Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 21.–24. febrúar 201462 Fólk
„Loftur var einstakur fyrir vinsemd“
Gísli málaði mynd af Lofti að honum látnum, sem verður boðin upp til styrktar útigangsfólki
É
g sat heima við og var að mála
minningar frá Vík í Mýrdal
þegar síminn hringdi. Mér brá
við fréttirnar af andláti Lofts og
sneri mér að nýju verkefni og byrj-
aði að mála Loft eftir minni,“ segir
Gísli Holgersson sem málaði mynd
af Lofti Gunnarssyni sem lést fyrir
aldur fram 20. janúar 2012. Loftur
var útigangsmaður og eftir andlát
hans var stofnaður minningarsjóður
í nafni hans. Sjóðurinn hefur það að
markmiði að berjast fyrir lögbundn-
um mannréttindum útigangsfólks.
Gísli hefur fært minningarsjóðn-
um myndina að gjöf og stefnt er
að því að bjóða hana upp og láta
ágóðann renna til minningarsjóðs-
ins. Þann tíma sem minningar-
sjóðurinn hefur verið starfandi
hafa, meðal annars, verið keypt ný
rúm fyrir Gistiskýlið og Konukot en
hvort tveggja er næturathvarf fyrir
heimilis laust fólk sem flest á við
vímuefnavanda að stríða.
Gísli er úr Garðabæ en þaðan
var Loftur líka. Leiðir þeirra lágu
saman á unglingsárum Lofts en þá
rak Gísli GH heildverslun á Garða-
torgi. „Þeir sem ekki muna Loft, þá
var hann hár vexti, hafði afar fal-
lega framkomu og var með himin-
blá stór augu sem nánast var ekki
hægt að víkja sér undan. Loftur
kom inn og spurði mig hvort ég ætti
góða sápu og blöðkur til að strjúka
af glerinu. Ég átti það til og Loftur
lauk verkinu af einlægni og sóma.
Stundum kom það fyrir að aðr-
ir búðareigendur báðu einnig um
hreinsun á sama tíma fyrir sann-
gjarnt verð,“ segir Gísli.
Hann segir Loft hafa verið vel gef-
inn og fannst mikið til hans koma.
„Loftur var einstakur fyrir vinsemd,
góðmennsku og fallega framkomu.
Ég trúi því að Loftur hafi oft kallað til
æðri staða um hjálp fyrir sjálfan sig
og aðra sem voru undir í lífinu.
Hægt er að nálgast frekari upp-
lýsingar á heimasíðu minningar-
sjóðsins: lofturgunnarsson.com. n
Málaði Loft Hér eru móðir
Lofts og Gísli með myndina
sem hann málaði af Lofti.
Mynd Sigtryggur Ari
Ólafur Ragnar
les Harry Potter
Dorrit klifraði í köðlum
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands, er ýmislegt til lista lagt.
Nýkominn frá Sochi hélt hann af
stað til Skaftfells til að afhenda
Eyrarrósina og var þar dómari í
kökukeppni sem haldin var í til-
efni sýningarloka á 15 ára afmæl-
issýningu menningarmiðstöðv-
arinnar um helgina. Forsetinn
lét ekki aftakaveður á sig fá en
Fjarðarheiðin var nánast ófær
og barðist hann yfir heiðina til
að komast á áfangastað. Ólafur
Ragnar skar tertur af miklum móð
og var hróðugur af listfengi sínu.
Frá þessu segir í Austurglugg-
anum. „Það er sjaldan sem ég
fæ svona skemmtilegt verkefni,“
sagði Ólafur en dæmt var eftir út-
liti, bragði, þéttleika og hollustu.
Fleira óvænt kom í ljós um
forsetann í heimsókn til grunn-
skólans, þar sem forsetinn vildi
hvetja unga nemendur til lestrar
og sagði frá því að hann hefði les-
ið fyrstu Harry Potter-bókina og
hrifist af.
Þá brá forsetafrúin á leik og
skellti sér í kaðlana í Íþróttaskóla
Hugins við mikla hrifningu nem-
enda.
Hélt upp á
afmælið í
Los Angeles
Svala Björgvinsdóttir er sæl og
glöð á heimili sínu í Los Angeles
þessa dagana. Hún undirbýr
næsta tónlistarmyndband Steed
Lord við lagið Curtain Call sem
kemur út eftir nokkrar vikur. Fyrst
verður gefið út myndband með
lifandi flutningi og seinna verður
gefið út annað myndband þar
sem mikil listræn vinna er lögð
til grundvallar. Svala hélt einnig
nýverið upp á afmælið sitt og var
margt góðra gesta. María Birta og
stelpurnar í Charlies voru á með-
al gesta sem glöddu hana með
nærveru sinni.
Sunneva Sverrisdóttir vinnur að nýjum sjónvarpsþætti
Þ
etta er ofboðslega gaman og
á meðan þetta er skemmti-
legt þá held ég þessu áfram,“
segir Sunneva Sverrisdóttir,
dagskrárgerðarkona á Popp-
tíví. Hún vinnur nú að gerð þáttanna
Prófíls, sem hefja göngu sína þann
27. febrúar næstkomandi, en þrátt
fyrir að vera aðeins 22 ára er þetta
önnur sjónvarpssería Sunnevu.
Mikið púsluspil
Sunneva hefur í nógu að snúast
þessa dagana en samhliða dagskrár-
gerðinni nemur hún viðskiptafræði
við Háskólann í Reykjavík og um
helgar situr hún undirbúningsnám-
skeið hjá Icelandair þar sem hún
mun starfa sem flugfreyja í sumar.
„Það er frekar mikið púsluspil
að ná þessu öllu og fyrir vikið hefur
maður því miður minni tíma fyrir
vinina og djammið,“ segir Sunneva.
„En þetta tekst og gengur alveg
upp ef maður er vel skipulagður. Svo
er þetta líka bara spurning um að
forgangsraða; gera þessa hluti núna
og svo er kannski hægt að hafa tíma
til að fara til útlanda eða skella sér á
djammið einhvern tímann seinna.
En núna gerir maður voða lítið ann-
að en að sofa, borða og vinna.“
Leyniskyttur á þakinu
Sunneva bjó í tæpt ár í Argentínu, en
þangað flutti hún ásamt fjölskyldu
sinni.
„Foreldrar mínir ákváðu að taka
sér frí frá lífinu á Íslandi, flytja út og
prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt.
Þar var ég í alþjóðlegum mennta-
skóla sem var mjög áhugavert því
þetta var einkaskóli og þar kynntist
ég allt öðrum heimi en ég hafði
þekkt hérna heima. Þetta voru allt
börn sendiherra og stjórnmála-
manna þannig að það var rosa mikið
um einkabílstjóra, „penthouse“-
íbúðir og VIP-kampavínsherbergi. Í
skólanum var tennisvöllur og sund-
laug en skólans var gætt af vörðum
með hríðskotabyssur og á opnum
skólaskemmtunum voru síðan alltaf
leyniskyttur á þakinu. Það var ótrú-
lega áhugavert að kynnast þessu,
enda allt öðruvísi en lífið sem maður
þekkti á íslandi,“ segir hún.
„Það var alveg frábært að búa í
Buenos Aires. Maturinn var náttúr-
lega sjúklega góður, þarna fær mað-
ur besta nautakjöt í heimi, og borgin
er líka svo skemmtileg. Þar var alltaf
nóg að gera en auðvitað saknaði ég
Íslands alveg frekar mikið.“
Kenndi á snjóbretti
Þar sem að Sunneva var í alþjóðleg-
um menntaskóla útskrifaðist hún ári
fyrr en jafnaldrar hennar heima á Ís-
landi. Hún hafði því ár til að gera eitt-
hvað skemmtilegt áður en leiðin lægi
í háskóla og skellti sér því í hálft ár til
Austurríkis.
„Snjóbretti eru mitt helsta áhuga-
mál og ástríða. Mér finnst fátt
skemmtilegra en að fara á snjóbretti
þannig að ég ákvað eftir mennta-
skóla að gera það sem
mér þótti skemmtilegast
að atvinnu minni. Fyrst
fór ég í tungumálaskóla í
Vínarborg og þaðan upp
í Alpana þar sem ég vann
við að kenna á snjóbretti
sem var alveg fáránlega
skemmtilegt,“ segir Sunn-
eva.
Vantaði eitthvað að gera
Þegar heim kom vantaði Sunnevu
eitthvað skemmtilegt að gera áður
en háskólinn tæki við.
„Þá datt mér í hug að það gæti
verið skemmtilegt að vinna í sjón-
varpi og skrifaði handrit að þáttun-
um Tveir + sex, sem ég gerði svo í
samstarfi við Stórveldið,“ segir hún.
„Fyrir skömmu var síðan haft
samband við mig af 365 og ég beðin
um að koma og vinna hjá þeim. Þeir
gáfu mér svigrúm til þess að gera þátt
sem ég hafði mikinn áhuga á og allt í
einu var ég byrjuð á glænýjum sjón-
varpsþætti.“
En hvernig sér Sunneva framtíð-
ina fyrir sér?
„Ég veit það ekki. Ef einhver hefði
spurt mig fyrir fimm árum hvar ég
yrði í dag þá hefði ég aldrei sagt að
ég yrði að gera hlutina sem ég er að
gera núna. Þannig að ég hreinlega
þori ekki að segja til um það. En ég
vil halda áfram að gera verkefni sem
mér finnst skemmtileg og áhugaverð
og vonandi vinna með fólki, hvort
sem að það verður í sjónvarpi eða
einhverju öðru.“ n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Með snjóbrettadellu
Snjóbretti eru eitt helsta
áhugamál Sunnevu.
Mynd SunneVA SVerriSdóttir
nóg að gera Sunneva
vinnur að sínum öðrum
sjónvarpsþætti, þrátt
fyrir að vera aðeins 22
ára. Mynd Sigtryggur Ari
„Mér
finnst fátt
skemmtilegra en
að fara á snjóbretti
Frúin bakaði
55 kökur
Hallgrímur Helgason fagnaði 55
ára afmæli á dögunum. Kærasta
hans, Þorgerður Agla, tók sig til
og bakaði 55 bollakökur í tilefni
dagsins.
„Sem betur fer er velkvæni
ekki bannað á Íslandi,“ sagði
Hallgrímur um framtakið, afar
sæll.
fyrir djammið
Enginn tími