Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Síða 50
50 | Viðtal 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Þ ótt það sé yfirleitt gam- an, þá er stundum erf- itt að vera til. Það er ekki allt dans á rósum. En það líður allt hjá. Það er eins og allt sé um stundarsak- ir. Það er bara mismunandi langt og mismunandi erfitt. Ég er mjög trúuð og mér finnst að meðan það er líf, þá er von,“ segir söngkonan Guð- munda Elíasdóttir. Hún er 91 árs og á að baki litríka ævi. Svo litríka að henni voru gerð skil í bókinni Lífs- játning sem kom út árið 1981. Þar ritaði Ingólfur Margeirsson ævi- minningar Guðmunda. Bókin þótti með eindæmum einlæg og hún seg- ir marga hafa þakkað sér fyrir hana. Til stendur að gefa bókina aftur út og með aukakafla sem Ingólfur hafði lokið við skömmu áður en hann lést skyndilega, fyrr á þessu ári. Veggur dána fólksins Guðmunda tekur á móti blaðamanni í fallegu, rauðu steinhúsi við Vest- urgötu í Reykjavík. Hún býr á neðri hæðinni ásamt tveimur köttum og dóttir hennar Sif býr ásamt fjölskyldu sinni á þeirri efri. „Það er líf og fjör hérna í húsinu,“ segir hún og hlær einstökum og smitandi hlátri sem fær mann til að hlæja með. Íbúðin er full af minningum og veggirnir þaktir myndum. „Þetta er allt fólkið mitt,“ segir hún og bendir á veggina. „Hér eru þeir sem er farnir, ég hef þá sér,“ segir hún og bendir á hliðarvegg. Þar eru myndir af fólkinu hennar sem hefur yfirgefið þennan heim. Meðal annars litlu dóttur henn- ar, Bergþóru, sem lést aðeins þriggja ára gömul og eiginmanni hennar, Henrik Knudsen. Á hinum veggnum eru myndir af börnum og barnabörn- um og vinum Guðmundu. Hún er líf- leg og fjörug og hefur sankað að sér mörgu velvildarfólki í gegnum lífið. Byrjaði fertug að reykja Guðmunda hefur jafnan farið sínar eigin leiðir í lífinu. Hún var mestalla ævina grænmetisæta og var gagn- rýnd mjög fyrir það. „Ég kynntist þessu í Danmörku og það þótti eðli- legt þar, en ekki hér. Mamma sagði að ég myndi deyja á þessu græn- metisfæði,“ segir hún hlæjandi. Hún segist þó borða kjöt í dag en passa að borða mikið grænmeti. Hún byrjaði líka frekar seint að reykja sígarettur, eða í kringum fer- tugt. „Mig langaði alltaf að reykja,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Mamma reykti alltaf pípu og mig langaði alltaf að reykja en byrj- aði ekki fyrr en eftir að ég hætti að syngja svona mikið.“ Erfiðast að missa börnin Hún segir að þótt hún sé allajafna glöð og hafi átt góða tíma, þá hafi líf- ið ekki alltaf verið auðvelt. Sérstak- lega hafi verið erfitt að horfa á eftir börnunum sínum. „Ég hef yfirleitt átt góða tíma en að missa börnin mín, það var erfitt. Það var það erfiðasta í lífinu,“ segir hún og þungi færist yfir annars glaðvært andlit hennar. „Bergþóra dó árið 1946 og var þá tæplega þriggja ára.“ Hún var frum- burður Guðmundu. Fædd árið 1943. „Ég var úti þegar hún dó. Ég skrapp út til Kaupmannahafnar í einn túr, ég átti að syngja í Konunglega leik- húsinu og átti að komast inn og læra fleiri hlutverk. Ég var alveg veik í að læra fleiri hlutverk. Ég ætlaði að vera úti eitt ár og sjá hvað ynnist úr því. Bergþóra var hjá systur minni á með- an.“ Föst í París þegar dóttir hennar dó Þegar hún var úti fékk hún sím- tal um að litla stúlkan hennar væri veik. „Ég varð að fara heim í einum hvelli og það var erfitt að komast heim þá. Ég var svo heppin að það var amerísk flugvél sem var að fara heim til Íslands og mér var sagt að ég fengi að fara með henni. Því var reddað og ég var keyrð í dauðans ofboði út á flugvöll. Síðan vorum við að fljúga og ég sá að við vorum enn yfir landi. Þá var búið að skikka vélina til að fara til Frakklands, til Parísar. Ég var föst þar í þrjá daga. Á þessum þremur dögum dó hún. Og ég var úti í París,“ segir hún alvarleg. Bergþóra var mikið veik en hún seg- ir það ekki hafa verið vitað nákvæm- lega af hverju hún dó. „Líklega hef- ur hún forkælst og ekki náð að jafna sig,“ segir hún og augljóst er að þrátt fyrir að langt sé liðið frá missinum er minningin enn sár. Erfitt að horfa á eftir syninum Sextíu árum seinna dó sonur henn- ar, eða fyrir um tveimur árum. Henni reyndist það einnig þungbært. „Hann hét Hans Albert Knudsen, bjó í Lúx- emborg og vann hjá Cargolux sem hleðslustjóri. Hann dó úr krabba- meini, alveg eins og pabbi hans,“ segir hún og bendir á vegginn sem geym- ir myndirnar af þeim sem eru farnir. „Það er þessi á stóru myndinni, efst uppi,“ segir hún og fingurinn vísar á stóra mynd af myndarlegum manni, líklega tekna í kringum miðja síðustu öld. Hún segir það hafa verið gríðar- lega erfitt að horfa á eftir börnunum sínum í gröfina. Það hafi tekið á þó það hafi verið ólíkt þar sem hún var á mismunandi stöðum í lífinu þegar þau kvöddu. „Kannski er maður ekki jafn sterkur þegar maður eldist en ég var nú ung þegar ég missti Bergþóru en ég ætlaði aldrei að komast yfir það. En það bjargaðist,“ segir hún og fallegt bros færist yfir andlitið. Flúði nasista með ungbarn á hjóli Guðmunda hefur átt glæsilegan feril sem söngkona. Hún hefur sungið víða um heim. Á Íslandi, í Bandaríkjunum, Kanada, Frakklandi og Danmörku. Hún var talin ein besta óperusöng- kona Íslands og var ein fárra í heim- inum sem náði þrefaldri áttund. Fer- illinn byrjaði í Danmörku þegar hún komst óvænt inn á konservatoríið í Kaupmannahöfn. Þar var hún í seinni heimsstyrjöld- inni og það var ekki auðvelt að vera þar á stríðstímum enda landið her- numið af Þjóðverjum. „Það var erfitt. Nasistarnir tóku allt vatn af okkur og við urðum að flýja. Þá var yngsta dótt- ir mín aðeins 10 daga gömul og það var vatnslaust heima hjá okkur. Við fórum á hjóli eins og gífurlega marg- ir sem flúðu. Við hjóluðum til Hróars- keldu og það var mjög erfitt aðeins 10 dögum eftir fæðingu,“ segir hún. Þarna var hún um tvítugt og lífið rétt að byrja. Brauðstrit í New York Frá Danmörku fóru þau til Íslands en hjartað þráði út. Hún vildi reyna fyrir sér erlendis og úr varð að fjölskyldan flutti til New York. Þá var hún gift eig- inmanni sínum Henriki Knudsen og þau fluttu út árið 1953 ásamt börnum sínum, Hans Albert og Sif. Þau ætl- uðu sér stóra hluti í fyrirheitna land- inu en lífið var ekki alltaf eins og am- erískur draumur. „Við bjuggum þar í nokkur ár. Ég var þar aðallega að læra hlutverk og ef maður hefði haft nægi- lega skarpa olnboga þá hefði maður kannski getað olnbogað sig áfram,“ segir hún og hlær. Fyrstu árin í stóra eplinu voru erf- ið og stundum voru ekki til pening- ar fyrir nauðsynjum, eins og Guð- munda segir frá í ævisögu sinni Lífsjátningu. Þau komust þó í gegn- um það og hún fékk fljótlega ágætis vinnu og söng víða á vegum Federal Chur ches. „Mér gekk faktískt vel. Ég hafði yfirleitt nóg að gera en þetta var náttúrulega töluvert brauðstrit. Ég var gift gullsmiði og hann hafði góða vinnu, afskaplega flinkur maður. Við höfðum það ágætt, þannig séð, en það var brösótt inni á milli, peninga- lega,“ segir hún en gerir lítið úr pen- ingaleysinu. „En það er kannski alls staðar. Það er bara að vilja ekki of mikið,“ segir hún og skellihlær. „Ég held maður eigi það til að vilja of mikið,“ segir hún og brosir út í ann- að. Söng fyrir Nixon Meðan á Bandaríkjadvölinni stóð söng hún víða. Meðal annars í Hvíta húsinu fyrir Richard Nixon sem þá var varaforseti Bandaríkjanna. „Ég söng þarna á árlegri jólatrésskemmtun þar sem kveikt var á jólatrénu.“ Eisenho- wer hafði fengið hjartaáfall og Nixon leysti hann af. Eisen hower kveikti á trénu frá sjúkrabeði sínum og Guð- munda söng fyrir milljónir manna í beinni útsendingu. „Það var afskap- lega gaman. Ég söng Heims um ból á fimm tungumálum. Á íslensku, dönsku, þýsku, frönsku og ensku. Það var svo mikill fjöldi af fólki sem var þarna. Það var alveg troðfullt og ég hugsaði með mér að það yrðu allir að fá að heyra lagið á sínu tungumáli,“ segir hún hógvær og hlær út í annað. Kunni vel við sig í Danmörku Eftir jólaskemmtunina var henni boðið að koma oftar og syngja í Hvíta húsinu. „Ég söng nokkrum sinnum í Hvíta húsinu. Ef maður er kominn einu sinni inn og það gengur vel þá er auðveldara að komast aftur.“ Í New York var hún í fimm ár en kom reglulega til Íslands og söng Guðmunda Elíasdóttir ákvað fyrir tilviljun að verða söngkona og lærði í Kaupmannahöfn. Þar eignaðist hún sitt fyrsta barn í miðri seinni heimsstyrjöld og þurfti að flýja undan harðræði nasista á hjóli með nýfætt ungbarn sitt. Seinna fleytti tilviljun henni til Bandaríkjanna þar sem hún söng meðal annars fyrir Richard Nixon í Hvíta húsinu. Hún segist vera yfirleitt glöð þó að lífið hafi ekki alltaf verið auðvelt og erfiðast hafi verið að horfa á eftir tveimur börnum sínum yfir móðuna miklu. Hún sagði Viktoríu Hermannsdóttur upp og ofan af lífi sínu einn sólríkan sumardag í júlí. „Á þessum þremur dögum dó hún. Og ég var úti í París. „Það var erfitt. Nasistarnir tóku allt vatn af okkur og við urðum að flýja. Þá var yngsta dóttir mín aðeins 10 daga gömul. Yfirleitt glöð Guðmunda segist yfirleitt vera kát þó að lífið hafi stundum leikið hana grátt. Hún hefur aldrei gefist upp þó að oft hafi reynt á. mYND guNNar guNNarSSoN „Meðan það er líf þá er von“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.