Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Side 11
Fréttir 11Miðvikudagur 29. maí 2013
M
ikil ólga ríkir innan Fram-
sóknarflokksins vegna
þess hvernig ráðherra-
skipan var háttað. Þetta
staðfesta áhrifamenn í
flokknum í samtali við DV en nokkrir
þeirra fullyrða að Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson hafi blekkt fundar-
menn á miðstjórnarfundi flokksins í
síðustu viku. Hafi hann gefið í skyn að
flokkurinn fengi strax fimm ráðherra
í ríkisstjórninni en ekki fjóra eins og
raunin varð. Þessu vísar Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, alfarið á bug. „Það kom
skýrt fram á fundinum að fimm ráðu-
neyti kæmu í hlut Framsóknarflokks-
ins og umhverfisráðuneytið yrði til að
byrja með undir sama hatti og land-
búnaðar- og sjávar útvegsmálin,“ seg-
ir hann. Þá hafi fundarmönnum verið
gert ljóst að ráðherrar beggja flokka
yrðu fimm þegar fram liðu stundir.
„Þetta kom nákvæmlega svona fram
á fundinum,“ segir Jóhannes og tel-
ur að um misskilning hljóti að vera
að ræða.
Meðal þeirra áhrifamanna inn-
an flokksins sem DV ræddi við gætti
talsverðrar reiði í garð Sigmundar
Davíðs og sakaði einn viðmælend-
anna hann um „níðingsverk“. Þá var
kvartað undan því að Vigdís Hauks-
dóttir hefði ekki fengið ráðherrastól
og fullyrt að fráleitt hefði verið að
ganga framhjá forystukonu í Reykja-
víkurkjördæmi suður. Það væri
ólýðræðislegt miðað við þann at-
kvæðafjölda sem hún hefði fengið í
prófkjörum, en jafnframt samræmd-
ist það ekki jafnréttissjónarmiðum.
Guðni ósáttur
„Við hljótum að binda vonir við það
að fimmti ráðherra Framsóknar-
flokksins verði kona,“ sagði Anna
Kolbrún Árnadóttir, jafnréttisfull-
trúi Framsóknarflokksins, þegar DV
ræddi við hana um stöðu jafnréttis-
mála innan flokksins. Hún sagðist þó
vilja skoða málið í stærra samhengi
og nefndi sérstaklega nefndaskipan.
„Formenn nefnda mættu vera konur.
Það á ekki endilega að horfa bara til
ráðherrastólanna. Við fögnum því að
vera komin með átta þingkonur, við
megum aldrei gleyma því. Það höf-
um við aldrei haft áður í sögunni,“
sagði hún. Ljóst er að 42 prósent
þingmanna Framsóknarflokksins
eru konur. „Það eru margir fletir á
þessu en óskastaðan hefði auðvitað
verið að hafa fleiri konur.“
Vigdís Hauksdóttir er mágkona
Guðna Ágústssonar, fyrrverandi
ráðherra, sem nýtur talsverðrar
virðingar innan flokksins. Guðni hef-
ur hingað til þótt hallur undir Sig-
mund Davíð og fór fögrum orðum
um Sigmund eftir að hann var kos-
inn formaður árið 2009. Samkvæmt
heimildum DV var Guðni hins vegar
fokreiður yfir því að Framsóknar-
flokkurinn hefði aðeins fengið fjóra
ráðherra af níu. Þegar haft var sam-
band við hann sagðist Guðni þó ekki
vilja tjá sig um innanflokksmál við
fjölmiðla.
Orðrómur innan flokksins
Maður sem gegnir trúnaðarstörfum
innan Framsóknarflokksins og sat
miðstjórnarfundinn tjáði DV frá
orðrómi sem gengur meðal flokks-
manna um þessar mundir. Telja
margir að flokkurinn hafi átt heimt-
ingu á fimm ráðherrastólum. Hins
vegar hafi flokksforystan ákveðið að
sameina umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu til að eiga
auðveldara með að ganga fram hjá
Vigdísi. Um orðróm er að ræða sem
aðstoðarmaður forsætisráðherra
gefur lítið fyrir. Aðrir telja að fjórir
ráðherrastólar af níu hafi verið það
gjald sem formaður Framsóknar-
flokksins þurfti að greiða Sjálfstæðis-
flokknum fyrir forsætisráðherra-
stólinn. Ómögulegt er að vita hvað
er hæft í þessum orðrómi en ljóst er
að skiptar skoðanir eru meðal flokks-
manna á samkomulagi stjórnar-
flokkanna.
Vildi verða ráðherra
Þótt óhætt sé að fullyrða að Vigdís
Hauksdóttir sé afar umdeildur
þingmaður á hún breiðan stuðn-
ing meðal framsóknarmanna. Þykir
hún hafa barist af krafti gegn stefnu
ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna á síðasta kjörtímabili
og talað af miklu hispursleysi. „Já,
ég sóttist eftir því að verða ráð-
herra,“ sagði Vigdís í samtali við DV
eftir að ráðherraskipan var tilkynnt.
„Það á eftir að skipa einn ráðherra
með haustinu og það á eftir að rétta
þennan kynjahalla í ríkisstjórninni
að mínu mati,“ bætti hún við. Sam-
kvæmt þeim áhrifamönnum innan
flokksins sem DV ræddi við er óhjá-
kvæmilegt að Vigdís fái fimmta ráð-
herrastólinn. Bæði vegna jafnréttis-
sjónarmiða en ekki síður vegna þess
hve staða hennar innan flokksins er
sterk. n
Sterkur formaður Staða
Sigmundar Davíðs er sem fyrr sterk
innan Framsóknarflokksins þótt
margir beri hann þungum sökum
eftir miðstjórnarfund flokksins.
Ólga innan
FramsÓknar
n Sigmundur sakaður um að hafa blekkt miðstjórnina n „Níðingsverk“
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
„Þetta
kom
nákvæmlega svona fram á
fundinum
Vigdís Hauksdóttir Vigdís
hlaut góða kosningu í Reykjavík og
furða sig margir á því að hún skuli
ekki hafa fengið ráðherrastól.
Viltu bæta
mannlífið?
Hverfissjóður Reykjavíkur auglýs-
ir eftir umsóknum um styrki til að
efla mannlífið í borginni. Einstak-
lingar, hópar, félagasamtök eða
stofnanir geta sótt um styrk allt að
700 þúsund krónum hver. Á vef
Reykjavíkurborgar kemur fram að
leitað sé að verkefnum sem stuðla
að bættu mannlífi, eflingu félags-
auðs, fegurri ásýnd borgarhverfa,
auknu öryggi eða eflingu sam-
starfs íbúa, félagasamtaka og fyrir-
tækja við borgarstofnanir. Hægt
er að sækja um styrki til verk-
efna hvort sem þau tengjast einu
eða fleiri hverfum eða almennt í
borginni. Umsóknarfrestur er til
miðnættis mánudaginn 10. júní
2013 og eru nánari upplýsingar á
vef Reykjavíkurborgar.
Tannbrotinn
eftir kajakferð
Um klukkan 19.30 á þriðjudags-
kvöld barst tilkynning til Neyðar-
línu um að kajakræðari væri
í vandræðum í Norðfjarðará.
Reyndist maðurinn hafa velt
bátnum en náði að koma sér úr
þeirri klípu og upp á stein í ánni. Í
tilkynningu frá Slysavarna félaginu
Landsbjörg segir að björgunar-
sveitin Gerpir í Neskaupstað hafi
verið kölluð út og voru meðlimir
hennar komnir á staðinn 10–15
mínútum síðar á sínum stærsta
bíl. Var bílnum ekið út í ána
og kajakræðarinn sóttur. Hafði
hann fengið höfuðhögg, brotið
tennur auk þess sem hann var
með skrámur í andliti. Hann var
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað.
Norðurálkrafið
um milljarð
„Það er gott að þetta sé komið frá
og vonandi verður þetta til þess
að menn geti farið að einbeita sér
að Helguvík,“ segir Ragnar Guð-
mundsson, forstjóri Norðuráls á
Íslandi, í samtali við Vísi. Gerðar-
dómur komst að þeirri niðurstöðu
á þriðjudag að Norðurál Grundar-
tangi skuli greiða HS Orku skaða-
bætur að upphæð rúmlega 1,4
milljónir dollara, eða um 175
milljónir króna, sem eru fullar
bætur fyrir þá orku sem álverið
í Grundartanga tók ekki, en var
samningsbundið til að taka. Orku-
veitu Reykjavíkur var stefnt inn í
málið í ljósi þess að fyrirtækið sel-
ur Norðuráli orku, en fyrirtækið
gerði ekki bótakröfu í málinu og
áskildi sér rétt til þess að gera slíkt
að fenginni niðurstöðu dómsins.
Á vef Vísis kemur fram Orkuveitan
muni krefja Norðurál um 748
milljónir króna á næstu vikum.