Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 28
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
28 Umræða Helgarblað 7.–10. mars 2014
Svo hringdi ég í mömmu
og sagði henni að koma
Þegar skolpið glitrar
Barnabarn Hallbjörns Hjartarsonar fyrir Héraðsdómi Norðurlands. – DV.is
Þ
að er aftur orðin lenska á Ís
landi að ráðamenn, sumir
hverjir, ræði aðeins við þá fjöl
miðla sem þeim eru þóknan
legir. Þetta varð bersýnilegt þegar
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis
ráðherra neitaði að ræða við frétta
mann Ríkisútvarpsins um málefni
Úkraínu nema fá viðtalið sent óklippt.
Gunnar Bragi sneri sér síðan að frétta
manni 365 og ræddi við hann án skil
yrða. Þarna varð allt í einu sýnilegt
hvernig stjórnmálamaður, sem and
lega ræður ekki við völd sín, reynir
skýlaust að ritskoða fjölmiðil. Og það
er dæmi gerður undirlægjuháttur að
fréttamaður annars fjölmiðils hleypur
í skarðið í sömu andrá og spyr spurn
inga sem ráðamanninum virðast
þóknanlegar. Þetta atvik er lýsandi
fyrir ástandið í íslenskum fjölmiðlum
þar sem stór hluti er í því að sleikja
sig upp við ráðamenn og gæta þess
vandlega að styggja þá ekki. Höfð
ingjasleikjurnar eru víða. Árásirnar á
fréttastofu Ríkisútvarpsins eru ómak
legar og grímulaus tilraun til að traðka
niður vandaða umfjöllun í þágu al
mennings í landinu.
Dansað við valdamenn
Þeir eru nokkrir stjórnmálamennirnir
sem ganga fram með þeim hætti
að ræða aðeins við vinveitta fjöl
miðla sem spyrja réttu spurning
anna og gæta þess vandlega í spunan
um að ráðamaðurinn þeirra komi
vel fyrir. Þetta má rekja til forsætis
ráðherratíðar Davíðs Oddssonar
sem neitaði ákveðnum fjölmiðlum
um viðtöl árum saman. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson er sama mark
inu brenndur. Hann er beinlínis inni
á gafli ákveðinna fjölmiðla sem hann
veit að eru ekki að leita sannleikans
að óþörfu. Það var einkar athyglisvert
að svo virtist sem forsætisráðherr
ann héldi að hann væri mættur í slíkt
hefðbundið hjal til Gísla Mar teins
Baldurssonar í þættinum Sunnu
dagsmorgni í Ríkisútvarpinu. Gísli
stóð undir nafni sem fjölmiðlamað
ur þegar hann spurði hvassra spurn
inga og gekk eftir svörum í stað þess
að samþykkja loðmullu ráðherrans
sem sjaldnast svarar af einlægni. Og
það var lýsandi undir lok þáttarins
þegar forsætisráðherra Íslands sagði
að Gísli hefði sannað að hann væri
ekki sérstakur stuðningsmaður ríkis
stjórnarinnar. Þetta viðhorf er því
miður ríkjandi og dæmigert. Spilltir
fjölmiðlamenn stíga dansinn við
valdamennina og gæta þess vandlega
að stíga ekki á neinar tær. Viðhorfið er
að þeir sem eru ekki með ríkisstjórn
inni eru á móti henni.
Kjarkleysi
Sigmundur Davíð hefur ítrekað
neitað DV um viðtal af ástæðum sem
hann hefur ekki skýrt nema með
óljósum skilaboðum um að honum
líki ekki leiðaraskrif eða efnistök í
fréttum. Öllu líklegra er að hann glími
við kjarkleysi. Ekki er í boði að semja
við hann um spurningar og þá þor
ir hann ekki. Sigmundur Davíð hefur
ítrekað neitað DV um viðtal af ástæð
um sem hann hefur ekki skýrt nema
með óljósum skilaboðum um að hon
um líki ekki leiðaraskrif eða efnis
tök í fréttum. Öllu líklegra er að hann
glími við kjarkleysi. Ekki er í boði að
semja við hann um spurningar og þá
þorir hann ekki. „Ég tala ekki við DV,“
er viðkvæði hans líkt og svo margra
annarra sem gengið hafa fram með
vafasömum hætti. Og það er sumpart
skiljanlegt að þeir sem þurfa að fela
kjósi myrkrið fremur en dagsbirtuna.
Fjöldi stjórnmálamanna hefur mætt
á Beina línu DV til að svara lesendum
milliliðalaust. Framsóknarmaðurinn
Vigdís Hauksdóttir hefur ævinlega
haft kjark til að svara og hefur mætt
á Beina línu oftar en einu sinni.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð
herra er einn þeirra sem þorað hafa
að mæta fólkinu í landinu án þess
að vera með þjón sinn sem millilið.
Sama er að segja um flesta aðra ráð
herra Sjálfstæðisflokksins. Þar verður
þó að undanskilja innanríkisráðherr
ann sem glímir við erfið lekamál. Aðr
ir hafa hiklaust mætt og svarað fyrir
sín mál án þess að gera kröfu um að
stuðningsmenn þeirra séu á fjölmið
lunum, malandi yfir rjómaskál valda
klíkunnar.
Brúin til flokksins
Sagan geymir fjölda tilvika þar sem
ráðamönnum hefur verið hlíft. Frægt
er þegar fyrrverandi forsætisráðherra
missti stjórn á sér í viðtali við frétta
mann Ríkisútvarpsins. Atvikið varð
undir suðandi upptökuvélum en það
undarlega gerðist að inni á fréttastof
unni var tekin ákvörðun um að birta
myndskeiðið ekki. Vinir valdsmanns
ins gripu í taumana og þetta mynd
skeið var grafið á góðum stað. Ann
að svipað tilvik þar sem ráðamaður
trompast var saltað en fréttamaður
inn ákvað sjálfur að birta það löngu
síðar á öðrum vettvangi. Frægt var
að á ritstjórn DV var fyrir mörgum
árum útsendari Sjálfstæðisflokksins
sem var aðallega í því að gæta þess
að ráðherrar yrðu ekki fyrir hnjaski.
Um þann sorglega tíma í sögu DV var
fjallað eftirminnilega í tímariti Máls
og menningar þar sem Páll Ásgeir
Ásgeirsson blaðamaður lýsti þeirri
stemmingu sem var í kringum út
sendarann sem hafði það hlutverk
helst á ritstjórninni að vera brúin frá
flokki til fjölmiðils.
Það er þörf á því að fjölmiðl
ar séu heilir í því að þjóna almenn
ingi í landinu. Málefni forsætisráð
herrans benda til þess að spilling
fari dagvaxandi. Styrkjum er beint til
vina Framsóknarflokksins eftir geð
þótta forsætisráðherra. Kosningalof
orð eru hiklaust fótum troðin í svína
stíu íslenskra stjórnmála. Himinn
og haf eru á milli orða og efnda. Þar
nægir að benda á boðaðar skulda
lausnir heimilanna og yfirvofandi slit
á viðræðum um aðild að Evrópusam
bandinu. Vandaður embættismað
ur er hrakinn úr starfi vegna annar
legra hagsmuna. Nýjast í þeim efnum
er aðförin að Stefáni Thors, fráfarandi
ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneyt
isins, sem áminnti frænku valdsins.
Skattfé gefið í smáskilaboðum
Ráðherra afturkallaði áminn
inguna og frænkan fékk betra starf.
DV hefur fjallað ítarlega um þetta
mál en flestir þegja líkt og var framan
af í lekamálinu. Hinir spilltu fjölmiðl
ar hjálpa til við að útvarpa lyginni
sem blekkir almenning til fylgilags
við öfl sem stjórnast af fyrirlitningu
á lýðræðinu, valdagræðgi og frænd
hygli. Og á meðan það er látið við
gangast átölulaust að þaggað sé niður
í heiðarlegum fjölmiðlum versnar
ástandið. Þá verður sjálfsagt að út
hluta vildarvinum skattfé með smá
skilaboðum. Orð verða einskis virði
og blekkingin sjálfsögð. Þjóðin verð
ur að spyrna við fótum og tryggja
aðhald gegn spillingunni. DV mun
halda áfram að spyrja spurninga og
væntanlega heldur þöggunin áfram.
Spilltir valdamenn munu halda
áfram að hlaupa í skjól hliðvarðanna
sem hafa helst það hlutverk að láta
lygina líta út sem tæran sannleika.
Skolpið birtist almenningi sem glitr
andi lækur á sólríkum sumardegi.
Svona er Ísland, því miður. n
Hefnd ráðherrans
Stefán Thors ráðuneytisstjóri í um
hverfisráðuneytinu varð ekki lang
lífur í starfi eftir að Sigurður Ingi
Jónsson umhverfisráðherra tók
við embætti. Stefáni, sem hefur
orð á sér sem vandaður embættis
maður, var ekki líft í starfi undir
Sigurði Inga. Varð úr að hann fer
í námsleyfi til eins árs. Enginn
reiknar með að hann snúi aftur.
Fæstir reikna með að hann snúi
aftur til að starfa með ráðherran
um. Þess er skemmst að minn
ast að hann áminnti starfsmann
sinn, Hrafnhildi Ástu Þorvalds-
dóttur, en ráðherrann afturkallaði
áminninguna. Sem skipulagsstjóri
hafnaði Stefán umhverfismati
vegna Kárahnúka á sínum tíma og
þvældist fyrir Framsókn.
Farinn úr Grafarvogi
Um áratugaskeið hefur Sigmundur
Ernir Rúnarsson, fyrrverandi þing
maður, búið í Grafarvoginum og
verið einn helsti og besti fulltrúi
byggðarkjarn
ans út á við. En
nú hefur orðið
breyting þar á því
Sigmundur og
kona hans, Elín
Sveinsdóttir, hafa
flutt búferlum og
eru komin á Laufásveg í miðbæ
Reykjavíkur. Það er öðrum þræði
hentugt því Sigmundur starfar
nú hjá auglýsingastofunni Pipar
sem er í göngufæri á Tryggvagötu.
Svo er stutt í Alþingi ef mál æxlast
þannig.
Bensínsölumaður
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis
ráðherra liggur frekar lágt í um
ræðunni. Mönnum er gjarnt að
tala niður til hans og rifja gjarnan
upp fortíð hans á
framabrautinni
sem bensínsölu
maður á Sauð
árkróki í skjóli
Þórólfs Gíslasonar
kaupfélagsstjóra.
Eiður Guðnason,
fyrrverandi ráðherra, gerir frama
Gunnars Braga að umtalsefni á
Facebook: „Eitt er að selja bensín
á Sauðárkróki. Með fullri virðingu
fyrir bensínsölumönnum almennt.
Annað er að vera utanríkisráð
herra“.
Fokreiður eiginmaður
Eygló Harðardóttir velferðarráð
herra hefur smám saman verið
að styrkja sig á stjórnmálasviðinu.
Hún þykir hafa allt annan brag en
karlkyns ráðherr
ar Framsóknar
flokksins sem
liggja lágt í um
ræðunni vegna
stjórntakta sem
sumpart eru utan
almenns velsæm
is. En þótt Eygló sé orðvör og ró
lynd í framgöngu er eiginmaður
hennar, Sigurður E. Vilhelmsson,
ekki eins yfirvegaður. Þau hjónin
eru að sögn fórnarlömb ólöglegs
láns sem er í eigu Landsbankans
og hann er ævareiður. „Nú eru 18
mánuðir síðan ég fór fram á að
þessi skítabúlla endurreiknaði
ólöglega lánið …“ skrifaði hann á
Facebook.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari
„Ég tala
ekki við DV
Þetta var mjög
skemmtilegt
Hulda Halldóra Tryggvadóttir stílisti vann fyrir tískuhúsið Kenzo. – DV
Draumurinn var að
komast í topp 10
Margrét Edda Gnarr er ánægð með gott gengi á Arnold Classic. – DV
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
Malta er súkkulaði …
Á
meðan hungursneyðin í
Evrópu grasserar og volæðið
í bandalagi nágrannaþjóða
okkar ærir óstöðuga fram
sóknarmenn, þá er til fólk
sem heldur að það sjálft skarti nafla
alheimsins. T.d. er til maður sem sótti
alla menntun sína á bensínstöð. Og
hann ljómar af slíku sjálfsofmati að
annað eins hefur ekki sést um langa
hríð. Maður þessi er að vísu hluti
af fáfróðasta teymi sem farið hefur
með völd í lýðræðisríki. Og jafnvel
þótt leitað sé út fyrir flóru ríkja sem
kenna sig við lýðræði, mun ekki hægt
að finna aðra eins gáfumennahjörð í
hnapp á einum og sama blettinum.
Lygaþvælan og þruglið sem upp
úr ráðamönnum Íslands kemur, er
sárgrætilegt. Og nú er svo komið að
þjóðin verður að bretta upp ermar,
berja í búsáhöld og koma þessum
slóðum frá störfum.
Hvernig getur gáfaðasta þjóð í
heimi lent í þeim ósköpum?
Hringlandahátturinn er þess eðlis
að maður á von á því að menn skjóti
sig óvart í höfuðið eða láti hanka sig
á einhverju þaðan af gáfulegra. Þeir
standa í röð og bíða eftir því að fá að
pissa í skóna sína.
Á meðan þessi stjórn fær leyfi
til að þvaðra um inngöngu, þjóðar
atkvæði, kosningaloforð og eitt og
annað sem snýr beint að því hvert
skútunni skal stefnt, þá bíður fólk
eftir efndum. Já, á meðan þessi grey
fá leyfi til opinbera heimsku sína á
aljóðavettvangi, þá er hér fólk sem
er í heljargreipum hafta, skulda og
ótta. Heimilin í landinu bíða eftir
lausnum sem áttu að koma strax eftir
kosningar. Og þjóðin má bíða, því
gáfnaljósin hafa mesta yndi að því að
þrefa um það hvernig á að fara að því
að standa ekki við loforð um þjóðar
atkvæðagreiðslu.
Ef hæstvirt blábjánahjörð fær öllu
lengur að halda um stjórnartauma,
verður hungursneyð okkar ágætu
þjóðar að staðreynd áður en langt
um líður.
Þessi ríkisstjórn er vanæf. Hafi
einhvern tíma verið vanhæf ríkis
stjórn á Íslandi, þá er það ríkisstjórn
Sigmundar Davíðs Oddssonar. n
Í alþingishúsi má heimskingja sjá
sem hugsa víst aldrei of mikið
og lygarar okkar þeir líta þar á
þau loforð sem þeir hafa svikið.
„Lygaþvælan og
þruglið sem upp-
úr ráðamönnum Íslands
kemur, er sárgrætilegt.