Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 24
24 Fréttir Erlent Helgarblað 7.–10. mars 2014
LitLa kaLda stríðið í Úkraínu
n spennan í Úkraínu gæti breyst í stríð n Bræðraþjóðir gegn hvor annarri n Úkraína gjaldþrota og nýir valdhafar eru sestir á valdastóla n Hermenn Pútíns segjast vera frá Mars
n
ýir valdhafar eru sestir á
valdastóla í Kænugarði
(Kiev) í Úkraínu, eftir ein
mestu mótmæli í Evrópu
í langan tíma. Þeim lauk
með því að forseti landsins, Viktor
Janúkóvits, hrökklaðist frá völdum
og flúði land. Í kjölfar þess réðust
ómerktar hersveitir frá Rússlandi
inn á Krímskaga, til þess að „vernda
rússneska hagsmuni og borgara,“
eins og það heitir.
Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur lýst aðgerðinni sem
„mannúðaraðgerð“ en fáar frá-
sagnir er að finna fjölmiðlum um
að Rússum á Krímskaga hafi verið
ógnað af Úkraínumönnum. Enginn
veit í raun hvaða hermenn Rússa er
um að ræða og í samtali við frétta-
konu sænska ríkissjónvarpsins,
sögðust þeir vera frá Mars! En þeir
sögðust engu að síður vera vanir
bardagamenn, sem hefðu barist í
Georgíu, Tsjetsjeníu og víðar! Hinn
flúni forseti hefur beðið Rússa um
að taka málin í sínar hendur. Utan-
ríkisráðherra Svía, Carl Bildt, hef-
ur í framhaldi af því kallað hann
„Kvisling“ það er að segja mann
sem vinnur með hersetuliði, eft-
ir hinum norska Vidkun Quisling,
sem vann með nasistum sem her-
námu Noreg í seinni heimsstyrjöld.
Gríðarleg spenna er í Úkraínu og
ný stjórn glímir við næstum óyfir-
stíganleg vandamál.
Forsætisráðherra
af gyðingaættum
Einn þeirra flokka sem komin er
til valda í Úkraínu er Frelsisflokk-
urinn (Svoboda). Flokkurinn fékk
stól varaforsætisráðherra og rík-
issaksóknara í sinn hlut, sem og
embætti varnarmálaráðherra.
Alls eru fjórir flokkar sem mynda
nýja ríkisstjórn Úkraínu og spurn-
ingin sem er aðkallandi núna
er hvort nýja stjórnin ræður við
ástandið, hvort henni tekst til
dæmis að fylkja landsmönnum
að baki sér. Svoboda-flokkurinn
er and-kommúnískur flokkur og
telst einnig vera þjóðernishyggju-
flokkur. Farið hefur það orð af
flokknum að þar rúmist einnig
einstaklingar sem hafa andúð á
gyðingum. Hinn nýi forsætisráð-
herra, Arseny Jatsenjúk, er einmitt
af gyðingaættum, en hann er úr
Föðurlandsbandalaginu, hinum
stóra stjórnar flokknum. Fróðlegt
verður því að sjá hvernig sambúð-
in mun ganga. Fulltrúar mótmæl-
enda fengu einnig sæti í stjórninni,
sem og flokkur óháðra.
Púðurtunna
Síðustu daga hefur verið rafmagn-
að andrúmsloft í Úkraínu vegna
aðgerða Rússa á Krímskaga og á
þriðjudag sagði Pútín Rússlands-
forseti að byltingin í Úkraínu væri
ekkert annað en ólögmætt valda-
rán, sem stæðist ekki stjórnar-
skrá landsins. Líkja má landinu
við púðurtunnu og eru menn aftur
byrjaðir að tala á kaldastríðsnót-
um, þegar stórveldin héldu uppi
ógnarjafnvægi í heimsmálunum í
krafti gríðarlega birgða kjarnorku-
vopna. Langt er síða álíka spenna
hefur ríkt á milli Vesturveldanna
og Rússlands og snýst málið að
mestu leyti núna um Krímskaga og
hagsmuni Rússa þar.
„Sérstakar“ aðstæður
Innrás Rússa á Krímskaga hófst
með þessum orðum Pútíns: „Vegna
hinna sérstöku aðstæðna í Úkraínu
og ógnar sem steðjar að rússnesk-
um ríkisborgurum, fer ég þess á leit
við efri deildina að fá að beita rúss-
neskum hersveitum á úkraínsku
landsvæði þangað til ástandið
verður að nýju eðlilegt.“ Þetta er
beiðnin sem Vladimír Pútín lagði
fram í efri deild Dúmunnar (rúss-
neska þingsins) og var samþykkt
þar. Í kjölfar þess streymdu rúss-
neskir hermenn til Krímskaga.
Reyndar er talið að rússneskir her-
menn hafi verið byrjaðir að fara til
Krímskagans áður en þingið sam-
þykkti beiðni Pútíns. Engar fregn-
ir hafa hins vegar borist af ógn eða
tilræðum við Rússa af hálfu Úkra-
ínumanna.
Krímskagi mikilvægur Rússum
Krímskagi er um það bil einn
fimmti hluti Íslands að stærð og til-
heyrði Rússum frá árinu 1783. Þar
á undan var skaginn undir stjórn
Ottóman-veldis Tyrkja. Nikita
Krústsjov, leiðtogi Sovétríkjanna
frá 1953–1964 var sjálfur frá Úkra-
ínu og ákvað að færa Úkraínu skag-
ann árið 1954. Ákvörðun sem er
umdeild og tengist átökum dags-
ins í dag. Við endalok Sovétríkj-
anna árið 1991 hélt skaginn áfram
að tilheyra Úkraínu.
Hann hefur gríðarlega
hernaðar þýðingu, sem birtist í því
að með aðstöðu þar hafa Rússar
greiðan aðgang að Miðjarðarhaf-
inu, Atlantshafi og Indlandshafi (í
gegnum Súez-skurðinn í Egypta-
landi). Rússneski flotinn væri í
raun vængstýfður án aðstöðunnar
á Krímskaga.
Sérstakur samningur er í gildi á
milli Rússa og Úkraínumanna um
aðstöðuna í Sevastopol og gildir
hann fram á miðja þessa öld. Rúss-
ar eru í meirihluta íbúa skagans,
eða um 60%, Úkraínumenn eru að-
eins um 25% íbúanna. Frá hruni
Sovétríkjanna hefur Krímskaginn
notið sjálfstjórnar og síðustu daga
hefur ákall um atkvæðagreiðslu
um aukna sjálfsstjórn heyrst.
Skotum hleypt af
Ástandið er gríðarlega eldfimt og
síðastliðinn þriðjudag var skotum
hleypt af við Belbek-herflugvöllinn
í Sevastopol, þar sem rússneskir
og úkraínskir hermenn stóðu
andspænis hvor öðrum. Rússnesk-
ir hermenn sem stóðu vörð um
hertekinn flugvöllinn hleyptu af
nokkrum hrinum úr AK-47-riffl-
um. Atburðir sem þessir geta auð-
veldlega kveikt bál sem gæti logað
lengi og af miklum krafti. Í sam-
tali við BBC sagðist Jan Eliasson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, hafa orðið mjög
skelkaður yfir þessu og velt því
fyrir sér hvort þetta væri líkt og í
Sarajevo árið 1914, þegar pólitískt
morð hleypti af stað fyrri heims-
styrjöldinni.
Sama daga gaf John Kerry,
utan ríkisráðherra Bandaríkjanna,
einnig út yfirlýsingu þess efnis
að Bandaríkjastjórn hygðist veita
Úkraínu 120 milljarða íslenskra
króna tryggingu fyrir láni og ESB
hefur einnig sagt að það sé reiðu-
búið að hjálpa Úkraínu að greiða
um 250 milljarða skuld landsins
við Gazprom, hins ríkisrekna olíu-
risa Rússlands, sem sér Úkraínu
Þetta hefur gerst í Úkraínu
21. nóvember, 2013
Úkraínustjórn hættir við
samningaviðræður við ESB um
efnahagssamstarf og snýr sér
að Rússlandi. Mótmæli hefjast í
Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.
24. nóvember
Um 200.000 manns
mótmæla á „Sjálfstæð-
istorginu“ í Kænugarði.
30. nóvember
Óeirðalögregla lætur mót-
mælendur finna fyrir sér
og um 40 manns særast.
17. desember
Þáverandi forseti lands-
ins, Viktor Janúkóvits, fer
til helsta stuðningsaðila
síns, Vladimírs Pútín, for-
seta Rússlands, og fær boð
um risastóran stuðnings-
pakka frá Rússum. Úkraína
rambar á barmi gjaldþrots.
19. janúar 2014
Tugir særast í aðgerðum
óeirðalögreglu í Kænu-
garði.
25. janúar
Janúkóvits býður
stjórnarandstöð-
unni aðild að
ríkisstjórninni, því
boði er hafnað.
28. janúar
Mikola Azarov
forsætisráðherra
segir af sér.
3. febrúar
ESB, BNA og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn íhuga stuðn-
ingspakka til Úkraínu, gegn
því að landið útfæri áætlun
um pólitískar umbætur.
18. febrúar
Fjöldi almennra
borgara og lög-
reglumanna falla
í miklum óeirðum í
Kænugarði.
22. febrúar Þingið
í Kænugarði setur Viktor
Janúkóvits af sem forseta
landsins, daginn eftir flýr
hann höfuðborgina og
síðan til Rússlands.
26. febrúar
Rússland byrjar her-
æfingu við landamæri
Úkraínu.
27. febrúar
Þingið í Simferopol,
höfuðborg Krímskagans
(þar sem meirihluti íbúa
er Rússar), fer fram á
atkvæðagreiðslu um
sjálfstæði.
28. febrúar
Viktor Janúkóvits (sem
hvarf í nokkra daga)
kemur fram opinberlega
í rússneska bænum
Rostov og segist enn
vera lögmætur forseti
landsins.
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
Hverjir eru þeir? Krímskagi fylltist af ómerktum, en þungvopn-
uðum, rússneskum hermönnum í byrjun vikunnar. Þeim er ætlað
að gæta Rússa á Krímskaga. Í samtali við fréttakonu sænska sjón-
varpsins sögðust umræddir hermenn vera frá plánetunni Mars!