Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Page 16
16 Neytendur 29. maí 2013 Miðvikudagur
Míkróplast í snyrtivörum
n Þriðji hver fiskur er með plast í maganum
E
f þú hendir frá þér plastflösku
ertu talinn umhverfissóði og
vonandi eru fæstir sem gera
slíkt. Þegar þú hins vegar
burstar tennurnar eða þværð þér í
baði getur þú verið að losa plast út
í umhverfið en margir átta sig ekki
á því að fjölmargar snyrtivörur eru
uppfullar af svokölluðu míkróplasti.
Þetta á við um vörur eins og sjampó,
andlitsskrúbb, rakakrem, varagloss,
varalit og augnfarða.
Fjallað er um þetta á heimasíðu
DR1 en þar segir að þáttastjórn-
endur neytendaþáttarins Kontant
hafi komist að því að allt að 10
prósentum innihalds sumra snyrti-
vara sé plast. Samkvæmt hollensku
samtökunum Noordzee innihalda
meira en 300 af mest seldu snyrti-
vörunum umrætt plast.
Þegar við notum þessar vörur
skolast plastið út með vatninu og
þaðan út í náttúruna. Míkróplastið
er svo smátt að það fer óhindr-
að með vatninu. Nokkur vöru-
merki eru nefnd sem framleiða vör-
ur sem innihalda plastið. Það eru
Colgate-Palmolive, L‘Oreal, Un-
ilever og Nivea.
Í greininni er bent á að breski
sjávar líffræðingurinn Richard
Thomsen hafi rannsakað umfang
plastsins í náttúrunni. „ Rannsóknir
okkar sýna að míkróplastið sé í öll-
um heimsins höfum. Það finnst
við strendurnar, á hafsbotni og
á yfirborði sjávar. Þegar það er á
annað borð komið út í náttúruna er
ómögulegt að fjarlægja það,“ segir
Thomsen í samtali við Kontant.
Hann er prófessor við Plymouth-
háskólann og stóð fyrir rannsókn
þar sem meira en 500 fiskar voru
veiddir við Bretland en Thomsen og
samstarfsmenn fundu plast í maga
þriðja hvers fisks.
Neytendur eru hvattir til að lesa
innihaldslýsingar snyrtivaranna en
plastið heitir polyethylen, stytt í PE
á pakkningum.
gunnhildur@dv.is
Pakkaðu rétt
Það getur
borgað sig
Flugfélögin rukka nú í meira
mæli fyrir farangurinn og því
ættu ferðalangar að hafa sem
minnst meðferðis eða að reyna
að pakka rétt. Hér eru leiðbein-
ingar um hvernig maður getur
ferðast létt.
n Skipuleggðu
vel ferðafatn-
aðinn. Byrj-
aðu á því að
leggja föt, skó
og snyrtidót á
rúmið eða borð og
þá færðu góða yfirsýn yfir það er
sem þú ert að fara að pakka nið-
ur. Taktu svo eins mikið frá eins
og þú getur. Það hjálpar til við að
takmarka farangurinn.
n Notið þar til gerða ferðatösku-
poka. Það er hægt þjappa þeim
ansi vel saman og spara á þann
hátt pláss.
n Séu margar bækur með í för
verður taskan fljót að fyllast og
þyngjast. Takið spjaldtölvu eða
lestölvu með í ferðalagið í stað-
inn.
n Takmarkið snyrtivörurnar því
þær taka mikið pláss. Ef þú þarft
nauðsynlega að taka með þér sér-
stök krem eða aðrar snyrti vörur er
gott ráð að kaupa litlar dósir eða
brúsa og setja vörurnar í það. Það
fer minna fyrir bómullarskífum
en bómullarhnoðrum.
n Ferðafélagar eru ágætir þegar
kemur að því að ferðast létt. Þá er
átt við að þegar þú ferðast með
öðrum er hægt að deila ýmsum
hlutum á ferðalaginu svo sem
tannkremi, sólarvörn og hleðslu-
tækjum. Með þessu minnkar far-
angurinn hjá báðum aðilum.
algengt verð 246,5 kr. 245,4 kr.
algengt verð 246,3 kr. 245,2 kr.
höfuðborgarsv. 246,2 kr. 245,1 kr.
algengt verð 246,5 kr. 245,4 kr.
algengt verð 248,9 kr. 245,5 kr.
Melabraut 246,3 kr. 245,2 kr.
Eldsneytisverð 28. maí
Bensín Dísilolía
Plast í snyrtivörum
Sem endar í hafinu og
fiskinum þar.
Bestu tilboðin í
líkamsræktina
n Selja sumarkort á niðursettu verði n Ódýrasta kortið í Sporthúsinu
L
íkamsræktarstöðvarnar kepp-
ast nú við að bjóða góð sum-
artilboð eða sumarkort til að
laða að sé viðskiptavini. Ætla
má að margir taki sér pásu frá
stöðvunum yfir sumar tímann og nýti
sér góða veðrið til að æfa utandyra.
DV hefur tekið saman upplýsingar
um sumarafslátt og kort hjá nokkrum
líkamsræktarstöðvum.
Mismikið innifalið í verðinu
Það er misjafnt hvað kortin eða til-
boðin innihalda en þau veita að-
gang að tækjasal auk þess að á sum-
um stöðum er einnig aðgangur að
sundlaugum, heitum pottum og gufu.
Ódýrasta mánaðarkortið á sumartil-
boði er að finna í Sporthúsinu en þar
kostar fjögurra mánaða kort 14.990
krónur sem gera 3.747 krónur fyrir
hvern mánuð. Þær upplýsingar feng-
ust að verðið muni lækka eftir því
sem líður á sumarið en tilboðið gild-
ir til 1. september. Actic-stöðvarnar
bjóða ekki upp á sérstök sumarkort
en þar er þó að finna ódýrasta verð
á mánuði. Árskort þar fyrir hjón eða
pör kostar 33.900 krónur á mann sem
gera 2.832 krónur á mánuði. Dýrasta
kortið í sumar er að finna í Hreyfingu
en þó skal tekið fram að þar er tölu-
vert innifalið í verðinu.
Ekki var unnt að taka saman upp-
lýsingar um allar líkamsræktarstöðv-
ar á landinu og eins skal þess getið að
ekki var tekið tillit að aðstöðu til lík-
amsræktar á stöðvunum en ætla má
að íburðarmeiri stöðvar séu dýrari.
n World Class
World Class býður upp á mánaðar-
kort á 7.490 krónur í sumar. Innifalið
í því er almennur aðgangur að öllum
stöðvum World Class í opnum tím-
um og að þremur sundlaugum.
n líkamsræktin Bjarg akureyri
Þar er boðið upp á mánaðarkort á
6.600 krónur og byrjað verður að
selja þau 3. júni. Kortið gildir í alla
tíma, tækjasal, heita potta úti og inni
og gufubað. Þau gilda til 2. septem-
ber en eftir það gilda þau í nýjan
glæsilegan tækjasal, potta, gufu og
böð.
n Hreyfing
Sumarpakkinn hjá Hreyfingu inni-
heldur kort sem gildir til 31. ágúst og
kostar 29.900 krónur. Því fylgir að-
gangur að tækjasal, opnum tímum og
pottum og gufum í úti aðstöðu. Eins
fá viðskiptavinir tvo tíma hjá þjálf-
ara í sumaráskorun, æfingaáætlun í
tækjasal. Þeir geta einnig tekið þátt í
Toppunum 5 en það eru skipulagð-
ar fjallgöngur á fimm fjöll í nágrenni
Reykjavíkur. Að lokum verða all-
ir sjálfkrafa þátttakendur í sumar-
leik Hreyfingar en 1.000 sumargjafir
verða gefnar í sumar.
n sporthúsið
Sporthúsið býður fjögurra mánaða
kort í líkamsrækt á 14.990 krónur. Með
kortinu fæst aðgangur að tækjasal,
hóptímum, heitum pottum, sána og
gufu.
Þar er einnig sumartilboð í Hot
Yoga en fjórar vikur eru á 9.900
krónur. Einnig meðgöngu- og
mömmuleikfimi í 14 vikur á 34.400
krónur.
n Hress
Sumarkort Hress gilda í þrjá mánuði
og kosta 19.900 krónur. Innifalið er
ótakmarkaður aðgangur að öllum
opnum hóptímum í Hress og tveimur
tækjasölum. Einnig fylgir aðgangur
að Bjargi á Akureyri og Hressó Vest-
mannaeyjum og að sundmiðstöðinni
að Ásvöllum 2.
n stúdíó Dan ísafirði
Tilboð á stökum tímum gildir til 15.
ágúst en í sumar er tíminn á 1.000
krónur, Vikupassinn er á 5.000 krón-
ur og gildir til 15. ágúst.
Einn mánuður er á 7.000 krónur
en það tilboð gildir til 1. ágúst.
Þriggja mánaða kort er á 15.000
krónur en það þarf að kaupa fyrir 3.
júní.
n Veggsport
Sumarkortið hjá þeim er á 17.990
krónur og gildir til 15. september.
Byrjað er að selja það og stendur það
í nokkrar vikur.
n Reebok Fitness
Reebok Fitness býður ekki upp á
sérstök sumartilboð en bent er á að
verð á mánaðarkorti sé 3.990 krónur.
Þar sé engin binding svo fólk geti æft
þar í sumar og gjaldið sé þá 15.960
krónur fyrir júní, júlí og ágúst, með
meðlimagjaldi sem greitt er í upphafi
áskriftar. Ef fólk vilji einungis júní og
júlí kosti það 11.970 krónur.
Einnig er bent á sumarleik fyrir
meðlimi stöðvarinnar sem gengur út
á að þeir sem mæta 20 sinnum eða
oftar í sumar fara í pott um verðlaun.
Þau eru 80.000 króna hjól frá GÁP og
árskort í Reebok Fitness.
n actic
Í Actic er ekki boðið upp á sérstakt
sumarkort en árskortið hjá þeim fyrir
pör og hjón er á 33.990 eða á 2.832
krónur á mánuði. Kortin gilda í lík-
amsrækt og sund bæði í Sundlaug
Kópavogs og Salalaug. Eins fá við-
skiptavinir tíma með þjálfara til að
læra á tækin og sérsniðna æfinga-
áætlun.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
sumarræktin Margar
líkamsræktarstöðvar bjóða
sumarkort á lægra verði.
Útiæfingar Nokkrar stöðvar
færa æfingarnar út á sumrin.
Mikill verðmunur
á lúsasjampói
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á
ýmsum vörum um miðjan mánuð
og þar á meðal verð á lúsasjampói.
Frá þessu er sagt á heimasíðu
ASÍ. Skoðaðar voru tvær tegundir
Licener og Hedrin og kom í ljós
60 prósenta verðmunur var á því
fyrrnefnda sem fékkst hjá 15 af 18
söluaðilum. Dýrast var það á 3.323
krónur hjá Apótekaranum, Lyfjum
og heilsu og Skipholts Apóteki en
ódýrast á 2.077 krónur hjá Apóteki
Hafnarfjarðar. 47 prósenta verð-
munur var á Hedrin-lúsasjampói
sem var til hjá öllum söluaðilum.
Það var dýrast á 3.030 krónur hjá
Lyfjavali, Álftarmýri og Apóteki
Suðurnesja en ódýrast á 2.060
krónur hjá Siglufjarðar Apóteki.