Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 26
Helgarblað 21.–24. febrúar 201426 Fréttir Erlent
1 Apple
Stofnað: 1976
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Raftæki
Stjórnandi: Arthur D. Levinson
Starfsmenn: 80.000
Verðmæti: 11.929 mlja.
n Apple-vörumerkið er það
verðmætasta í heimi en það
var stofnað af Steve Jobs,
Steve Wizniak og Ronald
Wayne. Fyrirtækið hefur á
undanförnum árum verið leiðandi fyrirtæki í
þróun og hönnun hugbúnaðar og raftækja, svo
sem tölva af ýmsum gerðum og snjallsíma.
Steve Jobs var maðurinn á bak við velgengni
félagsins á undangengnum árum en hann lést
eftir baráttu við krabbamein árið 2011.
2 Samsung
Stofnað: 1938
Upprunaland: Suður-Kórea
Bransi: Raftæki
Stjórnandi: Lee Kun-hee
Starfsmenn: 427.000
Verðmæti: 8.975 mlja.
n Samsung var
stofnað af Lee
Byung-chul í
Suður-Kóreu
árið 1938. Á fyrstu þremur áratugunum
stóð það í starfsemi af ýmsum toga, allt frá
matvælaframleiðslu til tryggingasölu. Það
herjaði á raftækjamarkað seint á sjöunda
áratugnum. Þegar stofnandinn féll frá
árið 1987 skiptist starfsemin í fjóra hluta.
Raftækjaframleiðsla hefur síðan verið
fyrirferðamest og í dag ræður Samsung yfir
um þriðjungi snjallsímamarkaðarins, svo
dæmi séu tekin.
3 Google
Stofnað: 1997
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Upplýsingatækni
Stjórnandi: Eric Schmidt
Starfsmenn: 47.756
Verðmæti: 7.820 mlja.
n Um Google
þarf ekki að hafa
mörg orð. Nærri
lætur að hvert
einasta mannsbarn í hinum vestræna heimi
þekki eða noti Google reglulega. Fyrirtækið
hefur vaxið á undraverðum hraða frá því
Larry Page og Sergey Brin settu Google á fót
sem rannsóknarverkefni í Stanford-háskól-
anum í Kaliforníu. Þá óraði væntanlega ekki
fyrir því að fáeinum árum síðar yrði Google
eitt allra verðmætasta vörumerki í heimi.
4 Microsoft
Stofnað: 1975
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Hugbúnaður
Stjórnandi: John W. Thompson
Starfsmenn: 100.932
Verðmæti: 7.155 mlja.
n Microsoft, stofnað af
Bill Gates á áttunda ára-
tugnum, er ein öflugasta
fyrirtækjasamsteypa í
heimi. Samsteypan vinnur að hugbúnaðar-
lausnum og hefur verið leiðandi á þeim
markaði um árabil – auk þess að selja tölvur
og annan tengdan varning. Flestir þekkja og
nota jafnvel daglega stýrikerfin, ritvinnslu-
forritin, netvafrana og aðrar hugbúnaðar-
lausnir frá Microsoft.
5 Verizon
Stofnað: 1983
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Fjarskipti
Stjórnandi: Lowell McAdam
Starfsmenn: 178.300
Verðmæti: 6.093 mlja.
n Verizon er eitt
stærsta fjarskiptafyrir-
tæki Bandaríkjanna.
Forveri Verizon, Bell
Atlantic, var stofnaður
eftir uppskiptingu AT&T-samsteypunnar.
Saga félagsins einkennist af ýmiss konar
nafnabreytingum og uppskiptingu. Félagið
er móðurfélag ýmissa undirfyrirtækja sem
starfa í tengdum iðnaði. Þannig rekur Veri-
zon Wireless stærsta þráðlausa 3G-netið í
Bandaríkjunum.
6 G. Electrics
Stofnað: 1892
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Rafbúnaður
Stjórnandi: Jeffrey Inmelt
Starfsmenn: 305.000
Verðmæti: 5.987 mlja.
n Rafbúnaðarfyrirtækið
General Electric var
stofnað af manninum
sem fann upp ljósa-
peruna, Thomas Alfa
Edison, seint á nítjándu
öld. Um er að ræða fjölþætt framleiðslu- og
þjónustufyrirtæki sem er skráð fyrir um 68
þúsund einkaleyfum. Fyrirtækið er með
starfsemi í 20 löndum en höfuðstöðvarnar
eru í Barcelona á Spáni. Flest notum við
vörur frá GE daglega.
7 AT&T
Stofnað: 1885
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Fjarskipti
Stjórnandi: Randall Stephenson
Starfsmenn: 246.740
Verðmæti: 5.175 mlja.
n Stofnun AT&T má
rekja allt aftur til
mannsins sem fann upp
símann; Alexanders
Grahams Bell. Hann
stofnaði Bell Telephone Company en
dótturfélag þess er American Telephone
and Telegraph Company, AT&T. Fyrirtækið
er eitt stærsta fjarskiptafélag í heimi og
hefur 109 milljónir viðskiptavina. Sam-
steypan hefur 22 fyrirtæki á sínum snærum
og rekur meðal annars umsvifamikla
sjónvarpsþjónustu.
8 Amazon
Stofnað: 1994
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Vefverslun
Stjórnandi: Jeff Bezos
Starfsmenn: 20.500
Verðmæti: 5.145 mlja.
n Amazon.com
er bandarískt vef-
verslunarfyrirtæki
með höfuðstöðvar í Seattle í Washington.
Félagið var frumkvöðull í vefverslun og fór
fyrst að skila hagnaði árið 2003. Fyrst um
sinn seldi fyrirtækið bara bækur en hóf svo
að selja allt frá myndböndum til húsgagna
og matvæla. Fyrirtækið rekur aðgreindar
verslanir í sjö löndum.
9 Walmart
Stofnað: 1962
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Verslun
Stjórnandi: S. Robson Walton
Starfsmenn: 2,2 milljónir
Verðmæti: 5.103 mlja.
n Walmart-
búðirnar eru
rúmlega ell-
efu þúsund
talsins, langflestar í Bandaríkjunum, og er
Walmart það einkarekna fyrirtæki sem er
með flesta starfsmenn í heiminum. Það
er því kannski ekki að undra að fyrirtækið
sé í hópi þeirra verðmætustu í heimi. Velta
fyrirtækisins árið 2013 nam tæpum 470
milljörðum dala, eða 53 þúsund milljörðum
króna.
10 IBM
Stofnað: 1911
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Hugbúnaður, upplýsingatækni
Stjórnandi: Ginni Rometty
Starfsmenn: 434.000
Verðmæti: 4.731 mlja.
n Í úttekt bandaríska
tímaritsins Fortune
árið 2012 kom fram að
IBM væri næststærsta fyrirtæki Banda-
ríkjanna með tilliti til starfsmannafjölda.
Fyrirtækið hefur verið leiðandi á sviði
upplýsingatækni undanfarna áratugi og að
hluta til rutt brautina í nýsköpun á því sviði.
Hjá IBM hafa margir öflugir starfsmenn
starfað, þar á meðal fimm sem hafa fengið
Nóbelsverðlaun.
11 Toyota
Stofnað: 1937
Upprunaland: Japan
Bransi: Vélknúin ökutæki
Stjórnandi: Takeshi Uchiyamada
Starfsmenn: 333.498
Verðmæti: 3.978 mlja.
n Toyota Motor Cor-
poration er fjórtánda
stærsta fyrirtæki
heims ef tekið er tillit
til veltu. Fyrirtækið
framleiðir samnefnda bíla, Toyota, sem
njóta vinsælda um heim allan. Árið 2012
varð fyrirtækið það fyrsta til að framleiða
yfir 10 milljónir bíla á einu ári. Fyrirtækið
endurtók svo leikinn árið 2013. Auk þess
að framleiða Toyota-bíla á Toyota Motor
Corporation helmingshlut í Daihatsu.
12 Coca-Cola
Stofnað: 1886
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Drykkjarvörur
Stjórnandi: Muhtar Kent
Starfsmenn: 146.200
Verðmæti: 3.843 mlja.
n Coca-Cola-vöru-
merkið er krónprins The
Coca-Cola Company
og líklega eitt best
þekkta vörumerki heims
og væntanlega margir sem drukkið hafa
ótæpilega af gosdrykknum vinsæla. Það
var lyfjafræðingurinn John Stith Pemberton
sem blandaði drykkinn fyrst árið 1886. The
Coca-Cola Company framleiðir og selur fleiri
drykkjarvörur um allan heim. Telur vörulína
fyrirtækisins yfir 500 vörur í það heila.
13 China Mobile
Stofnað: 1997
Upprunaland: Kína
Bransi: Fjarskipti
Stjórnandi: Xi Guohua
Starfsmenn: 181.000
Verðmæti: 3.629 mlja.
n China Mobile er
stærsta fjarskiptafyrir-
tæki fjölmennasta
ríkis heims og því
kemur það ekki á óvart
að fyrirtækið sé í hópi þeirra verðmætustu í
heimi. Í fyrra var fyrirtækið í 20. sæti listans
og stekkur því upp um átta sæti. Viðskipta-
vinir China Mobile eru 760 milljónir talsins.
Fyrirtækið er að mestu í eigu kínverska
ríkisins en fjárfestar eiga einnig hlut í því.
14 T-Mobile
Stofnað: 1990
Upprunaland: Þýskaland
Bransi: Fjarskipti
Stjórnandi: Timotheus Höttges
Starfsmenn: 36.000
Verðmæti: 3.488 mlja.
n T-Mobile
International
AG eins og
það heitir fullu nafni er móðurfélag Deutsche
Telekom AG. Fyrirtækið er eitt stærsta fjar-
skiptafyrirtæki Evrópu og er með starfsemi
í ellefu ríkjum Evrópu: Austurríki, Króatíu,
Tékklandi, Póllandi, Hollandi, Ungverjalandi,
Makedóníu og Svartfjallalandi svo dæmi séu
tekin. Viðskiptavinir T-Mobile-samsteypunn-
ar eru um 150 milljónir talsins. Fyrirtækið er
fjórða stærsta fjarskiptafyrirtæki heims.
15 Wells Fargo
Stofnað: 1852
Upprunaland: Bandaríkin
Bransi: Fjármál
Stjórnandi: John G. Stumpf
Starfsmenn: 270.600
Verðmæti: 3.446 mlja.
n Þó Wells Fargo sé
bandarískt fyrirtæki
að uppruna er það með
starfsemi um allan
heim. Ef tekið er tillit
til eigna er um að ræða
fjórða stærsta banka Bandaríkjanna en
stærsta banka Bandaríkjanna ef tekið er
tillit til markaðsverðmætis. Fyrirtækið stóð
ágætlega áður en fjármálakrísan skall á
og var betur í stakk búið en mörg önnur
fyrirtæki til að takast á við niðursveifluna
sem hófst á haustmánuðum 2008.
Verðmestu
vörumerki
í heiminum
n Fjarskipta- og raftækjafyrirtæki fyrirferðarmikil n Yngstu fyrirtækin 17 ára gömul