Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Síða 18
18 Lífsstíll 29. maí 2013 Miðvikudagur
búa til hamingju
n Fanga sólríka matarmenningu Provence-héraðs n Gáfu út sína þriðju matreiðslubók
M
æðgurnar Sigríður
Gunnarsdóttir og Silja
Sallé gáfu nýverið út
sína þriðju matreiðslu
bók hér á landi, Sælkera
flakk um Provence. Bókin geymir
uppskriftir Sigríðar og myndir Silju
og fangar lystisemdir þessa sólríka
héraðs.
Fyrri bækur Sigríðar hafa fjallað
um Frakkland í heild sinni og
matar gerð Parísarborgar. Það eru
43 ár liðin síðan hún, ung kona, elti
ástina alla leið til Haítí og þaðan til
Frakklands þar sem hún heillaðist
af franskri matargerð.
Fyrsti Íslendingurinn á Haítí
„Ég ákvað eftir stúdentspróf að fara
í frönsku í Háskóla Íslands. Þar
kynntist ég manninum mínum. Við
bjuggum bæði á Nýja Garði, hann
var að læra íslensku og var að skrifa
doktorsritgerð hér á Íslandi.
Þegar ég var búin í mínu námi
ákvað ég að fara til hans. Ég fór ekki
strax til Frakklands, því á þessum
árum var hann að sinna herskyldu
og var staðsettur á Haítí. Þannig
að ég fór þangað og þar giftum við
okkur. Þegar ég lenti á flugvellin
um á Haítí, hitti ég blaðamann sem
sagði mér að ég væri fyrsta íslenska
manneskjan sem kæmi til Haítí. Ég
veit ekkert hvort það er rétt. En það
voru þó ábyggilega ekki margir Ís
lendingar sem fóru þangað enda
óralangt að ferðast þangað. Ég bjó
á Haítí í tvö ár og fluttist eftir það til
Frakklands. Svo þegar herskyldunni
var lokið fluttum við til Frakklands
og við höfum síðan búið í grennd
við París,“ segir Sigríður í samtali við
blaðamann.
Breytt íslensk matarmenning
Hún minnist matarmenningar Ís
lendinga þegar hún fluttist út sem
var ansi ólík þeirri frönsku. „Í þá
daga var matur á Íslandi bara til að
lifa af. Það var mjög lítið hugsað um
bragðgæði og listina að búa til mat.
Það var því skrýtið að koma hingað
og sjá þennan áhuga hér. Ég kunni
lítið sem ekkert að elda en heillaðist
fljótt af franskri matargerð.“
Sigríður telur matarmenningu
Íslendinga hafa breyst mikið til
batnaðar síðan hún var ung kona þó
enn megi læra af Frökkum listina að
njóta. Hún segir matargerð og það
að njóta matar heilaga stund hjá
Frökkum og varði hamingjuna.
„Matarmenningin í Frakklandi
er svo ríkjandi, öll fjölskyldan sam
einast við matargerðina. Það er það
sem mér finnst mikilvægt og það
varðar sjálfa hamingjuna að fjöl
skyldan eyði saman þessum tíma.
Frönsk matargerð snýst ekki bara
um að borða góðan mat, hún snýst
um fjölskylduna og um hamingj
una. Matar gerðin er hátíðleg stund
sem fjölskyldan á saman.“
Eldaði 135 rétti í Frakklandi
Um leið og ný bók þeirra er gefin
út er endurgefin út bók þeirra Sæl
keraferð um Frakkland. Vinna við
þá bók var ansi mikil því þá fóru
þær mæðgur yfir allt Frakkland. „Ég
eldaði 135 rétti og hefði getað eld
að mörgum sinnum fleiri en hefði
þurft meiri tíma,“ segir hún og hlær
að minningunni um þá miklu vinnu
sem var á bak við bókina. „Landið
er stórt og hvert hérað hefur sín sér
kenni og sína matar menningu þar
sem allt byggir á staðarafurðum.
Það eru alltaf notaðar héraðsafurðir
og það sem er til. Fólk er vant því
að fara út í garð að tína til það sem
þarf til matreiðslunnar. Landið sjálft
er svo gjöfult. Það er líka svo ótrú
legt úrval af matvöru og hráefni á
mörkuðum. Það sem mér finnst
skemmtilegt er að fara á markaðinn
og kaupa beint af bóndanum og ég
virkilega naut þess við gerð þeirrar
bókar,“ segir Sigríður frá.
Ilmur héraðsins
Nú er efniviðurinn hið sólríka
Provencehérað í SuðausturFrakk
landi. „Mjög stórt hérað og ein
kennist mjög af því hvað það er
sólríkt og fjöllótt. Þetta hérað varð
snemma mjög eftirsótt til að vera
við ströndina í sumar og sól. Heims
frægur áfangastaður, þangað kom
ríkasta fólkið bæði frá Evrópu og
Ameríku í sumarfrí þannig að það er
rík hefð fyrir fínum mat,“ segir Sig
ríður sem segir matargerð héraðsins
dæmigerða fyrir Miðjarðarhafs
menningu. Mikið af fersku græn
meti og ólífuolíu.
Sigríður minnist ilmsins sem er
einkennandi fyrir héraðið. „Það er
ilmur í loftinu sem maður finnur
hvergi annars staðar. Hann kemur
auðvitað vegna sólarinnar og alls
gróðursins. Matargerðin er í takt við
þennan gjöfula ilm, hún er litsterk
og bragðmikil. Þetta er matargerð
þar sem hamingjan ræður ríkjum.
Sólskin og hamingja,“ segir Sigríður
og gefur uppáhaldsuppskrift sína úr
héraðinu, gómsæta og gamalgróna
uppskrift að fiskisúpu frá Marseille.
„Það myndi enginn skrifa um
Provence án þess að skrifa um fiski
súpu,“ segir Sigríður létt í bragði. n
Fiskisúpa frá Marseille
Fyrir 4–8
n 3 kg af fiski, af eins mörgum tegundum
og auðið er. Venjulega er fiskurinn í heilu
lagi eða bitum, ekki í flökum. Súpan verður
bragðmeiri þannig.
n 10 humarhalar eða risarækjur
n 3 laukar
n 3 hvítlauksrif
n 3 tómatar
n 1–2 blaðlaukar
n fenníkulauf
n timjan
n lárviðarlauf
n saffran
n appelsínubörkur
n ólífuolía
n salt
n pipar
n 10 ristaðar brauðsneiðar
n hvítlaukur
n rifinn parmaostur
Rouille-sósa (ryðsósa)
n 2 hvítlauksrif
n 2 nýir piparávextir
n 1 hnefafylli brauðmylsna
n 1 soðin kartafla
n ólífuolía
Afhýðið laukinn, hvítlauk, blaðlauk
og tómata. Skerið í sneiðar. Hitið
olíu í stórum potti, látið laukinn og
tómatana krauma við vægan hita
með grösum og kryddi, salti og pipar.
Hitið súpudiska í volgum ofni.
Á meðan tómatsósan sýður rólega
er tími til að útbúa rouille-sósuna:
Hakkið fyrst hvítlauk og rauða
piparinn, ef þið eruð smeyk við þann
rauða, þá takið fyrst steinana úr
honum. Setjið í skál.
Bleytið aðeins brauðmylsnuna, setjið saman við ásamt
afhýddri, kraminni kartöflunni, olíu og saffran. Sósan á að vera þykk og sterk.
Hellið tveimur lítrum af vatni í pottinn með tómatlauksósunni og náið upp suðu.
Takið innan úr fiskunum, skafið af þeim hreistrið og skerið í bita. Setjið þykkustu
fiskbitana í vatnið við suðumark, látið þá liggja þar í 5–10 mínútur, síðan hina sem eftir
eru ásamt humarhölunum.
Haldið vatninu við suðumark aðrar 5 mínútur. Smakkið súpuna og athugið hvort
fiskurinn er soðinn.
Nuddið ristaða brauðið með afhýddu og klofnu hvítlauksrifi, leggið á súpudiskana.
Ausið fiskinum varlega upp úr pottinum á diskana. Hellið síðan súpu yfir. Gestir fá sér
svo sjálfir rouille-sósu og rifinn ost.
„Ég eldaði 135 rétti
og hefði getað eld-
að mörgum sinnum fleiri
en hefði þurft meiri tíma.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Mæðgurnar sem
Sólskinsmæðgur Þær Sigríður og
Silja ferðast um Frakkland og gera
matarmenningu skil. Nú er komin út ný
bók þeirra, Sælkeraflakk um Provence.