Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Qupperneq 60
Helgarblað 21.–24. febrúar 201460 Fólk
Flott Sharon Stone er svo
sannarlega í góðu formi.
Grét yfir því vera að eldast
Sharon Stone viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt að eldast
L
eikkonan Sharon Stone segist
hafa grátið mikið þegar hún
áttaði sig á því að hún væri
að eldast. Leikkonan sem
er 55 ára og á glæsilegan feril í
Hollywood að baki, talaði nýlega í
fyrsta skipti opinberlega um þess-
ar raunir sínar. Í viðtali við tímaritið
Shape segir hún frá því að þegar
hún hafi nálgast fertugsaldurinn
hafi hún setið tímunum saman með
vínglas inni á baði, vælandi meðan
hún skoðaði andlitið í stækkunar-
spegli. Hún læsti sig inni á baðher-
bergi og ætlaði ekki að koma út fyrr
en hún væri búin að sætta sig við
að hún væri að eldast. „Ég sagði við
sjálfa mig, ég fer ekki héðan út fyrr
en ég hef sætt mig við það að ég er
að eldast. Hvernig ætla ég að fara
að því?“ Hún segist hafa ákveðið að
eldast vel. „Ég hugsaði með mér að
ég myndi vilja vera eins og dansari
þegar ég yrði gömul. Ég vildi halda
mér í góðu formi. Mig langaði að
vinna, dansa og teygja. Og ég vil fara
í líkamsræktina.“
Sharon gerði ýmislegt annað
til þess að halda sér unglegri. Hún
hefur lagt áfengið á hilluna. „Ég
elskaði vín einu sinni en ég drekk
aldrei núna. Ég held að á vissum
tímapunkti verði konur að hætta að
drekka því það gerir andlitið, brjóst
og miðsvæðið mjög þrútið,“ seg-
ir Sharon Stone sem svo sannar-
lega má segja að líti vel út miðað við
aldurinn. n
viktoria@dv.is
Losaði sig
við brjóstin
Kryddpían fyrrverandi Victoria
Beckham lét fjarlæga úr sér
brjóstapúða sem hún fékk árið
1999. Það vakti athygli þegar
Victoria birtist skyndilega með
mun þrýstnari barm en hún
hafði áður verið með, en hún
fór við aðgerðina úr stærð 34a
í stærð 34d. Victoria grínaðist
með það í viðtali á dögunum að
hún hefði hugsanlega keypt sér
þessi brjóst en hefði þau ekki
lengur. Hún hafði mikið fyrir því
að komast aftur í sína raunveru-
legu stærð og kann betur við sig
án stóru brjóstanna.
Leynilegt
brúðkaup?
Súperparið Leighton Meester
og Adam Brody er sagt hafa
gift sig í leyni. O.C.-stjarnan og
Gossip Girls-stjarnan trúlofuðu
sig í nóvember síðastliðnum.
Brody er sagður hafa sést með
hring á giftingarfingrinum á
LAX-flugvellinum. Aðdáendur
tóku myndir af honum og birtu
á Twitter. Parið hefur þó ekki
fengist til að staðfesta sögusagn-
irnar. Þau Brody og Meester hafa
verið saman síðan snemma á
síðasta ári en þau hittust við tök-
ur á myndinni The Oranges árið
2011 en hafa aldrei viljað ræða
sambandið.
Sögð vera
að hittast
Ungstirnið Miley Cyrus og
hjartaknúsarinn Jared Leto
eru sögð eiga vingott. Þau
sáust spjalla mikið saman á
Grammy-verðlaunaathöfninni
í síðasta mánuði. Samkvæmt
heimildarmanni tímaritsins US
Weekly hafa þau verið að hitt-
ast eftir hátíðina. „Miley gisti
heima hjá honum í byrjun febr-
úar, þau hafa verið að hittast,“
segir heimildarmaður tímarits-
ins en tekur fram að það sé
ólíklegt að þau muni byrja
saman. Jared vilji ekki binda sig
og sé kominn með leiða á sam-
böndum.
Þau voru einu
sinni saman
Manstu eftir þessum stjörnusamböndum?
H
lutirnir gerast hratt í heimi
stjarnanna og sjaldgæft að
sambönd verði langlíf. Hér
má sjá nokkur pör sem
einu sinni voru saman en
líklega muna fæstir eftir því. n
Ryan Gosling og
Sandra Bullock
David Arguette og
Drew Barrymore
Quentin Tarantino
og Mira Sorvino
Miley Cyrus
og Nick Jonas
Michael Sheen og
Kate Beckingsale
Cher og
Tom Cruise
George Clooney
og Kelly Preston
Matthew Perry
og Julia Roberts
Kiefer Sutherland
og Julia Roberts
Josh Groban og
January Jones