Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Síða 30
30 Umræða Helgarblað 7.–10. mars 2014
Grímsskagi Umsjón: Henry Þór Baldursson
Kúgun í fimmhundruð ár
Í
slendingar hafa alltaf verið
kúguð þjóð, ekki af öðrum þjóð-
um heldur forréttindahópum
sem hafa haft völd á Íslandi í
hundruð ára. Það voru ekki Dan-
ir sem kúguðu okkur þótt að reynt
hafi verið að innræta það í grunn-
skóla að þeir hafi fært okkur út-
þynnt brennivín og ormétið mjöl.
Þeir færðu okkur þó það. Ómök-
uðu sig við að sigla með þennan
varning yfir Norður-Atlantshaf. Ekki
var talað eins illa um íslensku ein-
okunarkaupmennina sem seldu
varninginn dýrum dómi.
Okkar kúgarar hafa alltaf verið
við sjálf. Má nefna bændahöfðingja
sem árið 1404, settu lögin um vist-
arbandið sem í stuttu máli skylduðu
alla Íslendinga til þess að þjóna
bændum til sjávar og sveita. Girtu
fyrir frjálsborið líf venjulegs fólks og
gerðu það eign bænda. Þessi ömur-
legu lög voru lítið annað en þræl-
dómur og voru ekki afnumin fyrr en
1893, eða um 500 árum síðar.
Eða hvað? Í dag eiga bændahöfð-
ingjarnir lítið sameiginlegt með hin-
um dæmigerða íslenska bónda nú-
tímans, en kúgunin heldur áfram.
Kúgararnir í dag eru hagsmuna-
öfl fjármagnseigenda og útgerðar-
manna sem beita áhrifum sínum
nánast í öllum kimum samfélagsins.
Fólk ýmist óttast áhrif þeirra eða
situr um þá eins og soltnir hund-
ar í þeirri von að beinflís falli af
allsnægtaborði þeirra. Jafnvel þótt
að flísin feli í sér að selja sálu sína og
ganga gegn heiðarleika, jafnrétti og
réttlæti, grunngildum lýðræðislegs
samfélags.
Nornin lifir góðu lífi
Ótti Íslendinga í gegnum aldirnar
við nornir og aðrar vættir eru liðin
tíð. Er það? Ein norn lifir hér góðu
lífi. Hún hefur verið kölluð ýmsum
nöfnum í gegnum tíðina. Hún þjón-
ar sínum húsbónda vel, kúgurunum
sem beita henni vægðarlaust fyrir
sig. Særa hana upp gegn almenn-
ingi sem á sér ekki viðreisnar von
gegn henni. Farið hefur verið í leið-
angra til þess að kveða hana niður
en í hvert skipti rís upp húsbóndi
hennar í gervi alls kyns sérfræðinga
og spekúlanta sem tala í útúrsnún-
ingum og koma með alls kyns tölu-
legar æfingar. Þeir geta þó aldrei
réttlætt ranglætið sem felst í því að
borga lán næstum því sexfalt upp út
40 ára lánstímann. Nornin er vistar-
bandið, verðtryggingin. Hún heldur
fólki í þrældómi síhækkandi skulda.
Átthagafjötrum húsnæðis sem það
á ekkert í, og étur upp kjarabætur
fólks. En þetta er ekki það sem verð-
tryggingin gerir best. Hennar mesta
ánægja er að berja draumana úr
fólki, halda því í greipum kvíða
sem býr um sig í huga þess, ótta
við næstu mánaðamót, þar næstu,
„hvernig verður þetta eftir tvö ár“.
Verðtryggingin beitir almenning
andlegu ofbeldi.
Hundunum er alveg sama um
fólkið í landinu. Þeir fá jú sitt,
vilja alls ekki upplifa bitran raun-
veruleikann. Brauðstriti til þess að
halda þakinu yfir höfuðið.
Þeir gegna margir miklum
ábyrgðarstöðum í samfélaginu,
beita áhrifum sínum til þess að full-
nægja vilja húsbónda síns. Beita
sömu aðferðum, kúga, hóta, standa
ekki við gefin loforð, sýna ótrúlegan
hroka, bera ekki ábyrgð. Ganga jafn-
vel gegn sinni samvisku og loforðum
sem þeir gáfu kjósendum sínum og
vonina um betra líf. Þeir kúga, hóta
og beita aðra í hjörðinni þrýstingi.
Sagan mun dæma þá, nema þá að
þeir nái að endurskrifa hana sjálfir.
Einokun í dulargervi
Vistaránauðin er enn til staðar og
almenningur enn kúgaður. Einok-
unin er enn við lýði í dulargervi fá-
keppni og samráðs. Hinn þungi
kvíði og þrælsótti heltekur huga
fólks sem bregst við eins og vanrækt
barn, með lærðu hjálparleysi, sættir
sig við aðstæðurnar, gerir ekki neitt.
En reiðin fer ekki neitt. Samviska og
réttlætiskennd þess öskrar.
Þegar ég hugsa um fjölskyldu
mína og barnið í maga konu minn-
ar veit ég að börnin mín munu einn
dag spyrja mig. „Pabbi, af hverju
þarf þetta að vera svona. Af hverju
gerir enginn neitt?“ Þá veit ég ekki
hvað ég á að segja, Ég get þó sagt
eitt. Ég skrifaði grein í blaðið, hafði
hugrekki til þess að segja mína
skoðun, ég reyndi, fyrir framtíð ykk-
ar“. Þú sem hefur risið úr doðanum
og lesið þessa grein. Hvað ætlar þú
að gera. Ætlar þú að láta kúga þig og
afkomendur þína í önnur 500 ár? n
Guðmundur S. Erlingsson
nemi við félagsráðgjafadeild HÍ
Aðsent „Vistaránauðin er
enn til staðar og
almenningur enn kúgaður.
Mest lesið
á DV.is
Vinsælast á fimmtudaginn
1 „Þetta er þöggun á mig sem persónu“ Vigdís Hauks-
dóttir þingmaður segir það „dæmalaust“
að BÍ fordæmi hvatningu hennar varð-
andi auglýsingu í Kvennablaðinu.
17.768 hafa lesið
2 „Svo hringdi ég í mömmu og sagði henni
að koma“ Afabarn Hallbjörns
Hjartar sonar bar vitni fyrir dómi á
Sauðárkróki í átakanlegu fjölskyldumáli.
11.277 hafa lesið
3 Ebba Guðný viðstödd réttarhöldin yfir Oscari
Pistorius Bókaútgefandinn og
heilsukokkurinn Ebba Guðný Guð-
mundsdóttir er á meðal þeirra sem hafa
verið viðstaddir aðalmeðferðina í máli
suðurafríska spretthlauparans.
10.960 hafa lesið
4 Er ástvinur þinn þung-lyndur? DV greindi frá tíu leiðum
til að sýna þunglyndum einstaklingi hlýju.
8.446 hafa lesið
5 Engar eignir í búi Bóasar Siptum er lokið á búi athafna-
mannsins Bóasar Ragnars Bóassonar,
en engar eignir fundust í þrotabúinu.
9.392 hafa lesið
6 Dæmdur í Stokkseyrar-máli og ákærður fyrir
að skera mann á háls Gísli Þór
Gunnarsson afplánar nú tveggja og hálfs
árs dóm fyrir þátttöku í sólarhringslöngum
misþyrmingum.
7.141 hafa lesið