Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Page 25
Fréttir 25Helgarblað 5.–7. apríl 2013 „Töfralausnir hafa bara einn galla – þær virka ekki R íkisstjórn Jóhönnu Sigurðar­ dóttur fékk það tröllaukna verkefni að forða Íslandi frá þjóðargjaldþroti eftir bankahrunið. Stærsta verk­ efni kjörtímabilsins hefur verið að ná niður 216 milljarða fjárlagahalla, þeim mesta sem sögur fara af á lýð­ veldistímanum. Það verkefni hefur ríkisstjórnin leyst með miklum sóma en fjárlög þessa árs gera ráð fyrir að hallinn verði innan við 4 milljarða og frumjöfnuður 60 milljarðar í plús. Þessi árangur hefur sparað ríkinu vaxtakostnað sem nemur um 17 milljörðum króna á ári, sem er sam­ bærilegt við rekstrarkostnað allra framhaldsskóla á Íslandi. Töfralausnir Þessi árangur í ríkisfjármálum skap­ ar okkur svigrúm til að hefja nýja sókn í þágu almennings og setja heil­ brigðis­, velferðar­ og menntamál í öndvegi á nýju kjörtímabili. Eitt brýnasta verkefnið er að skapa fólki húsnæðisöryggi, sem sárlega hefur vantað á Íslandi undanfarna ára­ tugi. Allt frá því Framsóknarflokk­ urinn hafði frumkvæði að upptöku verðtryggingar í lok 8. áratugarins hefur íslenskur almenningur tek­ ið á sig skellinn af gengisfellingum og gengishruni krónunnar um hver mánaðamót. Nú lofar Framsóknar­ flokkurinn afnámi verðtryggingar en bara á lánum sem tekin verða í framtíðinni og niðurfærslu skulda í eitt skipti, en síðan á almenning­ ur að búa áfram við krónu og verð­ tryggingu. Þetta er skammtímalausn sem er ekki boðleg fyrir íslenskan almenning. Töfralausnir hafa bara einn galla – þær virka ekki. Öruggt húsnæði Við jafnaðarmenn leggjum áherslu á að klára aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið til að skapa skil­ yrði fyrir nýjum gjaldmiðli og stöð­ ugleika í efnahagslífinu. Með nýjum gjaldmiðli yrði verðtrygging og gjald­ eyrishöft aflögð í eitt skipti fyrir öll og almenningur fengi vaxtakjör á neyt­ endalánum sem myndu lækka lán­ tökukostnað heimilanna gríðarlega. Höfum í huga að vextir í evrulöndun­ um eru í fyrsta lagi óverðtryggðir og í öðru lagi tvöfalt til þrefalt lægri en á Íslandi. Það munar um minna. Samfylkingin vill afnema stimpil gjöld og uppgreiðslugjöld til að ýta undir heilbrigða samkeppni í lánamálum og auðvelda fólki að færa sig milli lánastofnana. Sam­ fylkingin leggur líka áherslu á að teknar verði upp nýjar húsnæðis­ bætur, sem verði jafnháar fyrir þá sem leigja og kaupa húsnæði. Fyrir liggja tillögur um húsnæðisbætur sem geti numið allt að 44 þúsund krónum á mánuði fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Þessu til við­ bótar vill Samfylkingin leiðrétta forsendubrest skuldugra heimila sem keyptu á árunum fyrir hrun og nýta skattkerfið í þeim tilgangi. Heilbrigðismál í forgang Einn mikilvægasti árangur ný­ afstaðins þings var samþykkt nýs Landspítala, sem mun gjörbreyta til hins betra starfsumhverfi á þjóðarspítalanum og þjónustu við sjúklinga. Þessi stærsti vinnu­ staður landsins er hryggjar stykkið í velferðarkerfinu en hefur mátt búa við niðurskurð frá því fyrir hrun, þegar forgangsröðun Sjálf­ stæðisflokks og Framsóknar­ flokks miðaðist við einkavæðingu og þjónkun við sérhagsmunaöfl í sjávarútvegi og stóriðju. Nýr Landspítali sendir skýr skila­ boð um að jafnaðarmenn ætla að verja velferðarkerfið og auka stuðning við heilbrigðiskerfið með því að efla grunnstoðirnar og því til viðbótar verður sérstaklega ráðist í endurmat til hækkunar á launum kvennastétta í heilbrigðis­ og menntakerfinu og eflingu heilsugæslu sem fyrsta viðkomu­ staðar sjúklinga. Menntakerfi fyrir nemendur Samfylkingin leggur áherslu á að auka framlög til háskóla og fram­ haldsskóla en þessi skólastig hafa verið vanfjármögnuð árum saman ef borið er saman við stöðuna á Norðurlöndum og innan OECD. Við leggjum áherslu á að ráð­ ast í aðgerðir til að draga úr brott­ falli nemenda sem er hið hæsta innan Evrópu og viljum hefjast handa strax í grunnskólum með persónubundnum námsáætlun­ um, öflugri námsráðgjöf í öllum skólum og meiri áherslu á verk­, tækni­ og listnám. Stærsta áskorunin verður að breyta áherslum í þá veru að menntakerfið þjóni fyrst og fremst þörfum nemenda, virki styrkleika þeirra og laði fram það besta í hverjum nemanda. Allir geta lært, verkefnið er að skapa aðstæður til að námið kveiki áhuga og forvitni nemenda og bjóða upp á hagnýt úrræði sem virka fyrir þann hóp nemenda sem þarf sérstakan stuðning, svo sem vegna náms­ eða hegðunarerfiðleika. Höfundur skipar 3. sæti á lista Sam- fylkingarinnar í Reykjavík norður. Fólk í forgang Aðsent Skúli Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.