Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 23
Það voru merki um gróft ofbeldi Ekkert auðvelt eftir kosningar Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, um starf samtakanna í fyrra. – mbl.isSigmundur Davíð er ánægður með gott gengi í skoðanakönnunum. – DV.is Íslenskar sálir til sölu! Spurningin „Börnin og hamingjan.“ Sunna Dís Másdóttir 29 ára blaðamaður „Ástin.“ Óli Magnús Ólafsson 35 ára kokkur „Hamingjan og frelsið.“ Birna María Styff 22 ára myndlistarkona „Það er ástin.“ Raja Riafi 28 ára móðir í fullu starfi „Listin.“ Þórir Hermann Óskarsson 18 ára tónlistarmaður Hvað er mikil- vægast í lífinu? 1 Kristinn Þór Geirsson fékk lán til að greiða sér arð Kristinn Þór Geirsson, þáverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Glitnis, fékk lán hjá bankanum til þess að greiða sér arð úr félaginu sínu, sem hafði skilað tapi. 2 Stórslasaður eftir tilefn-islausa árás Rúmlega tvítugur mað- ur stórslasaðist í fólskulegri líkamsárás í miðbænum fyrir um mánuði. Þetta er aðeins eitt af fjölmörgum ofbeldisbrot- um sem framin eru í miðborginni. 3 Vissi að það væru börn þarna úti sem þurftu að eignast annað heimili María Sólbergsdóttir, fjármálastjóri hjá Auði Capital, er einstæð tveggja barna móðir en hún kaus að ættleiða frekar en að eignast börn sjálf. 4 Sigruðust á fíkn sinni Ben Affleck og Drew Barrymore eru á meðal Hollywood-stjarna sem sigruðust á fíkn sinni. 5 Fékk aðstoð handrukkara við að ná dóttur sinni úr dópgreni Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr. Krist- jánsson fékk bréf frá konu sem leitaði aðstoðar handrukkara til þess að ná fimmtán ára dóttur sinni úr dópgreni. 6 Elín: „Það verður vinstri stjórn með Framsókn í brúnni“ Elín Hirst, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins, telur að flokkurinn eigi að halda sig í stjórnarandstöðu á næsta kjörtímabili ef fylgið sem flokkurinn mælist nú með – 22,4 prósent – reynast afdrif flokksins í kosningunum. Mest lesið á DV.is Netgríman K æri lesandi. Ég geri ráð fyrir því að þú, eins og svo margir aðrir alls staðar í heiminum, notir internetið mögulega daglega eða allavega þó nokkuð reglulega. Ég vil biðja þig um að hugsa þig um hvað þú skrifar á netið, í kommentum, bloggi, Facebook og bara hvar sem er. Ég hef orðið vitni að allt of mörgum manneskjum sem setja upp ákveðna grímu þegar þeir eru á bak við skjáinn þar sem enginn sér þá. Fólk sem hikar ekki við að vera með dónaskap og leiðindi á netinu, en myndi mögulega aldrei nokkurn tímann þora (eða vilja) gera fyrir framan alvöru manneskju, augliti til auglitis. Hugsaðu þig því tvisvar um áður en þú setur eitthvað á netið, eitthvað sem allir geta séð. Þú manst kannski eftir áramótaskaupinu og skotið á DV kommentakerfið? En hvenær ætlum við að stoppa þetta? Það gerist ekki nema með því að líta í eigin barm. Það eiga auðvitað allir rétt á sínum skoðunum en það þarf ekki að vera með leiðindi. Taktu af þér grímuna, vertu kurteis og notaðu skyn- semina. Takk fyrir að lesa! Höfundur er nemandi við Listaháskóla Íslands E nn og aftur sannast gildi hinnar fornu hugsunar: „Heimskur dýrkar hlandvotan skó,“ „gæfu- snauður er gáfnalaus maður,“ „fá- vís maður drukknar í eigin drambi“ og „framsóknarmenn eru falskir“. Þessi orð og fleiri slík er að finna í fjöreggi þjóðarinnar skömmu eftir hina helgu páskahátíð. Að vori, þegar blómin vakna, sofnar fávís hluti þjóðar minn- ar á verðinum og fellur í draumamók sem hlýtur yl frá mykjuhaugum fram- sóknarfjóssins. Glýjan í augum hinna gáfnalausu og greindarskertu, fær okk- ur hin til að æla af ófögnuði. Þessi upplýsta þjóð lætur bjóða sér í enn eina sukkveisluna, þar sem menn ætla að lifa og nærast á draumsýn og loforðum sem öll verða svikin. Það er einfaldlega ekki úr neinu að moða. Núna ætlum við semsagt að ráða hina fávísu brennuvarga til að slökkva eldinn. Hvers vegna í ósköpunum þarf alltaf að vera svona djúp gjá á milli þeirra sem hugsa og hinna sem hugsa ekki? Er það virkilega vilji fjöldans að við leyfum heiladauðu fólki að stýra þjóðarskútunni? Viljum við fá Sig- mund Davíð sem forsætisráðherra og viljum við að Vigdís Hauksdóttir verði næsti menntamálaráðherra? Viljum við að Höskuldur taki vandamál- in traustum vettlingatökum? Ef vilji þjóðarinnar stefnir í þess átt, verð ég að lýsa því yfir hér og nú, að ég mun með öllum ráðum reyna að firra mig þeirri ábyrgð sem slíku hugsunarleysi fylgir. Ókei – ef niðurstaða kosninganna verður á þá leið sem skoðanakannanir benda til, verð ég að viðurkenna van- mátt minn og verð einnig að viður- kenna þá staðreynd að umhyggja mín, umvöndun og fögur hugsun í garð minnar merku þjóðar, virðist einungis hafa skilað mér vonbrigðum. Og ég sem hélt að fólkið hefði lært eitthvað á Ráninu sem sumir kalla hrun. En ég verð þá „að horfast í augu við það súra epli“, einsog gáfnaljósið sagði hér um árið. Og hér er rétt að ég spyrji mig svo sem einnar spurningar af alvar- legu sortinni: -Hvað er það í íslenskri þjóðarsál sem lætur fjöldann líta út einsog hóp ofdekraða barna sem heimta allt og engu vilja fórna? Og ég neyðist til að svara með spurningu: Er það minnimáttarkennd eða mikil- mennskubrjálæði? Og um leið og ég spyr, verður mér ljóst að ekki er það meðalhóf eða nægjusemi sem hvetur fólk til fáránlegra hugmynda og eykur ofmat þjóðarinnar á ágæti sínu. Við getum ábyggilega leyft okkur þann munað að treysta á öll fögru loforðin sem Framsókn gefur okkur. En við verðum þá að vera undir það búin að ýmist verði allt svikið eða þá að skuld- ir okkar verði færðar á herðar barna okkar. Það er nefnilega svo, kæru vin- ir, að þegar ríkiskassinn er tómur þá er ekki bara hægt að segja: -Hókus- pókus! Við getum ekki bara treyst á það að naglasúpan metti alla þjóðina til eilífðarnóns. Jafnvel þótt við séum öll af vilja gerð, sleppum við aldrei við að beita visku. Við þurfum annað veifið að velta því fyrir okkur, hvert við viljum stefna. Viljum við ná tökum á græðgi, böli og fásinnu eða viljum við hjakka í fari heimsku, fordóma og græðgi. Nú ætlum við, öll með tölu að afmá hin gömul veð; við auglýsum sál til sölu og samviskan fylgir með. Fyllt á tankinn Þyrlur Landhelgisgæslunnar gegna mikilvægu hlutverki þegar fólki á Íslandi er hætta búin. Á þessari mynd sést starfsmaður gæslunnar fylla á eldsneytistank TF-GNÁR, sem komið hafði inn til lendingar. Fyrr en varði hóf þyrlan sig á loft á nýjan leik. Mynd Sigtryggur AriMyndin Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Umræða 23Helgarblað 5.–7. apríl 2013 Ég þarf ekki lengur að vera með grímu Mamiko Dís var greind með Asperger fyrir rúmu ári. – DV Aðsent Linda Björg Guðmundsdóttir „Vertu kurt- eis og not- aðu skynsemina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.