Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 7.–10. mars 20148 Fréttir „Happa og glappa hver fær íbúð“ n Fjögurra ára bið Sædísar eftir félagslegri íbúð n Endar á götunni í apríl V ið höfum beðið og beðið, en það virðast allir vera teknir fram fyrir okkur,“ seg­ ir Sædís Hrönn Samúels­ dóttir, sem beðið hefur eftir félagslegri íbúð í fjögur ár fyrir sig og dóttur sína. Í hennar sveitarfélagi er almennt talað um tveggja ára bið eftir íbúð. Hún er nú í tímabundnu húsnæði en mun missa það á næstu mánuðum og er að leita sér að íbúð. Sú leit gengur hægt og illa. Það er önnur íbúðin sem þær mæðgur hafa viðdvöl í tímabundið og segist Sædís varla hafa tekið upp úr kössunum. Svartur leigurekstur Sædís segist sjá fram á að þær mæðgur verði heimilislausar um miðjan apríl ef fer sem horfir. Hún leigir nú íbúð á 150 þúsund krónur í gegnum kunningsskap, en segist ekki geta leigt sambærilega íbúð eða minni, á sama verði eða lægra, í bænum. Leiguverð sé of hátt og oft­ ar en ekki á að leigja íbúðir svart. Þá fær einstaklingur ekki stuðning sveitarfélagsins, enda engir skatt­ ar greiddir af tekjum íbúðarinnar. „Ég fæ fá svör þegar ég hringi og ég hringi mjög reglulega til að kanna stöðuna,“ segir hún og segist hr­ ingja í húsnæðismálafulltrúa allt að þrisvar í viku. „Það virðist vera voða­ lega happa og glappa hver fær íbúð. Þessi tveggja ára bið er löngu liðin. Ég er ein með dóttur mína og öryrki og mér er sagt að ég geti ekki kom­ ist hærra á biðlistann eða að þörfin á íbúð verði metin meiri.“ Samt hefur hún ekki fengið íbúð. Löng bið Sædís hefur beðið, sem áður sagði, eftir félagslegri íbúð í fjögur ár, eða frá fæðingu dóttur sinnar. Sædís er einstæð móðir og öryrki og henni hefur verið tjáð að í Hafnarfirði séu einfaldlega ekki nógu margar íbúð­ ir. Um 250 manns eru á biðlista eftir íbúðum, en bærinn á rúmlega 200 íbúðir. Það er því setið um þær. Mið­ að er við tveggja ára bið á biðlistum bæjarins eins og staðan er núna, en árlega eru um 30 íbúðum út­ hlutað. Nýverið greindi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, að ekki standi til að fjölga félagslegum íbúðum held­ ur hækka frekar húsaleigubætur og viðbótarhúsaleigubætur og greiða þannig niður húsaleigu á almenn­ um markaði. „Það er ekki á dagskrá hjá okk­ ur að fara Kópavogsleiðina og fjölga íbúðum í eigu bæjarins,“ sagði Guð­ rún í samtali við vefinn Gaflari.is en sagði ljóst að mikill vandi væri á húsnæðismarkaðnum almennt og að fjölga þurfi tryggu leiguhúsnæði sem og að auðvelda fólki að eign­ ast eigið húsnæði. Leita á eftir sam­ starfi hjá fjárfestum og einkaaðilum til að byggja upp slíka kosti. Hug­ myndin er sú að með því að byggja upp húsnæðismarkaðinn sé þörfin fyrir félagslegar íbúðir minni. Búa í tjaldi Sædís segir biðina taka sinn toll bæði af sér og dóttur sinni. „Ég reyni auðvitað að láta þetta ekki hafa áhrif á hana, en hún veit að við erum að fara að flytja. Þetta fer ekkert fram hjá henni. Hún sagði við mig um daginn að í sumar gæt­ um við bara flutt í tjald og hún var með þetta allt á hreinu. Það væri of kalt til þess að vera þar núna, en í sumar væri það hægt. Hún ætlaði að geyma dótið sitt á grasinu, nema bækurnar til að vernda þær frá rign­ ingunni. Mér finnst þetta falleg hugsun en að sama skapi óþægilegt að vita til þess að hún sé að hugsa um þetta,“ segir Sædís. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Ég fæ fá svör þegar ég hringi og ég hringi mjög reglulega til að kanna stöðuna. Tjalda Dóttir Sædísar segist ætla að tjalda í sumar ef þær hafi ekki fengið íbúð. Enn ekkert samkomulag Fundi strandríkjanna í makríl­ deilunni lauk á miðvikudags­ kvöld án samkomulags. Með fundinum var ætlað að reyna til þrautar að ná samkomulagi um skiptingu veiðiheimilda í mak­ ríl. „Fullreynt er að samning­ ur náist á þeim grundvelli sem lá fyrir milli Íslands og ESB í haust,“ segir Sigurður Ingi sjáv­ arútvegsráðherra í tilkynningu sem barst eftir fundinn. Ísland hefur tekið þátt í við­ ræðum strandríkja um skipt­ ingu makrílstofnsins síðan árið 2010. Ekki hefur tekist á þessum árum að ná samkomulagi um stjórnun og skiptingu veiðanna milli strandríkjanna sem eru, auk Íslands, Noregur, Færeyjar og ESB. Um þessa niðurstöðu seg­ ir Sigurður Ingi: „Það er mikil synd að ekki hafi tekist að ljúka samningi, tækifærið var svo sannarlega til staðar eftir mun hærri ráðgjöf Alþjóða hafrann­ sóknaráðsins nú í haust. Hægt hefði verið að semja um veiðar innan marka ráðgjafar án þess að nokkurt ríki hefði þurft að draga úr veiðum sínum.“ Í haust lá fyrir samkomulag milli Íslands og ESB um hvern­ ig leysa mætti deiluna. Um það segir Sigurður Ingi: „Grunnur þess samkomulags byggðist á sjálfbærum veiðum og tiltek­ inni hlutdeild Íslands. Evrópu­ sambandið tók að sér að fylgja málinu eftir gagnvart Noregi. Norðmenn hafa því miður kom­ ið í veg fyrir að þetta samkomu­ lag næði fram að ganga ekki síst með ósveigjanlegri og órök­ studdri kröfu um veiðar langt umfram vísindalega ráðgjöf.“ Farið verður yfir stöðuna á næstu dögum og undirbú­ in ákvörðun um heildarafla ís­ lenskra skipa í makríl á komandi vertíð. „Það er ljóst að viðræð­ um um stjórn makrílveiða fyrir 2014 er nú lokið,“ segir Sigurð­ ur Ingi, „við munum áfram leit­ ast við að stuðla að lausn sem byggir á vísindalegum grunni, sjálfbærri nýtingu og sanngjörn­ um hluta allra strandríkjanna.“ Ráðherrann hvetur enn frem­ ur strandríki til að sýna ábyrgð þegar komi að ákvörðun um veiðar á makríl í ár. Síðumúla 11, Sími 5686899, netfang vfs@vfs.is, 108 Reykjavík. www.vfs.is RAFMAGNSVERKFÆRI FAGMANNSINS Verkfæras l v itir félö um í Fé gi Húsbí eigenda 25% fslátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.