Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Page 29
Menning 29Helgarblað 24.–26. maí 2013 „Star Wars í dulargervi“ Star Trek Into Darkness J.J.Abrams S ýningin heitir: „Allur sann­ leikurinn: Allt sem þú vildir vita um gyðinga.“ Meðal sýningargripa eru höfuð­ föt gyðinga skreytt með ein­ kennismerkjum BMW, Sesame Street eða Angry Birds og jafnvel lif­ andi gyðingur í glerkassa, en sjálf­ boðaliðar eru fengnir til að sinna starfinu. Fólki er frjálst að ræða við þann sem í kassanum situr, en hann tekur gjarnan fram að þó að hann sé gyðingur þýðir það ekki endilega að hann sé sérfræðingur í málefnum Mið­Austurlanda eða í Helförinni. Samskipti Þýskalands og Ísrael hafa löngum verið stirð, eins og gef­ ur að skilja, og sem dæmi má nefna að í keppninni um ungfrú alheim árið 1956 neitaði ungfrú Ísrael að láta taka myndir af sér með ungfrú Þýskalandi nema eftir talsverðar for­ tölur. Sá sem hefur helst átt þátt í að bæta álit Ísraelsmanna á Þjóðverjum er sjónvarpskokkurinn Tom Franz, sem flutti til Ísrael fyrir áratug og er þessa dagana með vinsælasta sjón­ varpsþátt landsins þar sem hann kynnir þýska matargerð. Hverjir eru gyðingar? En hver telst vera gyðingur? Á sjón­ varpsskjá má sjá fræðimenn og rabbína ræða þessa spurningu og virðist henni nokkuð auðsvarað. Gyðingur telst hver sá vera sem á móður af gyðingaættum og erfist hún þannig í kvenlegg allt aftur til eiginkonu Abrahams. Abraham átti reyndar einnig afkomendur í gegn­ um son sinn Ísmael sem hann átti með ambáttinni Hagar. Telst sá vera forfaðir múslíma en ekki til gyðinga þó sonur Abrahams sé. Í Þriðja ríkinu fóru yfirvöld þó eftir öðrum mælikvörðum og því bar svo undarlega til að sumir þeir sem lifðu af dvölina í Auschwitz, þangað sem þeir voru sendir vegna þess að feður þeirra voru gyðingar, tóku fyrst síðar opinberlega upp gyðingatrú. Marylin Monroe og umskorinn Bretaprins Hver sem er getur tekið upp trúna kjósi hann að gera það, en þeir sem einu sinni ganga af henni þurfa ekki að gangast undir sömu helgisiði til að vera teknir inn aftur. Þannig get­ ur það verið flóknara en í fyrstu virð­ ist að segja til um hver sé gyðingur og hver ekki, og sem dæmi má nefna að Sigmund Freud sagði skilið við trúna en áleit sig eigi að síður gyðing. Það sama má segja um Bob Dylan, sem tók upp kristna trú án þess að hafna gyðingdómi sínum. Margir aðrir heimsfrægir einstak­ lingar hafa talist til gyðingdóms, en hér eru nokkrir kynntir til sögunnar sem hafa tengsl við trúna sem færri vita um. Sem dæmi má nefna að bæði Marilyn Monroe og Elisabeth Taylor tóku upp gyðingdóm fyrir eitt hina fjölmörgu hjónabanda sinna, og Karl Bretaprins var umskorinn af rabbína. Nær sá siður að umskera konungborna Breta allt aftur til þess þegar konungar Hannover urðu jafn­ framt konungar Bretaveldis á 18. öld og kemur hann því frá Þýskalandi. Deilur í kringum umskurð Umskurður hefur undanfarið valdið talsverðum deilum í Þýskalandi. Sum héruð hafa bannað hann af læknisfræðilegum ástæðum, og hafa talsmenn bæði gyðinga og múslíma ásakað yfirvöld um skort á um­ burðarlyndi og jafnvel ofsóknir. Sýn­ ingin reynir einmitt að vekja upp spurningar um afstöðu til gyðinga í dag. Sem dæmi má nefna að boðið er upp á að setja plastpeninga í kosn­ ingakassa þar sem manni er falið að segja til um hvort maður telji gyðinga vera sérstakalega vel gefna eða góða í viðskiptum. Að lokum er manni falið að segja orðið „Juden“ í míkrófón og hlusta síðan á það spilað. Vissulega er eitthvað ógnvekjandi við að heyra þetta á þýsku. Bambi brenndur En má gera grín að Helförinni? Þeirri spurningu er varpað fram á sýn­ ingunni. Sýnd eru myndskeið úr sjónvarpsþáttum á borð við Curb Your Enthusiasm, þar sem eftirlifandi úr Helförinni deilir við þátttakanda úr Survivor­þáttunum um hvor hafi þjáðst meira, eða teiknimynd sem sýnir strák í útrýmingarbúðum ætla að skrifa símanúmer stelpu á hönd sína en kemst að því að hún er þegar þakin númerum. Vissulega jaðrar sumt hér við smekkleysi, ekki síst gyðingurinn í glerkassanum, enda er Berlín þekkt sem borg sem virðist svo annt um að hneyksla. Því er ekki að undra að sumir hafi fordæmt sýninguna. Aðrir hlutar safnsins takast á við Helförina og sögu gyðinga í Þýskalandi á hefð­ bundnari hátt. Í kjallaranum, sem er hálfgert völundarhús, eru munir sem gyðingar fengu að taka með sér þegar þeir flúðu land á 4. áratugnum, svo sem saumavélar eða silfurhnífapör, en flest var tekið af þeim. Einnig er hægt að sjá fyrstu prentanir af þeim bókum sem nasistar brenndu, Af­ stæðiskenningu Einstein, Góða dát­ ann Sveik og jafnvel, af einskærri ill­ kvittni, söguna af Bamba. Ísland og Helförin Á fastasýningu safnsins er saga Helfararinnar rakin, og hér má meðal annars sjá kort af Evrópu með fánum eins og þeir voru á tímum seinni heimsstyrjaldar. Ísland ber enn danska fánann, en sé smellt á landið fáum við að sjá mynd af Reykjavík frá 1940 og upplýsingar um afdrif gyðinga. Hér er sagt að Ís­ land hafi verið óæskilegur staður fyrir flóttamenn að flýja til, afar erfitt var að fá atvinnuleyfi eða dvalarleyfi í meira en þrjá mánuði og að margir hafi verið sendir aftur í klær nasista. Aðeins 25 manns var bjargað til Ís­ lands á stríðsárunum, af þeim ótal sem þangað reyndu að komast. Gyðingasafnið í Berlín vekur mann því til umhugsunar um hve mikið hefur í raun breyst, ekki að­ eins í viðhorfi Þjóðverja til gyðinga heldur í viðhorfi Vesturlanda til flóttamanna almennt, og er Ísland þar á engan hátt undanskilið nema síður sé. Því er ekki annað hægt að segja en að það hafi náð tilgangi sín­ um, að minnsta kosti hvað þennan gest varðar. n „Gott flæði dugar“ „Innihaldið rýrt“ Martin læknir Nafnlaus hestur Ljósmyndasýning eftir Spessa Má gera grín að Helförinni? Sagnfræði Valur Gunnarsson „Aðeins 25 manns var bjargað til Ís- lands á stríðsárunum, af þeim ótal sem þangað reyndu að komast. Charlie Chaplin sem einræðis- herrann Myndin er ein frægasta ádeila kvikmyndasögunnar. Lifandi gyðingur í glerbúri Gestir geta spjallað við gyðinginn og spurt hann spurninga. Ísland árið 1940 er sagður óæskilegur staður fyrir gyðinga og aðra flóttamenn á sýningu í Gyðingasafn- inu í Berlín. Valur Gunnarsson heimsótti safnið til að komast að því hverju sætti. Ég trúi á moldina og son hennar manninn fæddan af skauti konunnar sem er píndur á okkar dögum krossfestur drepinn og grafinn en mun rísa upp á morgun og krefjast réttar síns til brauðsins ég trúi á anda réttlætisins samfélag mannanna og friðsælt líf Ljóðabókin Nei, var hans fyrsta og eina bók. Hún kom út árið 1961. Ari þótti bráð- efnilegt ljóðskáld en lést tveimur árum eftir útkomu bókarinnar. Bókin var nýlega endur- útgefin af Máli og menningu. Trúarjátning eftir Ara Jósefsson n Flutti opnunartónverk Listahátíð í Reykjavík n Segir mikilvægt að hverfa frá egóisma í listum Listin snýst um samvinnu skriftarverkefnið opnuðum við nemendagallerí við hliðina á Kling og Bang. Á endanum bauð Kling og Bang okkur að koma inn í gallerí­ ið. Þau vildu fá nýja orku þarna inn. Þetta voru ég, Anna Hrund Más­ dóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Selma Hreggviðsdóttir, Ragnar Már Niku­ lásson, Katla Rós og Elísabet Bryn­ hildardóttir.“ Lilja segir síðustu tvö ár hafa verið spennandi. Hún hafi lært mikið á starfinu í Kling og Bang en hún segir galleríið vera afar mikil­ vægan vettvang fyrir grasrótina og ungt myndlistarfólk. Hver er þín sýn á íslenska mynd- list? „Mér finnst ég sjá ákveðna breytingu í myndlistargeiranum. Liststefnur eru að blandast saman. Myndlistarmenn vinna með tón­ listarmönnum eða rithöfundum. Ætli það heiti ekki þverfaglegt sam­ starf á fínu stofnanamáli,“ segir Lilja og hlær. „Það er líka mikil gleði, leikgleði sem maður sér til dæm­ is í verkum og gjörningum Ragnars Kjartanssonar, Gjörningaklúbbsins eða hjá Leikhúsi listamanna. Það er margt gott að gerast.“ Tónlistin veitir innblástur Listamenn sem líta yfir farinn veg eiga oft auðvelt með að telja upp helstu áhrifavalda – aðra lista­ menn sem þeir hittu á förnum vegi, örlagavalda í lífi þeirra. Ungir lista­ menn lifa í núinu. Þeirra áhrifa­ valdur er samfélagið sjálft, miðl­ arnir og menningin í kringum okkur. „Maður er undir stöðugum áhrifum,“ segir Lilja. „Myndlist hefur mikil áhrif á mig. En líka tón­ list. Tónlist veitir mér innblástur. Hún er óáþreifanlegt. Ég notast mikið við tónlist í verkunum mín­ um og tónlistin hjálpar mér að búa til mína eigin list.“ Kling og Bang fagnar tíu ára af­ mæli sínu í ár. Það segir Lilja að sé merkilegur árangur hjá galleríi sem rekið sé af listamönnum sjálfum. Mikið verður um dýrðir í galleríinu í ár af því tilefni. Sjálf fagnar Lilja af­ mæli sínu daginn sem blaðamaður slær á þráðinn. Ég óska henni til hamingju og ímynda mér hvernig afmælissöngurinn myndi hljóma í útgáfu íslenska flotans. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.