Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Blaðsíða 9
Fréttir 9Miðvikudagur 29. maí 2013
ford.is
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Ford Transit Custom 2,2TDCi dísil, 100 hö, beinskiptur 6 gíra. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,7 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 178 g/km.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
KOMDU OG PRÓFAÐU
TRANSIT CUSTOM
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu finnum við
hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
verð án vsk frá
verð með vsk frá
custom
3.577.689 KR.
4.490.000 KR.
FORD tRansit
Ford Transit Custom
Sendibíll ársins 2013BACKBONE OF BUSINESS
FordTransit180x255.indd 1 08.05.2013 14:42:41
M
ikill fjöldi umhverfis
sinna safnaðist saman
við Stjórnarráðshúsið
um fimm leytið á þriðju
daginn. Það voru um
hverfisverndarsamtökin Land
vernd sem boðuðu til fundarins.
Tilgangur samkomunnar var að af
henda forsætisráðherra áskorun
um að draga til baka yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar um stórauk
in umsvif í virkjanaframkvæmd
um auk umsagna fjölmargra
stofnana og samtaka um ramma
áætlun stjórnvalda. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð
herra var þó vant við látinn vegna
opinberrar heimsóknar Finnlands
forseta en aðstoðarmaður hans, Jó
hannes Þór Skúlason, veitti áskor
un Landverndar viðtöku.
Líklega hafa fundarmenn verið
hátt á annað þúsund þrátt fyrir að
boðað hafi verið til fundarins með
sólarhringsfyrirvara og það aðeins
fimm dögum eftir að ný ríkisstjórn
tók formlega við völdum.
Aukin áhersla á stóriðju
Á síðustu dögum hefur stefna stjórn
valda í virkjanamálum komið betur í
ljós og svo virðist sem stóriðjufram
kvæmdir séu ofarlega á dagskrá. Ekki
fór mikið fyrir umræðum um um
hverfisvernd í kosningabaráttunni
og sama máli gegnir um stjórnar
sáttmála ríkisstjórnarflokkanna
sem kynntur var í síðustu viku. Nú
er hins vegar ljóst að stefnt er að
uppbyggingu stóriðju í Helguvík á
Suðurnesjum og Bjarni Benedikts
son fjármála og efnahagsráðherra
hefur lýst því yfir að til greina komi
að Landsvirkjun útvegi orku til slíks
iðnaðar. Þá þarf að öllum líkind
um að færa átta virkjanakosti yfir í
nýtingarflokk en þar er um að ræða
virkjanir á Reykjanesi, í NeðriÞjórsá,
Skaftárhreppi og á fleiri svæðum,
jafnvel á hálendinu.
Guðmundur Hörður Guð
mundsson, formaður Landverndar,
segir að nýlegar yfirlýsingar stjórn
arflokkanna komi sér á óvart. „Við
vonumst til að ríkisstjórnin dragi úr
þessum yfirlýsingum sínum og hefji
samtal við náttúruverndarhreyf
ingar, útivistarfélög, sveitarfélög
og ferðaþjónustufyrirtæki og reyni
að fara einhverja raunverulega
sáttaleið.“ Hann segist telja að sterk
krafa sé á meðal almennings um að
ríkisstjórnarflokkarnir láti af stór
iðjustefnunni enda séu aðrar leiðir
betri í efnahags og atvinnumálum.
Grænlit fánaborg
Mikill hugur var í fundarmönnum
við Stjórnarráðið og veifuðu við
staddir grænum fánum til merkis
um afstöðu sína til náttúruverndar.
Þá var augljóst af mannsöfnuðinum
að fólk á öllum aldri lætur sig nátt
úruvernd varða. Fyrstur tók til máls
formaður Landverndar og las hann
upp yfirlýsingu samtakanna áður en
hann bankaði á dyr Stjórnarráðsins
til að koma kröfum fundarmanna
áleiðis til ríkisstjórnarinnar.
Því næst fluttu tveir ungir um
hverfissinnar ræður en það voru
þau Ólafur Heiðar Helgason, for
maður Ungra umhverfissinna, og
Anna Sigríður Valdimarsdóttir, einn
forsvarsmanna Náttúruverndarsam
taka Suðurlands. Lögðu þau áherslu
á ábyrgð stjórnvalda gagnvart næstu
kynslóðum og gerðu einnig kröfu um
að óánægjuröddum umhverfissinna
yrði gefinn gaumur.
Fram úr björtustu vonum
Að loknum fundinum náði blaða
maður DV tali af Ólafi Heiðari og
Ómari Ragnarssyni sem fulltrúum
tveggja kynslóða í baráttu náttúru
verndarsinna. Báðir voru þeir hæst
ánægðir með stemninguna á fund
inum og sögðu mætingu hafa farið
fram úr björtustu vonum. „Þetta eru
tvö þúsund manns. Þetta eru að
minnsta kosti tvö Háskólabíó, það er
ég alveg viss um,“ sagði Ómar glaður
í bragði.
Þeir félagar eru bjartsýnir á að
barátta náttúruverndarsinna skili til
settum árangri. „Mér fannst fundur
inn rosalega kraftmikill og það kom
mér skemmtilega á óvart hve margir
mættu þrátt fyrir skamman fyrir
vara,“ sagði Ólafur Heiðar og bætti
við að hann teldi áhugann til marks
um mikla vakningu meðal almenn
ings um umhverfismál.n
n Hátt á annað þúsund manns söfnuðust saman n Mótmælafundur á fimm daga afmæli ríkisstjórnarinnar
Mótmæla fleiri virkjunum
Forsætisráðherra upptekinn Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætis
ráðherra, tók við áskorun Landverndar fyrir hönd hans. Hér er hann ásamt Guðmundi
Herði Guðmundssyni, formanni Landverndar. Mynd: SiGtryGGur Ari
Mannmergð Stór hópur fólks kom saman til að skora á að umhverfisverndarsjónarmiðum verði gert hærra undir höfði. Mynd: SiGtryGGur Ari
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is