Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 29. maí 2013
Níræð kona kærir
rafbylgjumælingamann
n Keypti tæki sem átti að vernda húsið fyrir jarðárum n Fann hvergi tækið
G
uðlaug Magnúsdóttir er 88 ára
kona í Garðabænum. Hún er
orðin þreytt og lúin og flesta
daga situr hún heima hjá sér í
hægindastólnum og hlustar á
Útvarp Sögu. Það var einmitt þar sem
hún heyrði viðtal við Garðar Bergen-
dal sem býður upp á rafbylgjumæl-
ingar og varnir. Í kjölfarið hringdi hún
í Garðar og bað hann um að líta inn til
sín, en hún segir farir sínar ekki slétt-
ar af samskiptum sínum við hann
og hefur kært hann til lögreglunnar.
Garðar þvertekur hins vegar fyrir að
hafa brotið gegn gömlu konunni.
Átti að verða betri í líkamanum
„Ég hlustaði á viðtal við Garðar í Út-
varpi Sögu,“ segir Guðlaug, „þar sem
hann var að tala um það hvað rafmagn
skaðaði marga. Hann þóttist vera sér-
fræðingur í því að laga það, þó er hann
ekki rafvirki. Ég heyrði þetta viðtal
og hringdi í hann því ég er svo léleg í
skrokknum.
Garðar kom hingað stimamjúkur
með prjónana og sagði að rafmagnið
leiddi bókstaflega alls staðar út, meira
að segja í svona hægindastól sem ég
sit alltaf í þar sem ég er orðin gömul
og léleg. Honum fannst engin furða að
ég væri svona léleg miðað við ástandið
á heimilinu.
Síðan málaði hann allar innstungur
á heimilinu með naglalakki, bleiku
naglalakki, svo ég vissi hvernig ég ætti
að snúa tenglunum þegar ég setti þá
í samband. Hann sagði að það væri
ekki sama hvernig tenglunum væri
stungið inn í innstungurnar, því það
leiddi allt út.
Svo þóttist hann vera að leita að
hentugum stað hér inni til þess að
setja upp tæki sem leit út eins og langt
og grannt útvarpstæki en sagðist svo
ætla að setja það út í lóð. Það er ágætt,
sagði ég og horfði á eftir honum út
með tækið. Þetta átti að vera eitthvert
móðurtæki sem átti að vernda mig
fyrir rafbylgjum. Ég átti öll að verða
betri í skrokknum á eftir, en ég er orðin
svo slæm í bakinu.“
Fann hvergi tækið
Fyrir heimsóknina borgaði Guð-
laug þrjátíu þúsund krónur og önn-
ur fimmtíu fyrir tækið sem Garðar fór
með út í garð og þrjú þúsund til við-
bótar fyrir perur, en ljósaperurnar hjá
henni voru að hans mati allar svo lé-
legar að það þurfti að skipta þeim út.
Án þess að hugsa sig tvisvar um tók
hún upp ávísanaheftið og greiddi
Garðari fyrir þjónustuna.
Eftir heimsókn Garðars fór Guð-
laug að ímynda sér að hún væri eitt-
hvað betri í bakinu. „Ég var nú bara
að ímynda mér það, það hefur ekkert
breyst í raun og veru. Ég átti að verða
öll svo góð af þessu, ég er með bein-
þynningu og slæma verki í bakinu en
ég varð ekkert betri.
Um mánuði síðar kom maður að
hreinsa lóðina fyrir mig og ég sagði
honum frá þessu. Þá fór hann að
skoða sig um og sagði að hér væri
ekkert tæki,“ segir Guðlaug en mað-
urinn staðfesti þetta við DV og sagði
engin ummerki sjáanleg í garðinum.
„Hann hringdi í Garðar sem sagðist
hafa grafið tækið niður,“ segir Guð-
laug, „en þegar hann spurði hvar þá
skellti Garðar á hann. Hann seldi mér
tækið en svo hvarf það. Ég sá hann
fara með það út í garð og hélt að hann
væri heiðarlegur maður en hann hef-
ur aldrei grafið það niður.
Þannig að mér fannst ekkert ann-
að fært í stöðunni en að fara til lög-
reglunnar og ég fór þangað í gær og
lagði fram kæru á hendur honum.“
Hún telur að hún hafi verið svikin
í þessum viðskiptum og segir að það
sé afar óþægileg tilfinning. „Mér varð
náttúrulega rosalega um það hvað
ég var heimsk. Mér fannst vera fyrir
neðan allar hellur að ég hefði fallið
fyrir þessu en núna er ég ánægð með
að hafa áttað mig og ég ætla að stöðva
þennan mann. Hann hirti tækið sem
hann var búinn að selja mér og á ekk-
ert með að blekkja fólk. Hugsaðu þér,
ég er búin að skoða hægindastólinn
hátt og lágt og sé að hann er hvergi
tengdur við rafmagn. Ég skil ekki
hvernig hann átti að leiða út rafmagn.“
Allir sáttir
Garðar hefur hins vegar allt aðra
sögu að segja af þessum samskiptum.
Hann kom af fjöllum þegar blaðamað-
ur hafði samband við hann og greindi
honum frá kærunni. „Ha, ég? Ég
kannast ekkert við þetta,“ sagði Garðar
í upphafi samtalsins. Aðspurður um
tækið sagðist hann hafa skilið það eftir
úti í garði. „Ég gerði það. Það er grafið
ofan í jörðina. Ég get ekkert gert að því
ef maðurinn finnur ekki boxið, ég setti
það ofan í jörðina.“
Aðspurður hvar tækið sé í garðin-
um þá sagðist hann ekki getað mun-
að það, það væri mánuður síðan
hann hefði gengið frá því. „Þessi mað-
ur hringdi í mig og sagði að ég hefði
hlunnfarið þessa konu og ég sagði að
hann skyldi ekki reyna að bera lygi
upp á mig, ég setti boxið þar og hvar er
það? Ég get ekki svarað því, það getur
vel verið að ég geti fundið það sjálfur,
ég ætla ekkert að útiloka það.“
Aðspurður í hverju þjónusta hans
felist sagði hann: „Sko, þetta box sem
hún er að tala um virkar þannig að ég
er að loka fyrir jarðárurnar sem koma
inn í húsið. Með þessu er sendir sem
er settur ofan í jörðina. Þetta er ég bú-
inn að setja niður af og til í fimmtán ár.
Meira að segja var maður sem hringdi
í ykkur á DV og sagði hvað það hefði
verið gott að ég gerði þetta fyrir hann.
Það eru allir mjög ánægðir. Þetta er
eitthvert sérstakt tilfelli sem ég kann
engar útskýringar á. Ég setti boxið
ofan í jörðina og þar er það.“
Jarðárur hafa áhrif á heilsu
Jarðárur er rafmagn sem kemur upp
úr jörðinni, segir hann, „rafmagn og
raki aðallega. Varðandi húsið, þá eru
neðanjarðareldar hérna undir okkur,
hleður upp lappirnar sem húsið okkar
stendur á, flekaskilin í landinu koma
suðvestur og norðaustur. Upp úr
þessu kemur rafmagn, gas og raki. Ég
er með þetta tæki sem hún segir að ég
hafi stolið. Það ver alveg heimili þitt og
lokar á þessar bylgjur. Það sem skeður
þá í hverju einasta húsi er að lóin og
rykið hverfur af gólfum og það verður
svo tært og fínt loft í húsinu.“
Ef fólk væri með mígreni, höfuð-
verk, síþreytu, svefntruflanir, vöðva-
bólgu, exem, þurra húð vegna tölvu,
fótaverki þá myndi það breytast auk
sem myglusveppir ættu hverfa. „Ég
kann ekki að útskýra hvernig það ger-
ist, ég smíða ekki tækin en þau eru í
fjölda húsa.“
Aðspurður um bleika naglalakkið
segir hann að það skipti máli hvernig
klærnar snúa. „Þú veist að það er raf-
magn öðru megin og 0 hinum megin.
Ef þú setur bláa vírinn í vegginn þá
hendist rafmagn út með klónni.
Þetta er allt saman rétt. Þess vegna
mæli ég hvorum megin straumur er
í innstungunni og merki það með
naglalakki og síðan set ég klóna í sam-
band og mæli hvernig hún á
að snúa og naglakka klóna,
þannig að þú getir alltaf stung-
ið inn punkti á móti punkti.“
Lærði af sér
eldri mönnum
„Rafmagnsbylgjurnar mæli ég
með prjónum. Ég get eigin-
lega ekki útskýrt það nánar án
þess að sýna þér það,“ sagði
Garðar og kom svo beinustu
leið niður á DV með prjón-
ana til að sýna í verki hvern-
ig hann beitir þeim. Eftir að
hafa gengið um skrifstofuna
með prjónana þá sagði hann
öllum að setjast, ella ætti fólk á hættu
að hrynja niður þegar hann legði tæk-
ið á gólfið. „Finnið þið – það kólnar allt
hérna inni,“ sagði hann svo skömmu
eftir að tækinu hafði verið komið fyrir
uppi við einn vegginn.
Hann vildi þó ekkert upplýsa um
hvað væri inni í tækinu, gráum plast-
hólk með loki á báðum endum og
samsett í miðju, sagðist ekki vita það.
„Tvenndir, það er það eina sem ég veit.
Það er bara ein kona norður á Ísa-
firði sem veit það og hún er nú látin,“
sagði hann en tækin kaupir hann af
gömlum manni sem hann vill ekki
gefa upp hver er: „Það er óþarfi að
draga aðra inn í þetta. Þetta er dönsk
uppfinning en þetta er smíðað hérna
heima. Gamli maðurinn vill ekkert
vera í neinum látum, þetta er bara
fullorðinn maður og við eigum ekkert
að vera að djöflast í honum.“
Þá vildi hann alls ekki leyfa blaða-
manni að opna tækið og sjá inn í það.
„Þá er tækið ónýtt, það skiptir engu
máli hvað er inni í tækinu. Það sem
skiptir máli er að það virkar,“ sagði
hann ákveðinn, tók tækið aftur og
sagði að það yrði að vera á staðnum
til þess að hafa áhrif svo það væri ólík-
legt að ritstjórn DV fyndi einhvern
mun á andrúmsloftinu þrátt fyrir
þessa stuttu heimsókn.
Garðar vildi heldur ekkert gefa
uppi um hvar hann lærði þess-
ar aðferðir eða á hvaða fræðum þau
byggðu. Hann hefði lært þær af sér
eldri mönnum sem nú væru látnir og
þannig hefði þekkingin gengið kyn-
slóða á milli. „Ég lærði þetta þegar
ég fékk krabbamein. Það skiptir engu
máli hvar ég lærði þetta. Það sem
skiptir máli er að ég kann þetta.“
Sótti tækið
Þá sagði hann að það hefði einhver
maður, vinur Guðlaugar, hringt brjál-
aður í hann og haft uppi alvarlegar
ásakanir á hendur sér og hann
ætlaði ekki að sitja undir því
að vera þjófkenndur, tækið
væri á sínum stað í garðin-
um hennar Guðlaugar inni
í Garðabæ. Blaðamaður bað
hann þá um að fylgja sér þang-
að til þess að sýna sér hvar það
væri, en Garðar vildi ekki verða
við því nema Guðlaug léti
kæruna niður falla.
Síðar sama dag hringdi
Garðar þó og bað blaðamann
að fylgja sér til Guðlaugar. „Ef
tækið er ekki þar sem ég setti það þá
hefur þessi maður bara stolið því,“
sagði hann. „Það vill einn vinur minn
segja mér að það sé svoleiðis. Til hvers
ætti ég að fara að stela tækinu? Það
væri eitthvað skrýtið. Ef tækið er ekki
þarna þá hefur því verið stolið. Það
hefur gerst áður.“
Seinna mætti hann svo sjálfur
með tækið, útatað í mold og félaga
sinn til vitnis um að tækið hefði hann
grafið upp úr garðinum hennar Guð-
laugar. Þá hafði hann einnig endur-
greitt Guðlaugu 50.000 krónur sem
hún greiddi fyrir tækið. Guðlaug stað-
festi að Garðar hefði komið, endur-
greitt henni tækið og grafið það upp
úr garðinum en hún efaðist enn. „Ég
held að hann hafi komið hér að næt-
urlagi til þess að koma tækinu fyrir og
komið svo aftur til að grafa það upp.
Ég ætla ekki að draga kæruna til baka.
Ég læt ekki segjast.“ n
„Til hvers ætti
ég að fara að
stela tækinu?
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Það skiptir engu
máli hvar ég lærði
þetta. Það sem skiptir
máli er að ég kann þetta.
Í hægindastólnum Þetta er Guðlaug. Hún er 88 ára og orðin svo léleg í skrokknum að hún situr oftast í þessum hægindastól. Hún var svo ósátt
við þjónustu Garðars rafbylgjumælingamanns, sem sagði meira að segja stólinn leiða út rafmagn, að hún kærði hann til lögreglunnar. Mynd Sigtryggur Ari
Kom með tækið
Garðar segist hafa
komið fyrir tæki
fyrir í garðinum
hjá Guðlaugu og
var svo ósáttur við
þessar ásakanir
að hann kom með
moldugt tækið
á ritstjórn DV og
sagðist hafa grafið
það aftur upp.
Verndar húsið Þetta er tækið sem á að vernda hús fyrir jarð-árum og bæta heilsu fólks. Hvað inni í því er veit enginn, enda skiptir það ekki máli, segir Garðar. Það eina sem skiptir máli er að það virkar, segir hann og harðbannar blaðamanni að opna það.