Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 6
„Það á ekki af mér að ganga. Hann
verður sá fjórði sem ég þarf að bera
til grafar núna af okkar nánustu,“
segir Helgi Helgason, bróðir Ólafs
Donalds Helgasonar sem fyrr í sum-
ar var handtekinn og úrskurðaður
í gæsluvarðhald grunaður um að
hafa valdið dauða eiginkonu sinn-
ar, Hallgerðar Valsdóttur. Rannsókn
leiddi þó fljótlega í ljós að svo var
ekki og var hann hreinsaður af öll-
um grun. Ólafur var engu að síður
bugaður af sorg vegna skyndilegs
fráfalls Hallgerðar og þær skelfi-
legu ásakanir sem hann hafði setið
undir voru ekki til að bæta andlega
líðan hans. Ólafur lést aðfaranótt
mánudags, þann 25. júlí.
Lífsneistinn var slokknaður
Ólafur var kominn á áfangaheimilið
Vin þar sem hann reyndi að koma
lífi sínu í réttar skorður, en að sögn
Helga var lífsneistinn slokknaður.
„Ég var að reyna að peppa hann í að
reyna að finna einhvern tilgang og
að komast í gegnum þetta.“
Helgi segir það í raun ekki vit-
að hvernig Ólafur dó, en hann var
orðinn veikur og þróttlítill og hugs-
anlegt er að hjartað hafi gefið sig.
Engin merki eru um hann hafi svipt
sig lífi. Áfallið sem hann varð fyrir í
kjölfar andláts Hallgerðar og hand-
tökunnar hafði hins vegar mikil
áhrif á líkamlega heilsu hans.
„Ég held að það hafi verið
honum þungbærast að missa Hall-
gerði því þetta var fyrsta sambandið
hans í mörg, mörg ár. Þau voru alltaf
saman, öllum stundum, alveg sama
hvert þó fóru eða hvað þau gerðu.“
Helgi segir Ólaf og Hallgerði hafa
verið áberandi hamingjusöm. „Ég
held að hann hafi bara misst lífsvilj-
ann,“ segir Helgi sem telur bróður
sinn ekki hafa getað hugsað sér að
lifa án Hallgerðar. Hjarta hans hafi
einfaldlega brostið.
Hristi hausinn yfir lögreglunni
Ólafur treysti sér ekki sjálfur til að
koma fram í fjölmiðlum eftir að
hann var látinn laus og hreinsað-
ur af öllum ásökunum. Helgi steig
hins vegar fram og sagði sögu bróð-
ur síns til að hreinsa mannorð hans.
Í samtali við DV í júní sagði Helgi að
bróðir hans hefði sem betur fer ekki
fylgst mikið með fréttaflutningi af
málinu. Fjölskyldan hefði ráðlagt
honum það. Strax eftir að Ólafur
losnaði úr gæsluvarðhaldi fór hann
í meðferð á Vogi vegna misnotkun-
ar á lyfjum og hafði, að sögn Helga,
ekki þrek eða heilsu til að vera við
útför Hallgerðar sem fór fram frá
Bjarnarneskirkju þann 31. maí.
Hann fékk því aldrei tækifæri til að
kveðja eiginkonu sína almennilega.
Þrátt fyrir allar þær raunir sem
Ólafur gekk í gegnum segir Helgi
hann aldrei hafa minnst á að hann
væri ósáttur við vinnubrögð lögregl-
unnar. „Hann hristi auðvitað haus-
inn yfir þeim og þessir rannsókn-
arlögreglumenn sem sáu um hans
mál höfðu aldrei trú á því að hann
væri sekur, var mér tjáð um daginn.
Þrátt fyrir að þessi ferill hefði farið
svona í gang,“ segir Helgi.
Þurfti að undirbúa útför
sonar síns
Ólafur kom að eiginkonu sinni líf-
vana inni á baðherbergi á heimili
þeirra hjóna og hringdi strax eft-
ir aðstoð. Helgi fór með Ólafi nið-
ur á spítala og þeir höfðu verið þar
í rúmlega klukkutíma þegar lög-
reglan kom. „Mér var bara vikið til
hliðar og eiginlega hent út,“ seg-
ir Helgi. Hann beið dágóða stund
á meðan lögreglan ræddi við Ólaf
en það hvarflaði ekki að honum
hvað væri í raun og veru að gerast.
Helgi varð þó að yfirgefa sjúkrahús-
ið áður en í ljós kom að bróðir hans
yrði færður í gæsluvarðhald. Sonur
hans var nýlátinn og hann varð að
halda áfram að undirbúa útför hans
sem átti að fara fram daginn eft-
ir. En hvert áfallið rak annað. Þeg-
ar Helgi hafði ekki heyrt frá bróður
sínum mörgum klukkutímum síðar
fóru að renna á hann tvær grímur.
Um kvöldmatarleytið sá hann það í
fréttamiðli á netinu að Ólafur bróð-
ir hans hefði verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
„Hann var hrókur alls
fagnaðar“
Helgi segir fjölskylduna ekki bera
neinn kala til lögreglunnar. Það
hafi örlað á því í fyrstu, en annars
hafi það ekki verið rætt. „Þetta fór
bara eins og það fór,“ segir Helgi og
greina má bresti í rödd hans. Fráfall
Ólafs er honum mikið áfall. Það var
sérstakur þráður á milli þeirra og
þeir voru ávallt til staðar hvor fyrir
annan.
Bæði fjölskylda og vinir syrgja
Ólaf. „Hann var mjög vinamargur
og virkilega góður drengur, hann
Óli. Hann var mjög vinsæll með-
al allra sem kynntust honum og
þekktu hann. Hann var hrókur alls
fagnaðar og elskaður af öllum.“
6 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
www.markisur.com
Veðrið verður ekkert vandamál.
Dalbraut 3, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
Viltu skjól á veröndina?
Eigum við ekki að hætta þessari þrjósku.
„Ég held að það
hafi verið honum
þungbærast að missa
Hallgerði því þetta var
fyrsta sambandið hans í
mörg, mörg ár.
Ólafur Donald Helgason
Fæddur 6. apríl 1950
Dáinn 25. júlí 2011
Hallgerður Valsdóttir
Fædd 15. nóvember 1967
Dáin 20. maí 2011
Ábyrgðir felldar niður:
Þurfa að
greiða millj-
ónir til baka
Annar dómur féll á miðvikudag-
inn í máli þrotabús Kaupþings
banka gegn fyrrverandi starfsmönn-
um. Málið snýr að persónulegum
ábyrgðum á bak við lánveitingar til
hlutabréfakaupa í bankanum sem
voru felldar niður af Hreiðari Má
Sigurðssyni, fyrrverandi bankastjóra
Kaupþings. Ábyrgðirnar voru felldar
niður fjórum dögum áður en ís-
lenska ríkið þjóðnýtti Glitni.
Tveir dómar féllu á miðvikudag-
inn í Héraðsdómi Reykjaness sem
dæmdu tvo fyrrverandi starfsmenn
til greiðslu á lánunum sem persónu-
legar ábyrgðir voru að baki. Í um-
ræddum dómum voru starfsmenn-
irnir dæmdir til að greiða til baka
rúmlega sex milljónir króna hvor. Í
maí féllu tveir dómar í Héraðsdómi
Reykjavíkur með sömu niðurstöðu. Í
þeim var aftur á móti um mun hærri
fjárhæðir að ræða, 27 milljónir í
öðru málinu og tæpar 642 milljónir í
hinu málinu. Gunnar Egill Egilsson,
lögmaður Helga Þórs Bergs, sem
dæmdur var til greiðslu á 642 millj-
ónum staðfesti í samtali við DV að
málinu hefði verið áfrýjað til Hæsta-
réttar. Ekki er ljóst hvenær málið
verður tekið fyrir en búist er við að
nokkur bið verði á því. Það mun ráð-
ast af tvennu, vinnuálagi Hæstarétt-
ar og framgangi Landsdómsmálsins
svokallaða, sem mun taka tíma frá
dómurum Hæstaréttar.
Ljóst er að falli dómar í Hæsta-
rétti á sama veg og í héraðsdómi
munu tugir fyrrverandi starfsmanna
Kaupþings þurfa að greiða til baka
háar fjárhæðir til slitastjórnar bank-
ans. Búið er að semja um greiðsl-
urnar í sumum tilvikum. Bankinn
lánaði á sínum tíma um 32 milljarða
til starfsmanna til hlutabréfakaupa í
bankanum, þar af voru um 15 millj-
arðar veittir að láni með persónuleg-
um ábyrgðum að baki. Stærsti hluti
þessara lánveitinga var til lykilstjór-
nenda í bankanum. gudni@dv.is
n Ólafur Donald Helgason er látinn n Sat í varðhaldi grunaður um að hafa
veitt eiginkonunni banvæna áverka n Fjölskyldan ber ekki kala til lögreglunnar
Lést eftir
fráfaLL
eiginkonu
sinnar Mikið áfall Helgi Helgason segir sérstakan þráð hafa verð á milli sín og Ólafs. Þeir hafi ávallt verið til staðar hvor fyrir annan.