Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 14
Þ egar ég hugsa til baka vildi ég óska þess að ég hefði leit- að til einhvers, að ég hefði sagt einhverjum frá því sem fram fór heima hjá mér, og beðið einhvern að hjálpa mér,“ segir Inga Dís Svanlaugardóttir sem var aðeins tíu ára þegar drykkja móður hennar fór að hafa mikil áhrif á líf hennar. Þrátt fyrir ungan aldur fór hún strax að taka mikla ábyrgð á eigin lífi og fljótt þróaðist fjölskyldulífið á þann máta að Inga Dís fann sig knúna til að annast barnunga tví- burabræður sína. Þá voru þeir að- eins sex ára. Hún þurfti að fullorðn- ast hratt. „Ég get í raun og veru sagt að ég hafi alið mig upp sjálf, og þó ég segi sjálf frá tókst mér það nokkuð vel. Ég upplifði aldrei þá tilfinningu að ég ætti foreldri, eða öruggt heimili. Ég þurfti að taka ábyrgð og ákvarðanir sem engu barni er hollt að þurfa að gera. Þessi reynsla mín, það að vera barn alkóhólista hefur haft ótrúleg áhrif á líf mitt, ótrúleg áhrif á mig sem manneskju og mun restina af lífi mínu hafa endalaus áhrif.“ Vill lyfta skömminni Í dag er Inga Dís tvítug og er með tímabundna umsjá með bræðrum sínum, sem eru á 16 ári. Þeir ganga í 10. bekk og sama dag og blaðamað- ur hitti Ingu Dís hafði hún setið for- eldrafund með umsjónarkennara þeirra. Barnaverndarráð kannar um þessar mundir hvort hún geti fengið endanlega forsjá yfir þeim. Þeir eru vanir því að treysta á eldri systur sína sem hefur tekið eins mikla ábyrgð á þeim og henni var unnt í erfiðum aðstæðum. Þar sem þeir nálgast fullorðinsárin óðum kemur til greina að leyfa systkinunum að finna saman sína leið úr skuggan- um inn í ljósið. Inga Dís segir sögu sína í þeirri von að hún varpi ljósi á aðstæður þeirra fjölmörgu barna sem alast upp í skugga áfengissýki. Hún vill fjölga úrræðum fyrir þau börn sem um ræðir og lyfta skömminni sem á þeim hvílir. „Ég er búin að vera í stanslausum feluleik síðan ég var um 10 ára gömul og mig dreymir um að saga mín hjálpi einhverjum, þó ekki væri nema einu barni. Þegar ég lít um öxl þá vildi ég óska þess að ég hefði leitað til einhvers. Að ég hefði sjálf sagt frá og beðið um hjálp. Ég eyddi mikilli og dýrmætri orku í að fela aðstæður mínar og fjöl- skyldunnar. Það er aldrei til gagns. Við sem erum börn alkóhólista höf- um ekkert til að skammast okkar fyrir. Ég hugsa líka oft um af hverju enginn hjálpaði okkur. Fjölmargir vissu af aðstæðum okkar. Af hverju gerði enginn neitt? Af hverju sagði enginn neitt? Ég vil breyta þessu. Hættum feluleiknum.“ Þráði reglur og aga Fyrir þá sem ekki þekkja til þess sárs- auka að alast upp við erfið veikindi svo sem alkóhólisma getur verið erfitt að skilja þrár og langanir Ingu Dísar. Hún þráði reglur og aga, fram- ar öllu öðru. „Ég man eftir nokkrum fylleríum í barnæsku en þegar ég var um þrettán ára varð drykkjan markvissari. Mamma gat aldrei hætt að drekka. Hún fór út að skemmta sér, kom heim og hélt áfram að drekka fram undir morgun þar til hún leið út af í áfeng- isdauða. Vandamálið vatt upp á sig. Varð stærra með hverju fylleríinu og eftir því sem ég varð eldri þurfti ég að taka meiri ábyrgð á eigin lífi. Mun meiri en vant er um börn og það þróaðist út í það að ég tæki ábyrgð á öllum öðrum líka. Heimili mitt var staður þar sem ljótir hlutir gerðust, hlutir sem enginn mátti vita af. Ég þurfti aldrei að hlýða neinum reglum sem barn, réð mér í raun og veru bara sjálf. Flest börn þrá ekk- ert heitar en ný og betri leikföng, en það eina sem ég vildi var að mamma bannaði mér að vera lengi úti eða skammaði mig fyrir að koma seint heim.“ Hrunið heima Á svipuðum tíma og Geir Haarde bað guð að blessa Ísland fór fjölskyldu- líf Ingu Dísar æ meira úr skorðum. Þegar mótmælendur kveiktu bál og börðu tunnur má segja að heimili hennar hafi verið í meiri upplausn en íslenskt samfélag. Foreldrar henn- ar skildu með látum. Samband þeirra hafði markast af ofbeldi og drykkju síðustu árin og við skilnaðinn jókst drykkja móður hennar mikið. Minn- ingar Ingu Dísar frá þessum tíma eru sárar. „Ég gleymi aldrei þessum morgni þegar pabbi fór. Ég vaknaði við öskur frammi og sá pabba rjúka eftir ganginum, framhjá herbergis- hurðinni sem ég stóð í og beint út um útidyrnar. Mamma kom fram með bjórdós. Hún drakk hana í heilu lagi fyrir framan mig og sagði mér svo í að þetta væri ekki henni að kenna, þetta tautaði hún aftur og aftur og sagði mér svo að pabbi væri farinn. Næstu daga var ég með mömmu bókstaflega í fanginu. Hún sagði mér að ef mín nyti ekki við væri hún ekki á lífi. Ég tók það rosalega inn á mig, og upp frá þeim degi tók ég ábyrgð á henni. Það var á mína ábyrgð að mamma var á lífi og það var á mína ábyrgð að halda henni á lífi og á mína ábyrgð að mamma væri ham- ingjusöm. Á þessu ári hrundi ekki bara ís- lenska efnahagskerfið, heldur allt mitt líf í leiðinni.“ Henti út ógæfumönnum Líðan Ingu Dísar og bræðra hennar versnaði og árin 2007–2009 reyndust fjölskyldunni erfið. „Heimilið mitt varð staður ljótra og dökkra minn- inga, og þar var ég ekki örugg. Þetta tímabil leið hægt og okk- ur gekk brösuglega, en í lok ársins 2009 skáluðum við mamma fyrir nýja árinu og lofuðum því að það ár yrði árið okkar, miklu betra ár, fullt af hamingju og nýjum tækifærum.“ Nýju tækifærin létu á sér standa. Drykkjan jókst og næstu ár urðu að þeysireið fjölskyldunnar í martraða- kenndum heimi alkóhólistans. Inga Dís og bræður hennar voru farþegar án þess að ráða hraða eða för. „Ég mun aldrei geta gleymt því sem ég upplifði sem barn og unglingur. Ég hef þurft að horfa upp á móður mína í mjög annarlegu ástandi, ég hef setið með henni í bíl þar sem hún keyrði dauðadrukkin, og farið með henni í verslunarleiðangra þar sem hún varla gat staðið. Hún drakk alltaf þangað til hún gat ekki staðið í lappirnar og oft slæddust með henni ógæfumenn. Stundum vaknaði ég við það að slík- ir menn voru staddir í svefnherbergi mínu. Ég þurfti að henda hverjum karlmanninum á fætur öðrum út af heimili okkar um miðjar nætur, karlmönnum sem annars hefðu gert henni mein, nokkrir þeirra réðust á mig, aðrir stálu dótinu mínu og enn fleiri reyndu við mig. Oft lá móðir mín áfengisdauð í sófanum á meðan. Algerlega ófær um að koma nokkrum vörnum við.“ Leitaði huggunar á netinu Í skugga áfengissýkinnar óx tómarúm innra með öllum fjölskyldumeðlim- um. Móðir hennar drakk til að reyna að fylla í tómarúmið á meðan Inga Dís leitaði huggunar á netinu. „Mér gekk hörmulega í skólanum og eineltið sem ég hafði orðið fyrir í gegnum skólagönguna varð verra. Tómarúmið innra með mér fór vax- andi og móður minnar líka. Hún drakk til að reyna að fylla upp í það. Fjölskyldan fjarlægðist okkur og feluleikurinn hélt áfram. Það var í byrjun árs 2007 sem foreldrar mínir skildu og þegar tók að vora var ég gjörsamlega tóm að innan, ég fékk ekki nokkra athygli heima hjá mér og það var enginn sem sinnti mér og mínum þörfum. Ég gerði tilraunir til að fylla upp í þetta tómarúm sem ég fann fyrir með mismunandi leiðum. Ein leiðin var að kynnast fólki á netinu, fólki sem vissi ekki hver ég væri eða hvaðan ég kæmi. Það var í stutta stund rosalega góð tilfinning, ég kynntist fjölda fólks, sérstaklega karlmönnum, og sumir voru jafnvel helmingi eldri en ég sem áttu það sameiginlegt að vilja láta sér þykja vænt um mig, óháð því hver ég væri. Ég komst nú fljótlega að því að þetta var mikill misskilningur og þessir karlmenn voru einungis að leita að einu. Ég kynntist þó þessum strák, hann var þremur árum eldri en ég og ótrúlega skemmtilegur og með bílpróf sem var hrikalega spennandi. Við töluðum saman á netinu til að byrja með, í fleiri klukkutíma á dag, og svo í símann heilu og hálfu næt- urnar. Svo kom að því að hittast, hann kom utan af landi til að hitta mig og þurfti því að gista heima hjá mér. Ég var að springa úr hamingju og ekk- ert átti að skemma það. Þessi dagur var sá besti sem ég hafði upplifað, mér var alveg sama um allt annað en okkur tvö. Þegar dagur var að kveldi kom- inn og tími til kominn að fara að hvíla sig spurði hann mig hvort ég vildi sofa hjá honum og ég sagði nei. Þó ég hefði sofið hjá áður, langaði mig að geyma þessa sérstöku stund til betri tíma. Svarið mitt var þó ekki tekið gilt og kom hann fram vilja sínum þrátt fyrir að hafa ekki fengið samþykki mitt. Þarna hrundi öll mín veröld aftur og ég var komin aftur á byrjunar reit.“ Börn fá ekki hjálp Eins og með marga sem hafa alist upp við alkóhólisma og ratað rétta leið gat Inga Dís treyst á fjölskyldu- vin og létt á hjarta sínu. Hún kýs að nefna þann fjölskylduvin ekki á nafn. „Þessi ár voru hrikaleg. Mér fannst ég ekki geta leitað til neins, nema þá kannski til einu konunnar sem var alltaf með opin faðminn fyrir þenn- an mölbrotna ungling þegar þurfti á að halda. Sú kona þekkti foreldra mína löngu áður en ég varð til og hefur hjálpað mér i gegnum þetta allt saman. Þegar ég hugsa til baka er þessi stuðningur sem ég fékk algjör- lega ómetanlegur og stend ég í þakk- arskuld við hana allt mitt líf.“ Blaðamaður ræddi við fjölskyldu- vininn sem var Ingu Dís til halds og trausts. Hún sagðist hafa upplifað ákveðið bjargarleysi þegar kom að því að koma börnum vinkonu sinn- ar til aðstoðar. „Það hefur slegið mig gríðarlega sem áhorfandi að þessari baráttu, að þeir sem eigi að standa með börnunum, þessir fagaðilar hafi ekkert gert, og að öllu leyti brugðist í mörg ár. Reynsla mín er því miður sú að það er ekki hlustað á eða tekið mark á börnum og ennþá síður unglingum, þau eru fyrirfram dæmd ómarktæk. Það var mér erfitt hvað ég var valdalaus í þessu öllu saman, ég var öll af vilja gerð að hjálpa þessum börnum en það eina sem ég gat gert var að hlusta og reyna eftir fremsta megni að ráðleggja og veita þeim skjól utan heimilis síns og aðstæðna.“ Börn þurfa talsmann Hún bendir á að það þurfi nauðsyn- lega samtök eða talsmann barna í þessum aðstæðum, einhvern sem börn geti leitað til. „Það er auðvitað jákvætt að hjálp sé til fyrir hina sjúku, en grátlegt að aðstandendur, börn og fjölskylda, standi þar fyrir utan og fái litla sem enga aðstoð. Það þarf einhver samtök eða ein- hvern einstakling til að vísa þessum börnum á þau úrræði sem við vitum að eru til, en barnið sjálft er ekki lík- legt til að rata á þessi úrræði hjálpar- laust. Ég tel þessa umræðu nauðsynlega og vona svo innilega að þetta verði vitundarvakning fyrir þá sem hafa eitthvað með málið að segja. Það er tími til kominn að þessi börn fái hjálp og að við látum þau ekki lengur afskipt.“ Beðin um að skipta sér ekki af Orð fjölskylduvinarins endurspegla reynslu Ingu Dísar. Þegar kom að kerfinu rakst Inga Dís á veggi. Börn voru lokuð úti meðan fullorðnum var vísað inn og veitt hjálp. „Það virtist sem hvergi í kerfinu væri stuðning- ur fyrir börn alkóhólista, alveg sama hvað ég reyndi og hvert ég hringdi ég kom alls staðar að lokuðum dyrum. Ef ég hringdi í SÁÁ á meðan mamma var illa haldin og heimilið í upplausn var mér sagt að hún þyrfti að koma sjálf, og ég stjórnaði henni ekki. Við börnin sátum þá uppi með hana fár- veika á heimilinu. Og hvert sem ég hringdi fannst mér ég alls staðar koma að læst- um dyrum og fannst mér alls staðar vera bent á að ég væri bara krakki „Á hverjum degi berst ég við djöfla“ Ætla má að á milli 5.000 til 7.000 börn búi á heim- ilum þar sem þau eru þolendur áfengis- og vímu- efnasýki. Álagið sem því fylgir hefur ómæld áhrif á heilsu þeirra og líf. DV skoðaði vanda þessara barna og veruleika. Inga Dís Svanlaugardóttir er aðeins tvítug en er með tímabundna umsjá yfir bræðrum sínum vegna alvarlegs drykkjuvanda móðurinnar og vonast til þess að fá fulla forsjá. Hún segir frá barnæskunni þar sem hún lifði martraðakenndan veruleika og spyr af hverju enginn gerði neitt til að hjálpa þeim. „Við börnin erum ein í neyðinni. Alkinn fær hjálp. Börnin ekki.“ Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is „Heimili mitt var staður þar sem ljótir hlutir gerðust. 14 Úttekt 5.–7. apríl 2013 Helgarblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.