Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Side 12
T
uttuguogfjagra ára karl
maður, Jerry Andrew Active,
hefur verið ákærður fyrir
hrottalegt morð á eldri hjón
um í bænum Anchorage í
Alaska um helgina. Hann hefur jafn
framt verið ákærður fyrir að nauðga
tveggja ára stúlkubarni, afabarni
hjónanna, eftir morðin. Foreldrar
barnsins komu að manninum nökt
um á heimili þeirra á laugardaginn,
þar sem hann var að misnota barnið.
Hann flúði af vettvangi á nærbuxun
um einum fata en lögreglunni tókst
að hafa hendur í hári hans.
Talsmaður lögreglunnar, Anita
Shell, hefur látið hafa eftir sér að
rannsóknarlögreglumenn hafi átt
erfitt með að sinna starfi sínu á
vettvangi, svo ljót hafi aðkoman
verið. „Þeir sögðu að þetta væri það
hræðilegasta sem þeir hafi nokkru
sinni þurft að takast á við,“ sagði hún
og bætti við að þó hefðu þeir marga
fjöruna sopið í þessum efnum.
Amma og afi pössuðu barnið
Það var á laugardaginn sem parið,
foreldrar litlu stúlkunnar, ákvað að
gera sér dagamun. Þau fóru í bíó
ásamt stálpuðum syni sínum og
fengu ömmu og afa til að gæta litlu
stúlkunnar. Þar voru hæg heimatök
in því fjölskyldan bjó hjá þeim; ömm
unni Sorn Sreap, 73 ára, og eigin
manni hennar Touch Chea,71 árs.
Langamma konunnar (90 ára)
bjó einnig á heimilinu og var heima
þegar voðaverkin áttu sér stað. Jerry
Andrew Active, hinn ákærði, réðst
inn á heimilið, að því er virðist að
tilefnislausu, með því að brjótast
inn um glugga. Hann gekk í skrokk
á hjónunum og myrti þau bæði.
Fregnir herma að hann hafi einnig
nauðgað gömlu konunni áður en
hann sneri sér að barninu.
Hryllileg aðkoma
Þegar fjölskyldan kom heim var úti
dyrahurðin læst innan frá. Enginn
svaraði þegar barið var að dyrum.
Eftir nokkra stund tókst þeim að
brjótast inn um glugga á íbúðinni,
sem er á jarðhæð, og þar blasti hryll
ingurinn við þeim. Amman og afinn
lágu hreyfingarlaus á gólfinu, látin.
Í einu svefnherberginu komu
þau að nöktum manninum, þar sem
hann var í rúmi að nauðga tveggja
ára dóttur þeirra. Konan hringdi á
neyðarlínuna, vitanlega í óheyri
legri geðshræringu, og sagði frá því
sem gerst hafði. Húðflúraður maður
væri inni hjá þeim, búinn að fremja
þessi hryllilegu voðaverk.
Parið reyndi að koma í veg fyrir
að maðurinn kæmist á brott. Lög
reglumaðurinn Slawomir Marki
ewicz segir að samkvæmt frásögn
konunnar, sem er ólétt, hafi þau lent
í ryskingum við manninn þegar þau
reyndu að hindra för hans. Eftir átök
í nokkrar mínútur hafi honum tekist
að komast undan og flýja heimilið –
á nærbuxunum.
Fannst á nærbuxunum
Lögreglumennirnir fundu manninn
skammt frá vettvangi. Hann veitti
að sögn nokkra mótspyrnu við
handtökuna. Íbúar borgarinnar eru
slegnir óhug vegna málsins. „Það er
mjög sjaldgæft að svona ofbeldis
glæpur eigi sér stað, að ókunnug
ur maður ráðist inn á heimili fólks,
ráðist á þá sem fyrir eru með þess
um hætti og myrði blásaklaust fólk
af handahófi,“ er haft eftir lögreglu
manninum í fjölmiðlum vestan
hafs.
Rannsókn málsins hefur leitt í
ljós að maðurinn nauðgaði ekki að
eins stúlkubarninu heldur einnig
gömlu konunni sem hann myrti.
Líkin hafa verið send til krufningar
en nánari tildrög árásarinnar eða
málsatvik liggja ekki fyrir. n
Frelsaði móður úr fangelsi
n „Ég hélt að ég myndi deyja í fangelsinu“
V
ijai Kumari var barnshaf
andi þegar hún var dæmd
til fangavistar fyrir morð
sem hún segist ekki hafa
framið. Hún eignaðist dreng, Kan
haiya, í fangelsi í Kanpur eftir að
hafa verið þar í fjóra mánuði. Hún
var fann sig tilneydda til að senda
hann frá sér í fóstur, enda fang
elsi ekki heppileg uppeldisstofnun
fyrir börn.
„Þetta var erfitt, en ég var harð
ákveðin. Ung börn eiga ekki heima
í fangelsum,“ segir Vijai. Hún bjóst
þó ekki við því að það yrði sonur
hennar sem sæi til þess að hún
kæmist úr fangelsinu 19 árum síð
ar. Drengurinn heimsótti móður
sína á þriggja mánaða fresti þegar
hann komst til vits og ára og þegar
hann varð átján ára kynnti hann
henni áætlun sína um að frelsa
hana úr fangelsinu.
Þá hafði Vijai átt að vera löngu
laus á skilorði, en hún átti ekki til
180 bandaríska dollara til að fá að
fara heim og sat því föst í áraraðir.
Barnsfaðir hennar neitaði að að
stoða hana og hún hélt að öll sund
væru lokuð. „Faðir minn hafði
afneitað henni,“ segir Kanhaiya.
Það var því ekkert annað að
gera en finna vinnu og hóf Kanhai
ya störf í fataverksmiðju og sparaði
eins mikið af laununum sínum og
hann gat. Á endanum átti hann nóg
til að ráða lögfræðing sem tók að
sér mál Vijai. Hann fékk hana lausa
úr fangelsinu og nú eru mæðgin
in sameinuð á ný. „Ég hélt að ég
myndi deyja í fangelsinu,“ segir
Vijai.
Það var þó dómurum mikið áfall
að hafa komist að því að það tók Vijai
svo langan tíma að fá úrlausn sinna
mála, en hún virðist hafa týnst í kerf
inu og gleymst líkt og svo margir aðrir.
Í fangelsum á Indlandi eru um 300.000
fangar og bíða um 70 prósent þeirra
dóms eða eru í sömu stöðu og Vijai. n
Var úrkula vonar „Ég hélt að ég myndi deyja í fangelsinu,“ segir Vijai.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Myrti öMMu og afa
og nauðgaði barni
n Óhugnanleg árás í Alaska n Active myrti tvö og framdi tvær nauðganir„Þeir sögðu að
þetta væri það
hræðilegasta sem þeir
hafi nokkru sinni þurft að
takast á við.
Grunaður um morðin Jerry
Andrew Active náðist á hlaupum,
á nærbuxunum einum fata.
Fádæma hryllingur Foreldrar
barnsins komu að manninum þar
sem hann misnotaði stúlkubarnið.
12 Fréttir 29. maí 2013 Miðvikudagur
Lyf gegn hjarta-
skemmdum
Breskir vísindamenn virðast hafa
þróað lyf sem dregur úr skaða
sem hjartaáföll, heilablóðföll og
stórar aðgerðir geta valdið á heil
brigðum vefjum.
Lyfið hefur ekki verið prófað
á mönnum ennþá en tilraunir
á músum benda til þess að lyfið
hafi þá eiginleika að vernda hjart
að þegar blóðflæði er skyndilega
hleypt aftur á eftir að það hefur
verið stöðvað í einhvern tíma.
Reynist lyfið gera sama gagn í
mönnum og það gerir í músum
mun það valda byltingu í lækna
vísindum.
Eitt algengasta vandamálið sem
einstaklingar sem fá hjartaáfall
glíma við eru skemmdir á hjarta
vefjum þegar blóðflæðið verður
skyndilega eðlilegt eftir áfallið. En
við það losna skaðlegar sameindir
sem valda skemmdum. Lyfið virð
ist hins vegar koma í veg fyrir að
þetta gerist.
Ofbeldi gegn
konum á
Facebook
Tugþúsundir einstaklinga hafa sett
nafn sitt við yfirlýsingu þar sem
þess er krafist að Facebook fjarlægi
allar myndir, hópa og myndbönd
sem innihalda ofbeldi gegn kon
um. Aðgerðasinnar sem standa
að yfirlýsingunni segja að á sam
skiptavefnum sé mikið af efni sem
innihaldi ofbeldi gegn konum,
þrátt fyrir að það standi í skilmál
um að slíkt viðgangist ekki.
Þeir segja að aðstandendur
Facebook hafi í mörgum tilfellum
neitað að fjarlægja efni af vefn
um þrátt fyrir ítrekaðar tilkynn
ingar. En skýringarnar séu þá að
þrátt fyrir að sumum finnist efnið
móðgandi þá brjóti það ekki í bága
við skilmálana.
Aðstandendur Facebook segja
í yfirlýsingu að þeir reyni eftir
fremsta megni að fjarlægja allt það
efni sem brjóti í bága við opinbera
skilmála samskiptavefjarins.
Á spítala
Meðlimur rússnesku pönksveit
arinnar Pussy Riot var á þriðju
dag send á spítala. Maria Alyok
hina hafði verið í hungurverkfalli
í sjö daga en hún situr í fangelsi.
Hún fór í hungurverkfall til þess að
mótmæla því að henni hefði verið
bannað að vera viðstödd ákvörðun
um mögulega reynslulausn sína en
beiðnin var tekin fyrir á miðviku
daginn í síðustu viku og var hafnað.
Maria var dæmd í tveggja ára fang
elsi síðastliðið haust vegna þáttöku
sinnar í mótmælum gegn Vladimír
Pútín. Hún hefur sagt frá því að
fangaverðir hafi hvatt aðra fanga til
þess að ógna henni og hóta.