Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Qupperneq 63
Lífstíll | 63Helgarblað 29. júlí – 2. ágúst 2011
Lima hrísmjólk er
lífræn, bragðgóð,
fitusnauð, án
kólesteróls, laktósa
og sykurs.
Tedrykkirnir eru
hollir, hressandi
sumardrykkir fullir
af andoxunarefnum.
Trönuberjasafinn frá
healthy people er
án viðbætts sykurs
og einstaklega
bragðgóður.
»
»
»
Berry drykkirnir eru verðlaunavara. Hreinir og án
litar- og rotvarnarefna. Án viðbætts sykurs.
Ber eru full af vítamínum og andoxunarefnum.
Gojiberið er oft kallað Hamingjuberið!
»
HREIN HOLLUSTA
Arka ehf | Sundaborg 1 | 104 Reykjavík | Sími 562 6222 | info@arka.is
Lima hrísmjólk er
lífræn, bragðgóð,
fitusnauð, án
kólesteróls, laktósa
og sykurs.
Tedrykkirnir eru
hollir, hressandi
sumardrykkir fullir
af andoxunarefnum.
Trönuberjasafinn frá
healthy people er
án viðbætts sykurs
og einstaklega
bragðgóður.
»
»
»
Berry drykkirnir eru verðlaunavara. Hreinir og án
litar- og rotvarnarefna. Án viðbætts sykurs.
Ber eru full af vítamínum og andoxunarefnum.
Gojiberið er oft kallað Hamingjuberið!
»
HREIN HOLLUSTA
Arka ehf | Sundaborg 1 | 104 Reykjavík | Sími 562 6222 | info@arka.is
Hinn óeiginlegi
Laugavegur er gríðarlega öflugt jarðhitasvæði með hvæsandi gufuaugum, sjóð-andi tjörnum og kolsýrulaugum og litríkum leirflögum. Tvílitir fossar og heitir lækir verða á vegi ferða-langa. Að þessu sinni var umhverfið óvenjulega litríkt því mikill snjór er í öllum giljum og fjöllum sem þakinn er brúnu öskulagi úr Grímsvatna-gosinu í vor. Þetta gefur annars fjöl-
breyttu og óhemju litríku Jökulgilinu
einstæðan svip. Ferðalangar lentu í
nokkrum sviptingum við Jökulgils-
kvíslina sem vaða þurfti tvisvar til að
komast inn í Kaldaklof. Frá Háuhver-
um var síðan gengið um gil og brekk-
ur upp í skarð í Reykjafjöllum í 1.100
metra hæð og þá koma ferðalangar
skyndilega inn á fjölfarna slóð hins
hefðbundna Laugavegar við Hrafn-
tinnusker eftir að hafa verið einir á
ferð allan daginn fyrir utan nokkrar
undrandi sauðkindur í Hattveri og
Kaldaklofi.
Má bjóða þér ölkelduvatn?
Daginn eftir er haldið aftur til austur
gegnum sama skarðið í Reykjafjöll-
unum og stefnt til suðurs fyrir aust-
an Háskerðing og Kaldaklofsfjöll. Á
vegi ferðamanna eru sjóðandi kol-
sýrulaugar, litrík hverasvæði og öl-
keldur sem hægt er að svala þorsta
sínum í. Svo hallar suður af og Mýr-
dalsjökull blasir við sunnan sands
þegar hópurinn þræðir brattar
brekkur niður með Mangagili niður
í Kaldaklof hið syðra og gengur síð-
an eftir grónum sléttum og söndum
gegnum Hvanngilshnausa í gistingu
í Hvanngili.
Á þriðja degi er farið úr Hvanngili
og gengið meðfram Kaldaklofskvísl
norður fyrir Stórusúlu og hún vað-
in í Stígsveri sunnan við Brattháls.
„Venjulegir“ ferðalangar fara yfir
kvíslina á göngubrú og vaða síðan
Bláfjallakvísl en í Stígsveri eru þær
báðar komnar saman auk Brattháls-
kvíslar. Þarna eru þó góð vöð og áin
breið og lygn og nær meðalmanni
aðeins upp undir hné. Áfram er hald-
ið gegnum leynidali og skörð í Súlu-
hryggjum og síðan niður á sand til
að komast yfir Innri-Emstruá á bíla-
brúnni. Svo er bílvegi fylgt niður að
Hattfelli og gengið gegnum Hatt-
fellsgil niður að Markarfljóti og hin-
um tignarlegum gljúfrum þess fylgt
að skálunum í Emstrum. Á leið-
inni skyggna þátttakendur ummerki
hamfarahlaupa undan Mýrdals-
jökli sem mótuðu þetta fagra land
þegar stór lón á Emstrum tæmd-
ust fyrir um 2.500 árum og Markar-
fljótsgljúfur urðu til. Slóðir krassandi
draugasagna eru einnig heimsótt-
ar og menn fá hroll um hábjartan
dag í sólskini þegar þær eru sagðar á
staðnum.
Hér kemur enginn nema
refurinn
Á fjórða degi er haldið úr góðri gist-
ingu í Emstrum og farið yfir hina
úfnu og illþefjandi Fremri-Emstruá
á göngubrú í gljúfrum. Óvenju mik-
il brennisteinslykt er af ánni þar sem
hún ólmast milli þverhníptra kletta-
veggja.
Svo er beygt af slóðinni og príl-
að upp á Langháls við Entujökul og
haldið suður Almenninga að Ljósá.
Ferðin sækist seint vegna sólskins og
góðviðris en frá Ljósá er gengið um
völundarhús gilja gegnum hálsinn
milli Ljósár og Þröngár. Hér kemur
enginn nema refurinn og þessir fá-
einu göngumenn ár hvert. Og gróð-
urinn ilmar í sólinni.
Þröngáin er nokkuð bólgin af
leysingu þegar við komum ofan snar-
bratt gilið að henni. Nokkurt brölt er
meðfram ánni til að finna gott vað
og ferðalangar setjast fegnir í grasið
handan ár þegar þeir eru sloppnir úr
straumhnútum Þröngárinnar.
Næst er haldið upp gil og lækjar-
farvegi inn úr Rjúpnafellsgili og hóp-
urinn stendur sveittur en ánægður á
merktum stíg við rætur Rjúpnafells.
Hluti hópsins gengur á fjallið en aðrir
halda áfram um Stangarháls og aura
Krossár út í Langadal. Það er ólýsan-
leg tilfinning að ganga um angandi
birkiskóga og þéttofið gróðurríki
Þórsmerkur eftir að hafa gengið um
eyðimerkur og jökulsporða gegnum
líparít, jarðhita og móbergsmyndan-
ir á leiðinni undanfarna fjóra daga.
Fáar gönguleiðir búa yfir eins
mikilli fjölbreytni og leiðin milli
Landmannalauga og Þórsmerkur.
Hér er íslensk náttúra eins og hún
gerist fjölskrúðugust og ævintýraleg-
ust. Hreinasta flugeldasýning móð-
ur náttúru og við sitjum agndofa yfir
gæsku hennar og mildi.
Allar Laugavegsferðir hefjast í Landmannalaugum Litrík tjaldborgin keppir við
líparítið í morgunsólinni.
Aldursforseti ferðalagsins (72) Í Stakkholtsgjá í Þórsmörk á heimleið eftir tæplega
80 kílómetra göngu á fjórum dögum.