Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2013, Qupperneq 23
Menning 23Miðvikudagur 29. maí 2013
Kristján
Davíðsson látinn
Listmálarinn Kristján Davíðsson lést á
mánudaginn, 96 ára að aldri. Kristján
er hvað þekktastur fyrir kraftmiklar
abstrakt myndir af
íslenskri náttúru.
Hann fæddist í
Reykjavík 28. júlí
1917. Hann var
við myndlistar
nám í Reykja
vík í tvo vetur, en
stundaði síðar
nám í listaskólan
um Barnes Foundation og við Penn
sylvaníuháskóla í Merion í Pennsyl
vaníu í Bandaríkjunum. Þá var hann
við listnám í París. Kristján hefur ver
ið einn virtasti listamaður Íslendinga
um áratugaskeið. Kristján var einn af
þeim sem stóðu fyrir Septembersýn
ingunum á árunum 1947–1952 og tók
einnig þátt í Feneyjatvíæringnum á
níunda áratugnum.
Orgelsumar í Hallgrímskirkju Alþjóðlegt Orgelsumar
í Hallgrímskirkju verður haldið 21 sumarið í röð í Hallgrímskirkju nú í sumar. Klais-orgelið í
kirkjunni hefur verið hreinsað og endurnýjað að hluta, til að standa undir þeim væntingum
sem til þess eru gerðar í tengslum við hátíðina. Hörður Áskelsson kantori segir hátíðina vaxa
með hverju árinu. „Þetta er stærsta hátíðin til þessa. Aldrei verið fleiri tónleikar og við hlökk-
um til sumarsins,“ segir hann. Hann segir hátíðina heilla bæði Reykvíkinga og ferðamenn.
Orgeltónar munu berast frá Hallgrímskirkju í sumar og mun Hörður leika á Klais-orgelið á
fyrstu tónleikum sumarsins, laugardaginn 1. júní. Mynd sigtryggur ari
Konur í karlaheimi –
vantar bara punginn
F
yrsta glæpasaga Sólveigar Páls
dóttur kom út í fyrravor og
fékk hjá mér lofsamlega dóma.
Nú er komin út, rétt ári seinna,
önnur glæpasaga hennar,
Hinir réttlátu, og því miður er ég ekki
nærri eins hrifin.
Heiti bókarinnar vísar í öfgamenn
í náttúruvernd, sem leiðast á braut
glæpa í viðleitni sinni til að berj
ast gegn hvalveiðum. Mikið er það
ósannfærandi útgangspunktur. Frum
legur og skondinn en of léttgeggjaður
til þess að hægt sé að ná nokkrum
botni í illmenni sögunnar.
Í þessari sögu er rannsóknarlög
reglukonan Særós í aðalhlutverki. Í
aukahlutverki er félagi hennar, Guð
geir – stuðningspersóna sem dregur
fram hörku og ósérhlífni Særósar.
Hér er gengist upp í klisjunni um
einrænu konuna sem skortir tilfinn
ingaþroska eða glímir við geðraskanir
sem annars væru hamlandi en duga
langt í heimi karla. Þarf kona að vera
með persónuleikaröskun til þess að
vera áhugaverð? Það er allt útlit fyrir
að það sé nýjasta stefið í heimi glæpa
sagna.
Saga Noren í Brúnni og Sarah
Lund í sjónvarpsþáttunum Glæpnum
eru nærtæk dæmi um konur af þessu
tagi. Þær eru reyndar mjög áhuga
verðar sögupersónur og þar tekst höf
undum vel upp. En Særós er af öðru
tagi. Hana skortir frekari dýpt og full
komnunaráráttan ætti að vera til
skrauts fremur en að verða aðalum
fjöllunarefni bókarinnar eins og nán
ast er hægt að segja um
Hina réttlátu.
Söguframvindan
er á þá leið að kunn
ur athafnamaður á
miðjum aldri finnst
myrtur á golfvelli og á
sama tíma láta hval
friðunarsinnar til
sín taka í Reykjavík.
Sprenging verður við
höfnina í hvalveiði
skipi og stuttu
seinna í hvalasafni á
Húsavík. Sá myrti átti
einn veitingastaða
sem hvalfriðunar
sinnar sátu um.
Rannsóknarlög
reglumennirnir Guðgeir, Særós og
Andrés rannsaka málið og inn í það
flækist hálfsystir Særósar. Söguflétt
an er eins og áður segir fremur fyrir
sjáanleg en samt sem
áður er hún bæði lífleg
og frumleg svo lesendur verða líkast
til ekki sviknir.
Sterkustu sögupersónur bókar
innar eru eldri konur sem tengjast
þeim myrta. Þar fer höfundur á flug
og persónusköpunin er virkilega eftir
tektarverð og vönduð. Því má hrósa.
Meira af litríkum eldri konum takk.
Kannski þær geti orðið næsta nýja stef
glæpasagna? n
Bókmenntir
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Hinir réttlátu
Höfundur: Sólveig Pálsdóttir
Útgefandi: Forlagið
Lífleg
og litrík
Önnur bók
Sólveigar
er síðri en
sú fyrri en
þrátt fyrir
allt lífleg og
lesandinn
verður ekki
svikinn.
Einlægni mikilvægust
langan tíma tekur að framleiða
kvikmyndir en nú finnst mér það
gott hve ferlið er langt. Maður stíg
ur bara inn í annan heim og leyfir
sér að vera þar.“
Hvað einkennir góða kvik-
mynd?
„Það sama og gerir alla list góða
– hvort sem það er myndlist eða
tónlist. Listamaðurinn verður að
vera einlægur gagnvart því sem
hann skapar. Ætli það ekki bara.
Einlægni og sannleikurinn,“ segir
kvikmyndagerðarmaðurinn Guð
mundur Arnar, óvænt stjarna á
einni stærstu kvikmyndahátíð
heims. n simonb@dv.is
Þetta gerðist
Kvikmyndin Blue is the Warmest Color
hlaut Gullpálmann á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes en myndin er vægast
sagt djörf og segir frá ástarsambandi
tveggja kvenna sem Lea Seydoux og
Adele Exarchoppulos leika.
Meðal þeirra sem sátu í dómnefndinni
þetta árið voru leikstjórinn Steven Spi-
elberg og Nicole Kidman og rúmenski
leikstjórinn Christian Mungu.
Bruce Dern var valinn besti leikarinn
fyrir hlutverk sitt í myndinni Nebraska
og var franska leikkonan Berenice Bejo
valin besta leikkonan fyrir hlutverk sitt
í myndinni The Past.
n Hvalfjörður vann til verðlauna í Cannes n Lærði myndlist en heillaðist af kvikmyndum