Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Blaðsíða 17
S igmundur Davíð Gunnlaugs- son, nýr forsætisráðherra, hef- ur ekki starfað lengi í stjórn- málum en hann var kosinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn árið 2009. Fyrr það sama ár var hann kjörinn formaður flokksins sem hann hafði aldrei gegnt trúnaðarstörfum fyr- ir. Háværar kröfur höfðu þá verið um endurnýjun forystunnar í kjölfar efna- hagshrunsins og treystu samflokks- menn hans þessum unga manni fyrir verkefninu. Sigmundur hafði fram að því verið harðákveðinn í því láta stjórnmálin eiga sig þrátt fyrir að hafa lýst því yfir aðeins fimm ára að hann ætlaði að verða forsætisráðherra þegar hann yrði stór. Draumur Sigmundar litla hefur nú ræst, eflaust fyrr en hann óraði fyrir, enda er hann yngsti for- sætisráðherra lýðveldissögunnar. Áður en Sigmundur hóf afskipti af stjórnmálum starfaði hann töluvert við fjölmiðla, meðal annars sem frétta- maður á RÚV og í Kastljósi. Sigmundur hefur sjálfur titlað sig sem skipulagshagfræðing en hann hefur fjölbreytta menntun á bakinu frá nokkrum háskólum. Hann er lang- ríkasti þingmaður landsins, en sam- kvæmt upplýsingum um opinber gjöld nemur hrein eign hans sex hundruð milljónum króna en samanlagt eiga þau hjónin um 1.200 milljónir króna. Eiginkonan, Anna Sigurlaug Páls- dóttir, er á meðal ríkustu Reykvíking- anna, en faðir hennar Páll Samúels- son átti Toyota-umboðið. Sjálfur er Sigmundur kominn af sterkefnuðu fólki, en faðir hans Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, varð einn auð- ugasti maður landsins í gegnum fyrir- tækið Kögun. Þegar Sigmundur tjáði sig um auðæfin í viðtali við DV þá sagðist hann vissulega vera hluti af íslenskri elítu og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af afkomu sinni. Feður þeirra Sigmundar og Bjarna Benediktssonar hafa verið viðskiptafélagar og fjárfest saman í mismunandi fyrirtækjum um nokkurt skeið. Þekktust eru viðskipti þeirra í Icelandair, Mætti og BNT, móðurfélagi olíufélagsins N1. Stundum hefur verið haft á orði að þessi viðskiptatengsl fjölskyldna þeirra Bjarna og Sigmundar kæmu sér vel við myndun ríkisstjórnar og að þeir ættu auðvelt með að komast að samkomu- lagi um samstarf, sem virðist hafa orðið raunin. Yngstur allra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þingmaður frá: 2009 Aldur: 38 ára Maki: Anna Sigurlaug Pálsdóttir. Börn: Ein dóttir H ann er hörkuduglegur og fylginn sér. Hann er metn- aðargjarn. Kristján er ekki hræddur við að taka ákvarð- anir hvort sem þær eru vin- sælar eða óvinsælar. Hann er um- deildur sumir eru hrifnir af honum aðrir minna,“ segir Oktavía Jónsdóttir, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna á Akureyri. „Kristján Þór hefur sinnt samfé- lagsmálum nánast alla sína æfi og er mjög vel vakandi yfir þeim málum. Hann er drengur góður og glöggur. Hann hefur ákaflega skýrar línur fyrir utan það að vera skemmtilegur og góður félagi,“ segir séra Hjálmar Jóns- son, samherji í pólitík. Kristján Þór er Norðlendingur, fæddur á Dalvík. Hann varð stúdent frá MA, fór í Stýrimanna- skólann og lauk fyrsta og öðru stigi. Fór í HÍ og las íslensku og almenn- ar bókmenntir og aflaði sér kennslu- réttinda. Hann hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, var skipstjóri, kennari og bæjarstjóri á Dalvík og síðar á Ísa- firði. Hann hefur setið í stjórn margra félaga og unnið mikið á vegum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Hann var kosinn á Alþingi 2007 og hefur ver- ið þingmaður og forystumaður flokks- ins í Norðaustur kjördæmi síðan þá. Ferill Kristjáns Þórs hefur ekki verið hnökralaus innan Sjálfstæðisflokksins, hann bauð sig fram sem varaformaður 2005 en tapaði fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Hann bauð sig fram til formanns 2009 og atti þá kappi við Bjarna Benediktsson og tapaði. Krist- ján Þór bauð sig fram og var kjörinn annar varformaður flokksins 2012. Hann var svo endurkjörinn annar varaformaður flokksins í vetur. Óhræddur við að taka ákvarðanir H ann er mjög traustur drengur. Kannski dáldið þungur en Sigurður Ingi er ljónskarpur og með sterk- ari mönnum í pólitík. Það merkilegasta sem hann hefur gert, að mínu mati, í pólitík var þegar hann sem oddviti upp í hrepp lagði hömlur á að menn tækju landbún- aðarlönd undir sumarbústaðalóðir. Hann var langfyrstur til að stíga slík skref í skipulagsmálum í landinu. Ég tel að Sigurður Ingi sé góð- ur fulltrúi fyrir íhaldssamari arm flokksins og hann getur notið sín vel í því sem flokkurinn er að fara að gera núna,“ segir Bjarni Harðar- son, bóksali og fyrrverandi skóla- bróðir. Sigurður Ingi er sveitabarn upp- alinn í hreppunum. Hann er stúdent frá Laugarvatni og hélt að því búnu til til Danmerkur þar sem hann lauk embættisprófi í dýralækn- ingum. Á yngri árum vann hann við afgreiðslu og verkamannastörf hjá Mjólkursamsölunni í Reykja- vík. Hann var um skeið bóndi og vann við dýralækningar fram undir miðjan tíunda áratuginn. Hann var oddviti Hrunamannahrepps í sjö ár frá 2002 til 2009 og varaformaður Sunnlenskra sveitarfélaga frá 2007 til 2009. Það er ekki hægt að hafa önnur orð um Sigurð Inga en hann hafi verið félagsmálatröll. Hann hefur setið í stjórn fjölmargra félaga þar á meðal Dýralæknafélags Ís- lands. Í viðtali árið 2009 þegar hann bauð sig fyrst fram til þings sagðist hann hafa orðið framsóknarmað- ur á Danmerkurárum sínum þegar hann segist hafa áttað sig á því að það þyrfti öflugan miðjuflokk til að draga hægri og vinstri öfgarnar inn á miðjuna á hverjum tíma. Hann var kosinn á þing 2009 og var í vet- ur kosinn rússneskri kosningu sem varaformaður Framsóknarflokks- ins. Íhaldssamt félagsmálatröll Sigurður Ingi Jóhannsson Þingmaður frá: 2009 Aldur: 51 árs Maki: Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir Börn: Þrjú og þrjú stjúpbörn Kristján Þór Júlíusson Þingmaður frá: 2007 Aldur: 55 ára Maki: Guðbjörg Baldvinsdóttir Ringsted Börn: Fjögur n Sigurður Ingi er sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfisráðherra n Kristján Þór Júlíusson er heilbrigðisráðherra n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er forsætisráðherra Fyrirliggjandi verkefni Fiskveiðistjórnunarkerfið verður yfirfarið, meðal annars með tilliti til hagkvæmni, öryggis og kjara sjómanna og umhverfisverndar. Grundvöllur fiskveiðistjórnunarkerfisins verður aflamarkskerfi. Lög um veiðigjald verða endurskoðuð Stefnt er endurskoðun búvörusamninga með tilliti til fóður- og fæðuframleiðslu. Náttúruvernd og náttúrunýting fari saman. Úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Fyrirliggjandi verkefni Íslenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnisfært við nágrannalönd um tækjakost, aðbúnað sjúklinga, og aðstæður starfsmanna. Landsmenn njóti aðgengis að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu. Áhersla á slysavarnir. Mikilvægt er að efla heilsugæsluna og tryggja stöðu hennar sem fyrsta viðkomustaðar sjúklinga. Úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Fyrirliggjandi verkefni Leiðarljós ríkisstjórnarinnar er bættur hagur heimilanna í landinu og efling atvinnulífs með aukinni verðmætasköpun í þágu almennings. Áfram verði unnið að endur- skoðun stjórnarskrár lýðveldisins með breiða samstöðu og fagmennsku að leiðarljósi. Úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Fréttir 17Helgarblað 24.–26. maí 2013

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.