Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Page 16
16 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
Ó
hætt er að fullyrða að hjón-
in Finnur Reyr Stefáns-
son og Steinunn Jónsdóttir
séu á meðal ríkustu hjóna
landsins. Þrjú eignarhalds-
félög í þeirra eigu eru með eigið fé
upp á rúmlega fjóra milljarða króna.
Steinunn er dóttir Jóns Helga Guð-
mundssonar, eiganda BYKO, og er
fyrrverandi eiginkona Hannesar
Smárasonar.
Þau slá þó ekki við hjónunum
Skúla Mogensen, kenndum við Oz og
stærsta eiganda MP Banka, og konu
hans Margréti Ásgeirsdóttur, sem eiga
samanlagt tæplega 8 milljarða króna
í hreinni eign en engin greiddi hærri
auðlegðarskatt en þau árið 2011. Þess
skal getið að Finnur og Steinunn eru
líka á meðal hluthafa í MP Banka, líkt
og Skúli og eru bæði á topp 25 listan-
um yfir þá sem greiddu hæstu opin-
beru gjöldin árið 2011. Hún í 21. sæti
og hann í 24. sæti.
Högnuðst á sölu bréfa í
Íslandsbanka
Ríkidæmi þeirra Finns og Stein-
unnar má að mestu rekja til þess
að þau högnuðust bæði gríðarlega
á sölu hlutabréfa sinna í Íslands-
banka (síðar Glitnir). Steinunn um
tæpa tvo milljarða króna og Finn-
ur Reyr um tæpan milljarð króna.
Hún seldi 4,11 prósenta hlut í Ís-
landsbanka sumarið 2005 á rúm-
lega 7,3 milljarða króna og Finn-
ur seldi hlutabréf sín í Glitni árið
2007 með nærri milljarðs króna
hagnaði þegar hann hætti sem
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Glitnis.
Keyptu villu Steingríms á
Arnarnesinu
Á meðan skilanefnd Landsbankans
virðist vera búin að yfirtaka flestar
glæsieignir Hannesar Smárason-
ar, fyrrverandi eiginmanns Stein-
unnar, standa hún og Finnur í stór-
framkvæmdum og virðast eiga úr
nægu fjármagni að spila. Þannig
keypti einkahlutafélag Steinunnar,
Arkur, 435 fermetra glæsihýsi að
Mávanesi 19 á Arnarnesi í lok síð-
asta árs af Eddu Guðmundsdóttur,
ekkju Steingríms Hermannssonar.
Fasteignamat hússins er upp á 86
milljónir króna en félag Steinunn-
ar á húsið skuldlaust og standa nú
yfir stórframkvæmdir á húsinu.
Þegar Steinunn og Hannes
skildu árið 2004 bjuggu þau í 420
fermetra glæsihýsi að Blikanesi 9
á Arnarnesi ásamt tveimur börn-
um sínum. Í dag búa Steinunn og
Finnur í 325 fermetra einbýlishúsi
að Brekkuási 11 í Garðabæ. Eiga
þau tvo syni saman en hjá þeim
búa einnig sonur og dóttir Stein-
unnar sem hún á með Hannesi
Smárasyni. Húsið eiga þau saman
og er það skuldlaust líkt og glæsi-
hýsið sem félag Steinunnar keypti
af ekkju Steingríms Hermannsson-
ar á Arnarnesi. Þau keyptu húsið
að Brekkuási af Einari Páli Tamimi,
þáverandi lögmanni hjá Glitni í lok
árs 2006.
Gaf Hofsósi sundlaug
Árið 2007 ákváðu Steinunn og at-
hafnakonan Lilja Pálmadóttir að
gefa Hofsósi 25 metra sundlaug
sem tekin var í notkun í fyrra. Stein-
unn og Lilja hafa báðar tengingu við
Skagafjörð. Á Lilja jörðina Hof þar
sem þau Baltasar Kormákur eiga
glæsihýsi en Steinunn á jörðina Bæ
á Höfðaströnd í Skagafirði, sem er
skammt frá Hofsósi. Þar hefur Stein-
unn rekið Listasetrið Bæ síðan árið
2007 og gefst erlendum og inn-
lendum listamönnum tækifæri til
að rækta hæfileika sína með því að
fá úthlutað gisti- og vinnuaðstöðu
á setrinu. Einkahlutafélagið Höfða-
strönd heldur utan um eign Stein-
unnar á listasetrinu og jörðinni Bæ.
Eru fasteignir félagsins metnar á 465
milljónir króna sem er nánast eina
eign félagsins og á Steinunn umrætt
félag skuldlaust.
Finnur slapp með milljarð
Finnur Reyr Stefánsson, núverandi
eiginmaður Steinunnar, starfaði hjá
Glitni þar til í maí árið 2007. Hann
er menntaður hagfræðingur og hef-
ur einnig lokið MBA-námi. Hann var
einn nánasti samstarfsmaður Bjarna
Ármannssonar en þeir höfðu starfað
saman í um tíu ár þegar þeir hættu
hjá Glitni í maí árið 2007. Þeir hófu
báðir störf hjá Fjárfestingarbanka At-
vinnulífsins (FBA) árið 1997 sem síð-
ar sameinaðist Íslandsbanka. Finnur
var framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta Íslandsbanka frá árinu 2000 en
árið 2006 var hann gerður að fram-
kvæmdastjóra rekstrarsviðs Glitnis
og gegndi því starfi þar til hann lét af
störfum í maí 2007.
Finnur fór ekki tómhentur frá
Glitni en samkvæmt ársreikningi
einkahlutafélagsins Snæbóls, sem
hélt utan um hlutabréfaeign Finns
í Glitni, græddi félagið 935 milljón-
ir króna á sölu hlutabréfanna í Glitni
árið 2007. Snæból greiddi sér 200
milljónir króna í arð árið 2009 vegna
rekstrarársins 2008. Stærsta eign Snæ-
bóls er 50 prósenta hlutur í fjárfest-
ingarfélaginu Siglu sem var metinn
á nærri 900 milljónir króna í lok árs
2009.
Fjárfestingarfélagið Siglu stofn-
aði Finnur í lok maí árið 2007 ásamt
Tómasi Kristjánssyni, sem hafði ver-
ið framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Glitnis og Þorgils Óttari Mathiesen.
Keyptu þeir allt hlutafé fasteigna-
félagsins Klasa en fyrir hafði Þor-
gils Óttar farið með 40 prósent í um-
ræddu félagi. Þeir Finnur og Tómas
fara enn með rúman 60 prósenta
hlut í Klasa í gegnum Siglu en hlutur
Þorgils Óttars hefur verið yfirtekinn
af Íslandsbanka.
Eignir upp á fjóra milljarða
Eins og áður sagði eru þau Stein-
unn og Finnur talin ein ríkustu hjón
landsins. Samkvæmt heimildum DV
eru þau í hópi þeirra sem í dag er
leitað til þegar fjárfesta vantar auk-
ið fjármagn vegna ýmissa fjárfest-
inga. Þannig má nefna að Arkur, fé-
lag Steinunnar, og Sigla, félag Finns,
eru bæði á meðal þeirra hluthafa
sem keyptu 52 prósenta hlut í trygg-
ingafélaginu Sjóvá fyrr á þessu ári.
Þá á Arkur 2,73 prósent í MP Banka
og Sigla fer með eins prósents hlut í
bankanum.
Samkvæmt ársreikningi Arks, fé-
lags Steinunnar, fyrir árið 2010 á fé-
lagið nærri 2,8 milljarða króna í óráð-
stafað eigið fé. Á félagið skuldabréf og
víxla fyrir tæplega þrjá milljarða króna
og hlut í Eyri Invest sem metinn er á
500 milljónir króna. Hagnaðist félagið
um 92 milljónir króna í fyrra. Eins og
áður sagði á Steinunn síðan Listasetr-
ið Bæ í Skagafirði sem metið er á nærri
500 milljónir króna.
Samkvæmt ársreikningi Snæbóls,
félags Finns, fyrir árið 2009, á félagið
770 milljónir króna í óráðstöfuðu
eigið fé. Stærsta eign Snæbóls er 50
prósenta hlutur í fjárfestingarfélag-
inu Siglu sem var metinn á nærri 900
milljónir króna í lok árs 2009 eins og
áður sagði.
Þau voru bæði inni á topp 25 list-
anum yfir þá sem greiða hæstu opin-
beru gjöldin árið 2011. Var Steinunn
í 21. sæti og greiddi hún 49 milljónir
króna í opinber gjöld en Finnur var í
24. sæti og greiddi 47 milljónir króna í
opinber gjöld árið 2011.
Þau Finnur og Steinunn hafa síðan
haft nokkur tengsl við Icelandair Gro-
up á undanförnum árum. Sat Finnur
í stjórn flugfélagsins frá árinu 2007
til 2010 en einkahlutafélagið hans
Sigla fór með tveggja prósenta hlut í
Icelandair. Steinunn á enn í dag 0,7
prósenta hlut í Icelandair í gegnum
einkahlutafélagið Ark.
Ein heppnustu
hjón landsins
„ Í dag búa Steinunn
og Finnur í 325
fermetra einbýlishúsi að
Brekkuási 11 í Garðabæ.
Eiga þau tvo syni saman
en hjá þeim búa einnig
sonur og dóttir Steinunn-
ar sem hún á með Hann-
esi Smárasyni.
n Hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir bæði á topp 25 listanum yfir þá sem
greiddu hæstu opinberu gjöldin n Högnuðust um nærri þrjá milljarða á sölu hlutabréfa í Glitni
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Skóflustunga að sundlaug á Hofsósi Hér sést Steinunn Jónsdóttir, lengst til hægri, við skóflustungu að sundlaug á Hofsósi árið 2007 sem hún og Lilja Pálmadóttir gáfu Hofsósi og
var hún tekin í notkun árið 2010. Mynd FRéttAblAðið
435 fermetra glæsihýsi Einkahlutafélag Steinunnar, Arkur, keypti þetta glæsilega ein-
býlishús í Mávanesi í lok síðasta árs. Húsið var í eigu ekkju Steingríms Hermannssonar.