Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Page 40
40 Menning 5.–7. apríl 2013 Helgarblað É g hitti hana síðast á tröpp- unum fyrir utan hús Þjóð- leikhússins við Lindargötu. Það var nú rétt fyrir páskana, í hléinu í Karma fyrir fugla, síðustu sýningunni sem hún tók þátt í. Hún kom þar stuttlega fram í blálokin og þurfti því ekki að mæta fyrr en leikurinn var hálfnaður. En hún hafði komið full snemma, áhorfendur voru ekki gengnir til sæta sinna og engar bakdyr að fara um til búningsher- bergja. Hún hafði því dokað við í nepjunni þarna fyrir utan. Ber- höfðuð, í pelsinum sínum, og lét lítið fyrir sér fara. Við skiptumst á fáeinum orðum, síðan gengum við inn, ég til sætis, hún til að leikbú- ast. Hlutverk hennar þarna var há- öldruð Búddanunna, sem tekur aðrar kvenpersónur leiksins móð- urlega í fangið og hlúir að þeim. Í dómi mínum orðaði ég það svo að hún hefði liðið „einhvern veginn inn á sviðið, geislandi af hlýju, rósemi og hljóðlátri gleði.“ Svo vill til að ég sá leikinn tvisvar og get borið um að hún gerði þetta jafn fallega í bæði skiptin. Og þó var eins og hún gerði ekki neitt. Á einhvern undarlegan hátt hugsaði maður hvorki um leikara né hlut- verk þá örstuttu stund sem hún var inni og maður varð vitni að þessum leik. Nærvera hennar var í rauninni ekki annað en þetta eitt: nærvera. Fyrirhafnarlaus og óskilgreinanleg. Útgeislun, hrein og tær. Eins og vera bar í hlutverki persónu sem var bersýnilega kom- in langleiðina inn í nirvana. * Það er glæstur og á heildina litið farsæll leikferill sem hér er á enda. Og góð ævi. Herdís var hug- sjónakona, eins og við öll vitum, og óþarft er að orðlengja um hér. Ég vil þó minna á að það var ekki aðeins gróður landsins og ill meðferð okk- ar á honum sem átti hug hennar, því að hún var andlega leitandi og hafði fundið sér sína leið í þeim efnum. Hún setti ljós sitt aldrei undir mæli- ker heldur breiddi út boðskapinn. Á sinn snaggaralega og beinskeytta, en þó ætíð hæverska hátt. Ætli megi ekki segja að þau hugðarefni hennar hafi runnið saman við ævistarfið í því sem varð kveðja hennar til okkar af leik- sviðinu? * Hún stóð í sjötíu og tvö ár á sviðinu. Mér vitanlega hefur enginn íslenskur leikari haft annað eins út- hald. Hún kom fyrst fram árið 1941 í skráðu hlutverki í Nitouche, róm- aðri sýningu Leikfélags Reykjavík- ur á hinni vinsælu frönsku óper- ettu; því ber að telja leikferil hennar þaðan. Gunnar Eyjólfsson kemst næst henni, ef eitthvað er að marka mína tölfræði; hann er, sem kunn- ugt er, enn að, en hann kom fyrst fram árið 1945 og vantar því fjögur ár í að slá met Herdísar. Af hinum eldri leikurum okkar átti Þorsteinn Ö. Stephensen lengi metið, sextíu og sex ár, frá 1923 til 1989. Herdís lifði sannarlega tíma tvenna í leikhúsinu. Árið 1941 var enn áratugur í að Þjóðleikhús- ið tæki til starfa. Þar lék hún fyrst Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukk- unni, þeirri af opnunarsýningum leikhússins sem mestum vinsæld- um náði. Næstu árin mátti heita að hún væri „unga stúlkan“ á sviði hússins. Hún var alltaf létt á sér, fór vel með sig og hélt sér vel líkamlega. Hún gat lengi leikið langt niður fyrir sig í aldri, þó að eðlilega tækju síðar við hlutverk þroskaðri kvenna. Á því skeiði naut hún sín þó öllu síður; sviðshlutverkum hlaut að fækka, en í bíómyndunum átti hún stundum góða spretti. Ef til vill skorti hana nokkuð á þann innri þunga og tilfinninga- styrk sem okkur finnst að mæðurn- ar eigi að búa yfir; það var aldrei auðvelt að sjá hana fyrir sér í mjög dramatískum hlutverkum. Hin lýríska æð var sterkari og svo var oft eins og stutt væri í grallarann í henni, hinn sérstæða og orgínal húmor sem ég er hreint ekki viss um að hún hafi alltaf vitað af sjálf. Ég gæti sem best trúað að það hafi búið í henni trúður. Það er naum- ast tilviljun að eitt minnisstæð- asta hlutverk hennar var hin afar sérkennilega kennslukona fröken Margrét í samnefndu mónó drama sem gekk við miklar vinsældir í kjallara Þjóðleikhússins fyrir þrjá- tíu og fimm árum. * Sýning Leikfélagsins á Nitouche braut blað í íslenskri leiksögu fyrir þá sök að þar sló Lárus Pálsson fyrst í gegn sem söngkennarinn og óperettuskáldið Celestin/Floridor. Seinna varð hann kennari Her- dísar áður en hún hélt til náms í Bretlandi. Sömu sögu er að segja af fleirum af hennar kynslóð sem urðu líkt og hún burðarásar í ungri atvinnuleiklist þjóðarinnar. Þetta var öflug kynslóð, miklu öflugri en sú sem á eftir kom. Þeir, sem tala stundum eins og hér hafi aldrei verið stunduð markverð leiklist fyrr en nú hin allra síðustu ár, mættu gjarnan hafa það í huga. Og við fótskör Lárusar drakk Herdís í sig nokkuð sem hinn rík- isrekni leiklistarskóli þjóðarinnar hefur því miður vanrækt með skelfi- legum afleiðingum fyrir yngstu leikara okkar: að kenna nemend- um að fara svo með listrænan texta að hægt sé að skilja hann og njóta fegurðar hans. Það innrætti Lárus, leiklistarkennarinn snjalli, sínum nemendum og að því höfum við búið allt til síðustu ára. * Með vissri einföldun má segja að hún hafi byrjað í Laxness og endað í honum. Hún vakti fyrst þjóðar- athygli í hlutverki Íslandssólar og skömmu síðar lék hún aðalpersón- una í hinu heldur vonda leikriti Halldórs, Silfurtúnglinu. Hún varð því fyrst til að syngja opinberlega hið fagra lag Jóns Nordal við vöggu- vísu Lóu. Undir lokin var hún að heita mátti sjálfkjörin í kellingar skálds- ins. Hún var afbragð sem Hallbera gamla í útgáfu Kjartans Ragnars- sonar á Sjálfstæðu fólki og ekki var hún síðri sem móðir Jóns Hregg- viðssonar í kyndugri sýningu Þjóð- leikhússins á Íslandsklukkunni fyrir fáeinum árum. Ónefndur leikdóm- ari orðaði það svo að leikur henn- ar þá hefði sýnt hvernig mikill leik- ari sem skilur póesíu verksins með hjarta sínu, geti gert „örsmátt hlut- verk risastórt.'Sjaldan mun nokk- ur kona að sunnan hafa farið jafn langt austur ...' hvernig hún sagði þessa setningu á hlaðinu í Skál- holti; það var einfaldleikinn sjálf- ur og opnaði sýn beint inn í tilfinn- ingalega kviku verksins.“ Sagði leikdómarinn. * Fyrri hluti leikferils Herdísar var fyrir mitt minni, en frá því um 1970 geri ég ráð fyrir að ég hafi séð flest ef ekki öll meiri háttar hlutverk henn- ar. Ég kynntist líka vinnubrögðum hennar, bæði af frásögnum annarra og einnig því sem ég sá sjálfur til hennar, ekki síst þau ár sem ég var leiklistarstjóri Útvarps. Það sem mér er efst í huga nú, er hin ósvikna fagmennska hennar, vandvirkni og ósérhlífni. Ég hef meðal annars fyrir satt að hún hafi eitt sinn gert sér ferð til útlanda til að finna réttan klæðn- að fyrir eitt hlutverka sinna. Það var þegar hún átti að leika Maggie í sjálfsævisögulegum leik Arth- urs Millers, Eftir syndafallið, árið 1965. Persónan er byggð á Mari- lyn Monroe sem Miller var um skeið kvæntur. Þegar Herdís tók að skoða í búningasafn Þjóðleik- hússins sá hún strax að þar væri heldur fátt um nýtísku glæsiklæðn- að samboðinn slíkri gyðju og því ekki annað að gera en skreppa sjálf í tískuverslanir erlendis til að afla sér viðeigandi fatnaðar. Hvort Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, sem var þekkt- ari fyrir margt annað en bruðl, skrifaði upp á alla reikningana, fylgdi ekki sögunni; mér er nær að halda að svo hafi ekki verið. Og ég er næsta viss um að hann borgaði ekki ferðina. Satt að segja finnst mér Gunnlaugur Þórðarson, eigin- maður hennar, öllu líklegri til þess. Hann dáði konu sína og stóð með henni, þó að síðar skildi með þeim leiðir. * Ég veit að kollegar Herdís- ar gætu aukið mörgum áþekkum dæmum við þessa litlu frásögn. Flosi heitinn Ólafsson sagði mér aðra sögu sem ég stenst ekki mátið að láta fljóta hér með. Svo vill til að ég á hana með orðum Flosa sjálfs, sem gerði mér eitt sinn þann greiða að festa hana á blað, ásamt fleiri minningarbrotum um samferða- menn sína í leikhúsinu. Þetta var þegar Herdís var að leika Ömmu skógarmús í Dýrunum í Hálsaskógi. Herdís túlkaði Ömm- una, sagði Flosi, „í lausu lofti – var sem sagt hífð upp í köðlum og talí- um sem sífellt voru að bila. Þannig dinglaði hún bjargarlaus, sýningu eftir sýningu, og barðist harkalega í sviðsveggina og leikmyndina. Mesta mildi að hún skyldi lifa þess- ar hremmingar af og kom raunar að því að hún kom út úr skógarmúsar- atriðinu með glóðarauga. Þá gekk fram af mér og ég sagði við hana að grand old lady og prima donna Þjóðleikhúss Íslendinga gæti ekki látið slengja sér svona fram og aftur í biluðum heisigræjum, svo að hún ætti jafnvel á hættu að háls- brotna. Og hverju svaraði Herdís? Jú, hún sagði aðeins: 'Já, þetta er alveg rétt hjá þér, Flosi! Og hvernig heldurðu að áhorfendunum líði?!'.“ Með öðrum orðum: það skipti minnstu hvernig farið var með hana sjálfa. Miklu alvarlegra var að valda áhorfendum óþægindum! Ég rifja söguna upp hér af því að mér finnst hún á sinn kátbroslega hátt segja svo mikið um afstöðu Herdís- ar til starfs síns, auðmýkt hennar og takmarkalaust tillitsleysi við sjálfa sig þar sem list hennar átti í hlut. Ég er jafnvel ekki frá því að mér finnist hún nú segja nánast allt sem segja þarf. * Hún var væn kona, falslaus, hrein og bein. Það er óskaplega erfitt að trúa því að hún hafi getað borið þungan hug til nokkurs manns. Ég kveð hana með virðingu og söknuði. Og ég þakka fyrir mig. Jón Viðar Jónsson Þakka þér fyrir, Herdís Fjórar kynslóðir íslenskra leikkvenna Herdís Þorvaldsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Þórunn Arna Kristjáns- dóttir. Úr Karma fyrir fugla.“ mynd þjóðleikHúsið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.