Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 12
Helgarblað 7.–10. mars 201412 Fréttir F ullyrðingar Sigmundar Dav- íðs Gunnlaugssonar forsætis- ráðherra um að styrkveitingar ráðuneytis hans til ýmissa verkefna á landsbyggðinni, séu í samræmi við það sem gerðist í tíð síðustu ríkisstjórnar eiga ekki við rök að styðjast. Sigmundur sagði í Kastljósi á þriðjudag að um væri að ræða lið á fjárlögum sem búinn var til á síðasta kjörtímabili, og heyrði undir ráðherranefnd um atvinnu- mál. Þá sagði hann að styrkjunum hefði verið úthlutað á „nákvæmlega sama hátt“ og á síðasta kjörtímabili. Ýmsir hafa leiðrétt þessi ummæli Sigmundar Davíðs undanfarna daga, þar á meðal Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra. Ráð- herranefnd um atvinnumál fór eft- ir mjög stífum reglum við úthlutun fjárframlaga. Ekki fæst séð að for- sætisráðherra hafi fylgt þeim reglum við úthlutun styrkjanna. Gamaldags vinnubrögð Oddný G. Harðardóttir var formaður fjárlaganefndar árið 2011. Nefndin fór í gagngera endurskoðun á út- hlutun slíkra styrkveitinga árið 2011 með það að markmiði að auka gegn- sæi. „Orðrómur um að þingmenn væru að hygla sínu fólki og sínum kjördæmum sérstaklega var orðinn hávær. Ég gat ekki viðhaldið þessari vitleysu og mikill meirihluti nefndar- innar var sammála mér og með sam- eiginlegu átaki gátum við komið þessum málum í betra horf,“ segir hún í samtali við DV. Útgangspunkturinn hafi verið að fjárlaganefnd og fagnefndir gerðu tillögur um umfang einstakra fjár- lagaliða en sjóðir, félagasamtök, menningarráð landshluta, vaxtar- samningar sveitarfélaga og ráðu- neyti sæju um dreifingu til einstakra verkefna eftir ákveðnum viðmið- um. Óljós svör forsætisráðherra við skriflegri fyrirspurn á Alþingi eru ástæðan fyrir því að fjórir þingflokk- ar stjórnarandstöðunnar hafa óskað eftir rannsókn og skýrslu frá Ríkis- endurskoðun vegna óljósrar „stjórn- sýslu og ógagnsæi við úthlutun opin bers fjár“. Í svörum Sigmundar kemur fram að ný skrifstofa menningararfs komi að styrkveitingunum. Hún hafi hins vegar ekki tekið til starfa fyrr en 1. febrúar og að enn sé unnið að stefnumótun. Af svarinu fæst ekki séð að búið sé að setja verklags- reglur um það á hvaða forsendum styrkirnir eru veittir. „Mér sýnist Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson vera að taka upp gamaldags vinnubrögð sem fjárlaganefnd hefur hafnað,“ segir Oddný í samtali við DV. Óhefðbundnar aðferðir Styrkirnir, sem Sigmundur veitti sjálfur eftir að hann færði „þjóð- menningu“ undir forsætisráðu- neytið, nema alls 205 milljónum króna en þar af fóru 97 milljónir í Norðausturkjördæmi, heimakjör- dæmi Sigmundar. Styrkveitingarn- ar hafa verið með óhefðbundnu og heldur óformlegu sniði en það hefur meðal annars verið gagnrýnt að þær hafi hvergi verið auglýstar. Svo virðist sem það sé undir ráð- herra sjálfum komið hvaða verk- efni fá styrki. Eins og rakið hefur verið hvatti Sigmundur Davíð for- seta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar til þess að sækja um styrki hjá ráðu- neytinu á fundi framsóknarmanna sem snerist um störf flokksins. Þá veitti hann Fljótsdalshéraði fimm milljóna króna styrk úr ríkiskass- anum með SMS-skilaboðum til for- seta bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, án þess þó að nokkur umsókn hefði verið lögð fram. Í skriflegu svari Sigmundar Dav- íðs við fyrirspurn Brynhildar Péturs- dóttur, þingmanns Bjartrar framtíð- ar, varðandi styrkveitingarnar kemur meðal annars fram að þær hefðu byggt á „fyrirliggjandi gögnum“ en ekkert kemur fram varðandi hvaða gögn er átt við. Ráðherrann svar- ar því ekki hvaða skriflegu verklags- reglur séu í gildi í ráðuneytinu um úthlutun styrkjanna en bendir á að skrifstofa menningararfs vinni „nú að stefnumótun“ án þess þó að farið sé nánar út í það. Fyrrverandi ráðherrar leiðrétta Eins og fyrr segir vísaði Sigmund- ur Davíð til þess í Kastljósviðtalinu að um væri að ræða lið á fjárlögum sem heyrði undir ráðherranefnd um atvinnumál. Ráðherranefnd þessi fór eftir mjög stífum reglum við út- hlutun fjárframlaga. Fagnefndir á vegum ráðuneyta fóru yfir verkefn- in. Þá var farið yfir þau í ráðherra- nefnd um atvinnumál þar sem fjórir ráðherrar áttu sæti auk embættis- manna og fagfólks úr ráðuneytun- um fjórum. Ráðherranefndin bar síðan ákvörðun sína undir ríkis- stjórn en hvert einasta verkefni sem styrkt var fór í gegnum þessar síur. „Fór Sigmundur Davíð Gunn- laugsson eftir þessu ferli og eftir þeim reglum og viðmiðum sem ráð- herranefndin fór eftir? Ekki er það að sjá á svari hans við fyrirspurn- um frá þingmönnum,“ segir Oddný. Jóhanna Sigurðardóttir hrakti um- mæli Sigmundar á Facebook í vik- unni. „Forsætisráðherra segir að styrkveitingar nú séu í samræmi við stjórnsýslu fyrri ríkisstjórnar. Ekki er það nú svo. […] Um styrkveitingar fyrri ríkisstjórnar voru settar ítar- legar reglur um framkvæmd og eftirlit með framgangi verkefna.“ Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver- andi formaður Vinstri grænna, tók í sama streng í samtali við fréttastofu RÚV. „Í fyrsta lagi voru mótaðar skýrar verklagsreglur um meðferð þessa fjár, strax á árinu 2012. Í öðru lagi voru verkefnin yfirleitt undir- búin í fagráðuneytunum, stund- um í samstarfi tveggja ráðuneyta eða fleiri. Í þriðja lagi gengu þannig undirbúnar tillögur til ráðherra- nefndar um atvinnumál, í henni sátu fjórir ráðherrar, og hún fjallaði um öll verkefni af þessu tagi, allar fjárveitingar.“ n Öflugum leysi- bendum fargað Tollverðir stöðvuðu nýverið sendingu sem innihélt 120 leysi- benda sem voru að styrk um- fram það sem leyfilegt er. Í til- kynningu frá tollstjóra kemur fram að sendingin hafi komið frá Taílandi samkvæmt pöntun héðan. Notkun leysibenda sem eru umfram 1 mW að styrk er háð leyfi Geislavarna ríkisins. Þar sem umræddir leysibendar voru umfram leyfileg mörk höfnuðu Geislavarnir umsókn um inn- flutning þeirra. Innflytjandi fór þá fram á að þeim yrði fargað, sem hefur nú verið gert. Tollstjóri minnir á að notkun ólöglegra leysibenda getur verið hættuleg eins og dæmin sanna. Upp hafa komið atvik, þar sem fólk hefur orðið fyrir skaða af völdum þeirra. Jafnframt tilvik þar sem hætta hefur skapast þegar leysibendum hefur verið beint að farartækjum til dæmis bílum og flugvélum. Geislavarn- ir ríkisins ráðleggja fólki að horfa ekki í blett sem öflugur leysi- bendir myndar, en endurvarpið sjálft getur valdið augnskaða. Þá bendir tollstjóri á að óheimilt er að nota öfluga leysibenda án leyf- is frá Geislavörnum ríkisins, auk þess sem tilkynna ber Geislavörn- um um innflutning þeirra. Ákærður fyrir að skera á háls Gísli Þór Gunnarsson, sem af- plánar nú tveggja og hálfs árs dóm í Stokkseyrarmálinu, er aft- ur fyrir dómi en hann er ákærður ásamt síbrotamanninum Jóni Einari Randverssyni, fyrir sér- staklega hættulegar líkamsárásir og fjársvik. Tvítug kona er einnig ákærð en hún hefur ekki hlotið refsidóm áður. Þremenningarnir settu auglýs- ingu um kynlífsþjónustu í dagblað, að því er segir í ákæru. 38 ára mað- ur svaraði auglýsingunni, og falað- ist eftir vændi, en Gísli Þór og Jón Einar reyndu að ræna hann eftir að hann hafði greitt konunni og særði Gísli Þór hann með hníf, að því að fullyrt er í ákæru. Fórnarlambið hlaut tvo skurði á hálsi, annar þeirra var þvert yfir hálsinn í átt að barkanum. Er um „sérstaklega hættulega líkamsárás,“ að ræða að mati ákæruvaldsins. Ræddu aukna samvinnu Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra fundaði síðdegis á miðvikudag með Alison Redford, forsætisráð- herra Alberta-fylkis í Kanada. Á fundinum voru ræddir möguleikar á aukinni sam- vinnu Íslands og Kanada, og Alberta-fylkis sérstaklega, í kjölfar beinna flugsamgangna, en Icelandair opnaði á mið- vikudag beina flugleið til Ed- monton, höfuðborgar fylkisins. Fór með rangt mál í Kastljósi Sigmundur Davíð sagði styrkveitingar í samræmi við vinnubrögð fyrri stjórnar ESB-ummælin hrakin Sagði skýrt að hlé á aðildar­ viðræðum væri ekki í boði Fleiri ummæli sem Sigmundur lét falla í Kastljósviðtalinu hafa verið hrakin á síð- ustu dögum. Hann sagði það vera skýra afstöðu af hálfu Evrópusambandsins að hlé á aðildarviðræðum væri ekki í boði, og að ríkisstjórnin yrði að taka afstöðu til þess hvort viðræðum yrði haldið áfram eða umsókn Ísland dregin til baka. Þetta hefur síðustu daga verið hrakið af talsmönnum Evrópusambandsins. Peter Stano, talsmaður Stefans Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sagði þetta rangt í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. Evrópusambandið hefði ekki sett nein föst tímamörk í þessum efnum. Vísaði hann til orða Füle, þar sem hann sagði að slíkt væri undir stjórnvöld- um á Íslandi komið. Þá sagði Stano að allri annarri túlkun á orðum stækkunar- stjóra sé hafnað, sem og að þau séu sett í annað samhengi en það sem þau voru látin falla í. Matthias Brinkmann, sendi- herra Evrópusambandsins á Íslandi, sagði ákvörðunina algjörlega undir íslenskum stjórnvöldum komna. Það vakti einnig athygli þegar Sigmundur opinberaði í viðtalinu að hann hefði skrifað undir bréf sem sent var í hans nafni á framsóknarmenn árið 2009, þrátt fyrir að innihald þess hafi farið þvert gegn sannfæringu hans. „Ég skrifaði ekki þetta bréf og hefur þetta aldrei verið mín afstaða,“ sagði Sigmundur en í bréfinu var stefna Framsóknarflokksins í Evrópu- málum rakin. Þar kom fram að það væri rangt að kröfur um óskorað forræði yfir auðlindum þjóðarinnar myndu hamla því að af aðildarsamningi gæti orðið. Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Gamaldags vinnubrögð“ Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður fjárlaganefndar, segir útlit fyrir að forsætisráðherra sé að taka upp „gamaldags vinnubrögð“. „Mér sýnist Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vera að taka upp gamaldags vinnubrögð sem fjár­ laganefnd hefur hafnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.