Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 42
Helgarblað 7.–10. mars 201442 Lífsstíll
Undir áhrifum frá McDonald's
n Jeremy Scott sótti innblástur til frægra vörumerkja n Ekki allir á eitt sáttir við hönnunina
F
yrsta lína fatahönnuðarins
Jeremy Scott fyrir Moschino
hefur vakið mikla athygli. Lín-
an sem er haust- og vetrarlína
tískuhússins var frumsýnd á
tískuvikunni í Mílanó á dögunum. Í
hönnun sinni á línunni er hönnuð-
urinn meðal annars undir augljósum
áhrifum frá þekktum vörumerkjum
eins og skyndibitarisanum McDon-
ald's, Svampi Sveinssyni, Budweiser,
Cheetos, Hershey's og Froot Loops.
Móðgandi af hönnuðinum
Sitt sýnist hverjum um þessa hönnun
hans og hafa einhverjir starfsmenn
McDonald's sagt að hún sé móðg-
andi meðan aðrir eiga ekki til orð yfir
snilldina.
„Sá sem veit hvernig það er að
vinna á McDonald's veit að það er
ekkert tískulegt við það,“ segir Mia
Brusendorff, fyrrverandi starfs-
maður skyndibitakeðjunnar, í sam-
tali við MailOnline. „Vitandi að ein-
hver sé tilbúinn til þess að borga
1.000 dollara fyrir flík sem sækir
innblástur sinn til starfsmanna
McDonald's sem fá lágmarkslaun
er lítilsvirðing við starfsfólkið,“ seg-
ir þessi fyrrverandi starfsmaður
sem finnst fatahönnuðurinn gera
lítið úr starfsmönnunum og vinnu-
aðstæðum þeirra.
Barnabox-taskan
seldist upp samdægurs
Daginn eftir sýninguna, sem fór fram
20. febrúar, fór hluti línunnar í sölu
undir nafninu Fast Fashion, skyndi-
tíska. Þar á meðal taska sem svipar
óneitanlega til barnaboxanna sem
McDonald's selur við miklar vin-
sældir. Tískuunnendur virðast vera
hrifnir af línunni en taskan fræga
kostaði 1.265 dollara eða um 115
þúsund krónur íslenskar og seldist
upp samdægurs. Einnig í sömu línu
var boðið upp á peysu sem kostar 780
dollara eða rúmar 88 þúsund krónur,
bol á 350 dollara, eða tæpar 40 þús-
und krónur, og iPhone-hulstur á 78
dollara, eða tæpar 9 þúsund krónur.
Vissu ekki af línunni
Fræga fólkið virðist vera hrifið af
þessari hönnun Scotts en stjörnur á
borð við Kate Perry, Ritu Ora, Önnu
Dello Russo og Jourdan Dunn hafa
allar sést í rauðum og gulum flík-
um úr línunni. McDonald's hefur
staðfest að þeir hafi ekki vitað af línu
Moschino og hafa ekki viljað gefa
upp hvort þeir muni fara í málaferli
við hönnuðinn og tískuhúsið vegna
þessa. n
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Má bjóða þér veski? Veskið er í anda barnaboxanna
frá McDonald's.
Rautt og gult Fötin sem eru innblásin
af McDonald's eru öll í einkennislitum
keðjunnar.
Hönnuðurinn Hér sést Jeremy Scott með tveimur fyrirsætum úr sýningunni.
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4-
05
66
Kia Sorento EX Luxury
Árg. 2012, ekinn 47 þús. km,
dísil, 197 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,7 l/100.*
Verð: 6.290.000 kr.
Kia Sorento EX Classic
Árg. 2012, ekinn 44 þús. km,
dísil, 197 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,7 l/100.*
Verð: 5.590.000 kr.
Kia Carens EX 7 manna
Árgerð 2013, ekinn 26 þús. km,
dísil, 136 hö., beinskiptur,
eyðsla 5,1 l/100.*
Verð: 4.150.000 kr.
Kia cee‘d LX 1,6
Árg. 2012, ekinn 45 þús. km,
dísil, 116 hö., 6 gíra, beinskiptur,
eyðsla 4,4 l/100.* Grænn bíll.
Verð: 2.550.000 kr.
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
Veldu notaðan Kia
með lengri ábyrgð
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2013, ekinn 31 þús. km,
dísil, 136 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,9 l/100.*
Verð: 5.590.000 kr.
Greiðsla á mánuði
39.900 kr.
M.v. 58% innborgun og 84 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 11,92%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
Kia Picanto EX 1,2
Árg. 2013, ekinn 8 þús. km,
bensín, 84 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100.*
Verð: 2.390.000 kr.
Greiðsla á mánuði
19.900 kr.
M.v. 56% innborgun og 72 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 12,97%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
7 manna