Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Page 38
F
yrir unga fólkið er verslunar
mannahelgin tímapunktur sem
það miðar bindindi sitt oft við.
Það segist ekki ætla að hætta
fyrr en eftir hátíðina, ef það hafa ver
ið einhver vandamál. Svo eru margir
sem hafa gefið sér loforð um bindindi
en falla um verslunamannahelgina,“
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn
ir á Vogi, um drykkjuvandamál sem
geta skapast um verslunamannahelg
ina. Helgin er ein af þremur stórum
punktum ársins hjá ÁTVR en vikuna
fyrir verslunarmannahelgi seljast um
750 þúsund lítrar af áfengi. „Verslunar
mannahelgin er svona eins og áramót
fyrir unga fólkið, eða hefur verið það.
Persónulega finnst mér hafa dregið
úr spennunni í kringum þessar útihá
tíðir samt. Eins er eftirlit miklu meira
og hátíðarnar eru nálægt löggæslu og
heilbrigðisstofnunum. Mér finnst mun
betri ásjón yfir þessum hátíðum í dag
en var,“ segir Þórarinn.
Passa verður unga fólkið
Þórarinn hefur hvað mesta áhyggjur
af krökkum sem eru undir lögaldri og
vill að sé passað upp á þá. „Börn sem
eru undir lögaldri eiga ekki að vera ein
á ferð. Það eru ekki bara foreldrarnir
sem eiga að fylgjast með því, heldur
allir. Allt fullorðið fólk á að láta þetta
sig varða, sérstaklega starfsmenn há
tíðanna og löggæslan. Það þarf að vera
vakandi fyrir að beina krökkum frá
slysum og vandamálum og því get ég
ekki annað en skorað á dómsmálaráð
herra að standa sig,“ segir hann.
Það er ekki bara drykkjan sem slík
sem er hættusöm heldur þau vandamál
sem skapast við drykkju á fjölmenn
um útihátíðum. „Ungt fólk er í mikilli
áhættu þegar það er drukkið og sér
staklega á hættulegum svæðum. Ungt
fólk er líka móttækilegra fyrir ofbeldi,
bæði kynferðislegu og hefðbundnum
slagsmálum. Það er samt unnið gríð
arlega mikil forvarnarstarf og það má
ekki gleyma að hrósa hópum á borð við
hjálparsveitir skáta og fleirum sem eru
víðs vegar um land að passa að fólk fari
sér ekki að voða,“ segir Þórarinn.
Drykkja hefst sjaldan þessa helgi
Þó svo unglingadrykkja sé mikil um
verslunarmannahelgina segir Þórar
inn að hún sé ekki byrjunarreitur
margra þegar kemur að áfengisneyslu.
„Það er fátíðara að menn séu að byrja
þá. Algengara er að það sé í kringum
útskriftir í skóla eða byrjun sumars
þegar er útborgað. Það var samt áber
andi í gamla daga að ef hátíð var hald
in úti á landi voru krakkarnir að kynn
ast ólöglegum vímuefnum. Það fór
samt allt eftir eðli hátíðarinnar. Þetta
var til dæmis ákveðið vandamál á Ak
ureyrarhátíðunum á sínum tíma.“ En
koma margir illa á sig komnir inn á Vog
eftir svona helgi?
„Það hefur alveg gerst. Ég hef séð
marga sem hafa farið illa út úr verslun
armannahelginni og komið í meðferð
eftir hana,“ segir hann.
Áfengið er hættulegt
Um verslunarmannahelgina keppist
fólk oft við að drekka eins mikið og
hægt er og fer óhóflega í alla neyslu.
Það eitt og sér er hættulegt. „Það
gleymist stundum að það er til fólk
sem deyr einfaldlega vegna þess að
það hefur drukkið of mikið áfengi. Það
er sem betur fer ekki algengt en það
er alveg þekkt. Svo geta ofurölvaðir
menn kastað upp og andað því svo að
sér. Þetta er líka hættulegt fyrir þá sem
eru veikir fyrir. Það hefur stundum
þótt karlmannlegt og kúl að drekka og
er farið í keppni um hver getur inn
byrt mest. Það er sérstaklega vara
samt,“ segir Þórarinn sem vill ítreka
það hversu hættulegt áfengi er áður en
fólk heldur út í ofneyslu.
„Það ber að hafa það í huga og
það sem ég vil undirstrika er að al
gengasta dánarorsök fólks undir 25
ára er áfengi. Hvort sem það séu of
urskammtar, slys eða einhver ölvað
ur sem keyrir. Þetta er sannleikurinn
sem enginn hugleiðir í hita leiksins,“
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi.
Passa verður sig á drykkjunni
n Áfengi tengist flestum dauðsföllum yngri en 25 ára n Skorað á dómsmálaráðherra
Þórarinn Tyrfingsson Hefur mestar
áhyggjur af fólki undir lögaldri.
Skilaboð okkar eru þau að allir eigi
að geta farið á útihátíð án þess að
verða fyrir ofbeldi,“ segir Finnborg
Salome Steinþórsdóttir, talskona Nei
hreyfingarinnar. Þrátt fyrir að flestir
hugsi um skemmtun og hressleika
í kringum verslunarmannahelgina
er það staðreynd að í kjölfar hennar
fylgir yfirleitt fréttaflutningur af kyn
ferðisbrotum, líkamsárásum, áfengis
neyslu og fíkniefnabrotum. Eftir
hverja verslunarmannahelgi berast
fréttir af því að nokkuð hafi verið um
nauðganir eða tilraunir til kynferðis
brota á útihátíðum. Það er staðreynd
að mjög lítill hluti kynferðisbrota er
kærður til lögreglu. Þrettán prósent
kvenna segja að sér hafi verið nauðg
að eða tilraun gerð til þess og 251 ein
staklingur leitaði til Stígamóta í fyrsta
skiptið árið 2010. Fjórtán af þeim
251 sem leituðu aðstoðar Stígamóta,
komu vegna kynferðisbrota sem áttu
sér stað á útihátíðum.
Ef þú fékkst ekki samþykki,
þá ertu nauðgari
Átakið „Ef þú fékkst ekki samþykki þá
ertu nauðgari“ á vegum hreyfingar
innar gegn kynbundnu ofbeldi fór af
stað í byrjun sumars og hefur einkum
verið beint að útihátíðum sumarsins.
Hreyfingin var mjög sýnileg á Bestu
útihátíðinni, þar sem aðstandendur
hátíðarinnar buðu sjálfboðaliðum
Neihópsins að koma og taka þátt í
hátíðinni. Þar sem hreyfingin starfar
aðeins í sjálfboðastarfi mun hún ekki
vera sýnileg á útihátíðum verslunar
mannahelgarinnar þar sem engin
hátíð hefur boðið henni að mæta og
hún hefur ekki fjármagn til að kosta
það sjálf.
„Með átakinu vill hreyfingin vekja
karla til vitundar um kynferðisbrot.
Það er mikilvægt að benda á að það
er aðeins einn ábyrgur fyrir kyn
ferðisbrotum – það er sá sem beitir
ofbeldinu“.
Finnborg segir það gerast of oft að
ábyrgðinni sé komið yfir á þoland
ann.
„Í umræðunni er ábyrgðinni á
nauðgun oft komið yfir á konur eða
þolendur nauðgana. Það skiptir ekki
máli hvernig kona er klædd, hvernig
kona hegðar sér eða hvort kona hafi
verið drukkin. Það er ekkert sem rétt
lætir nauðgun. Nauðganir eru alltaf á
ábyrgð geranda. Umræðan ætti frek
ar að vera „ekki nauðga“ og beinast
að gerendum,“ segir hún. Karlar hafa
verið áberandi í starfi hópsins, en að
sögn talskonu samtakanna er mikil
áhersla á að virkja bæði kynin innan
hópsins.
Þrátt fyrir að samtökin verði ekki
sýnileg á útihátíðum og skemmtun
um helgarinnar er vert að benda á
að hópurinn ætlar að vera á BSÍ og
á Reykjarvíkurflugvelli til að vekja
athygli á málstað sínum á fimmtu
dag og föstudag. Þá er neyðarmót
taka Landspítalans alltaf opin og
þolendur ofbeldis geta ávallt leitað til
lögreglu.
„Það eiga allir rétt á því að fara á
útihátíð og skemmta sér. En það á
enginn að þurfa að leita sér aðstoð
ar vegna ofbeldis eftir slíkar hátíðir,“
segir Finnborg.
Allir eiga
að geta
skemmt sér
Um 750.000 lítrar
seljast á hverju ári
V
ikan fram að verslunar
mannahelginni er ein sú
annasamasta á hverju ári
í Vínbúðum ÁTVR um allt
land. Á vef Vínbúðanna
segir að gera megi ráð fyr
ir um 125 þúsund viðskiptavinum
í þessari viku eða 25 til 30 prósent
fleirum en í vikunni á undan. Eins
og sjá má á meðfylgjandi töflu komu
124 þúsund viðskiptavinir í Vínbúð
irnar í vikunni fyrir verslunamanna
helgina í fyrra en fjöldinn var svipað
ur árið áður.
„Ásamt vikunni fyrir jól og vikunni
fyrir áramót er verslunarmannahelg
ina ein af þremur stærstu punktun
um hjá okkur,“ segir Sigrún Ósk Sig
urðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR.
En hvað selst mest? „Það er alltaf selt
mest af bjór og fyrir verslunarmanna
helgi er ívið meira hlutfall selt af bjór
en öðrum vörum,“ segir hún.
Í fyrra voru seldir 744 þúsund lítr
ar af áfengi en þar af voru 587 þús
und lítrar af bjór. Eins og allar aðrar
vikur er salan alltaf mest á föstudegi.
Bæði í fyrra og árið 2009 komu ríf
lega 43 þúsund manns í Vínbúðirnar
föstudaginn fyrir verslunarmanna
helgina.
Á vef Vínbúðanna segir að flest
bendi til þess að viðskiptavinafjöldi
fyrir verslunarmannahelgina nú
verði svipaður í fyrra og sé undir
búningur í fullum gangi svo hægt sé
að taka vel á móti öllum.
Salan dróst þó aðeins saman
í fyrra og gæti verið að hún drag
ist aðeins saman í ár en það væri
þá í samræmi við almenna sölu á
áfengi.
n Vikan fyrir verslunarmannahelgina ein af þremur stærstu á árinu hjá ÁTVR
Fjöldi viðskiptavina í Vínbúðunum vikuna
fyrir verslunarmannahelgi, í þúsundum.
2010 2009 Breyting
Mánudagur 10,4 10,7 -1,9%
Þriðjudagur 11,9 11,7 1,2%
Miðvikudagur 16,5 15,1 8,9%
Fimmtudagur 21,6 23,4 -7,7%
Föstudagur 43,8 43,3 1,2%
Laugardagur 20,1 20,7 -3,2%
Samtals 124 125 -0,5%
Mikil sala fyrir helgina„Ásamt vikunni
fyrir jól og vikunni
fyrir áramót er versluna-
mannahelgina ein af
þremur stærstu punktun-
um hjá okkur
38 Verslunarmannahelgin 29. júlí – 2. ágúst 2011