Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Page 21
Fólk 21Miðvikudagur 29. maí 2013
The Charlies
í Las Vegas
n Máluðu bæinn rauðan
S
telpurnar í The Charlies
voru fyrir skömmu í Las
Vegas og virtust skemmta
sér vel. Þær birtu myndir af
sér á Instagram þar sem þær sjást
meðal annars í sundlaugarpartíi,
á barnum og að spila fjárhættu-
spil. Svona eins og maður gerir
þegar maður er í Vegas. Við eina
myndina, sem er tekin þegar þær
eru að yfirgefa borgina, segir:
„Takk Vegas fyrir að eyðileggja
lifrina í mér.“
Annars hafa þær Alma,
Kamilla og Klara verið uppteknar
við að spila í Bandaríkjunum og
gáfu út myndband við lagið Hellu
Luv í fyrrahaust. Í vetur voru þær
gestir í þættinum Rockstar Health
and Fitness þar sem þær gáfu
uppáhaldshollusturéttinn sinn;
poppkorn með sætuefni og kanil.
Þ
ingkonan fyrrverandi Mar-
grét Tryggvadóttir og
Andrea Ólafsdóttir, fyrrver-
andi forseta- og þingfram-
bjóðandi, eru ósáttar við Þorbjörn
Þórðarson, fréttamann Stöðvar 2.
Ástæðan er viðtal sem Þorbjörn
tók við Sigmund Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra. Mar-
grét spyr á Facebook-síðu sinni
hvort viðtalið sé „undarlegasta
viðtal ársins?“. Margrét gefur jafn-
framt í skyn að Þorbjörn sé Ali G Ís-
lands og bætir við: „[Hann] Hefur
tekið tárvot viðtöl við útrásarvík-
inga á færibandi.“ Andr ea Ólafs-
dóttir kveður fastar að orði í
athugasemd við færslu Margrét-
ar: „Þessi fréttamaður er alger-
lega óþolandi – svo hrokafullur og
leiðinlegur … en mér fannst SDG
koma vel útúr þessu viðtali.“
Ósáttar við Þorbjörn
n Margrét og Andrea tala hreint út
Leðurgallinn
heillar Svavar
n Svali á ekki til orð yfir töffaraskap vinar síns
Þ
eir Svavar Örn og Sig-
valdi Kaldalóns, betur
þekktur sem Svali, eiga
fleira sameiginlegt en að
stýra útvarpsþætti á rásinni
K100.5. Þeir félagar eru að læra á
mótorhjól saman.
Það kom Svala mjög á óvart
hversu klár Svavar er á fákinn.
„Hann er mjög lunkinn á mótor-
hjólinu sem kom mér á óvart, en
hann hjólar ekki einu sinni á venju-
legu hjóli. Ég held að það sé þessi
gríðarlega mikli metnaður sem
Svavar hefur sem kemur honum í
gegnum þessa ökutíma með þeim
stæl sem hann er að gera. Stefnu-
ljósin vöfðust að vísu aðeins fyrir
honum í öðrum tímanum þegar
honum var hleypt út í umferðina
og reyndar var ég pínu óöruggur á
stefnuljósunum líka. Við höldumst
í hendur í gegnum þetta saman og
það er engin keppni í gangi okkar á
milli, enda hef ég ekki roð við hon-
um, eða þannig,“ segir Svali í sam-
tali við DV.
Með ADHD og lesblindu
Svavar Örn er annálaður tískugúrú
og með stílinn á kristaltæru. Hann
hefur séð um hár margra flottustu
kvenna þessa lands á síðustu árum
og jafnvel áratugum, enda hár-
greiðslumeistari með meiru. „Ég
veit ekki hvort það er bara leður-
gallinn sem er að heilla mig svona
við mótorhjólið, en ég hef engan
áhuga á að enda á „racer“ eða
neinu svoleiðis tryllitæki. Ég er að
massa þessa ökutíma og Svali er
frekar svekktur yfir því hvað mér
gengur áberandi vel miðað við aðra
sem eru í þessu námi,“ segir Svavar.
En getur maður ekki fallið á
svona prófi? „Jú mörgum sinn-
um og ég reikna fastlega með því
að falla því ég er með allar þessar
greiningar, athyglisbrest, ADHD,
lesblindu og þessa skammstöfunar-
tískusjúkdóma sem eru að tröllríða
öllu þessa dagana. Ég var eitthvað
aðeins að vesenast með stefnu-
ljósið í hringtorgi í tímanum um
daginn, en það er ekki eins og ég
hafi ekki náð því skömmu síðar,
ólíkt Svala. Það kom mér mjög á
óvart hversu vel ég er að fíla það að
keyra um á mótorhjóli. Ég plana að
kaupa mér hjól og leðurgalla næsta
vetur og gef mér góðan tíma í þetta.
Við Svali eigum eftir að vera áber-
andi á götum borgarinnar í leðri!
segir Svavar að lokum. n
Íris Björk Jónsdóttir
blaðamaður skrifar iris@dv.is
„Við höldumst í
hendur í gegnum
þetta saman.
Skemmtu sér
í Vegas Það var
greinilega gaman
hjá fyrrverandi
Nylon-stelpum.
L
eikarinn viðkunnanlegi
Rúnar Freyr Gíslason er á
leið á langþráða tónleika
með Pink Floyd í Parken.
Hann fer með vini sínum Ólafi
Teiti Guðnasyni sem hann sveik
fyrir 20 árum.
„Miðar keyptir. Tjékk. Flug
pantað og greitt. Tjékk. 20 ára mis-
tök (þegar ég fór frekar í sjúkrapróf
í stjórnmálafræði en að fara á Pink
Floyd-tónleika í Parken) verða nú
leiðrétt!“ sagði Rúnar Freyr á Face-
book-síðu sinni. „Ólafur Teitur
Guðnason verður með í för, en
hann kynnti mig fyrir PF þegar við
vorum 17 ára í Verzló. Hann fór
einn á Parken, en ekki núna!“
Leiðréttir 20 ára mistök
n Rúnar Freyr og Ólafur Teitur saman á tónleika
Flottir á mótorfák „Við
Svali eigum eftir að vera
áberandi á götum borgar-
innar í leðri!“ segir Svavar.