Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 29
Umræða 29Helgarblað 7.–10. mars 2014
Spurningin
Hefur þú áhyggjur
af ástandinu í
Úkraínu?
Þ
að heitir andsaga, þegar
sögð er saga af atburðum,
sem áttu sér ekki allir stað,
en hefðu getað gerzt. Hér
er andsaga úr íslenzkum
veruleika.
Alþingi staðfestir
nýja stjórnarskrá
Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu
20. október 2012, þar sem 2/3 kjós-
enda lýstu stuðningi við nýja stjórn-
arskrá og yfirgnæfandi hluti kjós-
enda lýsti einnig fylgi við nokkur
helztu einstök ákvæði hennar, lýsti
Alþingi því yfir, að það myndi sam-
þykkja frumvarpið efnislega óbreytt.
Þessi yfirlýsing kom ekki á óvart, þar
sem 32 þingmenn af 63 höfðu skrif-
lega lýst þeirri skoðun, að þeim
bæri að virða niðurstöðu þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar. Þessir þing-
menn skilja og virða, að þjóðin er
yfir boðari þingsins og þinginu leyf-
ist ekki að taka völdin af þjóðinni.
Frumvarpið var samþykkt á Al-
þingi haustið 2012 með 32 atkvæð-
um gegn 16, en 15 þingmenn sátu
hjá eða voru fjarverandi. Hlutföll
greiddra atkvæða á Alþingi voru
svipuð og í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni.
Stjórnarskrármálið var eitt helzta
kosningamálið fyrir alþingiskosn-
ingarnar 2013. Að loknum kosning-
um lét Alþingi það verða sitt fyrsta
verk að staðfesta samþykkt nýrr-
ar stjórnarskrár í samræmi við vilja
þjóðarinnar og fyrra þings, og gekk
þá nýja stjórnarskráin í gildi. Síðan
var mynduð ný ríkisstjórn.
Veiðigjöld
Ríkisstjórnin lét það verða sitt fyrsta
verk að boða afturköllun ákvörðun-
ar fyrri ríkisstjórnar um hækkun
veiðigjalda. Forseti Íslands sýndi
engin merki þess, að hann hygðist
skjóta málinu í dóm þjóðarinnar
þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um, að
stjórn fiskveiða sé mál, sem vel eigi
við að vísa til þjóðaratkvæðis. Þar
eð forsetinn hélt að sér höndum,
var 35.000 undirskriftum atkvæðis-
bærra manna safnað undir kröfu um
að vísa málinu til þjóðaratkvæðis, og
var fjöldi undirskriftanna langt yfir
10% markinu, sem nýja stjórnarskrá-
in kveður á um, að dugi til að knýja
fram þjóðaratkvæðagreiðslu. At-
kvæðagreiðslan var haldin innan árs,
og var lækkun veiðigjaldsins hafn-
að. Vænkaðist þá hagur ríkissjóðs,
svo að unnt var að koma m.a. rekstri
Landspítalans á traustari grunn.
Ótímabærum dauðsföllum vegna
fjárskorts á spítalanum fækkaði.
Utan þings var samið frum-
varp til nýrra fiskveiðistjórnarlaga í
samræmi við auðlindaákvæði nýju
stjórnarskrárinnar til að leggja fram
á Alþingi með undirskrift 2% at-
kvæðisbærra manna eins og nýja
stjórnarskráin heimilar. Þetta var
gert, þar eð vitað var, að þingmenn
ætluðu að leggja fram kvótafrum-
varp til að reyna að fara í kringum
ákvæði nýrrar stjórnarskrár um auð-
lindir í þjóðareigu.
Millispil: Lögreglan og Ómar
Þegar efnt var til mótmæla gegn um-
hverfisspjöllum í Gálgahrauni, kom
sú hugmynd upp í ríkisstjórninni,
að réttast væri að siga lögreglunni á
mótmælendur, handtaka þá og lög-
sækja. Starfsmaður í stjórnarráðinu
benti á, að nýja stjórnarskráin veitir
almenningi ríkari rétt til aðildar að
ákvörðunum um umhverfismál en
áður var. Lögreglan hélt að sér hönd-
um. Ómar Ragnarsson var ekki tek-
inn fastur.
Samningaviðræður við ESB
Til að gleðja Rússa og Kínverja ákvað
ríkisstjórnin upp úr eins manns
hljóði að slíta samningaviðræðum
við ESB, þótt það hafi ekkert land
áður gert, ekki einu sinni Sviss, sem
hefur geymt sínar samningaviðræð-
ur við ESB í salti síðan 1992. Þessi
ákvörðun ríkisstjórnarinnar kom
mörgum á óvart, þar eð fulltrúar
allra flokka á Alþingi höfðu marglof-
að því, að þjóðin fengi að eiga síð-
asta orðið í ESB-málinu. Nú virtist
það hafa gleymzt, að þjóðin er yfir-
boðari þingsins. Nú var ekkert hald
í málskotsrétti forseta Íslands, þar
eð ekki þurfti lagasetningu til að
slíta samningaviðræðunum. En nýja
stjórnarskráin veitir 10% atkvæðis-
bærra manna rétt til að bera mál
undir þjóðaratkvæði og þá um leið
til að taka fram fyrir hendur Alþing-
is. Nú var safnað 50.000 undirskrift-
um, langt umfram tilskilið 10% lág-
mark. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni,
sem var haldin innan árs skv. nýju
stjórnar skránni, var samþykkt að
halda samningaviðræðum við ESB
áfram. Það var gert.
Þess var krafizt, að ríkisstjórnin
segði af sér, þar eð hún hefði orðið
undir. Ríkisstjórnin taldi sér ekki
skylt að víkja með vísan til þess, að
sjónarmið fyrri ríkisstjórnar í Ice-
save-málinu hefðu í tvígang orðið
undir í þjóðaratkvæði, án þess að
ríkis stjórnin færi frá. Það var látið
gott heita, þar eð næstu þingkosn-
ingar myndu fara fram eftir nýjum
kosningalögum, sem tryggja jafnt
vægi atkvæða og persónukjör.
Þannig tókst í krafti nýrrar
stjórnar skrár að forða þrem slysum
fyrsta árið og leggja grunn að heil-
brigðara andrúmslofti og stjórn-
málalífi í landinu. n
Íslenzk andsaga„Lögreglan hélt að
sér höndum. Ómar
Ragnarsson var ekki
tekinn fastur.
Þorvaldur Gylfason
skrifar
Kjallari
Mynd SiGtryGGur Ari
Myndin Knattleikur á ís Nemar í MR nýta sér vetrarveðrið til þess að leika knattspyrnu á ísilagðri Tjörninni. Mynd SiGtryGGur Ari
Varð svo undrandi að ég
varð að deila fréttinni
Sigmundur davíð undrandi á fréttaflutningi Vísis. – DV.is
Þetta er þöggun á
mig sem persónu
Vigdís Hauksdóttir ósátt við að Blaðamannafélag Íslands. – Monitor
Ég er
góð díva
Selma Björnsdóttir slær í gegn í Spamalot. – DV
„Já, ég held að þetta leiði til klofnings
Úkraínu. Ég held að það sé víst.“
Rafn Baldur Gíslason
49 ára viðurkenndur bókari
„Ég hef það. Það getur eiginlega allt
skeð þarna, þetta er mjög eldfimt.“
Jóhann Smári Karlsson
52 ára ljósmyndari
„Mér finnst þetta frekar slæmt.“
Ólafur Andri Magnússon
17 ára nemi
„Já, ég hef það. Ég held það gerist
ekkert annað en það að Úkraína fer í
Evrópusambandið.“
Ragnar Magnússon
44 ára starfar við félagsþjónustu
„Ég hef nú lítið velt því fyrir mér. Ætli
maður hafi ekki áhyggjur af því.“
Ólafía Ragnarsdóttir
55 ára öryrki
Könnun
Hefur þú orðið
fyrir kynferðislegri
áreitni?
67,5%
32,5%
n Já n Nei