Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Blaðsíða 10
Valle í Noregi
Hinn látni og hinn grunaði eru
sagðir hafa hlegið saman
fyrr um kvöldið.
„Hann er í
sorglegri
stöðu“
10 Fréttir 29. maí 2013 Miðvikudagur
L
júfur, indæll, rólegur, já-
kvæður. Þetta eru lýsingar-
orðin sem fjölskyldumeðlimir
nota til að lýsa Íslendingn-
um Ámunda Jóhannssyni,
sem grunaður er um morðið á
norska útvarpsmanninum Helge
Dahle. Morðið var framið aðfara-
nótt sunnudags í samkvæmi í Valle
í Noregi. Nákvæm atburðarás ligg-
ur ekki ljós fyrir en samkvæmt
heimildum norskra fjölmiðla
beindist árás hins meinta ger-
anda, Ámunda, ekki að Helge
Dahle, heldur að félaga meints
geranda, sem einnig var staddur
í samkvæminu.
Hetjudauði
Norska dagblaðið VG hefur eft-
ir sjónarvotti að Ámundi hafi
drukkið ótæpilega í samkvæm-
inu. Um nóttina hafi hann svo
lýst því yfir, í ölæði, að nefndur
félagi hefði níu líf. Í kjölfarið
tók hann upp hníf og gerði
sig líklegan til að sanna orð sín.
Helge reyndi að stöðva Ámunda,
að sögn sjónarvottsins, með þeim
afleiðingum að hann var stunginn
þrisvar sinnum í bakið og einu sinni
í kviðinn. Sé þessi atvikalýsing sann-
leikanum sam-
kvæm er ljóst að
Helgi Dahle, sem var
dáður útvarpsamaður í
Valle, dó hetjudauða í tilraun til að
bjarga hinum óþekkta veislugesti.
Verknaðurinn
átti sér stað í sam-
kvæmistjaldi. Eitt
af lykilvitnum
málsins, milljarða-
mæringurinn Knut-Axel Ug-
land, segir í samtali við norska
staðarblaðið Agderposten að
fyrr um kvöldið hafi Ámundi
og Helge hlegið saman í
tjaldinu og virst í góðu skapi.
„Kvöldið hafði verið mjög
huggulegt,“ segir Ugland. Eftir
að lætin hófust kveðst hann
hafa hlaupið út úr tjaldinu, en
sneri fljótlega aftur. Þá sá
hann hvar Helge lá í miðju
tjaldinu – í blóði sínu.
Ámundi var handtekinn
á vettvangi glæpsins að
morgni sunnudags og var í
kjölfarið dæmdur í fjögurra
vikna gæsluvarðhald.
Löghlýðinn borgari
Ættingjar Ámunda, sem DV talaði
við, eru flestir þeirrar skoðunar að
því fari fjarri að Ámundi hneigist til
ofbeldis; hann hafi aldrei gert flugu
mein. Fréttirnar komu því eins og
þruma úr heiðskíru lofti, að sögn
Elísu Björgu Elísdóttur, móðursystur
Ámunda. „Drottinn minn dýri! Hann
hefur aldrei hlotið dóm fyrir eitt eða
neitt. Þetta er bara giftur maður
sem á barn. Hann er alveg afskap-
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
lega rólegur og hefur alla tíð verið,“
segir Elísa. Elísa er búsett á Íslandi
en gerir ráð fyrir því að fljúga út til
Noregs á næstunni til að veita systur
sinni og frænda stuðning á þessum
erfiðu tímum. Elísa telur alls óljóst
hvað í raun og veru gerðist þessa
örlagaríku nótt í Valle. Af fréttaflutn-
ingi nokkurra norskra fjölmiðla að
dæma hefur Ámundi nú þegar játað
sekt sína, en Elísa tekur þeim frétt-
um með fyrirvara. „Mér skilst að
hann hafi bæði játað og neitað og
segist ekki muna neitt.“
Lögfræðingur Ámunda, Svein
Kjetil Stallemo, tekur í sama streng
og Elísa; fréttir af játningu Ámunda
séu stórlega ýktar. Í samtali við DV
segir Svein að Ámundi hafi verið í
óminnisástandi þegar verknaðurinn
var framinn. „Hann hefur alls ekki
játað á sig verknaðinn. Hann man
voðalega lítið og man sérstaklega
lítið eftir mikilvægustu augnablikum
kvöldsins,“ segir Svein en tekur samt
fram að Ámundi sé fullur eftirsjár.
Aðspurður hvort sú eftirsjá bendi
til sektar þagnar Svein um stund en
segir svo: „Staðan er þannig að hann
gerði eitthvað við manninn sem dó,
en það eru ekki nægar upplýsingar.
Þetta er morðmál. Við vitum ekki
nákvæmlega hvað gerðist.“ Svein
segir Ámunda vera með böggum
hildar. „Hann er í sorglegri stöðu. En
hann er ekki að hugsa um sjálfan sig
heldur fjölskyldu sína og hins látna.“
Fjölskyldumaður
Ámundi Jóhannsson fluttist til
Noregs tveggja ára að aldri ásamt
foreldrum sínum, sem síðar slitu
samvistir, og býr í bænum Aren-
dal með konu sinni og börnum.
Hann hefur því búið nær allt sitt
líf í Noregi, en hefur þó enn sterk
tengsl við Ísland að sögn ætt-
ingja. Ámundi hefur unnið sem
verkamaður og lagerstarfsmaður.
Hin síðari ár hefur hann glímt við
alvarleg hnémeiðsli og þegið ör-
orkubætur, en verið heilbrigður
að öðru leyti, bæði á sál og líkama.
Ámundi hefur aldrei komist í kast
við lögin áður, ef frá er talin sekt
fyrir of hraðan akstur. n
M
aðurinn sem var myrtur í Valle í Noregi
um liða helgi hét Helge Dahle, fimmtíu ára
gamall Norðmaður. Dahle er sagður hafa
reynt að stöðva Íslendinginn, Ámunda
Jóhannsson, þegar hann ætlaði að gera atlögu að
félaga sínum.
Samkvæmt framburði vitna voru slagsmál í gleð-
skapnum í aðdraganda morðsins, en Dahle var
stunginn þrisvar í bakið og einu sinni í bringuna.
Hann starfaði sem útvarpsmaður í Noregi og á
vef norska ríkisútvarpsins er honum lýst sem geð-
þekkum manni. Hann var sjálfur frá Valle og þekkt-
ur fyrir störf sín í svæðisútvarpinu á svæðinu. Þá
var hann einnig virkur þátttakandi í menningar- og
íþróttastarfi þar.
Stunginn margsinnis
n Helge Dahle var þekktur útvarpsmaður frá Valle í Noregi
n Ámundi Jóhannsson grunaður um morð í Noregi n Fjölskyldan í losti
„Þetta er
bara giftur
maður sem á barn
„Drottinn
minn
dýri! Hann hef-
ur aldrei hlotið
dóm fyrir eitt
eða neitt.
Vettvangur glæpsins Norskir fjöl-
miðlar hafa greint frá því að Ámundi
hafi drukkið ótæpilega um kvöldið.Valle
Osló
Ámundi er í gæsluvarðhaldi Honum er lýst
sem dagfarsprúðum manni.