Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Side 64
Helgarblað 21.–24. febrúar 2014
15. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is
Skynja ég
kaldhæðni?
Ekki ólétt
n Greta Mjöll Samúelsdóttir
söngkona er á forsíðu Séð og
heyrt þessa vikuna. Á forsíðunni
stendur að Greta hlakki mikið
til þess að verða móðir. Greta er
þó ekki barnshafandi og á Face-
book-síðu sinni tekur hún það
skýrt fram. „Bara ef einhver var
að lesa á milli línanna á forsíð-
unni þá er EKKERT tröllabarn á
leiðinni ennþá. Lofa elsku vin-
ir að þið fáið að sjá það frá mér
áður en það færi í Séð og Heyrt,“
segir Greta, sem segir gaman að
hafa verið í viðtalinu.
Finnst Björn
fyndinn
n Þáttastjórnandanum Loga Berg-
mann finnst fyrrverandi dóms-
og kirkjumálaráðherra, Björn
Bjarnason, vera ótrúlega fyndinn.
„Hann er ótrúlega fyndinn alltaf.
Mér skilst að hann semji meira og
minna allt sitt efni sjálfur. Honum
bauðst að vera með hjá Mið-Íslandi
en hann vildi það ekki. Fannst það
of evrópulegt,“ skrifar
Logi á Facebook-
þráð um nýjasta
pistil Björns á vef
Evrópuvaktarinn-
ar sem nefnist
„ESB-RÚV tekur
til starfa að nýju af
ótta við afturköll-
un umsóknar.“
Alþingi gert fyrir minni menn
Geir Jón Þórisson situr á Alþingi til mánaðamóta
G
eir Jón Þórisson, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn hjá lögreglu
höfuðborgarsvæðisins og
varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, tók sæti á Alþingi í
fyrsta skipti síðastliðinn miðvikudag.
Í samtali við DV segir hann það hafa
helst komið sér á óvart á nýjum starfs-
vettvangi hve þröng starfsaðstaða
þingmanna væri fyrir hávaxna menn.
„Maður hefur aldrei kynnst þessu
fyrr. Það er gaman að kynnast þessu
og taka þátt í ákveðinn tíma. Það er
vel tekið á móti manni. Það kom mér
mest á óvart hve vinnuaðstaða í þing-
sal er ekki góð fyrir stóra menn. Það er
alveg ljóst að þetta er gert fyrir minni
menn,“ segir Geir Jón sem er nærri
tveir metrar á hæð.
Geir Jón segir ýmislegt úr starfi
sínu hjá lögreglunni nýtast vel á Al-
þingi. „Maður þekkir ýmsa þætti
mannlífsins og hefur unnið eftir lög-
um og reglum sem hafa verið settar
á Alþingi. Þannig að það er margt í
þessu starfi sem maður kannast við.
Nú er maður hinum megin við borðið,
að undirbúa og vinna lagasetningu
sem maður hefur ekki gert áður,“ segir
varaþingmaðurinn.
„Maður er rétt svona feta sig inn í
þetta. Ég byrjaði nú svolítið bratt fyrsta
daginn. Ég var búinn að vera þing-
maður í fimm mínútur þegar ég fór í
ræðustólinn. Ég hugsaði að það væri
best að fara beint í þetta,“ segir Geir
Jón. Ræða hans fjallaði um að ólíð-
andi væri að farþegar með Herjólfi
greiddu viðbótargjald vegna þess að
Landeyjahöfn virkaði ekki. Geir Jón
mun sitja á þingi til mánaðamóta. n
hjalmar@dv.is
Bragðgóð gjöf
Harpa / Skeifan 6 / Keflavíkurflugvöllur / 5687733 / www.epal.is
Framsóknarbolla
n Yngsti þingmaður Alþingis
er farinn að hlakka til bollu-
dagsins. Framsóknarkonan Jó-
hanna María Sigmundsdótt-
ir lýsir, á Facebook-síðu sinni,
frati á konudaginn sem haldinn
er um helgina. Hún virðist þó
vera umtalsvert spenntari fyrir
bolludeginum sem haldinn er
þarnæsta mánudag. „Besti dag-
ur í heimi ! Uppáhalds hátíðin
mín! Vatnsdeigsbollur, gerboll-
ur, bollur með glassúr, bollur
með súkkulaði, bollur með
karamellu, bollur með rjóma,
bollur með
ávöxtum,
bollur með
…“ skrifar
Jóhanna
María.
Of stór fyrir Alþingi Geir Jón Þórisson tók
sæti á Alþingi á miðvikudaginn. Hann segir
vinnuaðstöðuna vera heldur þrönga.