Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 37
Úttekt 37Helgarblað 5.–7. apríl 2013 n Ferjuðu börnin á bát í skólann n Innilokuð svo mánuðum skipti á snjóþungum vetrum n Rafmagnslaus í þrjá daga um áramót hæðinni fékk herbergja- skipan að halda sér, utan þess sem þau breyttu stærsta herberginu í setu- stofu. Í því herbergi voru áður tólf kojur, en átta í öðr- um sem nú eru ætluð tveim- ur. Á neðri hæðinni er nú borðsalur þar sem upprunalegt gólf hefur fengið að halda sér og sömuleiðis eldavélin sem síldarstúlkurnar not- uðu til eldamennsku og þarf fjóra til þess að bera. Eldavélin þykir mikill fengur og einu sinni var reynt að stela henni, þjófurinn hafði þó ekkert upp úr krafsinu því hann hafði ekki nógu marga menn með sér. Þeir voru bara þrír og gátu ekki bifað henni. Utar í firðinum stendur rautt hús þar sem karlarnir höfðust við á síldar árunum ásamt lækninum. „Það var alltaf læknir hér á síldar- árunum. Það var svo margt fólk hér að það var talið nauðsynlegt að vera með lækni.“ Símasamband datt út Sagan er mikil og heillandi. „ Hugsið ykkur, verksmiðjan var byggð á sextán mánuðum á tíma þar sem allt var unnið með handaflinu. Þeir voru bara með litlar steypuhrærivél- ar sem þeir þurftu að hífa upp með hjólbörum til þess að hella steyp- unni ofan í veggina. Enda unnu þeir á vöktum og ég held að þeir hafi unnið allan sólarhringinn þegar næturnar voru bjartar.“ Aðspurð um myrkrið sem leggst yfir á veturna segist hún ekkert finna fyrir því. „Ég hef aldrei haft það á til- finningunni að ég sé ein hérna, jafn- vel þegar ég er ein hérna. Ég man eftir því að þegar ég var nýkomin þá stóð ég mig að því að taka til kaffi- bolla þegar mig vantaði sykur og átta mig svo á því að ég gæti ekki skropp- ið yfir til nágrannans til þess að fá lánað eins og ég gerði fyrir sunnan,“ segir hún og hlær léttum hlátri. „Stundum hef ég óskað þess að geta sest niður og spjallað við ein- hvern en þá hringi ég bara. Það er alltaf símasamband hérna,“ segir hún og hikar, „nema þegar það bil- ar,“ bætir hún hlæjandi við. Síðasta sumar var sérstaklega erfitt. Þá var símasambandið alltaf að rofna. „Guði sé lof að þetta gerðist ekki þegar ofsaveður geisaði, þetta var bara í blíðviðri. En þetta hefur al- veg verið til friðs í vetur. Og nú á dög- um internets er ég aldrei ein. Ég er meira að segja komin með Skype til þess að tala við krakkana,“ segir hún hæstánægð. Sárt að sjá á eftir börnunum Krakkarnir eru þrír. Sá elsti var á fermingarárinu þegar fjölskyldan fluttist norður á Strandir, miðju- barnið var sex ára drengur og það yngsta fjögurra ára stúlka. Þau voru í Finnbogastaðaskóla fram í tíunda bekk, þá þurftu þau að fara annað. „Það var samt betra en áður þegar þau þurftu að fara strax í níunda bekk, eins og sá elsti. Það var hræði- legt,“ segir Eva sem sendi soninn í skóla á Hólmavík veturinn eftir að þau fluttu þar sem hann lauk skólaskyldunni. Hin börnin fóru í heimavist á Laugum í Þingeyjarsýslu. „Ég var í stanslausri depurð yfir því að þurfa að senda börnin mín frá mér. En svo komst ég yfir það af því að ég vissi að það gekk allt vel og það var allt í lagi.“ Öll enduðu svo fyrir sunnan. „Það er ekkert fyrir þau að gera hérna. Þegar þau eru komin með fjölskyldu myndi ég heldur ekki vilja að þau þyrftu að ganga í gegnum það sama og við gerðum varðandi það að koma börnunum í skóla og svona.“ Á bát í skólann Það var heldur ekki hlaupið að því. Í tíu ár þurftu þau að sigla með börnin yfir á Gjögur þar sem sveitungarnir drógu þau í land og börnin voru send í skólann með bóndanum á Kjörvogi sem þurfti hvort eð er að skutla eigin börnum. „Þetta var of- boðslega slítandi,“ segir Eva, „sér- staklega fyrir manninn minn sem sá um bátsferðirnar. Síðan hættum við þessu og seldum bátinn og keypt- um vélsleða. Þá sá hann um sleða- ferðirnar líka. Finnbogastaðaskóli er yndislegur skóli en ég er ekkert viss um að ég myndi vilja vita af barnabörnunum í svona ferðum. Á haustin keyrðum við auðvitað í skól- ann og gerðum það eins lengi og hægt var en þegar það fór að verða ófærð og vesen, krakkarnir urðu hræddir og aksturinn fór að taka meira en klukkutíma hvora leið, þá var það bara of mikið til viðbótar við skóladaginn. Þá fórum við fram á að það yrði opnuð heimavist fyrir börn sem komu langt að. Það voru til dæmis mörg börn í Munaðarnesi og þó að leiðin þaðan væri styttri þá var hún oft erfiðari út af snjóflóðum sem féllu yfir veginn. Hér var snjóflóða- hætta úti í hlíðinni en við sigldum yfir á bátnum svo það truflaði okkur ekki.“ Börnin komu heim um helgar þegar það var hægt, sem var ekki alltaf. Einn veturinn dvöldu þau hinum megin við fjöllin samfleytt í fimm vikur. „Sem betur fer áttum við alltaf góða að á Gjögri þar sem börnin voru um helgar þegar heimavistinni var lokað. En það var svakalegt. Það voru svo svaka- leg snjóalög á þessum árum, upp úr 1990. Síðasta veturinn sem dóttir mín var í skólanum gátum við keyrt á milli allan veturinn. Ég man það svo vel að ég hafði oft orð á því þegar við vorum að keyra af stað við sólar- upprás að veðrið væri yndislegt og veturinn var í raun allur svoleiðis. Fyrir utan þetta skot sem olli snjó- flóðunum á Flateyri um haustið var þetta bara yndislegt. Heimavistin var aðeins opnuð í eina viku þenn- an vetur og það var í kringum ösku- daginn, meðal annars til þess að krakkarnir gætu verið saman og skemmt sér saman og hins vegar af því að það var svo hvasst og svella- lög á veginum þannig að bíllinn snerist heilu og hálfu hringina.“ „Stundum hef ég óskað þess að geta sest niður og spjallað við einhvern Heimilið er hótel Hjónin voru búin að festa kaup á verksmiðjunni þegar þessi hugmynd um að opna hótel kviknaði. Þau áttu heldur ekkert hús til að búa í. Síldarárin Á sínum tíma var mikið líf og fjör á Djúpavík. Þangað flyktist fólk í leit að ævin týrum og skjótfengnum gróða og harmonikkuböllum var slegið upp á síldarplaninu. m y n d ir S ig tr y g g u r a r i o g ú r e in k a Sa fn i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.