í 16 milljónir.
Leyfðu þér smá Lottó!
16
MILLJÓNIR
SPILAÐU MEÐ!
Gott að
búa í
Kópa-
vogi?
Nýbökuð hjón í sól
n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
og nýbakaður eiginmaður hennar
Bjarni Bjarnason rithöfundur hafa
undanfarnar vikur notið sumarsins
í sólinni á Spáni. Frí ráðherrans er
eflaust langþráð og kærkomið enda
langur og strangur vetur í þeytivindu
stjórnmálanna að baki. Bjarni fær
þó minna frí en Katrín, enda starfs-
vettvangur rithöfundarins ótryggari.
Auk þess að baka sig í sólinni með
sinni heittelskuðu nýtir Bjarni fríið
einnig til þess að leggja lokahönd á
skáldsögu sem hann hefur verið með
í smíðum síðasta árið og er væntan-
leg í haust.
Stjörnufans
í Safamýri
n Tvö af frægustu knattspyrnuliðum
landsins mættust óvænt í stuttum
æfingaleik sem fram fór á Fram-
velli í Safamýrinni á þriðjudag. Liðin
sem um ræðir eru Afríka United og
KF Mjöðm. Lið Afríku vakti mikla
athygli eftir heimildamynd Ólafs Jó-
hannessonar, en í liði Mjaðmarinnar
er að finna rjómann af tónlistarfólki
landsins í bland við aðrar listaspír-
ur. Skemmst er frá því að segja að
lið Mjaðmarinnar fór með sigur af
hólmi en lokatölur urðu 4–1.
Einn markaskor-
ara Mjaðmar-
innar var Steinþór
Helgi Arnsteins-
son sem skoraði
af stuttu færi eftir
mikla baráttu. Stein-
þór er þekktastur sem
umboðsmaður og
spurninganjörður
en honum er
greinilega fleira
til lista lagt.
Ármann ráðgjafi
skilanefndanna
n Líkt og DV greindi frá á þriðjudag
gerðu hjónin Ármann Harri Þorvalds-
son, fyrrverandi forstjóri Kaupþings
í London, og Þórdís Edwald, eigin-
kona hans, nýlega með sér kaup-
mála. Þegar DV hafði samband við
Ármann til að spyrja um kaup-
málann sagðist hann enn búsettur
í London en vildi ekki upplýsa við
hvað hann starfaði í dag. Maður
sem þekkir vel til í fjármálaheimin-
um fullyrðir að Ármann sinni í dag
ráðgjafarstörfum fyrir skilanefndir
föllnu íslensku bankanna í London.
Ekki slæmt fyrir mann sem stýrði
áður Singer & Friedlander, einu
stærsta útrásarverkefni Íslendinga,
en stærsta eign bankans voru Edge-
innlánsreikningarnir.
N
ei, það er alveg ljóst,“
segir Gunnar I. Birgis-
son, bæjarfulltrúi í
Kópavogi, aðspurð-
ur hvort hann sé á leiðinni
að flytja í annað sveitarfélag.
Gunnar hefur sett einbýlis-
húsið sitt í Kópavogi á sölu
þar sem hann býr ásamt konu
sinni, Vigdísi Karlsdóttur. Um
er að ræða mjög glæsilegt 214
fermetra einbýlishús á tveim-
ur hæðum með innbyggðum
bílskúr við Austurgerði.
„Fyrst þarf að selja, svo
þarf að kaupa,“ segir Gunn-
ar um það hvort þau hjónin
séu búin að festa kaup á öðru
húsnæði. Þau ætla því að bíða
og sjá hvort húsið seljist áður
en þau ákveða næstu skref.
Gunnar telur þó líklegt að þau
muni flytja sig austar í Kópa-
voginn ef þau flytja sig á ann-
að borð. Eins og fyrr segir er
það ekki svo að Gunnar ætli
sér að flytja úr sveitarfélaginu
sem hann hefur lýst yfir að
sé gott að búa í. Bæjarbúar
í Kópavogi þurfa því ekki að
örvænta yfir að missa einn
helsta talsmann bæjarins yfir
í annað sveitarfélag.
Gunnar segir að ástæðan
á bak við fyrirhuga sölu sé sú
að þau hjónin vilji minnka
aðeins við sig, enda komin
á þann aldur. „Þetta er bara
svona eins og það gengur í líf-
inu,“ segir Gunnar en hann
og frúin verja miklum tíma í
sumarbústað sínum og hafa
því minni þörf fyrir einbýlis-
húsið góða. Einnig eru börnin
þeirra uppkomin og því ekki
þörf á jafn stóru
húsnæði og áður
fyrir fjölskylduna.
Gunnar selur húsið í Kópavogi
n Minnkar við sig en ætlar sér þó ekki að flytja úr sveitarfélaginu
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 29. Júlí –2.ÁgúSt 2011 86. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Selur húsið Gunnar
Birgisson og kona hans
hafa sett húsið í
Kópavogi á sölu.