Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Page 13
Fréttir 13Miðvikudagur 29. maí 2013
Hrósa frekar fyrir gáfu en útlit
n Foreldrar eiga ekki að segja börnum í tíma og ótíma að þau séu falleg
B
reski jafnréttismálaráðherr
ann Jo Swinson segir að for
eldrar eigi að hætta að segja
börnum sínum að þau séu fal
leg. Með því séu þau að senda börn
um sínum þau skilaboð að útlit skipti
mestu máli og það geti leitt til verri
sjálfsmyndar hjá börnunum síðar á
lífsleiðinni. Hún segir foreldra sem
hrósa börnum sínum í sífellu fyrir
falleg föt eða fallegt hár séu með því
að segja börnum sínum að það mik
ilvægasta til þess að ná árangri í líf
inu sé útlitið. Það sé mikilvægt að
börn viti að útlitið skipti ekki öllu
máli og þannig verði sjálfsmynd
þeirra sterkari.
Jo segir foreldra frekar eiga að
hrósa börnum sínum fyrir að ljúka
verkefnum sínum farsællega eða
fyrir að vera fróðleiksfús. Hún segir
að eitt af hverjum fjórum börnum á
aldrinum 10–15 ára sé óánægt með
útlit sitt og 72 prósentum stúlkna
finnist of mikil áhersla vera lögð á út
lit stjarnanna í umfjöllun fjölmiðla
um þær.
Swinson segir einnig í viðtalinu
við The Daily Telegraph að varasamt
sé að mæður ræði um eigin líkams
ímynd fyrir framan börn sín. Í gær
fór af stað í Bretlandi herferð þar sem
lögð er áhersla á það hvernig líkam
inn birtist í fjölmiðlum og hvernig
megi byggja upp sterka sjálfsmynd
ungs fólks. n
Þ
egar útvarpsgoðsögnin Stóri
George eða Big George dó
árið 2011 þá syrgði kærasta
hans til fimm ára hann afar
sárt. Það gerði eiginkona
hans einnig en hún vissi ekki að
George hefði átt kærustu í fimm ár
sem hélt að hún væri eina konan í lífi
hans. Kærastan vissi ekki heldur af
eiginkonunni.
Sagðist vera skilinn
George Webley var hans rétta nafn
og hann var þekktastur fyrir að hafa
samið fræg sjónvarpsstef, meðal
annars fyrir þættina Have I Got News
for You og The Office auk þess sem
hann starfaði sem útvarpsmaður.
George, sem var fjögurra barna
faðir, var aðeins 53 ára þegar hann
lést af hjartaáfalli eftir að hafa tekið
fíkniefnið mephedrone í partíi. Eig
inkona hans kom að honum á heim
ili þeirra þar sem hann barðist við að
ná andanum. Hann var látinn þegar
sjúkraliða bar að. Jo Good, kærasta
George, var afar sorgmædd þegar
hún heyrði af dauða hans og ekki
minnkaði sorgin þegar hún komst að
því að George hafði ekki verið hrein
skilinn í sambandi þeirra. Hann hafði
nefnilega talið henni trú um að hann
og eiginkona hans væru skilin þegar
þau höfðu í raun aldrei skilið. Hann
hafði lifað tvöföldu lífi allt þeirra
samband og svikið báðar konurn
ar sem voru honum dýrmætastar;
eigin konuna og hjákonuna.
Áttu saman hunda
Eiginkona George vissi heldur ekki
af því að hann hefði átt viðhald í
fimm ár. Jo og George kynntust hjá
BBCútvarpsstöðinni í London og
náðu saman vegna sameiginlegrar
ástar sinnar á dýrum og list. George
virtist ekki fela samband sitt við Jo
þegar þau voru meðal fólks og því
ekkert sem vakti sérstaklega upp
grunsemdir hjá henni. Samband
þeirra virtist vera raunverulegt og
þau fengu sér meira segja tvo hunda
sem þau kölluðu loðbörnin sín. Þó
bjuggu þau hvort í sínu lagi en Jo
hafði ekki áhyggjur af því. Hann
sagði við Jo að þó hann byggi enn
á heimili þeirra hjóna þá lifðu þau
aðskildu lífi og hittust bara í gegnum
börnin og barnabörnin. Sannleik
urinn var hins vegar annar.
Fannst hún ekki mega syrgja
Þegar George dó var það því ekki síð
ur áfall fyrir Jo að komast að því að líf
þeirra saman hefði allt verið byggt á
lygi. Hún segir í samtali við The Mirr
or að hún hafi ekki almennilega vitað
hvernig hún ætti að syrgja manninn
sem hafði verið sálufélagi hennar í
fimm ár. „Ég hafði verið hjákona hans
í fimm ár – án þess að ég vissi af því
– þannig að þegar ég missti minn ást
kæra Georg, þá var sorg mín af allt
öðru tagi en sorg eiginkonu hans.“
Henni fannst hún ekki mega syrgja
hann eins og hún gerði í raun.
Jo fór ekki í jarðarför George af
tillitssemi við ættingja hans. Eftir
dauða hans komst hún líka að því að
allar myndir sem höfðu verið tekn
ar af þeim saman hafði hann falið í
skáp sínum í vinnunni. „Núna á ég
ekkert nema minningar og nokkrar
myndir af manninum sem var líf
mitt í fimm ár. Ég hefði getað afborið
að vera hjákona. Ég trúði því sem
hann sagði mér. Ef ég hefði kom
ist að sannleikanum meðan hann
var enn á lífi þá hefði ég getað deilt
honum.“n
Stóri George Stóri George var
útvarpsmaður sem lifði tvöföldu lífi.
n Lifði tvöföldu lífi sem enginn vissi af n Skildi eftir sig tvær konur þegar hann lést
Lifði tvöföLdu Lífi
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Jo og „loðbarnið“ Jo og George áttu saman tvo hunda sem þau kölluðu loðbörnin sín. Hér
er hún með annan hundinn.
Kastaði móð-
ur sinni fram
af svölum
Tæplega níræð kona lét lífið í Ár
ósum í Danmörku á þriðjudag,
þegar sonur hennar á sextugs
aldri kastaði henni fram af svöl
um á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi.
Eftir að hafa hent móður sinni
niður stökk hann á eftir. Hann
lést ekki við fallið og var fluttur á
sjúkrahús mikið slasaður og lést
þar skömmu síðar af áverkum sín
um. Konan var orðin mikið veik,
þurfti að notast við hjólastól og
fá mikla aðstoð. Sonur konunnar
hafði séð um móður sína undan
farna mánuði án hjálpar frá fé
lagsþjónustu í borginni. Ekki er
þó vitað hvað olli því að maðurinn
ákvað að svipta þau lífi en nokkur
vitni voru að fallinu.
Drepin af
tígrisdýri
Súmötrutígur réðst á og drap
Söruh McClay, 24 ára starfs
mann dýragarðs í norðanverðu
Englandi. Lög
reglan rann
sakar málið
en forsvars
menn dýra
garðsins segja
hana hafa
brotið strangar
öryggisregl
ur með fyrr
greindum afleiðingum. Rann
sókn lögreglu virðist þó ætla að
leiða annað í ljós en vísbendingar
eru um tígrisdýrið hafi sloppið úr
búrinu og ráðist á Söruh í starfs
mannarými garðsins. Ekki er vitað
hvernig dýrið slapp út úr búrinu.
Lést úr bráða-
lungnabólgu
65 ára gamall karlmaður lést á
frönsku sjúkrahúsi á þriðjudag úr
bráðalungnabólgu. Lungnabólgan
var af völdum veirusýkingar, en
veiran sem veldur henni er skyld
HABL – eða SARSveirunni sem
kom upp fyrir um 10 árum. Annar
Frakki hefur greinst með veiruna,
hann er á sextugsaldri og liggur
nú á sjúkrahúsi. Að minnsta kosti
hafa um 44 manns greinst með
þetta veiruafbrigði og 19 þeirra
hafa látist. Flest hafa tilfellin kom
ið upp í SádiArabíu en veiran
hefur líka greinst í Bretlandi,
Jórdaníu, Katar, Túnis, Þýskalandi
og Sameinuðu arabísku fursta
dæmunum.
Ekki hrósa fyrir útlit Jafnréttismála-
ráðherrann Jo Swinson segir að það byggi
upp verri sjálfsmynd hjá börnum að vera
sífellt að segja þeim hvað þau séu falleg.