Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 41
Helgarblað 7.–10. mars 2014 Lífsstíll 41
Dagur kynþokkafyllstur
6 Guðmundur
Steingrímsson
„Með dass af kynþokka. Mætti raka sig.“
„Klár, það er alltaf kynþokkafullt!“
„Með myndarlegri mönnum landsins. Ber af
í kynþokka á þinginu.“
„Býr yfir klassískum kynþokka og tímalausri
fegurð. Orðheppinn, spilar á harmonikku og
klæðir sig töff. Það er mjög kynþokkafullt.“
„Mjög fyndinn og skemmtilegur. Það er ekki
til neitt meira sexí en hann að spila Lick it
Up á harmonikku.“
4–5 Bjarni Benediktsson
„Með þetta sterka karlmannlega súpemann-útlit. Geislar af
kynþokka. Mér myndi ekki bregða ef hann væri í súpermann-búningi
undir jakkafötunum.“
„Með stíl sem aðrir öfunda. Alveg sama hvað hann setur á sig, hann
púllar það með bravúr. Stórt bindi, lítið bindi, þykkur jakki, mjór jakki,
litir, svart – allt leikur þetta í höndunum á honum. Dulur á svip. Eins og
hann gefi ekki alveg allt upp. Það er sexí.“
„Þarf að hugsa um línurnar en annars mjög flottur.“
„Sama hvað þér finnst um stjórnmálamanninn Bjarna Ben þá er karlmað-
urinn Bjarni Ben „drop dead“ sexí.“
„Það er eitthvað við Bjarna, en samt erfitt að festa fingur á
hvað. Einfaldlega löðrandi í kynþokka, sérstaklega
þegar hann er ákveðinn og öruggur. Það fer
honum hins vegar ekki vel að vera æstur
og reiður, þá verður hann bara rjóður
í kinnum eins og lítill skólastrákur.
Ekkert kynþokkafullt við það!“
„Myndarlegur, ríkur og valdamikill.
Konur leita að mönnum með einn af
þessum eiginleikum en hann hefur
þá alla. Auk þess er hann yfirvegað-
ur og svalur, fyndinn og með fallegt
bros. Fullkominn!“
4–5 Katrín
Júlíusdóttir
„Röff og töff.“
„Hefur sjarma. Kemur til dyr-
anna eins og hún er klædd.“
„Grjóthörð nútímakona úr
Kópavoginum með gjörsamlega
allt á hreinu!“
„Svo skemmtileg að það er ekki
annað hægt að finnast hún
kynþokkafull og flott. Hún fær
mitt atkvæði.“
„Lætur ekki ganga yfir sig.“
„Alltaf verið gullfalleg. Hjartahlý
og góð kona sem getur heillað
hvern sem er upp úr skónum.“
7–9 Jón Þór Ólafsson
„Krúttlega sexí. Vel greiddur. Mætti fara úr jakkanum oftar.
Hugsar greinilega um lúkkið.“
„Gæti kramið í manni hjartað en samt alltaf kveikt
neistann sem maður er að reyna slökkva – aftur og aftur
og aftur.“
„Bjargaði sjónvarpsumræðunum fyrir kosningar. Ekki með
því að tala heldur með því að vera.“
7–9 Jón Gnarr
„Húmor kveikir í mér og
þessir maður hefur nóg
af honum – stundum
kannski of mikið.
Rauða hárið skemmir
heldur ekki fyrir. Mig
langar að greiða
honum og gefa
honum vínber.“
„Það vita allir
að Jón Gnarr er
einn fyndnasti
maður allra tíma.
Fyndnir karl-
menn eru sexí.
Þetta er ekkert
sérstaklega
flókið!“
„Góður húmor
er sexí.“
7–9 Hildur Sverrisdóttir
„Sjarmatröll Sjálfstæðisflokksins. Hefur þetta úthverfalúkk sem er
svo sjarmerandi. Það er eitthvað sem segir manni að hún sé búinn
með miðbæjarpakkann og nenni ekkert lengur að vera úti til hálf
sex. Vilji frekar fara í bústað, spila skrabbl og borða kex með sultu og
sötra hvítt og bjór.“
„Með geislandi útlit og smitandi bros.“
„Ung, frjálslynd og skrifaði heila bók um kynlífsfantasíur kvenna. Yfir-
leitt sæt, fyndin og skemmtileg. Lögfræðimenntuð og getur auðveld-
lega pakkað karlmönnum saman í kappræðum. Kynþokkafull blanda
af ferskleika, frjálslyndi og gáfum sem heillar alla upp úr skónum.“
10–13
Willum Þór Þórsson
„Ferskur vindur í pólitíkinni.
Sjóðheitur keppnismað-
ur. Suðræna útlitið og
skapið. Samt svona ljúfur í
ræðupúltinu, örugglega góð-
ur í ljóðalestri líka. Fáum vonandi að
sjá meira af honum í framtíðinni.“
„Gríðarlega myndarlegur innan vallar sem
utan og núna sem stjórnmálamaður líka.“
10–13
Haraldur Einarsson
„Hönkið á þinginu.
Sá hann hlaupa á
Landsmóti í sumar,
leynast vöðvar undir
þessu andliti. Vöðvar
sem segja einn, tveir,
þrír, fjórir, fimm og sex.“
„Fagur, fitt og eldfljótur.“
10–13
Heiða Kristín
Helgadóttir
„Sexí. Ég myndi alveg
pína mig í sleik og með'í með
henni.“
„Klár og klók.“
10–13
Helgi Hrafn Gunnarsson
„Hrikalega sætur. Flottur með
svona sítt hár eins og John
Smith.“
„Hefur stokkið hratt upp
listann yfir kynþokka-
fyllstu stjórnmálamenn-
ina. Sannur uppreisnarmaður
með sítt hár og skegg. Með rétta hattinum gæti
Helgi breyst í sjálfan kaptein Jack Sparrow en
jafnvel án hattsins er Helgi Hrafn hættulega kyn-
þokkafullur. Gæti náð toppsætinu með árunum.“