Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 17
Helgarblað 7.–10. mars 2014 Fréttir 17 Borgin varð af 300 milljónum n Dýrkeyptar tafabætur n Byggja sex hundruð íbúðir í Vatnsmýrinni R eykjavíkurborg skuldaði fasteignafélaginu Hlíðar­ fæti samtals 385 milljónir króna í tafabætur vegna frestunar sem urðu á fram­ kvæmdum félagsins á Hliðarenda­ svæðinu í Vatnsmýrinni. Þetta kemur fram í svari frá Reykja­ víkurborg við fyrirspurn DV um hversu miklar tafabætur borgin greiddi til félagisns. Hlíðarfótur er í eigu knattspyrnufélagsins Vals og einstaklinga og aðila sem tengjast því íþróttafélagi í gegnum hlutafé­ lagið Valsmenn ehf. Í vikunni var greint frá því að framkvæmdir á jörðinni eigi að hefjast næsta haust en fyrir liggur deiliskipulag um landsvæðið sem heimilar byggingu 60 þúsund fer­ metra íbúðarhúsnæðis á því. Um er að ræða um 600 íbúðir sem eiga að kosta á bilinu 25 til 30 milljarða króna, samkvæmt ársreikningi Hlíðarfótar fyrir árið 2012. Brynjar Harðarson er framkvæmdastjóri Valsmanna. Krafan notuð til skuldalækkunar Krafa Valsmanna var notuð til að lækka skuld félagsins við Reykja­ víkurborg vegna kaupa á Hlíðar­ endalandinu í fyrra. Þetta kem­ ur fram í samningi á milli Reykjavíkurborgar, Valsmanna hf. og Knattspyrnufélagsins Vals sem undirritaður var í fyrrasumar um fullnaðaruppgjör vegna fram­ kvæmdanna. Tafabætur kostuðu borgarbúa því umtalsverða fjár­ muni og kom ekkert í stað þeirra í fjárhirslur Reykjavíkurborgar. Í svari frá samskiptasviði Reykjavíkurborgar um tafabæturn­ ar kemur fram að þær hafi verið hluti af fullnaðaruppgjöri vegna kaupa Valsmanna á landinu af Reykjavíkurborg: „Samningur um fullnaðaruppgjör vegna allra fyrri samninga Reykjavíkurborgar, Vals­ manna og Knattspyrnufélagsins Vals var undirritaður 24. júní 2013. Í samningnum er sagt að með upp­ gjöri þessu falli niður allar aðrar kröfur Valsmanna hf. og Reykja­ víkurborgar vegna þessa máls í fyrri samningum aðila, þ.m.t. ógreiddar tafabætur og dráttarvaxtagreiðslur á þær, sem og allar verðbætur.“ Samningsbundnar tafabætur Valsmenn ehf. keyptu landið af Reykjavíkurborg árið 2005 og hugði félagið á mikla uppbyggingu á svæðinu. Kaupverð landsins var ríflega 870 milljónir króna, ríflega 1.500 milljónir króna á verðlagi dagsins í dag. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og þáverandi borgar­ stjóri í Reykjavík, segir að hún hafi skrifað undir samninginn fyrir hönd borgarinnar. „Já, ég gerði það. Ég man vel eftir því.“ Í samingi Reykjavíkurborgar og Valsmanna frá því í apríl 2006 kemur skýrt fram að tafabætur upp á 10 milljónir króna skuli greið­ ast fyrir hvern mánuð sem fram­ kvæmdirnar við uppbygginguna á svæðinu tefjist vegna seinkun­ ar á gerð lóðarleigusamnings eða deiliskipulags. Steinunn Valdís segist hins vegar ekkert hafa komið samn­ ingsgerðinni sjálfri, líkt og eðlilegt er þar sem slíkt er yfirleitt í verka­ hring embættismanna sem starfa innan borgarkerfisins. Hún ber því ekki ábyrgð á tafabótunum þótt hún hafi skrifað undir samninginn fyrir hönd Reykjavíkurborgar. DV hefur ekki heimildir fyrir því hver það er hjá Reykjavíkurborg sem ber ábyrgð á því að tafabæturnar voru settar inn í samninginn. Framkvæmdirnar drógust Framkvæmdir á svæðinu drógust hins vegar miklu lengur en forsvarsmenn Hlíðarfótar ætluðu þar sem Reykjavíkurborg bað um að uppbyggingu á svæðinu yrði frestað. Þessi frestun setti strik í reikninginn fyrir félagið sem hafði greitt borginni 500 milljónir króna af tæplega 900 milljóna kaup­ verði jarðarinnar árið 2005. Vals­ menn skulduðu Reykjavíkurborg því nærri 400 milljónir, nánar til­ tekið 372, í kjölfar viðskiptanna. Á verðlagi dagsins í dag nemur þessi skuld nærri 650 milljónum króna. Sökum þess að Valsmenn höfðu gert verulegar fjárhagslegar skuld­ bindingar vegna kaupanna á landinu voru tafabæturnar greidd­ ar. Samningarnir sem Reykja­ víkurborg gerði við forsvarsmenn Hlíðarfótar og Valsmanna komu sér illa fyrir borgina af því þeir stóðust ekki og borgin þurfti að greiða bætur vegna þessa. Skuldaði Reykjavíkurborg tæpan milljarð Í ársreikningi Hlíðarfótar fyrir árið 2012 kemur fram að skuld félags­ ins við Reykjavíkurborg hafi numið tæplega 935 milljónum króna í lok þess árs. Sú skuld var tilkom­ in vegna samkomulags sem félag­ ið gerði vegna kaupanna á landinu 2006 og 2007. Á móti þessari skuld átti félagið kröfu á borgina vegna umræddra tafabóta sem leiddi til lækkunar á kröfunni. Í samkomulaginu um loka­ uppgjör á milli Valsmanna og Reykjavíkurborgar kemur fram að heildargreiðslan sem Valsmenn eigi að greiða til borgarinnar sé 605 milljónir króna. Þetta er 330 millj­ ónum krónum minna en bókfærð skuld dótturfélags Valsmanna, Hlíðarfótar ehf., við borgina í lok árs 2012. Tafabæturnar hafa því verið notaðar til skuldajöfnunar í viðskiptunum. Tafabæturnar leiddu því til þess á endanum að Valsmenn þurftu að borga ríflega þriðjungi minna fyrir Hlíðarenda­ landið en félagið hefði annars þurft að gera. n Engar hótanir en óljós skilaboð frá ESB afgreidd snýr að strangari kröf­ um um hámark kadmíum í fosfór­ áburði. „Í skýrslu utanríkisráðu­ neytisins frá apríl 2013 kemur fram að Evrópusambandið hafi fallist á að Ísland héldi strangari hámarksgildum fyrir kadmíum í fosfóráburði,“ segir í viðauka II með skýrslu Hagfræðistofnunar. Krafa Íslands um sérlausn í mál­ inu byggði á lýðheilsusjónarmið­ um og sérstökum aðstæðum í jarðvegi og búskaparháttum á Ís­ landi. n 18. febrúar 2014 Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skilar utanríkis- ráðherra skýrslu sinni. 21. febrúar 2014 Stjórnarflokkarnir sam- þykkja að styðja tillögu utanríkisráðherra um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 5. mars 2014 Meira en 45 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun á Alþingi að setja málið í þjóðaratkvæði. Funduðu Sigmundur Davíð hefur fundað með Jose Manuel Barosso, forseta fram- kvæmdastjórnar ESB. Afsláttur vegna tafabóta Vals- menn hf. fengu ríflega 300 milljóna afslátt frá Reykjavíkurborg vegna þess að borgin náði ekki að standa við gerða samninga um fasteignauppbygginu á Hlíðarendasvæðinu. Mynd HöRðuR SveinSSon ingi Freyr vilhjálmsson ingi@dv.is Stjórnarformaðurinn Grímur Sæmunds- son er stjórnarformaður Hlíðarfótar og einn af aðstandendum Valsmanna hf. Mynd SRpHoto Skrifaði undir fyrir borgina Steinunn Valdís Óskarsdóttir skrifaði undir samn- inginn við Valsmenn árið 2006 en hún var borgarstjóri í Reykjavík árin 2004 til 2006. Mynd BRAgi ÞóR JóSeFSSon „Já ég gerði það, ég man vel eftir því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.