Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 38
38 Úttekt 5.–7. apríl 2013 Helgarblað Elskar þennan stað Aðspurð hvort þau hafi aldrei langað að gefast upp og fara aftur í bæinn svarar hún strax neit­ andi. „Það hvarflaði aldrei að okkur að fara héðan, auðvitað var þetta þrjóska í okkur. Á með­ an börnin voru hér í skóla þá fór­ um við ekki neitt. Þá lokaðist veg­ urinn báðum megin við okkur. En einhvern veginn, þessi staður er orðinn ég og ég er orðin hann, við erum orðin samgróin. Ég gekk í björgin, það er ekkert öðruvísi. Við elskum þennan stað. Ég var ekki tilbúin til að flytja hing­ að fyrr en eftir að ég hafði verið hér yfir jól og áramót. Við flutt­ um svo hingað um vorið. Ég get enn legið fram á lúkur mínar og horft út um glugg­ ann, mér finnst svo fallegt hérna og útsýnið svo stórbrotið. Svo er bara svo gott að vera hérna og það verður alltaf betra. Það er engan veginn hægt að draga sig í burtu héðan,“ segir Eva og bætir því við að það komi þó að því að þau þurfi að hætta þessu. „Ég finn að ég er farin að togast upp í árum en enn sem komið er er ég ekki tilbúin til að fara héðan. Við verðum bara að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Börnin elska líka þennan stað og nota hvert tækifæri til þess að koma. Yngri sonurinn festi meira að segja kaup á húsi í Borgar­ firðinum sem hann kom keyrandi með til Djúpavíkur og staðsetti á lóð sem hann átti fyrir ofan hót­ elið. Hann var nefnilega nýorðinn faðir og sá ekki fram á að geta verið mikið með ungbarn á hótel­ inu. Þá hentaði þetta fyrirkomulag betur, að eyða deginum með fjöl­ skyldunni og fara svo heim í litla húsið til þess að sofa, enda koma þau við hvert tækifæri. „Litli kút­ urinn hans verður fjögurra ára í sumar og talar um það á hverjum einasta degi að koma til Djúpa­ víkur.“ Salur fullur af fólki sem sat fast Síðast komu þau í janúar. Það hafði staðið til að halda áramótin saman á Djúpavík en það varð að aflýsa því þar sem von var á óveðri og raf­ magnið fór af í þrjá sólarhringa. „Þau koma yfirleitt yfir jól og áramót, páska og á sumrin. En það hefði ver­ ið hræðilegt að sitja uppi með fullt hús af fólki og ekkert rafmagn. En í staðinn komu þau um miðjan janúar og nutu þess mjög.“ Það hefur líka komið fyrir að þau hafi setið uppi með hópa sem komust hvergi. Eins og í fyrrasumar þegar úrhellisrigning sleit í sundur veginn. „Þá var hér fullur salur af fólki sem komst hvorki aftur á bak né áfram. Það var ýmist í ökkla eða eyra þetta sumar, fram eftir öllu þá var þurrkurinn svo svakalegur að túnin skrælnuðu upp og vatnsbólin þornuðu hjá bændunum. Einn sem hafði náð 58 heyrúllum út úr einhverri spildu árið áður fékk átta í fyrra. Það er svo stutt niður í sandinn í víkinni að moldin þornar upp og það var allt skrælnað hjá þeim. Það snjóaði um miðjan maí og í tvo daga var vonskuveður. Síðan varð himinninn skafheiður og sólin skein fram eftir sumri. Þá byrjaði að rigna og úrhellið varð gríðarlegt. Það rigndi svo ofboðslega að þeir ætluðu aldrei að koma veginum saman aft­ ur og hér skapaðist ringulreið. Fólk sem kom hér að varð að snúa við og þeir sem ætluðu að fara héðan sátu fastir með ferðatöskurnar í and­ dyrinu.“ Þá reyndi á. „Ég þurfti að taka mig saman í andlitinu og halda björtu brosinu á meðan ég gekk um beina í salnum. Það horfðu allir á mig þegar ég gekk inn í salinn í von um fréttir. Upp úr kvöldmat bárust svo fregnir af því að vegurinn héngi saman og þeim væri óhætt að halda af stað. Það var mikill léttir og því var tekið með dúndrandi lófataki í salnum,“ segir hún og hlær. Fegin að komast heim Það er einhvern veginn þannig að þeir sem hafa einu sinni komið til Djúpavíkur gleyma því ekki. Þess vegna koma þeir aftur og aftur. Al­ veg eins og Þjóðverjinn sem kom ár­ lega í tólf ár, þrjár vikur í senn, þar til hann var orðinn 82 ára og hættur að geta ferðast. Eða Sigur Rós sem tók upp tónlist í lýsistönkunum og hélt tónleika í Verksmiðjunni árið 2006. Af því að einn þeirra hafði komið hingað með foreldrum sínum og aldrei getað gleymt því. Þannig að þeir komu hingað með tuttugu manna tökulið sem tók upp mynd­ skeið fyrir myndina Heima og síðan hafa að dáendur Sigur Rósar streymt að. „Fólk tekur ástfóstri við Djúpa­ vík,“ útskýrir Eva, „og það kemur hingað aftur og aftur. Af því að því líður vel hér og finnst eitthvað ævintýralegt við þennan stað.“ Lífið í Djúpavík er samt að breytast. Það er orðið léttara að lifa þar en áður, „því það eru ekki eins snjó­ þungir vetur og voru hér einu sinni. Fyrstu árin fundum við meira fyrir því þegar vegur­ inn lokaðist í október og var ekki opnaður aftur fyrr en um vorið.“ Núorðið er vegur­ inn allavega opnaður einu sinni í viku fram í janúar. Þá tekur við tímabil þar sem ekki á að opna nema eitthvað sérstakt komi til fyrr en eftir miðjan mars. „Satt best að segja finnst mér eins og það sé líka að breytast, það er orðið þægi­ legra að eiga við vegagerðina,“ segir Eva um leið og hún skenkir kaffi í bolla ljósmyndarans. Fyrr í vikunni var vegurinn opn­ aður og þá komust þau hjónin heim eftir dvöl á heilsuhæli í Hveragerði. Hingað eru strax komnir gestir og á morgun er von á hópi gönguskíða­ garpa. „Ég er alltaf svo fegin þegar ég kemst heim að það er engu lagi líkt,“ segir Eva að lokum, „þó að ég fari auðvitað strax að velta því fyrir mér hvort vegirnir verði opnaðir ef við lokumst inni,“ segir hún kímin og lítur á klukkuna. Það er kominn tími til þess að halda verkunum áfram svo allt verði klárt fyrir gönguskíða­ garpana þegar þeir koma og hún kveður með bros á vör. n „Ég var í stanslausri depurð yfir því að þurfa að senda börnin mín frá mér. Sigur Rós Sigur Rós samdi tónlist í lýsistanki á Djúpavík og hélt tónleika í verksmiðjunni. Síðan hafa aðdáendur hljómsveitarinnar streymt að. Heiðruð Eva fékk fálkaorðuna fyrir að standa a ð ferðamennsku á afskekktu á svæði. Einu íbúarnir Horft yfir sveitina. Hjónin eru einu íbúarnir á Djúpavík yfir vetrartímann en á sumrin fjölgar í sveitinni og fólkið streymir að. Verksmiðjan Árið 1934 var hafist við handa við að reisa verksmiðjuna og tók smíðin átján mánuði. Unnið var á vöktum allan sólarh ringinn á meðan nætur voru bjartar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.