Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 5.–7. apríl 2013 Helgarblað
A
ðeins fengust 1,7 millj-
ónir króna, eða 0,00091
hundraðs hluti, upp í rúm-
lega 1.900 milljóna króna
kröfur í þrotabú útgerðar-
félagsins R400 ehf. Skiptum á búinu
lauk á dögunum með þessari rýru
uppskeru og þarf Landsbankinn,
sem var eini kröfuhafinn í þrota búið,
að afskrifa það sem út af stendur.
R400 ehf., hét áður Rómur ehf., og
var í helmingseigu útgerðarmannsins
Jakobs Valgeirs Flosasonar í gegnum
félagið Jakob Valgeir ehf.
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. átti
hinn helminginn í gegnum félagið
Skollaborg ehf. Jakob Valgeir var
einnig framkvæmdastjóri félagsins.
R400 var úrskurðað gjaldþrota í des-
ember 2011.
Þetta er enn eitt dæmið um millj-
arðaafskriftir til handa félögum
tengdum Jakob Valgeiri eftir fjár-
festingaævintýri hans á árunum fyrir
hrun.
Skuldir margfölduðust
Rómur ehf. var stofnað í maí 2007
til að kaupa og selja veiðiheimild-
ir og verðbréf. Í júní sama ár keypti
félagið öll hlutabréf í Halla ÍS 197 ehf.
og Kristjáni ÍS 816 ehf. sem höfðu yfir
veiðiheimildum að ráða. Samkvæmt
óendurskoðuðum ársreikningi Róms
fyrir árið 2008 höfðu félögin tvö til
ráðstöfunar samtals fiskveiðiheim-
ildir upp á 440 tonn af ýsu, rúmlega
400 tonn af þorski og tæp 100 tonn af
steinbít svo eitthvað sé nefnt.
Tap félagsins samkvæmt óendur-
skoðuðum ársreikningi fyrir árið
2007 nam 107 milljónum króna. Ári
síðar var nam tap af rekstri félags-
ins rúmum 1.800 milljónum króna,
eiginfjárstaða þess var neikvæð um
1.960 milljónir. Skuldir félagsins
höfðu sömuleiðis aukist um rúmlega
1.100 milljónir, í tæpa 2,3 milljarða.
Skýringin á þessari skuldaaukningu
félagsins milli ára er vafalaust sú
að skuldir þess voru í svissneskum
frönkum og hafa því margfaldast við
hrun.
Í skýrslu stjórnar félagsins í árs-
reikningi ársins 2008 var lýst yfir
verulegum efasemdum um áfram-
haldandi rekstrarhæfi þess. Í október
2009 var félagið Kristján ÍS 816 sam-
einað móðurfélaginu Rómi ehf. sem
þá hafði fengið nafnið R400.
Milljarðaafskriftir
Vegna stökkbreyttra skulda Róms
höfðu forsvarsmenn félagsins veð-
sett hlutabréf í dótturfélaginu Halla
ÍS 197 ehf. Bókfært verð þeirra var
886 milljónir króna.
DV fjallaði ítarlega um útgerðar-
félagið Halla ÍS í maí 2012 og var til-
efnið hundruð milljóna króna af-
skriftir sem félagið hafði fengið.
Skuldir félagsins höfðu þá, sam-
kvæmt ársreikningi 2010, lækkað um
623 milljónir króna. Af þeim sökum
skilaði það nærri 700 milljóna króna
hagnaði og skuldir þess lækkuðu úr
nærri tveimur milljörðum niður í
tæpan milljarð.
Halli ÍS 197 heitir eftir línuveiði-
skipinu Halla Eggerts ÍS og var út-
gerðin skráð í Bolungarvík líkt og
hitt dótturfélag Róms, Kristján ÍS
816. Áðurnefnda félagið hélt utan
um aflaheimildir sem áður voru á
Halla Eggerts en skipið sjálft var selt
til Noregs í byrjun árs 2008. Skuld-
setning Halla ÍS 197 var tilkomin út
af kaupum þess á Halla Eggerts og
veiðiheimildum sem metnar voru á
tæplega 960 milljónir króna í árslok
2010.
DV hefur einnig fjallað
mikið um verulegar afskriftir á
milljarðaskuldum félaga í eigu
Jakobs Valgeirs frá hruni. Jakob
Valgeir var sem kunnugt er einn
af þátttakendunum í fjárfestingar-
félaginu Stími í árslok 2007 og var
bolvíski útgerðarmaðurinn um-
fangsmikill í hlutabréfakaupum
fyrir hrun. n
Landsbanki afskrifar
milljarða hjá Jakobi
n Gjaldþrot upp á 1,9 milljarða n Bankinn fékk aðeins brotabrot upp í kröfuna
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Í þrot Jakob Valgeir Flosa-
son átti helmingshlut í R400
ehf., í gegnum félag sitt, á
móti Skollaborg ehf., sem
Hraðfrystihúsið-Gunnvör átti.
Ríkisbankinn afskrifar Landsbankinn hefur mátt afskrifa milljarða vegna fjárfestinga-
ævintýra Jakobs Valgeirs og rýr var uppskera hans við slit á þrotabúi R400 ehf. 0,00091
prósent upp í 1.900 milljóna króna kröfu.
Æsileg eftirför
Lögreglan veitti ökumanni eftirför á
Hjallabraut í Hafnarfirði á þriðju-
dagskvöld og var nokkur viðbún-
aður vegna þessa eltingaleiks. Vakti
hún því nokkra athygli og ekki síst
vegna þess að þyrla var notuð við
eftirförina. Ólafur G. Emilsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn sagði í
samtali við DV.is að óprúttinn aðili
hafi lýst með leysigeisla á flugturn
á Reykjavíkurflugvelli en það er
hættulegt athæfi og er litið alvarleg-
um augum. Svo vildi til að þyrlan
var í notkun þegar atvikið átti sér
stað og var hún notuð til að stað-
setja bílinn sem talið var að tengdist
leysigeislaskotinu. Þegar lögreglu
tókst að hafa uppi á ökumannin-
um kom í ljóst að hann hafði ekkert
með málið að gera og fékk að halda
för sinni áfram. Leysigeislaþrjótur-
inn gengur því enn laus.
Bjarni á
botninum
„Nú er botninum náð,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í tölvupósti
til flokksmanna sinna á fimmtu-
dagsmorgun eftir slæma útreið
flokksins í Þjóðarpúlsi Gallup á
miðvikudag. Flokkurinn mælist
með 22,4 prósenta fylgi nú þegar
aðeins 23 dagar eru til kosninga.
Niðurstaðan er mikil vonbrigði
fyrir flokkinn, segir Bjarni, og
nokkuð sem menn höfðu talið
óhugsandi fyrir nokkrum vikum.
Nú þurfi flokkurinn að ná sínu
fólki aftur heim, eins og hann orð-
ar það, því óhugsandi sé að sjálf-
stæðismenn verði utan ríkisstjórn-
ar tvö kjörtímabil í röð.