Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 58
58 Menning Sjónvarp Helgarblað 7.–10. mars 2014 Kaupstaðarlyktin N ýlega stefndi ég inn í síð- degisumferðarösina í Reykjavík og fann hvern- ig lífstaktur borgarinn- ar hóf að trappa sig upp og streitustuðulinn innra með mér í leiðinni. Ég var að koma úr heim- sókn í heimabæinn minn þar sem lífstakturinn er allur miklu hægari. Svo hægur að þér finnst lífið stund- um standa í stað samanborið við upptakt borgarinnar. En þá keyrði ég fram hjá og tengdi við ákveðinn stað sem sendi mig rúmlega tvo áratugi aftur í tímann í huganum. Þetta er svosem ómerkilegur staður í hugum flestra. Rétt áður en þú kemur að umferð- arljósunum á gatnamótum Miklu- brautar og Grensásvegar. Þar lagði að vitum mér ákveðin lykt sem ég tengi alltaf við Reykjavík. Í mínum huga er þetta ilmur Reykjavíkur, höfuðborgarinnar. Svona svipað og maður finnur þegar maður stígur út úr flugstöð í útlöndum. Þar gengur þú á vegg, þar mætir þér „útlanda- lyktin.“ Þeir sem ferðast mikið tala jafnvel um að hver borg eigi sér sína einstöku lykt. En í eitt augnablik varð ég barn- ungur í aftursæti gamallar grænnar Mözdu. Mér á hægri hönd sat syst- ir mín. Í farþegasætinu frammí sat mamma og pabbi sá um að keyra. Þetta var mörgum árum fyrir tíma Hvalfjarðarganganna. Þá var það ekki skottúr að fara til Reykjavík- ur. Það var ákveðin seremónía. Það var raunveruleg kaupstaðar- ferð sem ekki var farið í nema eitt- hvað stæði til. Fjölskyldan frá Akra- nesi fór í betri fötin, hafði sig til og lagðist síðan í langferð um Hval- fjörðinn. Þegar þú ert lítill þá eru all- ar vegalengdir afstæðar. Þessi rúm- lega klukkutímakeyrsla var eins og hálfur dagurinn í mínum unga huga. Vegurinn var verri en hann er í dag, bílarnir slakari og allt hjálpaði þetta til við að lengja ferðina í bland við óþreyju æskunnar. Þetta hefði allt eins getað verið vikuferðalag fyr- ir lítinn dreng. Á leiðinni út úr bæn- um var komið við í Olís og keyptar vistir fyrir langferðina. Svalafernur, Coke og Ópal til að maula á. Oftast rauður, stundum grænn. En alltaf man ég þegar ég vissi nákvæmlega hvenær við vorum komin til Reykjavíkur. Þó það væri ákveðinn tímapunktur, ákveðin hæð sem maður ók yfir á leiðinni þar sem maður sá loks glitta í borgina þá var enn umtalsverður spotti eft- ir. Sérstaklega á afllítilli gamalli, grænni Mözdu. Þá var ákveðin vís- bending um að nú værum við „aal- veg að koma“ þegar ég starði út um gluggann og sá „flöskuhúsið.“ Það var alltaf jafn mergjað. Risastórar Malt- og límonaðiflöskur utan á því. „Þarna búa þeir til Appelsínið“ var mér sagt og alltaf ímyndaði ég mér að flöskurnar væru fullar af gosi. En nei, við vorum ekki komin til Reykjavíkur fyrr en á þessum hvers- dagslega ómerkilega stað. Rétt áður en komið er að gatnamótum Miklu- brautar og Grensásvegar. Sterkan ilm lagði yfir allt. Það var brauða- og kökulyktin frá verksmiðju Myll- unnar í Skeifunni. Hún er þarna enn þann dag í dag. Verksmiðjan og lyktin. Í framhaldinu keyrðum við framhjá Kringlunni og stóra „fokkjúputtahúsinu“ og voru þessi kennileiti hin eiginlega Reykja- vík í mínum huga. Þessi stein- steypufrumskógur með stóru flottu byggingarnar þar sem hægt var að fá öll bestu leikföngin sem sagðar voru sögur af á leikvöllunum. Ég tek ekki alltaf eftir bakara- lyktinni frá Myllunni í hinu dag- lega amstri, hvað þá nú þegar ég hef búið í Reykjavík í mörg ár. En hún er þarna enn og hún minnir mig alltaf á að þó ég eigi nú heima þarna, þá er ég ekki „heima.“ n „ Í mínum huga er þetta ilmur Reykjavíkur, höfuð- borgarinnar. Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport N ý sjónvarpsstöð fór í loftið í vikunni. Stöðin ber nafnið Bravó og það er hið Konung- lega kvikmyndafélag sem á stöðina. Þar er einnig unnið að undirbúningi að opnun annarrar stöðvar, Miklagarðs, sem fer í loftið á næstu vikum. Bravó mun leggja áherslu á skemmtiefni og er ætlað yngri aldurshópum. Skemmtikraftur- inn vinsæli Pétur Jóhann Sigfús- son stýrir kvöldþætti á stöðinni en þátturinn ber nafn Péturs og er á dagskrá öll virk kvöld klukkan 22.30 og er í anda Late Night Show-þátt- anna sem njóta vinsælda vestan- hafs. Unnur Eggertsdóttir, sér um þátt- inn Bravó fréttir ásamt Sigurbirni Ara Sigurbjörnssyni.Salka Sól Og Ómar Eyþórsson stýra þættinum Bravó í beinni alla virka daga milli 16 og 18. Stöðin kemur til með að bera stökk- pallur fyrir ungt fólk sem vill stíga sín fyrstu spor í sjónvarpsheiminum. Bravó er á rás 11 hjá Símanum og 22 hjá Vodafone. Einnig á HD rás 522 hjá Vodafone. n Konunglega kvikmyndafélagið tekið til starfa Bravó komin í loftið Sunnudagur 9. mars Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (19:26) 07.04 Háværa ljónið Urri (8:52) 07.14 Tillý og vinir (19:52) 07.25 Múmínálfarnir 07.35 Hopp og hí Sessamí 08.00 Ævintýri Berta og Árna 08.05 Sara og önd (23:40) 08.15 Kioka 08.22 Kúlugúbbarnir (14:20) 08.45 Hrúturinn Hreinn (3:20) 08.52 Disneystundin (9:52) 08.53 Finnbogi og Felix (9:26) 09.15 Sígildar teiknimyndir 09.22 Herkúles (9:21) 09.45 Skúli skelfir (20:26) 09.55 Undraveröld Gúnda 10.08 Chaplin (35:52) 10.15 Melissa og Joey (1:15) 10.35 Þrekmótaröðin 2013 11.00 Sunnudagsmorgunn 12.10 Grínistinn 888 e (1:4) 12.55 Aldamótabörnin e (2:2) (Child of our Time 2013) 13.55 Vetrarólympíumót fatlaðra 15.40 Leiðin á HM í Brasilíu (2:16) e 16.10 Boxið e 17.10 Táknmálsfréttir 17.21 Stella og Steinn (3:10) 17.33 Friðþjófur forvitni (3:9) 18.00 Stundin okkar 888 18.25 Innlit til arkitekta í útlöndum – Julien De Smedt (1:3) 19.00 Fréttir 19.20 Veðurfréttir 19.25 Íþróttir 19.40 Landinn 888 20.10 Brautryðjendur 888 (5:8) (Margrét Guðnadóttir) 20.40 Erfingjarnir 7,8 (10:10) (Arvingerne) Dönsk þátta- röð um systkini sem hittast eftir margra ára aðskilnað. Í aðalhlutverkum: Trine Dyrholm, Jesper Christen- sen, Maria Bach Hansen og Carsten Björnlund. 21.40 Afturgöngurnar (4:8) (Les Revenants) Dulmagnaðir spennuþættir sem hlutu alþjóðlegu Emmy-verðlaunin sem besti leikni myndaflokk- urinn í nóvember á síðasta ári. Einstaklingar sem hafa verið taldir látnir til nokkurs tíma, fara að dúkka upp í litlu fjallaþorpi eins og ekkert hafi í skorist. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 22.35 Saga úr vesturbænum 7,7 (West Side Story) Einn af hornsteinum bandarískrar söngleikjasögu frá árinu 1961 sem sópaði til sín 10 Ósk- arsverðlaunum árið eftir. Tvö ungmenni úr stríðandi götu- fylgingum New York borgar verða ástfangin og þurfa að leita leiða til að ná saman. Meðal leikara: Natalie Wood, George Chakiris og Richard Beymer. 01.00 Sunnudagsmorgunn 02.10 Útvarpsfréttir 08:30 FA bikarinn 10:10 Spænski boltinn 2013-14 11:50 FA bikarinn 17:55 Spænski boltinn 2013-14 20:00 FA bikarinn 21:40 Dominos deildin 22:10 FA bikarinn 01:30 Spænski boltinn 2013-14 11:20 Premier League World 11:50 Match Pack 12:20 Enska B-deildin 14:30 Premier League 2013/14 17:50 Premier League 2013/14 19:30 Enska B-deildin 21:10 Premier League 2013/14 22:50 Premier League 2013/14 07:30 I Am Sam 09:40 One Fine Day 11:25 Parental Guidance 13:10 Scoop 14:45 I Am Sam 16:55 One Fine Day 18:40 Parental Guidance 20:25 Scoop 22:00 After the Sunset 23:40 The Resident 01:15 Platoon 03:15 After the Sunset 15:20 H8R (7:9) 16:00 Þriðjudagskvöld með Frikka Dór 16:30 Amazing Race (2:12) 17:15 Men of a Certain Age (3:12) 17:55 Offspring (12:13) 18:40 The New Normal (16:22) 19:00 Bob's Burgers 19:25 American Dad 19:45 The Cleveland Show(6:22) 20:10 Unsupervised (8:13) 20:30 Brickleberry (8:10) 20:55 Dads (17:18) 21:15 The League (2:13) 21:40 Deception (1:11) 22:25 The Glades (10:13) 23:05 The Vampire Diaries (4:22) 23:50 Bob's Burgers 00:15 American Dad 00:35 The Cleveland Show(6:22) 01:00 Unsupervised (8:13) 01:20 Brickleberry (8:10) 01:45 Dads (17:18) 02:05 The League (2:13) 02:30 Deception (1:11) 18:10 Strákarnir 18:35 Friends (3:25) 19:00 Seinfeld (13:24) 19:25 Modern Family 19:50 Two and a Half Men (4:24) 20:15 Viltu vinna milljón? 21:00 Game of Thrones (7:10) 22:00 Krøniken (18:22) 23:00 Ørnen (18:24) 00:00 Ally McBeal (19:23) 00:45 Viltu vinna milljón? 01:30 Game of Thrones (7:10) 15:30 Stormað um Hafnarfjörð 16:00 Hrafnaþing 17:00 Stjórnarráðið 17:30 Skuggaráðuneytið 18:00 Árni Páll 18:30 Tölvur,tækni og kennsla 19:00 Fasteignaflóran 19:30 Á ferð og flugi 20:00 Hrafnaþing 21:00 Auðlindakistan 21:30 Suðurnesjamagasín 22:00 Hrafnaþing 23:00 Tíska.is 23:30 Eldað með Holta 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Waybuloo 07:21 Strumparnir 07:45 Ævintýraferðin 08:00 Algjör Sveppi 09:35 Barnatími Stöðvar 2 09:55 Tom and Jerry 10:05 Victorious 10:30 Nágrannar 10:50 Nágrannar 11:10 Nágrannar 11:30 Nágrannar 11:50 Nágrannar 12:15 60 mínútur (22:52) 13:00 Mikael Torfason - mín skoðun 13:50 Spaugstofan 14:15 Spurningabomban 15:05 Heimsókn 15:30 Heilsugengið 16:00 Um land allt 16:35 Léttir sprettir 17:10 Geggjaðar græjur 17:30 Ísland Got Talent 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (28:50) 19:10 Sjálfstætt fólk (25:30) 19:45 Ísland Got Talent 20:35 Mr. Selfridge 21:20 The Following 7,7 (7:15) Önnur þáttaröðin af þessum spennandi þáttum en síðasta þáttaröð endaði í mikilli óvissu um afdrif fjöldamorðingjans Carroll einnig hvað varðar sögu- hetjuna Ryan Hardy. Eitt er víst að nýtt illmenni verður kynnt til leiks í þessari þáttaröð en það er ekki þar með sagt að Joe Carroll hafi sungið sitt síðasta. Nýr sértrúarsöfnuður er að myndast og leiðtogi hóps- ins er jafnvel hættulegri en Carroll. 22:05 Banshee 8,3 (9:10) Önnur þáttaröðin um hörku- tólið Lucas Hood sem er lögreglustjóri í smábænum Banshee. 23:00 60 mínútur (23:52) Glænýr þáttur í virtustu og vinsælustu fréttaskýringa- þáttaröð í heimi þar sem reyndustu fréttaskýrendur Bandaríkjanna fjalla um mikilvægustu málefni líðandi stundar og taka einstök viðtöl við heims- þekkt fólk. 23:45 Mikael Torfason - mín skoðun 00:35 Daily Show: Global Edition 01:00 Nashville (9:22) 01:45 True Detective (7:8) 02:45 American Horror Story: Asylum (8:13) 03:30 Mad Men (10:13) 04:20 The Untold History of The United States (10:10) 05:20 Fréttir 11:45 Dr. Phil 12:25 Dr. Phil 13:05 Dr. Phil 13:45 Once Upon a Time (9:22) 14:30 7th Heaven (9:22) 15:10 Family Guy (19:21) 15:35 90210 (9:22) 16:15 Made in Jersey (6:8) 17:00 Parenthood (9:15) 17:45 The Good Wife 8,2 (4:22) Þessir margverðlaunuðu þættir njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda SkjásEins. Það er þokkadís- in Julianna Marguilies sem fer með aðalhlutverk í þátt- unum sem hin geðþekka eiginkona Alicia sem nú hefur ákveðið að yfirgefa sína gömlu lögfræðistofu og stofna nýja ásamt fyrr- um samstarfsmanni sínum. 18:35 Friday Night Lights (8:13) 19:15 Judging Amy (6:23) 20:00 Top Gear Special: The Worst Car in the History of the World 21:15 Law & Order (5:22) Spennandi þættir um störf lögreglu og saksóknara í New York borg. Spilltir menn innan lögregluliðs í smábæ virðast bera ábyrgð á því þegar ferðamaður deyr. 22:00 The Walking Dead 8,7 (10:16) Þættir sem hafa slegið öll fyrri áhorfsmet áskriftarstöðva í Banda- ríkjunum. Rick Grimes og félagar þurfa að glíma við uppvakninga utanfrá og svikara innanfrá í þessum hrollvekjandi þáttum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma. 22:45 The Biggest Loser - Ísland (7:11) 23:45 Elementary (9:24) Sher- lock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. Síðustu þáttaröð lauk með því að unnusta Sherlocks, Irine Adler var engin önnur en Moriarty prófessor. Ótrúleg flétta fer í gang sem hefst með því að ung kona fyrirfer sér. 00:35 Scandal (8:22) 01:20 The Bridge (9:13) 02:00 The Walking Dead (10:16) 02:45 The Tonight Show 03:30 Beauty and the Beast (20:22) 04:10 Pepsi MAX tónlist Pétur Jóhann Grínistinn góðkunni stýrir skemmtiþætti á Bravó. MyND HEIDAH@BIRTINGUR.IS MyND SIGTRyGGUR ARI Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Helgarpistill Barnakvikmyndahátíð Ætlað vekja áhuga hjá börnum á kvikmyndum A lþjóðleg barnakvikmynda- hátíð í Reykjavík 2014 verður haldin dagana 20.– 30. mars. Hátíðin er haldin í annað sinn en hún var vel sótt í fyrra. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Bíó Paradís sem stendur fyrir hátíðinni þá er hlutverk barna- kvikmyndahátíðarinnar að veita börnum, unglingum og fjölskyld- um þeirra aðgang að barna- og unglingakvikmyndum sem hlot- ið hafa viðurkenningar um allan heim. Með hátíðinni er takmark- ið líka að vekja áhuga hjá börn- um á kvikmyndum og kvikmynda- menningu og stuðla að tengslum við líf og umhverfi annarra barna víða um heim. „Um er að ræða afar mikilvægan menningarviðburð, sem eflir kvikmyndalæsi barna og unglinga, og aðgengi að alþjóðleg- um gæðakvikmyndum. Því er tæki- færi fyrir alla fjölskylduna að koma á metnaðarfulla viðburði og njóta dagskrár í hæsta gæðaflokki. Hátíð- in vinnur að því að breyta einsleitu og fábrotnu úrvali sem áður hefur verið í boði á Íslandi og var gríðar- lega vel tekið á fyrsta starfsárinu 2013,“ segir í tilkynningunni. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.