Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Side 15
Menn eru í lostiÞað heitir rányrkja á íslensku
Þorvaldur Svavarsson skipstjóri um uppsagnir hjá Stálskip. – DV Ómar Ragnarsson um virkjanaáform til að útvega rafmagn fyrir álver í Helguvík. – DV.is
Það er árið 2013 – ekki 1920
Spurningin
Var rétt að færa
umhverfismál
undir atvinnu-
vegaráðherra?
1 Fannst á lífi í skólpröri Slökkviliðsmenn í Kína björguðu
nýfæddum dreng úr skólpröri.
2 Heilbrigðari kynfæri með meira kynlífi
Gerðu grindarbotnsæfingar og
forðastu gerviefni.
3 Brutust inn og rústuðu íbúðinni
„Þarna var ekki fullorðið fólk að verki,
heldur börn“
4 Myrti mann með hníf Íslendingur varð Norðmanni að bana í
samkvæmi í Valle í Noregi.
5 „Hann hefur tak á mér“ Móðir fíkils óttast að hún þurfi að loka
á samskipti við hann.
6 Slapp úr klóm níðings Ellefu ára stúlka frá Melbourne komst
undan á ótrúlegan hátt.
7 „Íslenskt samfélag er eineltissamfélag“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kemur
Vigdísi Hauksdóttur til varnar.
Mest lesið á DV.is
„Ég hef ekki kynnt mér það
nógu vel.“
Rebekka Matthíasdóttir
22 ára nemi
„Mér finnst það fráleitt.“
Alfreð Jóhann Eiríksson
19 ára nemi
„Ég hef ekki skoðun á því.“
Aðalsteinn Jón Sigvaldason
28 ára verslunarstjóri
„Sennilega væri betra að hafa
umhverfismálin sér.“
Jóhanna Ásgeirsdóttir
20 ára nemi
„Þetta er sérkennilegt.“
Þórir Freyr Finnbogason
21 árs þjónustufulltrúi
N
ýlokið er kosningabaráttu þar
sem „mál númer eitt, skulda
vandi heimilanna“, var svo fyrir
ferðarmikið að annað komst
varla að. Til dæmis málið, sem ég taldi
vera stærsta málið, einkum til framtíð
ar, áform um keyra stóriðjuhraðlestina
af stað.
Mig grunaði að ofuráherslan á
lausn skuldavanda heimilanna væri
notuð til þess að ná völdum og hrinda
af stað hinu raunverulega aðalmáli,
stóriðjustefnunni. Af því að góður
meirihluti hafði í skoðanakönnun lýst
sig andvígan fleiri álverum sýndist mér
líklegt, að þeir, sem vildu ná völdum
teldu betra að nota annað mál, sem
„seldi betur“ og settu aðalmálið til
hliðar.
Ég vonaði að þessi grunur minn
væri ekki á rökum reistur, og þegar ný
stjórn tók við, sagði ég opinberlega að
gott væri að nýtt, ferskt og hugmynda
ríkt fólk fengi að spreyta sig og að
ástæða væri til að óska því velfarnaðar.
Brostnar vonir
En sjaldan hafa vonir í einu máli
dofnað hraðar en síðustu daga þegar
nýjar og nýjar fréttir um stóriðjufram
kvæmdir dynja á landsmönnum. Strax
á fyrsta vinnudegi nýrra valdsherra
sögðu þeir að álver í Helguvík væri efst
á blaði og að alls 8–18 virkjanakostum
yrði raðað upp á nýtt í átt til virkjun
ar. Skuldavandi heimilanna hins vegar
settur í nefnd.
Rétt áður hafði Frjáls verslun sett
fram málalista nýju stjórnarinnar í for
gangsröð og þar var álver í Helguvík
auðvitað efst á blaði, ekki skuldavandi
heimilanna. Forsætisráðherra slær
því síðan fram, að athugasemdir við
rammaáætlun hafi nær eingöngu ver
ið sama athugasemdin, alls send 400
sinnum. Fróðlegt fyrir mig og 224 aðra
ólíka aðila úr öllum áttum, sem sendu
vandaðar og fjölbreyttar umsagnir inn
til iðnaðarráðuneytisins. Sumar voru
meðmæltar virkjunum en fleiri gagn
rýnar á þær.
Ef menn fara inn á vefsíðu ramma
ætlunar eru þessar 225 umsagnir skjal
festar og við lestur þeirra blasir við
hvílík firra það er að dæma þær einskis
nýtar á þeim forsendum að þetta sé
allt sama athugasemdin.
Vonlaus samningsstaða
Þessi dægrin hefur maður ekki undan
að fylgjast með þessu aðalmáli ríkis
stjórnarinnar. Fjármálaráðherra lýs
ir því yfir á meðan viðræður HS orku
við Norðurál standa enn yfir, að leitað
verði til Landsvirkjunar um öflun orku
handa álveri í Helguvík. Bæði orku
málastjóri og forstjóri Landsvirkjun
ar hafa lýst því yfir, að með því að gefa
það út fyrirfram hver fái alla orkuna sé
samningsstaða orkusalans gerð von
laus.
Það virðist ekki bara komið árið
2003 í þessu efni heldur árið 1995. Þá
tóku núverandi stjórnarflokkar við
völdum og auglýstu um víða veröld
að Íslendingar byðu lægsta orkuverð
í heimi og „sveigjanlegt mat á um
hverfisáhrifum.“
Með útspili sínu gerir fjármála
ráðherra ekki einasta samningsstöðu
HS orku vonlausa heldur líka samn
ingsstöðu Landsvirkjunar. Því að öll
NeðriÞjórsá dugar ekki nema fyrir um
helmingi orkuþarfar þess lágmarks
álvers, sem talsmenn Norðuráls hafa
lýst yfir að verði að rísa í Helguvík til að
það beri sig; 360 þúsund tonna álver
sem krefst 625 megavatta orku.
Ígildi Kárahnjúka
Það er verið að tala um ígildi
Kárahnjúkavirkjunar og á annan tug
virkjana í samfelldu svæði virkjana
mannvirkja frá Reykjanestá austur í
Skaftafellssýslu og upp á hálendið. Stór
hluti virkjananna á að verða gufuafls
virkjanir, sem klára orku virkjanasvæð
anna á nokkrum áratugum. Það heitir
rányrkja á íslensku og hún og miklar
fórnir náttúruverðmæta bitna á kom
andi kynslóðum.
Ó„hrein“ orka
Og þessar virkjanir skapa loftmeng
unarvandamál, sem OR hefur beðið
um átta ára frest til að rannsaka, hvort
séu leysan leg! Og allt samt auglýst sem
„hrein og endurnýjanleg orka“! Og nú
eru nýjustu fréttir þær að kísilver eigi líka
að rísa í Helguvík!
Í álverinu á innan við 1% vinnuafls
þjóðarinnar að fá störf, þau langdýrustu
sem hægt er að skapa á Íslandi, nokkur
hundruð milljónir króna hvert. 4.000
manns eiga að fá vinnu við byggingu
mannvirkja, en því fylgir að sömu 4.000
verða atvinnulaus þegar framkvæmdum
lýkur.
„Það stoðar lítt að pissa í skó sinn,“
segir máltækið. Þetta verður einhver
stærsta skómiga sem um getur og það
í boði ungs fólks, sem sagðist hafa nýj
ar hugmyndir. Í staðinn byrjar það
valdadaga sína með því að grafa upp
forneskjulegar hundrað ára gamlar
stalínískar hugmyndir.
Elskurnar mínar, sýnið þið okkur að
þið séuð í takt við nýja tíma, fersk og hug
myndarík! Það er árið 2013 – ekki 1920.
Fjölmennur samstöðufundur Rösklega eitt þúsund manns komu saman fyrir utan Stjórnarráðið á þriðjudag til að afhenda forsætisráðherra áskorun um að fyrri yfirlýsingar
um til standi að færa fleiri svæði í virkjunarflokk rammaáætlunar, verði dregnar til baka. Sigtryggur AriMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 29. maí 2013
Kjallari
Ómar
Ragnarsson
Íslenskt samfélag er
eineltissamfélag
Ingibjörg Sólrún kemur Vigdísi Hauks til varnar. – Facebook
Mynd: Sigtryggur Ari JÓhAnnSSon„Strax á fyrsta vinnu-
degi nýrra valdsherra
sögðu þeir að álver í Helgu-
vík væri efst á blaði og að
alls 8–18 virkjanakostum
yrði raðað upp á nýtt í átt
til virkjunar. Skuldavandi
heimilanna hins vegar
settur í nefnd.