Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 40
Helgarblað 7.–10. mars 201440 Lífsstíll
Dagur kynþokkafyllstur
Kynþokki er kannski ekki
það fyrsta sem við tengj-
um við íslenska pólitík en
þegar að er gáð kemur
í ljós að íslenskir stjórn-
málamenn eru upp til
hópa löðrandi í kynþokka.
DV leitaði til rúmlega
20 álitsgjafa í leitinni að
kynþokkafyllstu stjórn-
málamönnunum. Katrín
Jakobsdóttir, Árni Páll
og Dagur B. Eggertsson
háðu hetjulega baráttu
um efsta sætið en það
var Dagur sem stóð uppi
að lokum sem kynþokka-
fyllsti pólitíkusinn. Dagur
þykir með óaðfinnanlegt
hár, blíðlegur og fullur af
sjálfsöryggi.
n Álitsgjafar völdu kynþokkafyllstu stjórnmálamenn landsins
1 Dagur B. Eggertsson
„Með svo fínt hár og snyrtilegt skegg/rót. Lítur alltaf vel út, líka í
roki. Berst með hjartanu fyrir borginni og örugglega fjölskyldunni
líka. Sérstaklega heitur þegar hann setur upp svuntu og skellir í
vöfflur.“
„Bjarni Ben VARÐ að fara út af listanum og Dagur B. verður að vera
inni. Á það skilið eftir alla vinnuna við lúkkið í gegnum árin!“
„Eitthvað svo leyndardómsfullur. Myndarlegur og vel klæddur.
Hárið og skeggið gera hann sérstaklega kynþokkafullan.“
„Voða sætur en minnir pínu á lítinn bangsa. Hálfgerður Gizmo með
fallegar súkkulaðikrullur. Ekki beint ímynd kynþokka en samt
langsætastur af þessu liði í borgarstjórn.“
„Læknir, fagur, vel máli farinn. Með óaðfinnanlegt hár. Vinur
pöpulsins. Eins og skeljakonfektið í kössunum frá Nóa sem maður
bíður eftir að borða einu sinni á ári, á jólunum – en er alltaf biðar-
innar virði.“
„Það keppir enginn við þetta hár sem hann ber á höfðinu. Svo
skemmir auðvitað ekki fyrir að hann er klár og honum er trúandi
þegar hann talar.“
„Eins og gott rauðvín, verður bara myndarlegri með aldrinum.“
„Augnakonfekt. Lúkkar mjög blíðlegur.“
„Með gráu hárunum hefur Dagur þroskast frá barns-
legum hroka yfir í kynþokkafullt sjálfsöryggi. Skeggið,
grásprengda hárið, og sú staðreynd að Dagur er
læknir – hefur skapað kynþokkafyllsta stjórn-
málamann landsins.“
„Hárið maður!“
3 Katrín Jakobsdóttir
„Stendur upp úr.“
„Frábær frá náttúrunnar hendi, klár
og samkvæm sjálfri sér. Það er ekki
til neitt meira sjarmerandi en það
„kombó“ í stjórnmálum.“
„Gáfur eru sexí. Katrín er líka sæt og
örugg með sig.“
„Sjálfsörugg og flott kona. Kemur vel
fyrir sig orði og lætur ekki vaða yfir
sig. Það er virkilega kynþokkafullt.“
„Það ríkir mikill klassi yfir
Katrínu Jakobs. Henni líður vel í
eigin skinni. Það er sexí!“
„Kata Jak er einlæg og trú sjálfri
sér. Hún er falleg og frábær.“
„Klár og málefnaleg.“
„Með náttúrulega fallega
útlit. Þarf ekki að mála sig en
þegar hún gerir það þá er hún
stórglæsileg.“
2 Árni Páll Árnason
„Með rétta augnaráðið. Fullt hús
stiga. Annars eru þingmenn í raun
algjör andstæða við kynþokka.“
„George Clooney-týpa. Töffari sem
ætti að prufa leiklistina.“
„Ber af þegar hann er með skegg.
Gott dæmi um þegar skeggið er orðið
svona stór hluti af útliti einstaklings.“
„Bara ef hann hefur skegg.“
„Halló, þetta tan! Lítur alltaf út
fyrir að vera nýkominn frá Kanarí,
sólbrúnn og sællegur. Tanið setur
punktinn yfir i-ið í kynþokka Árna
Páls. Rjóminn á ísnum. Fölur og fár
væri hann allt annar maður.“
„Er smátt og smátt að verða bara
kyn „icon“. Eldist eins og gott
rauðvín.“
„Alltaf svo brúnn og útitekinn. Ber
með sér þokka og hreysti.“
„Kynþokkafyllsti pólitíkusinn á
Íslandi. Hefur allt sem öskrar á
mann: kynþokki. Lokkandi augnaráð,
seiðandi rödd. Sannfærandi
hugmyndir og snoppufrítt
andlit.“
„Með falleg augu og
kvikmyndastjörnu-
útlit en passar
ekki alltaf hvað
lætur út úr sér.
Ljóskan í hópnum, snyrtip-
inni. Best klæddi þing-
maðurinn. Virðist leggja
mikið upp úr útliti sínu.
Bræðir hjörtu kvenna
þegar hann birtist
á sjónvarpsskján-
um.“
Álitsgjafar
Ásdís Rán Gunnarsdóttir athafnakona
Anna Garðarsdóttir knattspyrnukona
Arnar Grant líkamsræktarkóngur
Ágúst Bjarnason kvikmyndaframleiðandi
Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður
Björk Eiðsdóttir blaðamaður
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir stílisti
Erla Tryggvadóttir viðskiptastjóri
Gassi Ólafsson ljósmyndari
Garðar Gunnlaugsson knattspyrnumaður
Gréta Mjöll Samúelsdóttir söngkona
Hafdís Heiðarsdóttir athafnakona
Jóhanna Erla hönnuður
Kristín Ýr Bjarnadóttir rappari
Kristín Ýr Gunnarsdóttir fjölmiðlakona
Lilja Katrín Gunnarsdóttir fjölmiðlakona
Oddný J. Zophaníasar hárgreiðslumeistari
Margrét Erla Maack fjölmiðlakona
Ragna Björg Einarsdóttir knattspyrnukona
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður
Þórey Edda Elísdóttir íþróttakona