Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Síða 22
22 Menning 29. maí 2013 Miðvikudagur
Úrkynjun í endalausu eftirpartíi
n The Great Gatsby er sjónrænt meistaraverk en langdregin á köflum
Þ
að heldur enginn jafn flott-
ar veislur og dularfulli
milljarðamæringurinn Jay
Gatsby. Þingmenn, kvik-
myndastjörnur, rithöfundar,
bankamenn og þeir sem þyrstir í gott
eftirpartí eru gestir hans. En gest-
gjafinn heldur sig til hlés. Konfettí-
sprengjurnar, djassgeggjunin, Mar-
tíni-píramídarnir, sundlaugarnar
– allt eru þetta umbúðir utan um ein-
manaleika hans.
Þegar veislan stendur sem hæst
kemst maður ekki hjá því að hugsa
til góðærisins á Íslandi; þegar rokk-
stjörnum var flogið með þyrlum í af-
mælisveislur útrásárvíkinga, engu
til sparað í mat og víni. The Great
Gatsby gerist á öðrum áratug síð-
ustu aldar en lýsir tímabili úrkynjun-
ar (decadence) þar sem sprúttsalar
urðu milljarðamæringar, spilling réð
ríkjum og hina ríku þyrsti í endalaust
partí.
Slík tímabil enda alltaf eins – með
hruni – og í The Great Gatsby er fall
hins ósnertanlega milljarðamærings
óumflýjanlegt frá upphafi.
Sagan, eftir F. Scott Fitzgerald, er
klassísk. Hún segir frá tilraunum hins
mikla Gatsby til að heilla aftur æsku-
ástina Daisy sem rann honum úr
greipum vegna þess hve ákaft hann
leitaði peninga. Nú vonast hann til
þess að peningar geti breytt fortíðinni
og fært honum æskuástina á ný.
Sögumaðurinn er rithöfundurinn
Nick Carraway sem býr í litlu húsi við
hlið kastala Gatsby. Hann er frændi
Daisy sem er gift öðrum milljarða-
mæringi; pólóleikaranum Tom sem
fer ekki leynt með framhjáhald sitt og
virðist á yfirborðinu líta á Daisy sem
eign, frekar en eiginkonu.
Nick er mitt á milli milljarðamær-
inganna – áhorfandi að þessum míni-
gríska harmleik.
Baz Luhrmann á að baki stórfeng-
legar kvikmyndar. Póstmódernísk
nálgun hans á Rómeó og Júlíu eftir
William Shakespeare (þar sem Leon-
ardo DiCaprio varð stórstjarna á einni
nóttu) gerði þá báða að stórstjörnum.
Moulin Rouge og Australia eru frá-
bærar.
Í The Great Gatsby hefur Baz
Luhrmann alla þræði í hendi sér. Stór-
leikarinn Leonardo DiCaprio er réttur
maður á réttum stað – dularfullt bros
hans segir meira en þúsund orð; hann
sýnir stórleik sem Jay Gatsby.
Veislusenurnar eru þær flottustu
í myndinni þar sem Baz Luhrmann
blandar nútímatónlist snilldarlega
saman við djassinn og foxtrottdansa.
Þetta eru eftirpartíin sem fastagesti
Kaffibarsins dreymir um að mæta í en
verða aldrei að veruleika.
En myndin er því miður of lík einni
af veislum Jay Gatsby. Hún hefur allt –
réttu leikarana, tæknibrellurnar, tón-
listina, myndatökuna. En þegar kem-
ur að hinum mannlega harmi skautar
hún á yfirborðinu.
Boðskapur The Great Gatsby er að
þú getur ekki og átt ekki að reyna að
kaupa ástina. Ætli það sama gildi ekki
um bíómyndir. Peningar geta búið til
góðar myndir en aldrei frábærar. n
Sarúman
syngur
þungarokk
Leikarinn Christopher Lee hyggst
gefa út þungarokksplötu á 91 árs
afmæli sínu. Christopher Lee er
þekktastur fyrir leik sinn í Hringa-
dróttinssögu, þar sem hann lék
galdrakarlinn Sarúman, og einnig
fyrir túlkun sína á Drakúla greifa í
gömlu Hammer-hryllingsmynd-
unum. Hann hefur einu sinni áður
gefið út rokkplötu. Það var fyrir
þremur árum og fyrsta tilraun
hans í tónlistarbransanum. Nú
segist hann vera búinn að finna
hinn rétta þungarokkstón – þrátt
fyrir að hann láti þungarokksöskr-
ið eiga sig á gamals aldri. Richie
Faulkner, úr sveitinni Judas Priest,
aðstoðar Christopher Lee á plöt-
unni sem ber nafnið: The Omens
of Death eða Fyrirboðar dauðans.
Mæðgin í
tónleikaferð
Tónlistarkonurnar Heiða Eiríks-
dóttir og Berglind Ágústsdóttir ætla
í tónleikaferð um landið í byrjun
júní. Þær munu spila frumsamda
tónlist á ferðinni sem taka mun
eina viku. Þær hyggjast taka syni
sína, 11 og 13 ára, með en förinni er
heitið á Snæfellsnes, Hótel Djúpa-
vík á Ströndum, Akureyri, Seyðis-
fjörð og svo enda þær ferðina í
Blúskjallaranum í Neskaupstað.
Berglind er myndlistarmaður en
hefur gefið út þrjá geisladiska með
tónlist. Heiða er þekktust fyrir leik
sinn með hljómsveitinni Unun en
hún hefur einnig komið fram sem
trúbador. Ekkert mun kosta á tón-
leikana þar sem ferðin er styrkt af
tónlistarsjóðnum Kraumi.
The Great Gatsby
IMDb 7,5 RottenTomatoes 50 Metacritic 54
Leikstjóri: Baz Luhrmann
Handrit: Baz Luhrmann og Craig Pearce
Leikarar: Leonardo DiCaprio, Joel Edgerton
og Tobey Maguire
142 mínútur
Bíómynd
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Einlægni mikilvægust
Í
slenska stuttmyndin Hvalfjörður
eftir Guðmund Arnar Guðmunds-
son hlaut sérstök dómnefndar-
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í vikunni. Myndin var ein
níu stuttmynda sem kepptu um verð-
laun á hátíðinni en alls voru fleiri en
3.000 stuttmyndir sendar inn í keppn-
ina.
Kokteilboð og glamúr
Mikið er um dýrðir á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes. Sjá má Hollywood-
stjörnur á snekkjum og áhrifamikla
framleiðendur. Þó hátíðin snúist um
kvikmyndir eru kokteilboð, partí og
mikilvægir viðskiptafundir stærstur
hluti af dagskrá þeirra sem hátíðina
sækja.
„Já, þetta er mikill markaður. Allt
snýst um að hitta rétta fólkið, fara
á fundi, mynda tengsl og undirbúa
verk efni. Flestir kvikmyndagerðar-
menn ná ekki að sjá mikið af mynd-
um. En mér tókst að fara á frumsýn-
inguna á nýju Polanski-myndinni.
Hún var frábær,“ segir Guðmundur
sem var nýkominn heim úr sólinni í
Cannes.
Fyrsta stoppið á Íslandi var mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands í
Laugarnesinu en þar lagði Guð-
mundur stund á nám.
Týndur í lífinu
„Ég fékk mikinn áhuga á leiklist
þegar ég var um tvítugt. Fékk eigin-
lega áhuga á öllum listformum. Lang-
aði að skrifa og taka ljósmyndir. Gera
allt. Var pínu týndur í lífinu. Vissi ekki
hvað ég ætti að velja. Svo sá ég kvik-
mynd eftir Won kar-wai – Fallen Ang-
el. Þegar ég horfði á hana kviknaði
áhuginn á kvikmyndunum. Þetta er
formið þar sem öll listformin mætast.“
Guðmundur sótti um í myndlistina
– að hans sögn til að fá góð-
an grunn í listinni. Hann hafi
svo haldið áfram námi og lagt
stund á handritaskrif. Kynni
hans af Rúnari Rúnarssyni
kvikmyndaleikstjóra, sem
er einn af framleiðendum
myndarinnar (ásamt Guð-
mundi sjálfum og Antoni
Mána Svanssyni) höfðu mik-
il áhrif á Guðmund.
„Ég kynnist Rúnari í
Danmörku fyrir nokkrum
árum. Ég var honum innan
handar þegar hann gerði Eldfjall. Og
það var mikill skóli. Það má segja að
hann hafi verið minn mentor í kvik-
myndagerðinni. Ég lærði mikið af
því að vinna með honum. Og hann
studdi mig einnig í minni listsköpun.“
Tilraunakenndar stuttmyndir
Hvalfjörður fjallar um líf tveggja
bræðra sem búa ásamt foreldrum
sínum á litlum sveitabæ. Áhorfendur
kynnast heimi þeirra út frá sjónar-
horni yngri bróðurins og fylgja hon-
um í gegnum örlagaríkt tímabil í lífi
fjölskyldunnar.
„Þetta byrjaði sem hálfgerð
æfing. Mig langaði að prófa að skjóta
eina senu. Mig langaði að ná fram
ákveðinni tilfinningu milli þessara
tveggja bræðra. Í senunni var eldri
bróðirinn að halda þeim yngri og róa
hann niður. Senan fjallaði um hvað
ástin getur líka verið erfið,“ segir Guð-
mundur.
Atriðið kom vel út og saga þessara
bræðra heillaði Guðmund. Hann
hefur áður gert stuttmyndir, en þær
hafa verið tilraunakenndari, hálfgerð
spunaverk, útskýrir Guðmundur.
Hvalfjörður er hans stærsta verkefni
til þessa og viðtökurnar nánast ævin-
týralegar.
Þolinmæði mikilvæg
„Að búa til kvikmyndir krefst mikillar
þolinmæði. Þannig vinn ég líka. Ég
hef gaman af því að vera lengi að
búa til verkefni. Mér finnst fínt að
geta einbeitt mér að einum ákveðn-
um hlut í heilt ár. Þá þarf ég ekki að
hugsa um neitt annað á meðan. Til
að byrja með óx mér það í augun hve
n Hvalfjörður vann til verðlauna í Cannes n Lærði myndlist en heillaðist af kvikmyndum
Guðmundur Arnar
Stuttmynd hans Hval-
fjörður hlaut sérstök
dómnefndarverðlaun á
hátíðinni. MynD sIGTRyGGuR ARI
Frá Íslandi til Cannes Guðmundur með
viðurkenningu dómnefndarinnar.
Hvalfjörður
Fjallar um
líf tveggja
bræðra á
örlagaríkum
tímum.