Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Side 20
20 Sport 29. maí 2013 Miðvikudagur
Fyrsta gullið
komið
n 125 keppa fyrir
Íslands hönd
Smáþjóðaleikarnir standa nú yfir
í Lúxemborg en þetta er í fimmt
ánda sinn sem leikarnir eru
haldnir. Aníta Hinriksdóttir vann
til fyrstu gullverðlauna Íslands á
mótinu þegar hún sigraði í 800
metra hlaupi. Þá fékk íslenska
karlalandsliðið í fimleikum brons
verðlaun í liðakeppni.
200 Íslendingar
125 keppendur taka þátt á leik
unum fyrir Íslands hönd að þessu
sinni en alls eru um 200 manns
í íslenska hópnum að meðtöld
um þjálfurum, aðstoðarfólki
og fararstjórum. Leikarnir voru
settir á mánudag á Þjóðarleik
vangi Lúxemborgar, Stadium
Josy Barthel. Helena Sverrisdóttir
körfuknattleikskona var fánaberi
Íslands á setningarathöfninni.
Leikarnir voru fyrst haldnir
árið 1985 og hafa vaxið ár frá ári
síðan. Til marks um það má nefna
að keppendum Íslands hefur
fjölgað um 100 frá fyrstu leikun
um. Heildarfjöldi keppenda var
þá rúmlega 200 en nálgast nú um
1.000.
Á Íslandi 2015
Það er ekki einungis íþróttafólk
statt á Smáþjóðaleikunum. Forseti
Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
er einnig staddur ytra en hann
tók á mánudag við embætti for
seta framkvæmdastjórnar Smá
þjóðaleikanna. Ólafur mun gegna
því embætti fram yfir leikana 2015
sem verða haldnir á Íslandi.
Á fundi framkvæmdastjórn
arinnar kynnti skipulagsnefnd
leikanna hér á landi umgjörðina,
íþróttagreinarnar 10 sem keppt
verður í, mannvirki, land og þjóð.
Leikarnir fara fram í Reykjavík
dagana 1. til 6. júní 2015 en þeir
voru einnig haldnir hér á landi
árið 1997. Auk Íslands eru það
Lúxemborg, Andorra, Malta,
Liechtenstein, San Marínó, Kýpur,
Mónakó og Svartfjallaland sem
taka þátt á leikunum.
Íslenski hópurinn Er skipaður um 200
manns í heild. Mynd ÍSÍ
G
límumótið Mjölnir Open
fór fram um helgina í átt
unda skipti. 73 þátttakendur
kepptu í uppgjafarglímu í níu
flokkum. Mótið hefur vaxið ár
frá ári samhliða uppgangi baradaga
klúbbsins Mjölnis og er stærsta
glímumót landsins ár hvert.
„Munurinn á þessu móti og flestum
öðrum er að það er opið öllum. Það
getur hvaða glímumaður sem er kom
ið og tekið þátt,“ segir Jón Viðar Arn
þórsson, formaður Mjölnis. „Þannig
að besta glímufólk landsins getur
keppt sama hvaða sérsambandi það
tilheyrir eða hvaða grunn í glímu það
hefur.“ Mjölnir Open er því einn helsti
vettvangur ár hvert fyrir bestu glímu
kappa landsins til að láta ljós sitt skína.
Mótið aldrei sterkara
Að þessu sinni tóku keppendur frá
fimm félögum þátt. Auk Mjölnis voru
það Sleipnir/UMFN, Fenrir, Pedro
Sauer og Full Circle. Það er óhætt
að segja að Mjölnir hafi gjörsigrað
á mótinu en keppendur frá Mjölni
sigruðu í öllum flokkum nema ein
um. Í þeim flokki sigraði Björn Lúk
as Haraldsson, Sleipnir/UMFN, sem
Jón Viðar segir ungan og þrælefni
legan glímukappa.„Mótið er alltaf að
verða sterkara með hverju árinu sem
líður. Það er til marks um þann gríðar
lega uppgang sem er bæði í glímunni
og blönduðum bardagalistum hér á
landi. Ég held að það sé óhætt að segja
að það hafi aldrei verið jafn margar
flottar og spennandi glímur og núna.
Standardinn er alltaf að verða hærri
og því færri óvanir sem taka þátt,“ segir
Jón Viðar.
Mjölnir vex og dafnar
Mjölnir hefur vaxið hratt undanfarin
ár en í dag æfa þar um 1.000 manns.
„Stærstur hluti þess hóps er í glímunni
en blönduðu bardagalistirnar og Vík
ingaþrekið hafa einnig vaxið mikið.“
Mjölnir hefur því ferðast um langan
veg frá því að nokkrir félagar í Þórs
hamri mættu saman á æfingar árið
2003. Eftir að hafa verið lengi á Mýrar
götu flutti Mjölnir í Loftkastalann árið
2011 en hefur nú sprengt það húsnæði
utan af sér líka og er unnið að stækkun.
Flestir tengja atvinnubardaga
kappann Gunnar Nelson við Mjölni
en hann hefur oftast allra sigrað í opna
flokknum á Mjölni Open eða fjórum
sinnum. Gunnar er að jafna sig eftir
hnéaðgerð en hann þurfti að fresta
bardaga í UFC vegna meiðslanna. Jón
Viðar segir það hafa verið ómetan legt
fyrir íslenskar bardagalistir að eiga
fulltrúa eins og Gunnar. „Það hefur
hjálpað til við að færa íþróttina nær al
menningi og framkoma og keppnis
stíll Gunnars er einstakur. Ótrúlegur
íþróttamaður.“
Keppnisliðið á flugi
Mjölnir heldur úti keppnisliði í
blönduðum bardagalistum sem hefur
undanfarið gert góða hluti erlendis.
„Það hefur gengið ótrúlega vel og við
höfum hreinlega unnið meirihlutann
af bardögunum,“ segir Jón Viðar en
sem dæmi má nefna að Bjarki Þór
Pálsson hefur unnið sér inn keppnis
rétt í Cage Warriors 55 sem er stærsta
MMAkeppni Evrópu að UFC undan
skilinni. n
Opinn flokkur karla
1. Þráinn Kolbeinsson – Mjölnir
2. Ingþór Örn Valdimarsson – Fenrir
3. Björn Lúkas Haraldsson – Sleipnir/UMFN
Opinn flokkur kvenna
1. Sigrún Helga Lund – Mjölnir
2. Sunna Rannveig Davíðsdóttir – Mjölnir
3. Auður Ómarsdóttir – Mjölnir
+99kg flokkur karla
1. Eggert Djaffer Si Said – Mjölnir
2. Davíð Egilsson – Mjölnir
3. Guðmundur Stefán Gunnarsson – Sleipnir/UMFN
-99kg flokkur karla
1. Þráinn Kolbeinsson – Mjölnir
2. Ingþór Örn Valdimarsson – Fenrir
3. Haraldur Óli Ólafsson – Mjölnir
-88kg flokkur karla
1. Sighvatur Magnús Helgason – Mjölnir
2. Diego Björn Valencia – Mjölnir
3. Pétur Daníel Ámundason – Mjölnir
karla
1. Björn Lúkas Haraldsson – Sleipnir/UMFN
2. Björn Vilberg Jónsson – Mjölnir
3. Gunnar Þór Þórsson – Mjölnir
-66kg flokkur karla
1. Axel Kristinsson – Mjölnir
2. Bjarki Ómarsson – Mjölnir
3. Aron Elvar Zoega – Pedro Sauer
+60kg flokkur kvenna
1. Sigrún Helga Lund – Mjölnir
2. Auður Ómarsdóttir – Mjölnir
3. Sunna Wiium – Mjölnir
-60kg flokkur kvenna
1. Sunna Rannveig Davíðsdóttir – Mjölnir
2. Ingibjörg Birna Ársælsdóttir – Mjölnir
3. Ágústa Eva Erlendsdóttir – Mjölnir
Stig félaga
Mjölnir: 99 stig
Sleipnir/UMFN: 11 stig
Fenrir: 6 stig
Pedro Sauer: 1 stig
Full Circle: 0 stig
Bardagaíþróttir
í stöðugri sókn
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
n Mjölnir Open fór fram um helgina n Sterkasta glímumót landsins
Sigurvegarar Mjölnir
Open 8
Sigursæl Keppendur
Mjölnis sigruðu í öllum
flokkum nema einum
Mynd: Jón Viðar arnþórSSOn.
þráinn Kolbeinsson Er
einn besti glímumaður Íslands
og sigraði í opna flokknum.
Mynd: Jón Viðar arnþórSSOn.
Borgaralega kæddur Gunnar Nelson
keppti ekki á mótinu vegna meiðsla en hann
er hér í innhverfri íhugun ásamt þeim Bjarna
og Þráni. Mynd: Jón Viðar arnþórSSOn
Engin undankomuleið
Axel Kristinsson er gríðar-
lega teknískur glímu-
maður og límir sig hér á
andstæðing sinn.
Mynd: Jón Viðar arnþórSSOn..
allt á hvolfi Allt
er reynt til að sigra
andstæðinginn.
Mynd: Jón Viðar arn-
þórSSOn.