Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Qupperneq 20
20 Fréttir Á skrifendur Netflix, Skjásins og Stöðvar 2 eru nú í fyrsta skipti komnir yfir 20 þúsund talsins á Íslandi á sérhverjum þessara þriggja miðla. Þessi staðreynd er dæmi um harðnandi samkeppni á sjónvarpsmarkaði á Íslandi þar sem tækninýjungar eins og Netflix munu að hafa veruleg áhrif á hefðbundnar sjónvarpsstöðvar. Sá tími er liðinn að sjónvarpsstöð eins og Stöð 2 geti gengið að áskrifendum sínum vísum líkt og þegar best lét hjá stöðinni og um 45 þúsund Íslendingar keyptu að- gang að stöðinni. Stöð 2 er nú sögð vera með á bilinu 23 til 27 þúsund áskrifenda á meðan Skjárinn er kominn upp í 23 þúsund. Viðskiptablaðið lét MMR svo vinna könnun um áskrifendafjölda Netflix á Íslandi sem birt var á fimmtudaginn en samkvæmt henni þá eru tæplega 17 prósent Íslendinga komnir með Netflix og ætluðu 5,5 prósent að- spurðra sér að kaupa áskrift á næstu vikum. Fjöldi Netflix-notenda mun því væntanlega bara aukast í framtíð- inni. Barist gegn Netflix Þessi aukning á Netflix-notkun leggst misvel í stjórnendur gamalgróinna sjónvarpsstöðva. Til að mynda hefur Ari Edwald, forstjóri 365, beitt sér nokkuð gegn Netflix og eins aðrir stjórnendur hjá fjölmiðlafyrirtækinu. Ari segir að tölurnar um notenda- fjölda Netflix úr könnuninni komi ekki á óvart, þær séu nokkurn veginn eins og hann bjóst við: „Ja, þetta er bara það sem við höfum búist við um fjölda Netflix-notenda á Íslandi. Mín skoðun er sú að þessi tala muni ekki hækka þannig að hún verði ekki ógn- un við innlent dagskrársjónvarp en auðvitað hefur þetta áhrif á okkur.“ Formlega er Netflix ekki komið til Íslands enda er markaðurinn hér á landi ekki stór og því ólíklegt að stjórnendur fyrirtækisins telji mikla hagsmuni í því að koma hingað til lands með starfsemi sína. Þess í stað þá nota Netflix-notendur á Íslandi Netflix í öðrum löndum með því þeim hætti að þeir skrá áskrift sína þannig að svo virðist sem þeir búi ekki á Ís- landi heldur í einhverju öðru landi, til dæmis Bandaríkjunum. Þannig hef- ur fjarskiptafyrirtækið Tal byrjað að bjóða Íslendingum upp á erlendar IP- tölur til þess að geta nýtt sér þjónustu Netflix. Á einum og sama deginum í lok október síðastliðinn skrifaði Ari kjallaragrein í Fréttablaðið þar sem hann gagnrýndi Tal fyrir þjónustuna og Ólafur Stephensen ritstjóri skrif- aði leiðara um sama efni. Gagnrýndu þeir Tal á mismunandi forsendum og talaði Ari meðal annars um að Netflix gæti haft slæm áhrif á íslenska menn- ingu: „Mikilvæg atvinnugrein fær ekki þrifist ef hún nýtur ekki réttarvernd- ar á borð við aðrar. Íslensk tunga og menning eru í húfi ef kynslóðir vaxa upp fyrst og fremst við ótextað erlent efni. Og ríkissjóður verður af miklum tekjum hvort sem efni er stolið án nokkurrar greiðslu, eða útlendum efnisveitum er greitt fyrir þjónustu sem er ólögleg hér á landi og stend- ur ekki skil á neinu gagnvart íslensku samfélagi.“ Ari segir samkeppnina raunverulega Stjórnendur 365 eru því eðlilega smeykir við Netflix því tilvera fjöl- miðlafyrirtækisins til framtíðar byggir á því að það sé með áskrifendur. Net- flix heggur hins vegar í áskrifenda- grunn Stöðvar 2 og hefur fjölgun Net- flix-áskrifenda verið með nokkrum ólíkindum á Íslandi á síðustu mánuð- um. Aðspurður um hvort aukning í notkun Netflix komi sér illa fyrir Stöð 2 segir Ari Edwald: „Við getum ekki mælt það nákvæmlega en auðvitað má gera því skóna að þetta komi niður á okkur. Þarna eru áskriftir, 20 þúsund plús eða mínus, sem eru raunveruleg samkeppni á markaðnum sem hefur raunveruleg áhrif á heildarmyndina. Við höfum hins vegar brugðist við þessari samkeppni af fullri hörku. Það er ekkert annað við þessu að gera en að reyna bara að vera betri. Samkeppnin á fjölmiðlamarkaði á Ís- landi í dag er alþjóðleg, yfirvöld þurfa að gera sér grein fyrir því. Fjölmiðla- markaðurinn hefur gjörbreyst af því internetið hefur engin landamæri. Það gengur ekkert að greina fjöl- miðlamarkaðinn á Íslandi þannig að það séu bara RÚV, Stöð 2 og Skjárinn á staðnum,“ segir Ari. Harðnandi samkeppni Á sama tíma og áskrifendatölur þessara þriggja miðla eru yfir 20 þús- undum þá liggur fyrir að tvær nýjar sjónvarpsstöðvar muni hefja göngu sína á næstu vikum á vegum fram- leiðslufyrirtækisins Stórveldisins. Um er að ræða stöð með innlendri dag- skrárgerð fyrir ungt fólk í anda Popp- tíví og dægurmálastöð sem verður aðallega með efni sem auglýsendur kaupa sem kynningarefni og Stór- veldið framleiðir. Fyrrnefnda stöðin mun heita Bravo en sú síðarnefnda Mikligarður. Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri og einn af eigend- um Stórveldisins, segir að stöðvarnar tvær muni hefja göngu sína í byrjun mars. Þá hefur 365 greint frá því að fyrir- tækið ætli að fara í loftið með Popp- tíví eftir verulega andlitslyftingu en sú stöð hefur sama markhóp og Bravo- stöð Stórveldisins, börn og ungt fólk á aldrinum 12 til 29 ára. Erfitt er að líta á þá aðgerð 365 á annan hátt en að henni sé beint gegn Stórveldinu. Með aukinni samkeppni á sjónvarpsmark- aði gæti harka því aukist þar sem að- ilar sem fyrir eru á markaði gætu litið svo á að ný fyrirtæki ógni þeim. Ari Edwald segir að hann gangist við því að aukið púður verði sett í Popptíví vegna tilkomu Bravo á mark- aðinn. „Það má alveg segja að það að gefa svolítið í þar tengist þessum hræringum öllum. Öll þessi útspil hafa einhver gagnvirk áhrif á það sem er gerast […] Popptíví er á svipuðum slóðum og Bravo, miðað við hvernig það hefur verið kynnt. Við höfum ver- ið að blása til sóknar þar. Við sitjum auðvitað ekki bara hjá þegar eitthvað nýtt er að gerast. Þá á við þar eins og gagnvart RÚV, Netflix og öðrum að við köstum ekkert inn handklæðinu heldur reynum bara að veita bestu þjónustuna.“ Sigmar segir að hann telji að klár- lega megi segja að Bravo og Popptíví verði í samkeppni um áhorfendur. „Já, þar verðum við að framleiða efni fyrir sama markhóp.“ Stöð 2 bregst því við samkeppn- inni á sjónvarpsmarkaði og berst gegn henni á tveimur vígstöðvum hið minnsta – auk samkeppninnar við Skjáinn sem staðið hefur um árabil: Stjórnendurnir reyna að vinna gegn útbreiðslu Netflix og nýrri stöð er komið á koppinn til höfuðs annarri stöð. Þá hafa Smáís, samtök myndréttarhafa sem 365 er aðili að, einnig unnið gegn útbreiðslu Netflix á Íslandi og hefur verið greint frá kær- um hjá samtökunum á hendur aðil- um sem bjóða upp á Netflix á Íslandi. Vinna ekki fyrir Stöð 2 Þá vekur athygli að Stórveldið vinnur ekki fyrir Stöð 2 um þessar mund- ir. Stórveldið vinnur hins vegar bæði fyrir Skjáinn og Ríkissjónvarpið. Líkt og DV greindi frá í október á síðasta ári þá reyndu forsvarsmenn Stöðvar 2 að fara á bak við Stórveldið með því að hafa beint samband við aðila sem framleiðslufyrirtækið ætlaði að vinna með að gerð dagskrárefnis. Hugsun- in var þá sú að Stöð 2 framleiddi efnið sem Stórveldið var búið að kynna fyrir stjórnendum stöðvarinnar án þess að framleiðslufyrirtækið væri milli- liður. Meðal annars var um að ræða tónlistar þáttinn Popp og kók. Þá sagði einn af heimildarmönnum DV um málið: „Svo hringdi Stöð 2 beint í annan þessara aðila og sagði: Við viljum framleiða þetta beint með ykkur […] Þetta eru mjög óeðlileg- ir viðskiptahættir.“ Stöð 2 var hins vegar ekki ágengt í þessum tilraunum sínum. Í umfjöllun DV kom fram að hluti ástæðunnar fyrir þessu væri sú að Stöð 2 ætlaði sjálft að hefja fram- leiðslu á dagskrárefni í auknum mæli. Freyr Einarsson, dagskrárstjóri Stöðv- ar 2, neitaði því að stöðin hefði reynt að bregða fæti fyrir Stórveldið með fyrrnefndum hætti. „Þetta er bara al- rangt; það er ekki öreind af sannleika í þessu. Vífilfell hafði samband við Stöð 2 með hugmyndina að Poppi og kóki og bað Stórveldið að koma að fram- leiðsluferlinu […] Ef ég hefði viljað framleiða þetta þá hefði ég bara tekið þetta inn í hús til okkar.“ Undir yfirborðinu virðist því vera talsverð spenna á milli Stöðvar 2 og Stórveldisins. Mikil gerjun á markaðnum Friðrik Friðriksson, framkvæmda- stjóri Skjásins, segir að staðan á fjöl- miðlamarkaði í dag sé áhugaverð þar sem mikil gerjun hafi átt sér stað. „Þetta er bara ansi áhugaverð staða og það er mikið að gerast á markaðnum,“ segir Friðrik aðspurður um stöðuna á sjónvarpsmarkaði á Íslandi. „Það er mjög margt í gangi, meðal annars vegna áhrifanna af Netflix. Við höfum mælt þetta hjá okkur og þá fáum við út að áskrifendur Netflix séu um tíu þúsund á landsvísu,“ segir Friðrik en hann segir að Skjárinn hafi ekki fund- ið mikið fyrir þessum aukna áskrif- endafjölda Netflix á Íslandi ennþá. 5.000 þúsund nýir áskrifendur Skjárinn hefur sótt mjög í sig veðrið á síðustu mánuðum og vikum og bætt við sig mörgum áskrifendum. Í að- draganda frumsýningarinnar á þátt- unum The Biggest Loser Iceland bættust 5.000 nýir áskrifendur við hjá Skjánum. Skjárinn hefur ekki haft fleiri áskrifendur síðan stöðin varð áskriftarsjónvarp árið 1999. Um 70 prósenta áhorf var á fyrsta þátt The Biggest Loser fyrir nokkrum vikum. Friðrik segir: „Við erum með rúm- lega 23 þúsund áskrifendur og það er „all time high“ hjá okkur. Við byrjuð- um árið 2009 og við höfum ekki séð svona háa tölu áður. Þetta eru mjög mikil tíðindi fyrir okkur og skemmti- leg. Ég hef ekki séð þetta áður á mark- aðnum fyrr en núna hvernig einn íslenskur þáttur getur haft svona svakalega mikil áhrif eins og The Biggest Loser hefur gert.“ „Undirbúið fyrir sölu“ Staðan á sjónvarpsmarkaðnum er því ansi áhugaverð um þessar mundir og hefur samkeppnin aukist talsvert. Stöð 2 er ennþá stærsta einkarekna stöðin og er lykilmiðill í stærsta fjöl- miðlafyrirtæki landsins. Staða Stöðv- ar 2 hefur hins vegar dalað nokkuð á markaðnum og er hún ekki lengur sá risi sem hún var. Afar ólíklegt er að þessari stöðu verði snúið við þar sem notkun miðla eins og Netflix mun bara aukast á næstu árum. Vitað er að „eitt versta geymda n Blóðug átök á sjónvarpsmarkaði n Risinn 365 berst á Helgarblað 21.–24. febrúar 2014 Grjóthörð samkeppni Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Áhrifavaldur Netflix er áhrifavaldur á íslenskum sjónvarpsmarkaði enda eru íslenskir áskrifendur nú orðnir fleiri en 20 þúsund. MyNd SHUtterStock „Við sitjum auðvitað ekki bara hjá þegar eitthvað nýtt er að gerast
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.