Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 54
54 Fólk 5.–7. apríl 2013 Helgarblað
Fékk dóttur í
afmælisgjöf
A
thafnakonan, veitinga
húsaeigandinn og verð
launakokkurinn Hrefna
Rósa Sætran eignaðist litla
dóttur á dögunum. Hrefna Rósa
og sambýlismaður hennar, ljós
myndarinn Björn Árnason, eiga
fyrir soninn Bertram Skugga sem
fæddist 11. september 2011. Sú
stutta kom í heiminn á afmælis
degi pabba síns á sjálfan föstu
daginn langa og hefur þegar
hlotið nafnið Hrafnhildur Skugga
Björnsdóttir Sætran.
Með tærnar þar sem
aðrir hafa hælana
n Pétur Örn slær í gegn á Facebook
T
ónlistarmaðurinn Pétur Örn
Guðmundsson, annar höf
unda Eurovisionlagsins Ég
á líf, er húmoristi mikill. Ný
lega birti Pétur Örn, sem oft er kall
aður Pétur Jesú, þessa mynd á Face
booksíðu sinni undir yfirskriftinni
„Kræst ! Ég er aksjúllí með tærnar
þar sem aðrir hafa hælana!“
Vinir hans á samskiptasíðunni
kunna vel að meta brandarann og
trommarinn Birgir Nielsen segist
ekki þurfa Stöð 2 þegar hann eigi
Pétur sem vin á Facebook.
Þ
etta var eiginlega samkomu
lag okkar milli, hún treysti
því að ég myndi klára þetta
ef hún gæti það ekki sjálf,“
segir Tinna Gunnlaugsdótt
ir þjóðleikhússtjóri sem tekur við
hlutverki móður sinnar, Herdísar
Þorvaldsdóttur, í leikverkinu Karma
fyrir fugla í Þjóðleikhúsinu um
helgina. Herdís lést, eins og kunnugt
er um síðustu helgi, 89 ára að aldri.
„Fyrir mér er það sannur heiður og
ég lít á mig sem staðgengil. Ég vona
að hennar andi svífi þarna yfir vötn
unum þó ég haldi uppi merkinu.“
Herdís lifði ríku lífi
Herdís steig fyrst á svið aðeins 9 ára
og má því segja að leikferill henn
ar hafi spannað 80 ár. Hlutverk
hennar sem Búddanunna í verkinu
Karma fyrir fugla var það síðasta á
farsælum ferli og stóð hún síðast á
sviði í Þjóðleikhúsinu aðeins viku
fyrir andlátið.
Það er því óhætt að segja að
Herdís hafi lifað lífinu til fulls al
veg þangað til kallið kom. „Hún var
öflug og sjálfstæð kona,“ segir Tinna
um móður sína. „Hún lifði ríku lífi,
bjó ein, ók sínum bíl og lifði til fulls í
tæp 90 ár. Hún skilaði sínu dagsverki
og gott betur.“
Sannur heiður
Tinna og Herdís léku oft saman,
bæði í kvikmyndum og á sviði. Þá
fetaði Tinna nokkrum sinnum í fót
spor móður sinnar með því að leika
sömu hlutverk og hún hafði gert
áður. „Það var sannur heiður og
gaman að eiga hana að, ekki bara
sem móður, heldur einnig starfs
félaga og viskubrunn.“ Tinna segir
móður sína ekki aðeins hafa verið
viskubrunn þegar kom að leik
listinni heldur bara í lífinu sjálfu,
enda hafi áhugasvið hennar verið
mjög vítt.
Það hlutverk sem Tinnu þykir
vænst um að hafa leikið á eftir móð
ur sinni er hlutverk Snæfríðar Ís
landssólar í Íslandsklukkunni. „Það
var óskaplega gaman, mikil reynsla
og heiður að fá að leika hlutverkið
sem skóp hana, Snæfríði Íslandssól,
í opnunarsýningu leikhússins.“
Blendnar tilfinningar
Tilhugsunin um að stíga á svið um
helgina vekur blendnar tilfinningar
hjá Tinnu. „Auðvitað er það mikið
tilfinningalegt umrót að missa móð
ur sína þó maður sé þakklátur fyrir
það gjöfula líf sem hún fékk að lifa og
hve lengi hún var með okkur. Þetta
verður bæði heiður og áskorun,“
segir Tinna.
Þrjár sýningar eru eftir af verkinu
og fara þær allar fram um helgina.
Tinna segir þó sýninguna hafi fengið
þannig viðtökur og athygli að verið
sé að ráðgera nýtt sýningartímabil.
Það er þó enn óráðið hvernig umrætt
hlutverk verður leyst á nýju tímabili.
„Ég tek þessar þrjár sýningar núna
um helgina og nýt þess að fá að ljúka
því verki sem hún hóf. Hún vildi
helst ljúka því sem hún byrjaði á og
ég fæ að gera það fyrir hennar hönd,“
segir Tinna að lokum. n
n Tinna Gunnlaugs lýkur verkefninu fyrir móður sína
Skilaði sínu
dagsverki
Lifði ríku lífi Tinna hefur oftar en einu sinni á ferl-
inum fetað í fótspor móður sinnar. Það hlutverk sem
henni þykir vænst um er Snæfríður Íslandssól.
„Við erum í skýjunum“
n Ellý Ármanns, ritstjóri Lífsins á Vísi, er orðin amma
Þ
etta er besta tilfinning í
heimi og sérstaklega þar
sem þetta gekk allt vel og
allir eru hraustir,“ segir Ellý
Ármanns, ritstjóri Lífsins á Vísi
en hún og unnusti hennar, Freyr
Einarsson, fréttastjóri á Stöð 2, eru
orðin amma og afi. Dóttir Freys
frá fyrra sambandi, Kassandra Líf
Freysdóttir, eignaðist dóttur á mið
vikudaginn á Landspítalanum. Litla
dótturdóttirin var 12 merkur og 50
sentímetrar og er guðdómleg að
sögn Ellýjar. „Hún er falleg og heil
brigð og við erum alveg í skýjun
um,“ segir hún og bætir við að nú
geti hún loksins farið að dekra við
barnabarn.
Amman og afinn Ellý og
Freyr ásamt Kríu dóttur þeirra.
„Hún var
öflug og
sjálfstæð kona