Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 21.–24. febrúar 201418 Fréttir
H
ér á landi eru framkvæmdar
tæplega 1.000, fóstur
eyðingar á ári. Landlæknis
embættið gaf út tölur fyrir
árið 2012 í maímánuði á
síðasta ári. Það er svipaður fjöldi og
undanfarin ár. Nokkuð færri aðgerð
ir voru hins vegar framkvæmdar á ár
unum 2004–2007 eða um 900 fóstur
eyðingar ár hvert. Hér á landi ríkir
kvenfrelsi þegar kemur að ákvörðun
um um fóstureyðingar og getnaðar
varnir en því er ekki að til að dreifa
í öllum heimshlutum. Amnesty
International tekur ekki afstöðu með
eða á móti fóstureyðingum nema
þegar þungun er afleiðing nauðg
unar eða sifjaspella eða þegar líf
og/eða heilsa stúlku eða konu er í
hættu. En næstu tvö árin mun Am
nesty International taka fyrir mál í
fimm löndum og landsvæðum þar
sem brotið er á kynlífs og frjósemis
réttindum fólks, í Nepal, El Salvador,
Búrkína Fasó, Maghredsvæðinu í
NorðurAfríku og á Írlandi. Þá munu
félagar þrýsta á ríki Sameinuðu þjóð
anna og alþjóðlegar stofnanir um
að að vernda, virða og uppfylla kyn
lífsog frjósemisréttindi. Hugtakið
kynlífs og frjósemisréttindi vísar
til margs konar mannréttinda sem
skipta máli í öllu sem við kemur kyn
hneigð, kynferði og frjósemi. Kyn
lífs og frjósemisréttindi snúast jafn
framt um frelsi einstaklingsins til
ákvarðanatöku um eigin líkama og
líf, frelsi frá mismunun, þvingun og
valdbeitingu, og réttinum til að njóta
bestu fáanlegu kynlífsog frjósemis
heilsu.
Íslendingar njóta frelsis
„Íslendingar búa að því láni að geta
valið hvern þeir elska og hvern
ig þeir tjá þá ást, og hvort og hvenær
þeir vilja eignast börn,“ segir Bryn
dís Bjarnadóttir, herferðarstjóri Ís
landsdeildar Amnesty International.
„Þessar ákvarðanir tökum við frjálst,
án afskipta stjórnvalda, foreldra eða
samfélagsins. Frelsi sem þetta er okk
ur nauðsynlegt til að geta lifað með
reisn og notið líkamlegrar, andlegrar,
tilfinningalegrar og félagslegrar vel
ferðar. Víða um heim eru þó margir
sviptir þessu frelsi eða sæta refsingu
fyrir að framfylgja því,“ segir Bryndís
og tekur nokkur dæmi um nauðung
kvenna.
Fóstureyðing ólögleg á Írlandi
„Í Búrkína Fasó er konum ekki gef
in getnaðarvörn nema með sam
þykki maka eða foreldra. Í Marokkó,
Alsír og Túnis neyðast fórnarlömb
nauðg ana oft til að giftast kvalara sín
um því lögin í umræddum löndum
kveða á um að gerandi kynferðisbrota
geti sloppið undan refsingu með því
að giftast þolandanum. Á Írlandi er
fóstur eyðing ólögleg þegar um nauð
gun eða sifjaspell ræðir og þá og því
aðeins að„raunveruleg og umtalsverð
hætta“ er á að líf konu eða stúlku sé í
húfi. Ekki er þó skýrt tekið fram í lög
unum hvernig túlka beri „raunveru
lega og umtalsverða hættu“ í þessu
samhengi og skapar það oft mikinn
vanda fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Í El Salvador er ástandið enn verra þar
sem fortakslaust bann er lagt við fóst
ureyðingum í öllum tilvikum. Beatriz
er 22 ára gömul kona frá El Salvador
sem glímdi við mjög áhættusama
meðgöngu sem hefði getað leitt til
dauða ef hún gengi með barnið alla
meðgönguna. Henni var meinað um
fóstureyðingu þrátt fyrir að hafa biðl
að til heilbrigðisstarfsfólks í meira
en mánuð. Amnesty félagar um
allan heim þrýstu á stjórnvöld í El
Salvador að bjarga lífi Beatriz og að
lokum var leyfi gefið fyrir snemm
búnum keisaraskurði sem bjargaði
lífi hennar.“ Bryndís nefnir að allt
séu þetta brot á alþjóðlega viður
kenndum mannréttindum sem kall
ast kynlífs og frjósemisréttindi og
milljónir sæta á degi hverjum. Þess
vegna ætli Amnesty International að
ýta herferðinni, Líkami minn, réttindi
mín, úr vör sem beinir sjónum að
kynlífs og frjósemisréttindum okkar.
Mismunun er meginorsökin
Amnesty hefur bent á að skýrustu
brotin á kynlífs og frjósemisréttind
um séu þegar ríki beita valdi sínu til
að refsa fyrir hegðun sem það skil
greinir sem ósiðlega eða óæskilega
samanber þegar ríki setur fólk á bak
við lás og slá fyrir það eitt að elska
einstakling af sama kyni, eins og í
Úganda.
Í Íran, SádiArabíu og Súdan er
einstaklingum sem teljast hafa stund
að framhjáhald refsað en í þessum
löndum liggur dauðarefsing við slíku
hjúskaparbroti. Einnig sæta fórnar
lömb mansals refsingu í sumum
ríkjum. Í hverju þessara tilvika mis
notar ríkið vald sitt. Það tekur til sín
vald sem ætti að heyra undir sjálfs
ákvörðunarrétt einstaklingsins. Í
mörgum tilvikum réttlæta ríki þessar
ákvarðanir með því að vísa í að
þau séu að verja almannahag eða
standa vörð um siðgæði samfélags
ins. Gjarnan er skírskotað í venjur,
hefðir og trúarbrögð til að réttlæta
löggjöf sem refsar fólki fyrir að fram
fylgja kynlífs og frjósemisréttindum
sínum en að baki slíkri refsingu býr
mismunun og fordómar.
„Takmarkanir er varða kynlífs og
frjósemisréttindi koma hvað verst
niður á konum og stúlkum en einnig
þeim sem á einhvern hátt eru taldir
„öðruvísi“ og falla ekki undir viðtek
in viðmið,“ greinir Bryndís frá og segir
rótgrónar hugmyndir um viðeigandi
hlutverk kvenna oft fela í sér kúgun af
hálfu karlmanna, trúfélaga og feðra
veldisins. n
Íslendingar
njóta kynfrelsis
Amnesty International sker upp herör gegn brotum á kyn- og frjósemisréttindum
Allir eiga
rétt á að:
n Taka ákvarðanir sem varða eigin
heilsu, líkama, kynlíf, og sjálfsmynd
n Ákveða hvort og hvenær þeir eignast
börn
n Ákveða hvort og hvenær þeir giftast
n Biðja um og fá upplýsingar um heil-
brigðisþjónustu
n Fá aðgang að fjölskylduráðgjöf,
getnaðarvörnum, öruggri og löglegri
fóstureyðingu þegar þungun er
afleiðing nauðgunar eða sifjaspella eða
þegar líf og/eða heilsa stúlku eða konu
er í hættu, aðgang að mæðravernd og
annarri heilbrigðisþjónustu
n Lifa frjáls undan nauðgun eða
öðru ofbeldi, þar með talið þvingaðri
þungun, umskurði á kynfærum, þving-
aðri fóstureyðingu, ófrjósemisaðgerð
eða þvinguðu hjónabandi
n Þriðja hver kona verður fyrir ofbeldi á
lífsleiðinni kyns síns vegna
n Um tvær milljónir kvenna sæta
umskurði á hverju ári
n Í Níkaragva er meirihluti stúlkna sem
verða ófrískar í kjölfar nauðgunar og
sifjaspella á aldrinum 10 til 14 ára.
n Ungt fólk á aldrinum 15 til 24 ára nær
yfir 41% allra nýrra eyðnismitaðra
n Á hverjum degi eru 39 þúsund stúlkur
á barnsaldri neyddar í hjónaband
n Á hverju ári deyja 358.000 konur og
stúlkur vegna vandkvæða á meðgöngu
eða við fæðingu
n Árið 2008 voru framkvæmdar um
þrjár milljónir lífshættulegar fóstur-
eyðingar á stúlkum á aldrinum 15 til 19
ára í þróunarríkjunum
n Ef ekkert verður að gert er áætlað að
142 milljónir stúlkubarna verði neyddar
í hjónaband á næstu tíu árum
Hin þrettán ára gamla Rosemary býr með
móður sinni, bróður, systur og ömmu. Þegar
hún var 12 ára fluttist frændi hennar til
þeirra tímabundið í nokkra mánuði. Á með-
an móðir Rosemary fór til vinnu nauðgaði
frændi hennar henni ítrekað vikum saman.
Móðir Rosemary, Adriana, fylltist hryllingi
og hræðslu þegar hún komst að hörm-
ungunum og þeirri staðreynd að dóttir
hennar var með barni.
„Ég finn til mikils sársauka að dóttir mín
hafi þurft að ganga í gegnum þessa erfið-
leika. Ég gat ekki sætt mig við að hún þyrfti
ofan á allt að fæða barn, svo ekki sé talað
um áhættuna sem það felur í sér heilsu
hennar vegna.
Rosemary sjálf var líka afskaplega hrædd.
Hún sagðist finna fyrir einhverju hreyfast
inni í sér og vildi stöðva meðgönguna. Við
þurftum að bregða á það ráð að fara með
hana í ólöglega fóstureyðingu. Ég fékk góða
aðstoð og aðgerðin var framkvæmd við
góðar og hreinlátar aðstæður. En við óttu-
mst að verða sóttar til saka fyrir athæfið.
Ég myndi vilja biðja um meiri stuðning til
handa börnum og konum sem hafa verið
beittar kynferðisofbeldi. Stjórnvöld verða
að leyfa fóstureyðingar. Meðganga eyði-
leggur möguleika lítillar stúlku fyrir lífið og
áhættan er of mikil.“
Saga Rosemary
Varð ófrísk 12 ára og fór í fóstureyðingu
Rosemary Rosemary var 12 ára þegar
henni var nauðgað. Hún og aðrir sem
aðstoðuðu hana við að fara í fóstur-
eyðingu eiga yfir höfði sér ákæru.
„Á Írlandi er fóst-
ureyðing ólögleg
þegar um nauðgun eða
sifjaspell ræðir, og þá og
því aðeins leyfileg að líf
konu eða stúlku sé
í hættu.
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Konur og frelsi „Íslenskrar konur
mega velja hverja þær elska og
hvort og hvenær þær vilja eignast
börn,“ segir Bryndís Bjarnadóttir,
herferðarstjóri Íslandsdeildar Am-
nesty International. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Barnabrúðir Ef ekkert
verður að gert er áætlað að
142 milljónir stúlkubarna verði
neyddar í hjónaband á næstu
tíu árum. Mynd StephAnie SinclAiR