Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Page 14
Góð gæludýra-
verslun
n Verslunin Gæludýr.is á Korputorgi
fær lofið fyrir góða þjónustu og góðar
verðmerkingar. Tveir gæludýraeig-
endur, sem DV hefur haft spurnir af,
ljáðu nýlega máls á því að verðmerk-
ingar væru til fyrirmyndar og
þjónustan líka. Frí heimsend-
ing er á vörum á höfuðborgar-
svæðinu og mælist það vel
fyrir. „Ég versla núna
alltaf þarna,“ sagði
hundaeigandi sem
sendi DV línu.
Ítrekað send á
milli starfs-
manna
n Kona á miðjum aldri hringdi í DV
og sagðist ekki eiga orð yfir þjón-
ustuna í Húsasmiðjunni í Hafnar-
firði. Hún hafði farið í Húsasmiðjuna
til að finna einn hlut. Eftir að
hafa ítrekað verið send á
milli ungra og óreyndra
starfsmanna, án þess
að nokkur þeirra gæti
hjálpað henni, var
henni nóg boðið og
beindi viðskiptum sínum
annað.
14 | Neytendur 24. ágúst 2011 Þriðjudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 232,7 kr. 232,7 kr.
232,5 kr. 232,5 kr.
Höfuðb.sv. 232,4 kr. 232,4 kr.
Melabraut 232,5 kr. 232,5 kr.
Algengt verð 234,5 kr. 232,8 kr.
Melabraut 232,5 kr. 232,5 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Burt með
verndartolla
Neytendasamtökin gagnrýna harð-
lega að stjórnvöld skuli leggja ofur-
tolla á matvæli sem ekki séu fram-
leidd hér á landi, svo sem margar
tegundir osta, og handstýri þannig
neyslunni. Í grein á heimasíðu sam-
takanna, ns.is, segir að samtökin hafi
lengi gagnrýnt himinháa tolla sem
lagðir eru á allar innfluttar landbún-
aðarvörur. Afnám þeirra myndi lík-
lega lækka vöruverð á Íslandi. Sam-
tökin hvetja stjórnvöld til að fella
hið fyrsta niður tolla af vörum sem
ekki eru framleiddar hér, svo sem
parmesanosti og geitaosti. „Það er
eðlilegt skref og ekki hægt að sjá að
neinn geti sett sig upp á móti slíkum
breytingum.“
Skiptu út óholla matnum
Það er ekki sjálfgefið að þú þurfir að gerbreyta mataræðinu til að léttast eða minnka magamálið. Ef þú tekur
lítil skref í átt að heilsusamlegri lífsstíl er ólíklegra að þú springir á limminu. Hér á eftir fara nokkur einföld ráð
til að skipta út óhollum mat fyrir hollan, án þess að fara alveg á mis við bragðgóða máltíð. baldur@dv.is
Hafragrautur
í stað
morgunkorns
Jafnvel þó sumt morgunkorn sé
kynnt eins og um megrunarfæði
sé að ræða er staðreyndin sú að
margar tegundir innihalda mikinn
sykur. Þannig inniheldur Kellogg's
Special-K álíka mikinn sykur
og kanilsnúður með súkkulaði.
Neysla á sykruðu morgunkorni í
byrjun dags getur leitt til þess að
líkaminn kallar á meiri sykur. Í stað
þess að festast í þeim vítahring
ætti að prófa að borða hafragraut,
sem hefur lágan sykurstuðul,
á morgnana. Sykurstuðull er
mælikvarði þess hversu mikið til-
tekið kolvetni hækkar blóðsykur.
Hafragrautur er ekki bara fullur
af næringarefnum heldur mun
orkan sem hann veitir þér
endast mun lengur en dæmigert
sykrað morgunkorn. Gott er að
bragðbæta grautinn með rúsínum
eða sveskjum.
F
artölva frá Boðeind sem Hóp-
kaup auglýsti til sölu með 40
prósenta afslætti, á 87 þús-
und krónur, verður til sölu í
Tölvulistanum á 99 þúsund krónur
án afsláttar í næstu viku, ef marka
má heimasíðu Tölvulistans og orð
rekstrarstjóra fyrirtækisins.
Á Okursíðu Dr. Gunna birtist á
dögunum ábending þar sem því var
haldið fram að gróf neytendablekk-
ing væri fólgin í 40 prósenta afslátt-
artilboði Hópkaupa þar sem vélin
væri fáanleg á næstum því sama
verði hjá Tölvulistanum. Tilboð-
ið var á Asus-fartölvu frá Boðeind,
sem upphaflega hafði kostað 145
þúsund krónur, og hljóðaði verðið
upp á 87 þúsund krónur ef 30 eða
fleiri myndu taka tilboðinu. Alls 97
tóku tilboðinu sem fól í sér 40 pró-
senta afslátt miðað við upphaflegt
verð Boðeindar.
DV kannaði málið og komst að
því að vélin er ekki til í Tölvulistan-
um. Sæmundur Einarsson, rekstr-
arstjóri Tölvulistans, staðfesti það
en sagði að hún væri væntanleg um
eða eftir helgi. „Nei, hún hefur ekki
verið seld hjá okkur ennþá,“ sagði
hann. Sæmdundur sagði enn frem-
ur aðspurður að verð þeirra hefði
aldrei verið lækkað, það hefði alltaf
staðið til að selja hana á 99 þúsund.
Lausleg athugun DV leiddi í ljós að
vélin er ekki fáanleg annars staðar
enn sem komið er.
Í svari frá Hópkaupum á Okur-
síðunni segir að starfsfólk Hóp-
kaupa hafi gengið úr skugga um að
upprunalegt verð
Boðeindar væri
rétt. „Ef hægt er
að nálgast sam-
bærilega tölvu í
öðrum verslun-
um á Íslandi þá er
það mjög gott fyrir
neytendur að vita
af því en þannig er
nú samkeppnin.“
Vélin ekki til annars staðar
n Hópkaup svarar ásökunum vegna tilboðs á fartölvu
Gott verð
Tilboð Hópkaupa
var 12 þúsund
krónum lægra
en áætlað verð í
Tölvulistanum.
Hlynsýróp í stað sykurs
Ekki er ástæða til að sniðganga með öllu neyslu sykurs. Nauðsynlegt er þó
að neyta þessa einfalda orkugjafa í hófi. Ef þú neytir drykkjar, til dæmis
kaffis eða tes, sem þér finnst ódrekkandi án sykurs, ættir þú kannski að
prófa hlynsýróp. Hvítur sykur er gjörsneyddur næringarefnum en hlynsýróp
er aftur á móti hlaðið járni, kalki, sinki og öðrum steinefnum. Þess utan
hefur hlynsýróp mun lægri sykurstuðul en hreinn sykur og því hækkar
blóðsykurinn ekki jafn hratt.
Jómfrúarolía í stað
grænmetisolíu
Einómettuð jómfrúarolía, sem er kaldpressuð ólífuolía, er ein holl-
asta matarolía sem völ er á. Hún er rík af andoxunarefnum og fitan
er „góð“ eins og stundum er sagt. Olían getur ekki aðeins hjálpað
fólki að léttast heldur hefur hún einnig þá eiginleika að geta dregið
úr kólesteróli og þannig dregið úr líkum á hjartaáfalli. Reyndu að
kaupa olíu í glerflösku frekar en plasti til að tryggja hreinleika
hennar. Skiptið út grænmetisolíunni og notið jómfrúarolíu til að
steikja upp úr (á vægum hita) og á ferskt grænmeti.
Heimalagaðar sósur
í stað tilbúinna
Flestar tilbúnar sósur eru mikið unnin matvæli sem eru stútfull
af sykri, salti og rotvarnarefnum. Í stað þess að fylla ísskápinn
af krukkum og dollum með tilbúnum sósum skaltu prófa að laga
þínar eigin. Gott ráð er að mauka tómata og bæta við kryddjurtum
og fersku grænmeti. Kaloríurnar verða miklu færri, þú færð fullt af
andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum, auk þess sem engin
óæskileg aukaefni verða í matnum þínum.
374 kr.*
396 kr.*
618 kr.