Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Side 48
Helgarblað 21.–24. febrúar 201448 Skrýtið
Skeggjuð kona
hætti að raka sig
n „Ég er kvenlegri með skeggið“ n Var lögð í harkalegt einelti
H
in 23 ára Harnaam Kaur
hefur verið með skegg og
bringuhár frá ellefu ára aldri.
Kaur, sem er breskur ríkis-
borgari og búsett í Berk shire,
er haldin sjaldgæfum sjúkdómi, fjöl-
blöðrueggjastokkaheilkenni, sem
ein kennist af óreglulegum blæðing-
um, offitu og auknum hárvexti.
Reiði gúrúanna
Í fimm ár reyndi hún að halda hár-
vextinum í skefjum með því að klippa
hárið reglulega, raka það og vaxa en
baráttunni lauk þegar hún skírðist til
síkisma, sem eru trúarbrögð byggð á
kenningum tíu gúrúa sem lifðu á 16.
og 17. öld í norðurhluta Indlands.
Kennisetningar síkisma kveða á um
bann við hárskurði, og þeim er Kaur
nauðbeygð til að fylgja ætli hún ekki
að verða fyrir barðinu á reiði gúrú-
anna á hinsta degi.
Kvenleg og upplitsdjörf
Í dag er Kaur búin að sætta sig við
útlit sitt og líður vel í eigin líkama.
„Ég elska sjálfa mig, líka skegg mitt
og önnur sérkenni,“
segir Kaur og bætir
við: „Ég er kvenlegri
með skeggið.“
Kaur hefur ekki
alltaf verið jafn upp-
litsdjörf. „Ég var
lögð í harkalegt ein-
elti; krakkarnir köll-
uðu mig Skeggja.
Í dag get ég hlegið
að því en þá var ég
svo miður mín að
ég byrjaði að meiða
sjálfa mig og var að
hugsa um að svipta
mig lífi. Á vissum
tímapunkti þorði
ég ekki að fara út úr húsi; var hrædd
við augngotur fólks og hvísl,“ segir
hún. Foreldrar hennar höfðu einnig
miklar áhyggjur af því að hún gæti
ekki lifað eðlilegu lífi með skegg og
bringuhár. „Þau voru alfarið á móti
því að ég safnaði skegginu. Þau
héldu að ég gæti ekki lifað eðlilegu
lífi með skegg og bringuhár, myndi
aldrei giftast og fengi aldrei vinnu.
En ég vildi taka mínar eigin ákvarð-
anir enda er þetta mitt líf. Og það
síðasta sem ég vildi var að fela það
sem ég raunverulega er.“
Kímin
Dómsdagsspár foreldranna hafa
sannarlega ekki ræst. Í dag er hún
aðstoðarkennari í grunnskóla og
með sjálfstraustið í botni. Fólk er að
vísu ekki hætt að stara en Kaur tekst
á við neikvæða athygli með kímni-
gáfuna að vopni. Hún þykist til
dæmis stundum vera karl-
maður þegar hún er stödd
á kvennaklósettinu.
Einnig segir hún karla
úti um allan heim æsta
í hana. „Ég hef feng-
ið skilaboð frá karlmönnum úti um
allan heim. Einn þeirra bað mig
meira að segja um að giftast hon-
um,“ segir Kaura sem af-
þakkaði bónorðið
pent. „Ég hef
ekki enn fund-
ið ástina en
ég er enn
ung og hef
nægan
tíma.“ n
Skegglaus Þessi mynd var tekin fyrir skírnina.
Eftirsótt
Karlmenn eru
óðir í Kaur.
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Kýr ættu að
hlusta á R.E.M.
Háskólinn í Leicester rannsak-
aði á dögunum við hvaða tón-
list beljur framleiddu mesta
mjólk. Niðurstaðan leiddi í ljós
að mest nyt fengist með því að
spila lagið Everybody Hurts í
fjósinu. Lagið er með bandarísku
hljómsveitinni R.E.M. sem gerði
garðinn frægan á tíunda áratugn-
um. Ástæðan ku vera að tauga-
óstyrkar kýr framleiða minni
mjólk og fátt er jafn afslapp-
andi fyrir þær og R.E.M. Sam-
kvæmt sömu rannsókn framleiða
beljurnar minnst er þær hlusta á
raftónlist.
Ragnarök á
laugardag?
Heimsendir norræna manna
mun hefjast næstkomandi
laugardag. Breska dagblaðið
The Independent greinir frá
þessu. Samkvæmt sérfræðing-
um hjá Miðstöð víkinga í Jórvík á
Englandi munu ragnarök hefjast
tuttugasta og annan febrúar því
þá eru hundrað dagar frá dular-
fullu lúðrakalli sem heyrðist í Jór-
vík síðastliðinn nóvember. Sam-
kvæmt Snorra-Eddu mun jörðin
sjálf opnast og íbúar Helju ganga
berserksgang, æsir munu berj-
ast sín á milli og að lokum mun
Surtur brenna jörðina. Líklegra
er þó að um auglýsingabrellu sé
að ræða þar sem Miðstöð vík-
inga mun halda sína árlegu hátíð
þennan sama dag.
Trúðaskortur í
Bandaríkjunum
Fjöldi meðlima í stærsta verka-
lýðfélagi trúða í Bandaríkjunum
hefur hrapað frá árinu 2004. Að
sögn Glen Kohlberger, formanns
samtakanna Trúðar Ameríku,
stefnir óðfluga í það að skortur
verði á trúðum vestanhafs. Sam-
kvæmt Kohlberger hefur trúð-
um fækkað um þúsund á sein-
ustu tíu árum, úr þrjú þúsund og
fimm hundruð í tvö þúsund og
fimm hundruð. Hann telur helstu
ástæðuna fyrir þessu vera að lítil
endurnýjun sé innan stéttarinn-
ar. „Yngra fólk virðist ekki hafa
áhuga á starfinu eða endist ekki í
því til lengdar,“ sagði trúðurinn í
samtali við New York Daily News.
É
g vil vera heilalaus. Ég vil
vera hin fullkomna Barbie-
dúkka,“ segir Blondie Bennett.
Bennett er 38 ára og búsett
í Kaliforníu. Hennar draumar og
markmið tengjast flestir Barbie-
dúkkunni. Það er að segja, Bennett
þráir að vera eins og Barbie í orðsins
fyllstu merkingu. „Ég kann ekki
við mig sem manneskju, þú skilur.
Að vera frá náttúrunnar hendi er
leiðinlegt, ég myndi helst vilja vera
úr plasti.“ Sjálf hefur Bennett unn-
að Barbie frá því að hún var barn
og segist alltaf hafa þráð að líkjast
henni sem allra mest.
Til þess að ná þessu yfirlýsta
markmiði sínu hefur Bennett nú
þegar lagst undir hnífinn fimm
sinnum og látið breyta á sér barm-
inum. Þá segist hún fara tvisvar til
þrisvar í viku til dáleiðara sem að-
stoðar hana við að verða heimskari.
„Ég er búin að fara 20 sinnum og ég
finn breytinguna. Mig svimar oft
og ég verð mjög utan við mig,“ seg-
ir hún. Til þess að fjármagna þess-
ar aðgerðir og lífsstíl hefur Bennett
komið upp vefsíðu þar sem hún
býður meðal annars upp á dans-
sýningar og sendir viðskiptavinum
sínum myndir af sér, oftar en ekki
erótískar.
Fjölskylda hennar og vinir hafa
miklar áhyggjur af þessari hegðun
Bennett og telja hana vera að skaða
sig. Allar líkur séu á því að hún sé
veik og þurfi aðstoð. n
Vinkonurnar Blondie hefur farið í fimm
brjóstaaðgerðir til að fá stærri barm.
„Ég vil vera heilalaus“
Blondie Bennett vill vera eins og alvöru Barbie-dúkka
Kvenleg Kaur er sátt í eigin skinni og finnst skeggið kynþokkafullt.