Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
Allir skattgreiðendur á aldrinum 17
til 70 ára þurfa að greiða 8.700 krón-
ur í nefskatt sem rennur til Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra. Þetta gjald
kemur fram á álagningarseðlinum
sem landsmenn fengu sendan fyrr
í þessari viku frá skattayfirvöldum.
Engu skiptir hvort skattgreiðendur
séu með 200 þúsund krónur í mán-
aðarlaun eða tvær milljónir, allir
greiða sömu upphæðina.
Framkvæmdasjóður aldraðra
hefur sinnt ýmsum verkefnum í
gegnum tíðina til uppbyggingar og
eflingar öldrunarþjónustu um land
allt eins og segir í lögum um sjóð-
inn. Hlutverki sjóðsins var breytt
til bráðabirgða í janúar á þessu ári
þegar honum var gefin heimild til
að standa straum af rekstrarkostn-
aði hjúkrunarrýma fyrir aldraða
rekstrar árin 2011, 2012 og 2013. Í ár
er um er að ræða 450 milljóna króna
kostnað sem áður var fjármagnaður
af ríkissjóði.
Á árunum 2000 til 2010 er það
Hrafnista í Reykjavík sem hefur feng-
ið mest greitt út úr sjóðnum eða rétt
rúman milljarð króna eftir því sem
fram kemur í skýrslu um málefni
sjóðsins frá því í júlí 2010. Samtals
voru úthlutanir á tímabilinu rúmlega
8,2 milljarðar króna. Aðrir styrkir,
sem ekki eru nánar tilgreindir námu
um 227 milljónum króna. Frægt varð
þegar Siv Friðleifsdóttir, þáverandi
félags- og tryggingamálaráðherra
lét greiða fyrir prentun og dreifingu
bæklingsins Ný sýn - Nýjar áherslur
úr sjóðnum. Um var að ræða kynn-
ingarbækling á framtíðarsýn hennar
um málefni aldraðra.
Í maí á þessu ári var búið að út-
hluta 324 milljónum króna úr sjóðn-
um. Þar bar hæst framlag til hjúkr-
unarheimilisins Sjálands í Garðabæ
sem nam tæpum 110 milljónum
króna. Hjúkrunar- og dvalarheimil-
ið Lundur á Hellu fékk framlag upp
á 88,5 milljónir úr sjóðnum á sama
tíma.
gudni@dv.is
Skatturinn innheimtir í Framkvæmdasjóð aldraðra:
Allir greiða til aldraðra
Hrafnista fær mest Hrafnista í Reykjavík hefur fengið rúman milljarð úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra á undanförnum árum.
Líkamsárás í Breiðholti:
Vann í spila-
kassa og lam-
inn í kjölfarið
Maður með hanakamb gekk í skrokk
á 63 ára gömlum manni á göngustíg
við Hólabrekkuskóla í Suðurhólum
á miðvikudagskvöld. Lögreglu barst
tilkynning um málið klukkan 21.05.
Árásarmaðurinn vissi af því að fórn-
arlambið hafði unnið stóra fjárhæð í
spilakassa nokkru áður.
Einn viðstaddra hringdi á lög-
regluna og upplýsti um að þéttvaxinn
maður með hanakamb og eyrna-
lokka, klæddur í svarta hettupeysu
með rauðu mynstri, hafi ráðist á
annan mann við Hólabrekkuskóla.
Sagði hann einnig að maðurinn hefði
ógnað viðstöddum eftir árásina.
Samkvæmt fréttastofu Vísis munu
tildrög árásinnar vera þau að fórnar-
lambið hafði unnið miklar fjárhæðir
í spilakassa á bar í grenndinni, eða
á annað hundruð þúsund krónur.
Árásarmaðurinn vissi af þessu. Hann
mun hafa slegið þolandann niður,
barið hann ítrekað og sparkað í hann.
Þá mun hann hafa tæmt vasa fórnar-
lambsins í leit að peningunum.
En fórnarlambið hafði beðið
starfsfólk staðarins að geyma vinn-
inginn, og því hafði árásarmaðurinn
lítið upp úr krafsinu.
Hópur barna var á leiksvæðinu
við Hólabrekkuskóla og var þeim
mjög brugðið. Foreldrar sem voru á
svæðinu með börnum sínum reyndu
að koma fórnarlambinu til hjálpar,
en maðurinn lá blóðugur í jörðinni.
Árásarmaðurinn hafði að sögn Vísis í
alvarlegum hótunum við þá og forð-
aði sér síðan áður en lögregla kom á
vettvang.
Að sögn lögreglu kannaðist fórnar-
lambið lítillega við árásarmanninn
og því hefur lögregla einhverja hug-
mynd um hver hafi verið að verki.
Fórnarlambið var flutt á slysadeild
eftir árásina.
„Þetta er fólk alveg upp í 100 ára. Það
mætir ekkert í kirkju, enda þarf það
ekkert á því að halda. Það þarf aft-
ur á móti á svona vináttu að halda
eins og þessi prestur hefur sýnt fólk-
inu hér,“ segir Heiðar Marteinsson,
íbúi á dvalarheimili aldraðra í Selja-
hlíð. Í janúar var starf prestsins þar,
Hans Markúsar Hafsteinssonar, lagt
niður. Heiðar segir bæði vistmenn
og starfsfólk í Seljahlíð vera mjög
óánægt með þessa ákvörðun bisk-
ups. Hún mun vera tilkomin vegna
niðurskurðar.
Prestar án safnaðar
DV greindi frá því í síðustu viku að
biskup vígði reglulega guðfræðinga
til presta án þess að þeir hefðu söfn-
uð til að sinna. Prestar sem vígðir eru
þannig kallast sérþjónustuprestar
og á Biskupsstofu starfa að minnsta
kosti tveir slíkir. Það eru Árni Svanur
Dan íelsson sem gegnir starfi svokall-
aðs vefprests, en hann var vefstjóri
Biskupsstofu áður en hann var vígð-
ur til prests á allraheilagramessu árið
2008. Steinunn Arnþrúður Björns-
dóttir var vígð til prests á sama tíma.
Hún gegndi þá stöðu verkefnastjóra á
Biskupsstofu, sem hún gerir enn.
Mætti áfram í Seljahlíð
Þegar Heiðar las frétt DV af mál-
inu varð hann mjög sár. Sár yfir því
að presturinn þeirra í Seljahlíð hefði
verið látinn fara í sparnaðarskyni en
svo væri verið að vígja presta án þess
að þeir hefðu söfnuð til að sinna.
„Hérna er margt fólk sem er ein-
mana, á enga að og er orðið mjög
gamalt. Það hefur haft mikið að segja
að hafa þennan mann því hann er
vinur þessa fólks. Hann er ekki bara
að messa, hann kom hérna og ræddi
við fólkið og er vinur þeirra.“
Þrátt fyrir að Hans Markús hafi
formlega látið af störfum í janúar á
þessu ári hélt hann áfram að koma
í Seljahlíð þar til nýlega til að sinna
fólkinu þar. „Mér fannst bara ómögu-
legt að enginn væri að sinna þessu
fólki svo ég gerði það áfram. Það var
enginn sem bannaði mér það. Mað-
ur hefur verið að vona að það myndi
eitthvað gerast jákvætt en mér sýnist
það ekki vera að gerast,“ segir Hans
Markús í samtali við DV.
Biskup svaraði að lokum
Þegar biskup hafði gert grein fyrir
því að starf prests í Seljahlíð yrði lagt
niður hófu vistmenn undirskrifta-
söfnun til að mótmæla ákvörðun-
inni. Áttatíu manns, bæði vistmenn
og starfsfólk, lögðu nafn sitt við und-
irskriftarsöfnunina. DV greindi frá
málinu í mars. Þá gagnrýndi Heiðar
biskup fyrir að hafa ekki svarað opnu
bréfi sem hann skrifaði í Morgun-
blaðið til varnar prestinum. Nú hefur
biskup hins vegar svarað bréfi Heið-
ars. „Það kom svar frá honum, sem
var nú síðbúið: „Til íbúa Seljahlíðar
og annarra sóknarbarna Þjóðkirkj-
unnar.“ Þar talar hann um erfiðleika
og fjárhagsörðugleika að hann hafi
þurft að segja upp þessum presti og
fleirum. Líka miðbæjarpresti sem
hjálpaði ungu fólki.“ Heiðari finnst
þetta skjóta skökku við og að for-
gangsröðunin sé ekki alveg rétt.
Styrkti sig með námi í
öldrunarfræðum
Hans Markúsi finnst vera skorið
niður þar sem síst skyldi. „Það er
bara staðreynd að þegar aldurinn
færist yfir þá förum við að hugsa
meira til vistaskiptanna og þá fer
fólk að hugsa meira um trúmál-
in,“ segir Hans Markús. Hann finn-
ur fyrir mikilli þörf á meðal aldr-
aðra að þeim sé sinnt markvisst.
Til að styrkja starf sitt sem prestur
aldraðra tók Hans Markús tveggja
vetra nám í öldrunarfræðum. Það
opnaði honum sýn yfir það hvað
málaflokkur aldraðra er stór. „Eitt
grundvallaratriði í þeim fræðum
er að stofnanir samfélagsins verða
að bregðast við því að hlutfall eldri
borgara er sífellt að hækka og stofn-
anir verða að auka við þjónustuna
frekar en hitt. Annars mun þessi
þáttur þjónustunnar vaxa mönnum
yfir höfuð.“ Hans Markús naut þess
að þjóna í Seljahlíð og hann fann
fyrir miklu þakklæti. „Þau hafa sagt
að ég sé jú presturinn þeirra, en að
það sé ekki síður mikilvægt að ég
skuli vera vinur þeirra.“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Hér er margt fólk
sem er einmana“
n Starf prests í Seljahlíð lagt niður n Íbúi sár yfir því að biskup vígi presta án
safnaðar n Hans Markús er fólkinu mikill vinur n Hélt áfram að koma í Seljahlíð
Mjög sár Heiðar Marteinsson er ósáttur við
forgangsröðun biskups. Starf prests í Seljahlíð
var lagt niður og íbúar missa þar með góðan
vin og sáluhjálpara. Mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon
„Það hefur haft
mikið að segja að
hafa þennan mann því
hann er vinur þessa fólks.
Ekki blað á
mánudag
DV kemur næst út miðvikudag-
inn 3. ágúst. Ekkert blað kemur út
á mánudaginn, frídag verslunar-
manna. Útgáfa blaðsins verður að
öðru leyti óbreytt í næstu viku.
Björgunarsveitin
hjálpaði Ridley Scott
Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur
undanfarnar vikur verið við gæslu-
störf fyrir íslenska fyrirtækið True
North á Dómadalsleið. Sveitin hefur
verið þar að störfum vegna kvik-
myndarinnar Prometheus, sem leik-
stjórinn Ridley Scott vinnur nú að.
Á fréttavef Landsbjargar segir að
sveitin hafi verið þar alla daga frá
11. júlí. Átta manns hafi á dag sinnt
þar gæslu. Þeir hafa nú skilað yfir
1.400 klukkustunda vinnu en þeir
gættu þess að ferðamenn sem og
aðrir villtust ekki fram fyrir mynda-
tökuvélarnar. Sveitin hefur starfað
að þessu í fjáröflunarskyni og hafa
félagar hennar unnið sjálfboðastarf
fyrir sveitina.