Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Qupperneq 6
Helgarblað 21.–24. febrúar 20146 Fréttir
L
ýður Guðmundsson, fyrrver-
andi aðaleigandi Exista, situr
á eignum sem verðmetnar eru
upp á rúmlega einn milljarð
króna inni í einu eignarhaldsfé-
lagi sínu, GT1 ehf. Inni í félaginu eru
verðmætar fasteignir, meðal annars
rúmlega 300 fermetra einbýlishús við
Starhaga í vesturbæ Reykjavíkur og
sumarhús í Fljótshlíðinni. Þetta kemur
fram í ársreikningi eignarhaldsfélags-
ins fyrir árið 2012 sem stjórn félagsins
samþykkti í september síðastliðinn.
Félagið er í eigu bresks sjóðs sem heit-
ir GT One Trust.
Lýður er sem kunnugt er búsettur í
London en á verulegar eignir á Íslandi
sem meðal annars eru inni í þessu
eignarhaldsfélagi. Hann hefur verið til
rannsóknar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara vegna ýmissa mála, og verið
ákærður tvisvar, annars vegar fyrir
hlutafjáraukningu hjá Exista í lok árs
2008 og hins vegar vegna meintra um-
boðssvika í starfsemi Vátryggingafé-
lags Íslands.
Tapaði tólf milljónum
Eftir hrunið 2008 færði Lýður eignirn-
ar sem í dag eru í GT1 ehf. – einbýlis-
húsið, sumarbústaðinn og tvær íbúðir
– inn í eignarhaldsfélagið. Yfirfærslan
á eignunum var skilgreind sem hluta-
fjáraukning upp á tæplega 800 millj-
ónir króna.
Félagið tapaði rúmlega tólf millj-
ónum króna árið 2013 samkvæmt árs-
reikningnum en ekki er að sjá að önn-
ur starfsemi sé inni í því en eignarhald
á viðkomandi fasteignum.
Félagið fjármagnar sig meðal
annars með bankalánum en allar eign-
ir þess eru veðsettar MP banka. Lýður
má ekki ráðstafa eignunum með nein-
um hætti, meðal annars veðsetja hjá
öðru fjármálafyrirtæki nema með leyfi
MP banka. Í hluthafahópi MP banka
eru sömu aðilar og keyptu Kaupþing
í Lúxem borg, Banque Havilland, eft-
ir hrunið 2008: Rowlands-fjölskyldan
breska. Sú staðreynd að MP banki á
veð í eignunum þýðir að Lýður er í við-
skiptum við bankann sem hefur veitt
honum eða félögum hans lán.
Hinn bróðirinn líka
Bróðir Lýðs, Ágúst Guðmundsson,
færði fasteignir í sinni eigu líka inn
í eignarhaldsfélag eftir hrunið 2008.
Það félag heitir GT2 ehf. og er líka í
eigu bresks sjóðs. Ágúst er búsettur
í Bretlandi líkt og Lýður. Það félag á
meðal annars sumar hús á Þingvöll-
um, íbúð í Kópavogi, sumarbústaða-
land og tvær vöruskemmur í Örfirisey.
Félag Ágústs tapaði hins vegar að-
eins rétt rúmlega 4,5 milljónum árum
2012. Félagið á í dag eignir upp á tæp-
lega 760 milljónir króna.
Rætt var um það eftir hrunið 2008,
í tengslum við fréttaflutning af yfir-
færslu þeirra bræðra á þessum eign-
um í eignarhaldsfélög, að hugsanlega
kynnu einhverjir sem töldu sig eiga
kröfur á hendur þeim bræðrum reyna
að sækja á þessar eignir. Þetta hefur
hins vegar ekki gerst. Þeir munu því
halda þessum eignum sínum þar sem
kröfuhafar geta ekki lengur reynt að
sækja á slíkar eignir.
Bræðurnir eru í dag meðal
stærstu hluthafa matvælafyrirtækis-
ins Bakkavarar, sem þeir eru kenndir
við, en þeir hafa keypt hlutabréf í fyrir-
tækinu aftur af kröfuhöfum þess fyr-
ir marga milljarða króna eftir hrunið
2008. Þeir misstu fyrirtækið í kjölfar
hrunsins en hafa unnið að því síð-
astliðin ár að komast aftur yfir það og
hafa meðal annars flutt fjármuni til
landsins í gegnum fjárfestingarleið
Seðlabanka Íslands til að kaupa aftur
hlutabréfin í félaginu. n
Existabróðir tapaði
en situr á milljarði
n Komu fasteignum sínum í skjól eftir hrunið n Eignir veðsettar MP banka
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Eignir upp á milljarð
Eignarhaldsfélag Lýðs
Guðmundssonar á eignir upp
á rúman milljarð króna.
B
irkir Thór Högnason, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Leik-
félags Vestmannaeyja, var ein
helsta „driffjöður“ í forvarn-
arhópnum Bleika fílnum
samkvæmt frétt Vísis frá árinu 2012.
Í annarri frétt frá janúar á þessu ári
er Birkir sagður vera verkefnisstjóri
átaks gegn einelti í Vestmannaeyjum.
Hann sagði nýverið af sér eftir að
hafa sent Snapchat-mynd af getnað-
arlim sínum til stúlku undir lögaldri.
Bleiki fíllinn, sem er meðal annars á
vegum ÍBV, hefur beitt sér gegn nauð-
gunum og kynferðisbrotum á Þjóð-
hátíð í Vestmannaeyjum. Í frétt Vísis
um forvarnarstarfið var eftirfarandi
haft eftir Birki: „… þó ofbeldið sé
auðvitað á ábyrgð ofbeldismannanna
er vandamálið samfélagslegt mein og
það er undir okkur öllum komið að
uppræta það með því að tala um það
og gefa skýr skilaboð.“
Dóra Björg Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, segir að eftir að
upp komst um myndsendinguna hafi
öll tengsl við Birki Thór verið rofin.
„Birkir hefur eiginlega ekkert starfað
með okkur nýlega. Hann var með á
fyrstu hátíðinni 2012 en hann var lítið
sem ekki neitt með okkur í fyrra,“ segir
hún í samtali við DV. „Það er búið að
láta hann vita af því að eftir að þetta
kom upp þá sé hans krafta ekki óskað
í framtíðinni í þessu verkefni. Það er
búið að rjúfa öll tengsl þarna á milli,“
greinir Dóra Björg frá.
Auk þessa er Birkir sagður verk-
efnisstjóri í átaki Eyjamanna gegn
einelti. Helga Tryggvadóttir, náms-
ráðgjafi grunnskóla Vestmannaeyja,
segir í samtali við DV að það verk-
efni sé alveg ótengt grunnskólanum.
„Þetta er algjörlega sjálfstætt og sjálf-
sprottið verkefni þeirra,“ segir Helga í
samtali við DV. Óvíst er því um fram-
tíð þess verkefnis. n
hjalmar@dv.is
Var „driffjöður“ Bleika fílsins
„Það er búið að rjúfa öll tengsl þarna á milli,“ segir framkvæmdastjóri ÍBV
Öll tengsl rofin Framkvæmdastjóri ÍBV
segir að ekki verði óskað eftir kröftum Birkis
Thórs í framtíðinni. DV greindi frá því á
dögunum að hann hafi sent dónalega mynd
til unglingsstúlku meðan hann var fram-
kvæmdastjóri Leikfélags Vestmannaeyja.
Báðir bræðurnir Ágúst Guðmundsson,
bróðir Lýðs, færði einnig fasteignir inn í
eignarhaldsfélag eftir hrunið 2008.
Vanrækti
ekki hross
Eftirlitsmaður á sviði dýrahalds hjá
Matvælastofnuninni, sem hvarf
tímabundið frá störfum vegna
ásakana um að hann sinnti ekki
skyldum sínum í starfi, hefur ekki
gerst sekur um vanrækslu eða illa
meðferð hrossa. Starfsmaðurinn
kom til starfa að nýju á miðviku-
daginn. Þrír óháðir sérfræðingar
komust að þessari niðurstöðu eftir
að hafa rannsakað málið.
Umræddur starfsmaður var
ráðinn til starfa um áramótin.
Hann uppfyllti allar kröfur sem
gerðar voru til starfsins að sögn
Matvælastofnunar og hafði í
rúman áratug sinnt sambærilegu
starfi fyrir sveitarfélög í Árnes- og
Rangárvallasýslum.
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Fyrir bílinn
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
745
Deka Tjöru- og olíu-
hreinsir 4 lítrar
1.990
Bíla & gluggaþvotta-
kústur, gegn um rennandi
116>180cm, hraðtengi
með lokun
2.490
1400W
360 min/lit/klst
Þolir 50C heitt vatn
5 metra barki
Sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla
110 bar
14.990
2,3 milljarðar í
bankaskatt
Íslandsbanki hagnaðist um 23,1
milljarð króna árið 2013 saman-
borið við 23,4 milljarða króna árið
2012. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu um afkomu Íslandsbanka.
Þar kemur fram að arðsemi eigin
fjár eftir skatta hafi verið 14,7 pró-
sent á árinu samanborið við 17,2
prósent árið 2012. Skýrist lækkun-
in milli ára fyrst og fremst af hækk-
un eigin fjár sem nemur 14,4 pró-
sentum milli ára.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, segir í tilkynn-
ingunni að árið 2013 hafi verið gott
ár hjá Íslandsbanka. Auknar álög-
ur á bankann hafi dregið úr hagn-
aði og var greiddur bankaskattur –
2,3 milljarðar á árinu. Samtals hafi
bankinn greitt 12,4 milljarða króna
í skatta og gjöld til hins opinbera
ásamt eftirlitsgjöldum.